Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2002, Qupperneq 6
6
LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2002
DV
Fréttir
Afsal um skátaheimilið í Hafnarfirði komið í dagsljósið:
Hvorki staðið við skilyrði
afsals né verksamnings
- fyrirfram kvittað upp á að skilyrði afsals hafi verið efnt
Mál varðandi sölu og brottflutn-
ing gamla skátaheimilisins að
Hrauntungu 1 í Hafnarfirði verður
æ furðulegra. Á fimmtudag kom öll-
um að óvörum upp samningur um
brottflutning hússins sem var i fór-
um bæjarverkfræðings. Nú er kom-
inn upp nýr flötur þar sem bæjar-
ráðsmenn sjálfir hafa samþykkt
gerð afsals á húsinu til handa Þor-
steini Njálssyni, formanni bæjar-
ráðs, í júní í fyrra. Var afsalið sam-
þykkt og kvittað fyrirfram um að
Þorsteinn hafi uppfyllt skilyrði af-
sals um flutning sem enn hefur þó
ekki verið staðið við.
Enginn viömælenda DV um mál-
ið, hvorki bæjarráðsmenn né Þor-
steinn sjálfur, virðast hafa munað
eftir afsalinu sem hefur reyndar
ekki verið þinglýst. Þá er bærinn
enn skráður lögformlegur eigandi
hússins.
Eins og fram kom í DV á mið-
vikudag taldi Þorsteinn Njálsson,
formaður bæjarráðs, sig hafa gert
samning og gengið inn í áður gert
samkomulag um flutning hússins
við Frey Arnarsson, kvikmynda-
tökumann hjá Sjónvarpinu. Lög-
maður bæjarins, Guðmundur Bene-
diktsson, sagði hins vegar í samtali
við DV að engin slík samningsgerð
hefði farið um hans hendur og hann
kannast heldur ekki við að hafa séð
neinn slíkan samning um sölu á
húsinu. Þá lýsti Haildór Árnason,
ritari bæjarráðs, því að skriflegur
samningur hefði verið gerður um að
fjarlægja húsið, en bara ekki við
Þorstein.
í fundargerð bæjarráðs 28. júni
2001 kemur fram að lagt var fram af-
sal Hafnarfjarðarbæjar á fasteign-
inni sem þar er reyndar sagt nr. 5
en ekki 57 við Hraunbrún, gamla
skátaheimilinu, til Alfa-Evrópu ehf.
(Húsið er í dag skráð við Hraun-
tungu 1.)
Þorsteinn Njálsson vék af fundi
undir þessum lið. Bæjarráð heimil-
ar bæjarstjóra að undirrita framlagt
afsal. Undir fundargjörðina þennan
dag rituðu Þorsteinn Njálsson, Ingv-
ar Viktorsson, Steinunn Guðnadótt-
ir, Lúðvík Geirsson og Valgerður
Sigurðardóttir. Var afsalsundirrit-
un bæjarstjóra samþykkt samhljóða
að Þorsteini fjarstöddum.
Afsal þetta er reyndar gert 21.
júní og samkvæmt heimildum DV af
sjálfum lögmanni bæjarins sem síð-
Afsal skátaheimlisins
Þar er fyrirfram kvittaö upp á aö skil-
yröi afsals og samnings um brottflutn-
ing hússins hafi veriö uppfyilt. Húsiö
stendur samt enn á sínum staö og
skráö eign bæjarins samkvæmt upp-
lýsingum sýsluskrifstofu.
an vissi ekki til að neinn samning-
ur hafi verið gerður um að fjarlægja
húsið.
í Blaðinu Fjarðarpóstinum á
fimmtudag er greint frá þessu
dæmalausa máli og þar kemur fram
að húsið, sem var afskráð hjá Fast-
eignamati ríkisins árið 2000, er
samt brunatryggt hjá Sjóvá-Al-
mennum tryggingum fyrir um 16
milljónir króna. Samkvæmt síðasta
fasteignamati var fasteignin metin á
9,2 milljónir króna og að brunabóta-
mati 14,2 milljónir króna.
í afsalinu kemur fram að Þor-
steinn eigi að flytja húsið af lóðinni
fyrir 1. ágúst 2001. Þar er einnig fidl-
yrt að það sé ekki til í þinglýsingar-
bókum sýslumanns. Þá segir:
„Þar sem afsalshafi hefur að fullu
efnt samningsskyldur sínar við af-
salsgjafa lýsist hann hér með lögleg-
ur eigandi ofangreindrar fasteign-
ar.“ - Eins og fram hefur komið í
DV er húsið enn á sínum stað. Nú-
verandi afsalshafi efndi því ekki
skyldur sínar samkvæmt afsalinu,
né skyldur sínar gagnvart svoköll-
uðum verksamingi frá 12. júní í
fyrra. Þar var ákvæði um að húsið
yrði fjarlægt fyrir 20. júlí 2001 og
með ákvæðum um dagsektir. í
haust mun bæjarverkfræðingur
hins vegar hafa samþykkt frestun á
flutningi, að ósk Þorsteins. -HKr.
