Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2002, Blaðsíða 56

Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2002, Blaðsíða 56
FRÉTTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV, grpiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 Umhverfisráðherra: Kemur ekki á óvart Siv Friðleifsdóttir umhverfisráð- herra segir stefnu Náttúruvemdar- samtakanna og þriggja einstaklinga á hendur sér vegna úrskurðar hennar um Kárahnjúka- virkjun ekki koma á óvart. Búið hafi verið að segja frá því fyrir allnokkru síðan að slík kæra væri i undirbúningi. Hún segir að úr- skurður ráðuneyt- isins hafi verið gríðarumfangsmikið og lýðræðislegt ferli sem mikil vinna hafi verið lögð í. Það hafi verið 122 aðilar sem nýttu sér rétt sinn til að kæra til ráðherra og þessar kærur . _j. hafi allar fengið ítarlega umfjöllun hjá tugum sérfræðinga á öllum svið- um, þar á meðal í umhverfismati, og þetta hafi orðið niðurstaðan í málinu. Aðspurð segist Siv ekki telja að þessi stefna muni tefja ferlið við virkjunina enda hafi dómstólar samþykkt að veita málinu forgang. -BG Helgi Hjörvar með stærra letri ,. . Útsendir kjörseðlar í prófkjöri Sam- ; ' fylkingarinnar í Reykjavtk, sem nú stendur yfir, hafa vakið athygli glöggra kjósenda. Þar er frambjóðend- um gert mishátt undir höfði og nafn eins þeirra, Helga Hjörvars, er ritað með örlítið stærra letri en annarra frambjóðenda. Einn kjósandi sagði í samtali við blaðið að sér hefði í fyrstu þótt undar- legt hvað augun stöldruðu ósjálfrátt við nafn Helga Hjörvar á kjörseðlin- um. Engu væri líkara en nafn hans höfðaði meira til sín en annarra fram- bjóðenda. Þegar betur var að gáð kom í ljós að letrið í nafni hans var örlítið stærra og hafði það þessi ósjálfráðu viðbrögð á undirmeðvitundina. Þá benti hann einnig á annan galla á kjör- . —^seðlinum, en fóðumafn Hrannars ■ Bjöms Amarssonar er þar ritað með einu essi (Amarson), sem ekki er alveg samkvæmt reglunum. -HKr. Sjá fréttaljós um prófkjör Samfylkingar á bls. 14 Mál Árna Johnsen: Enn í rannsókn Enn er beðið niðurstöðu rannsókn- ar á málum er tengjast meintu mis- ferli Áma Johnsen, fyrrverandi al- þingismanns. Að sögn Jóns H. Snorrasonar ríkissaksóknara er mál- ið enn í vinnslu. Ekki hefur verið gef- in út nein timasetning varðandi lok rannsóknar. Þá hefur heldur ekkert {!a*tverið gefið út um hvers megi vænta um frekari meðferð málsins. -HKr. Nýju húsi ÍE í Vatnsmýrinni var fagnað í gær íslensk erföagreining tók ný húsakynni sín í Vatnsmýrinni formiega í notkun í gær. Húsiö er á þremur hæöum auk kjallara og er um 15 þúsund fermetrar aö flatarmáli. Öll starfsemi fyrirtækisins veröur meö þessu á einum staö sem þykir til mikilla bóta. Margir fðgnuöu þessum tímamótum í starfsemi ÍE í gær og þeirra á meöal var Davíö Oddsson forsætisráöherra. Saman skemmtu þeir sér konunglega, Davíö og Kári Stefánsson, en hvaö þeim fór á milli skal ósagt látiö. VG saka stjórnvöld um leynd og villandi upplýsingar í virkjunarmálum: Hneyksli ef frum varpið fer i gegn - segja tölur um kostnað Landsvirkjunar misvísandi Ögmundur Jónasson, þingflokks- formaður VG, gagnrýnir harðlega hvemig staðið er að málum varð- andi Kárahnjúkavirkjun. í rnnræð- um á Alþingi síðustu daga hafa virkjunarsinnar sagt að náttúru- spjöll samfara framkvæmdunum séu réttlætanleg vegna efnahagslegs ávinnings en harkalega er deilt um arðsemina og virðist ríkja leynd um ákveðna útreikninga. „Niðurstaðan er að það yrði hneyksli ef Alþingi samþykkir frumvarp ríkisstjórnarinnar um virkjanaheimildir án þess að gerö sé grein fyrir öllu. Allt er þetta í skötulíki varðandi efnahagsforsend- ur og arðsemisútreikninga er hrein- lega ekki að finna. Svo ósvlfm er ríksstjómin að veifa framan í Al- þingi yfirlýsingum frá Landsvirkj- un um að slíkir útreikningar hljóti að