Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2002, Blaðsíða 25
LAUGARDAGUR 16. FEBRtJAR 2002
25
Yamaha árgerð 2001
Frábært verð!
m H/
DV
Helgarblað
Russell Crowe og Courtney Love
Vináttusambandi Russells og Courtney er lokið.
Russell Crowe og Courtney Love:
Sváfu aldrei saman
Russell Crowe hefur veriö gott
hráefni slúðurblaða að undan-
fornu. Margir muna eflaust eftir
umfjöllun um vináttu hans og
Courtney Love sem margir héldu
að væri eitthvað meira. Sú vinátta
er nú fokin út í buskann því þau
talast ekki lengur við. En þótt þau
tali ekki saman þá kemur það ekki
í veg fyrir að þau tali um hvort
annað. Þau hafa verið dugleg að
ræða hvort annars mál í viðtölum
að undanfomu. Crowe sagði ný-
lega að ástæðan fyrir vinslitunum
hefði verið sú að Courtney hefði
verið dónaleg við unnustu hans,
Danielle Spencer, auk þess sem
hún hefði neitað að koma því al-
gjörlega á hreint að hann hefði
ekki komið að gerð fósturs sem
Courtney missti á síðasta ári.
Courtney Love hefur auðvitað
ekki látið Russell vaða yfir sig í
þessu máli. Hún hefur sagt að
ástæðan fyrir því að vináttusam-
bandinu lauk vera sögusagnir um
að þau hafl sofið saman. Courtney
segir að hún hafi aldrei sofið hjá
manninum og fer fram á afsökun-
arbeiðni frá Russell vegna málsins
í heild sinni. í sama viðtali deildi
Courtney því með heimsbyggðinni
að hún hefði aldrei sofið hjá Ben
Affleck en þau ummæli hennar
þóttu nokkuð skondin þar eð eng-
inn hafði heyrt sögur um aö hún
hefði sofið hjá honum. Það er samt
vissara að taka það fram.
Russell Crowe er líkast til
ánægður með að vera að koma lífi
sínu á hreint. Hann er líklega að
fara að giftast unnustu sinni. Von-
andi veit hún hvað hún er að fara
út í.
Pabbi
lamdi
mig
Amold
Schwarzenegger
er vöðvabúnt.
Amold hefúr eins
og allir vita ekki Schw'a’rzenegger.
hneigst til fínlegra
listrænna kvikmynda heldur fremur
farið í átt til meira ofbeldis og annarra
skemmtilegheita. Ástæðan fyrir því
kann að vera fúndin. I viðtali fyrir
skömmu ræðir Schwarzenegger um
uppeldi sitt og viðurkennir að pabbi
hans hafi ekki verið neitt lamb að
leika sér við. „Ég er strangur við böm-
in mín,“ segir Amold, „en í dag er sá
sem slær bamið sitt í andlitið talinn
misnota það. í fortíðinni var það hins
vegar fúllkomlega eðlileg framganga
foreldris." Amold var sem sagt laminn
af foður sínum ef hann var eitthvað að
ybba gogg. Vilja sumir meina að þetta
sé ástæðan fyrir áhuga hans á ofbeldi
og vöðvum. Það er því umhugsunar-
vert hvað í ósköpunum hefúr verið
gert við John Carpenter.
í viðtalinu ræddi Schwarzenegger
einnig um mýkri mál. Sagði hann með-
al annars frá því að í þriðju myndin-
inni um Tortímandann yrði Linda
Hamilton ekki í hlutverki sínu sem
Sarah Connor þar sem persónan væri
látin. Einnig verður Edward Furlong
fjarverandi en framleiðendur myndar-
innar treysta sér ekki til að ráða hann
vegna þess hve hann hefúr fiktað mik-
ið við eiturlyf og áfengi. Þeir leita því
logandi Ijósi að eftirmanni hans.
Julia Roberts:
Á ég að gæta
bróður míns?
Júlía Róberts leikkona gæti mjög
vel tekið sér í munn orð Biblíunnar
og spurt: Á ég að gæta bróður míns?
Bróðirinn í þessu tilfelli er Eric Ro-
berts leikari sem hefur verið þekkt-
ur mun lengur en litla systir. Hann
hefur átt erfltt upp á síðkastið og
séð ástæðu til þess að gagnrýna
systur sína fyrir afskiptaleysi og
skort á hjálp.
Eric hefur sagt opinberlega að
hann hafi geflð systur sinni fyrsta
tækifærið I kvikmyndinni Blood
Red árið 1988 þegar hann var fræg-
ur en hún algerlega óþekkt. Hann
segir að síðan henni fór að ganga
vel en hallaði undan fæti hjá honum
hafi hún aldrei séð ástæðu til að
endurgjalda greiðann. Ekki sé vafi á
að Julia væri í aðstöðu til þess en
hún er talin meðal áhrifamestu
leikkvenna í Hollywood.
Eric sá við þetta sama tækifæri
ástæðu til þess að gera athugasemd-
ir við leik systur sinnar í verð-
launamyndinn Erin Brockovich.
Hann sagðist ekki sjá að hún hefði
gert neitt við það hlutverk annað en
að vera í réttum brjóstahaldara sem
ýtti þeim upp undir höku. Hann
sagðist ekki sjá í myndinni þann
stjömuleik hennar sem allir hefðu
verið að fjasa um.
Julia Roberts
Eric Roberts, bróðir hennar, hefur
ásakaö hana um afskiptaleysi.
SRX 700
SX 700 R
V-Max 700 DX
Venture 500
1.000.000,-
1.000.000,-
1.020.000,-
800.000,-
Skútuvogur 12a, 104 R.vík • Sími 594 6000
Vetrarutsalan er i fullum gangi!
Gerðu góð kaup.
Stendur til 2. mars
Klubbfelagar ath.
Öll innkaup á útsölu fara
inn á klúbbreikning ykkar
NTE
100% SPOfíf
Bíldshöfða • 510 8020 • Smáralind • 510 8030 • www.intersport.is