teljast við- skiptaleyndar- mál, en i Banda- ríkjunum, mið- stöð kapítalism- ans, eru slík við- horf blásin út af borðinu. Þar er viðurkennt að þetta eigi að vera fyrir opnum tjöldum nema hjá Enron og öðrum álíka. Við skulum líka ekki gleyma hverja er verið að leyna upplýsingum. Það er verið áð leyna Alþingi og þjóðina alla þess- um upplýsingum. Ég trúi ekki að menn ætli að ganga frá þessum mál- um án þess að þetta komi fram í dagsljósið," segir Ögmundur. Þingmaðurinn sakar jafnframt yf- irvöld um viliandi upplýsingar. Til Ogmundur Jónasson. dæmis sé gróft misræmi milli upp- lýsinga i úrskurði Skipulagsstofn- unar frá 2. ágúst sl. og hins vegar í plöggum úrskurðar umhverfisráð- herra frá 20. september um kostnað- artölur fyrir Landsvirkjun. „Það kemur í ljós að þeir hafa lækkað virkjunarkostnaðinn um 23% á þessu timabili og ég spyr hvort það séu mistök eða hvort menn séu að reyna að hagræða tölum til að ná fram pólitískum markmiðum ríkis- stjómarinnar í ljósi yfirlýstra fyrir- ætlana Landsvirkjunar um 14% arð af eigin fé,“ segir Ögmundur. í samtali við DV kvaðst Þorsteinn Hilmarsson, upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar, ekki vifja tjá sig um þessi sjónarmið Ögmundar. Þau væm sett fram á hinum pólitíska vettvangi - og eðlilegt væri þá að pólitískir fúil- trúar leiddu þessa umræðu. -BÞ Tækifæri til sölu strax í haust Hreinn Loftsson, lögmaður og fyrr- um formaður einkavæðingarnefndar, segir í helgarviðtali í DV í dag að ef hætt verði við Hreinn Loftsson. sölu Landssímans núna skapist að öllum líkindum tækifæri til sölu strax í haust. „Núna er mikil- vægt að menn taki sig til og fari gegnum fyrirtæk- ið og skipti um stjórnendur," segir Hreinn. „Það er hægt að gera marga góða hluti fyrir fyrirtækið og hluthafa þess. Síðan er hægt að fara af stað aftur með söluna þegar markaðimir taka við sér. Ég treysti stjórnvöldum, undir forystu Davíðs Oddssonar, til að taka með festu á þeim málum sem ég hef gert að umræðuefni á aðalfundi félagsins sem er á næsta leiti.“ Hreinn segir að menn eigi að vera rólegir og taka á málinu af festu og öryggi. „Klúðrið væri að fara að ráðum Össurar [Skarphéðinssonarj og lækka verðið á fyrirtækinu. Eftir nokkur ár verður þetta bara enn einn hvellurinn sem hann hefur staðið fyrir." -sm Sjá helgarviðtal við Hrein Loftsson. Tvær stúlkur rændu hverfisverslun í Hlíðunum: Onotalegt að lenda í þessu Vopnað rán var framið í versluninni Hlíðakjör við Eskihlíð í Reykjavík á fjórða timanum í gær. Tvær stúikur, á að giska fimmtán til sautján ára, sem huldu andlit sitt með grimum, komu inn í verslunina og ógnuðu afgreiðslu- stúiku með hníf. Þær fyrirskipuðu henni að láta peninga úr afgreiðslu- kassa í poka sem þær voru með. Þá hrifsuðu þær með sér símakort frá far- símafyrirtækjunum en þau munu vera orðin algeng skiptimynt í undirheim- um borgarinnar. „Síðan hlupu stúlkumar tvær hér niðm- götuna og í fólksbil þar sem und- ir stýri var ungur maður og beiö eftir Kaupmaður í Hlíðakjöri „Þaö er alltafjafnónotalegt aö lenda í þessu. “ þeim,“ sagði Kristinn Einarsson, kaup- maður í Hlíðakjöri, í samtali við DV. Lögreglulið kom þegar á vettvang og hafm var leit að stúlkunum. Hún hafði ekki borið árangur þegar DV fór í prentun í gærkvöld. Ekki er gefið upp, hvorki af kaupmanninum né lögreglu, hve mikih ránsfengur stúlknanna tveggja var í peningum talið. „Það er alltaf jafn ónotalegt að lenda í þessu,“ sagði Kristinn kaupmaður í samtali við DV, en hann kom á vettvang örfáum mínútum eftir að ránið var framið. Þetta er í fjórða sinn á rúmum tveimur árum sem framið er rán i þess- ari hverfisverslun í Hlíðunum. -sbs ííXKKKKMKXK ií Gitarinn Stórhöfða 27, -g. s. 552 2125. -g. ÝTilboð í gangiÝ A A A A A A A A A „T, KXXKXXKKKX > -i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.