Félag smábátaeigenda í ísafjarðarsýslu:
Alvarleg staða í fiskveiðum vestra
- félagið vill efla línuveiðar í strandbyggðum landsins
Á fundi Eldingar, félags smábátaeig-
enda í ísafjarðarsýslu, í gær var rædd
sú alvarlega staða sem upp er komin í
fiskveiðum vestra. í fréttatilkynningu
vegna málsins segir að afhám veiði-
kerfisins 1. september hafi haft gríðar-
leg áhrif á Vestfjörðum. Línuútgerð sé
nú ekki nema svipur hjá sjón miðað
við undanfarin ár. Erfiðleikar ein-
stakra útgerða og þjónustuaðila hafa
fylgt í kjölfarið, samfara atvinnuleysi
hjá verkafólki og sjómönnum.
Þann 1. september sl. var fellt úr
gildi þorskaflahámarkskerfi króka-
báta. Telja Eldingarmenn aö þetta
Eldlng vlll efla línuvelðar
Félagiö telur aö þannig megi á ný
bæta stööu byggöanna.
veiðikerfi hafi reynst með eindæmum
vel og sé því mikil eftirsjá í því. Elding
barðist hart gegn afhámi veiðikerfisins
og lögðu margir því lið, m.a. bæjar- og
sveitarstjómir.
Stjóm Eldingar er einhuga um að
berjast fyrir breytingu á lögum um
stjóm fiskveiða þannig að línuveiðar
dagróðrabáta mundu njóta ívilnunar
umfram önnur veiðarfæri. Þannig
mætti hugsa sér að afli þessara báta
teldist ekki að fullu til kvóta og 80%
yrðu færð sem frádrag frá úthlutuðu
aflamarki eða krókaaflamarki. Er
stjóm félagsins sannfærð um að yrði
þessi tillaga að lögum mundi línuút-
gerö á Vestfjörðum aftur fara að dafha
og atvinnulíf henni samfara ná betri
stöðu.
Telur stjómin tillöguna mjög í anda
þess að auka framboð á ferskum fiski
og minnka ásókn í stærsta fiskinn. Efl-
ing línuveiða í strandbyggðum lands-
ins sé öflugasta átak sem hægt sé að
gera til viðhalds byggðar f sjávar-
byggðum Islands. Efling línuveiða sé
framlag til betri umgengni um auð-
lindina.
Óskar stjóm Eldingar eftir að tillag-
an verði tekin til alvarlegrar umræðu
í komandi sveitarstjómarkosningum í
sjávarbyggðum landsins. -HKr.
Ríkisútvarpið:
Enginn mál-
farsráðgjafi
Váin sem við blasir á Breiðamerkursandi:
Tel best að stífla Jökulsá
- segir Páll Þór Imsland jarðfræðingur
oi ; y 4 s km
I_I_I__L_J_(
Kortiö gerði Páll áriö 2000 og sýnlr það mlklnn mismun á því
sem þar er í dag.
Ríkisútvarpið hefur í spamaðar-
skyni frestað ráðningu nýs máifars-
ráðgjafa til stofnunarinnar. Margrét
Pálsdóttur sem
gegnt hefur starf-
inu hefur verið í
launalausu leyfi
vegna starfa sinna
erlendis en hefur
nú sagt því lausu.
„Gerð var tilraun í
fiarvem Margrét-
ar með málfarsráð-
gjöf sem Reykja-
víkurakademían
veitti, en hún var
lítið notuö. ís-
lenzkufræðingar
hafa starfað á
fréttastofunum við
yfirlestur frétta og
verður svo fram-
vegis,“ segir í nótu
sem Markús Öm
Antonsson út-
varpsstjóri hefur
sent til starfsmanna sinna.
Fram kemur í bréfinu að Gunnar
Stefánsson, dagskrárfulltrúi á menn-
ingardeild, hafi „vinsamlegast fallizt
á að veita um sinn ráðgjöf um almenn
málfarsleg atriði eftir því sem að-
stæður hans leyfa vegna annarra
starfa," eins og segir orðrétt. -sbs
Páll Þór Imsland jarðfræðingur
hefur í mörg ár fylgst náið með þró-
un og náttúrufarsbreytingum á
Breiðamerkursandi og sú þróun hef-
ur nú leitt til ástands sem virðist yf-
irvofandi og er ógnvænlegt fyrir
framtíð samgöngumannvirkja og
háspennulína á svæðinu. „Þetta er
skýrt dæmi um náttúrufarsþróun
sem lengi vel vekur litla athygli en
endar í válegu ástandi þegar hugs-
anlegar afleiðingar hennar blasa
við,“ segir Páll Þór.
Að mati Páls Þórs er þessi þróun
nú svo langt gengin að við blasir að
hafið geti rofið Ósfiöru og opnað
Jökulsárlón til sjávar og það myndi
leiða til mikils ójafnvægisástands
og líklega yrði þama til óstöðugur
sjávarfallaós sem ætti það til að
flandra með ströndinni fram og til
baka.
Páll segir að við þessari ógn þurfi
að bregðast og tryggja það að nátt-
úran spilli ekki á næstunni afar
dýrmætum landsnotum. „Auðveld-
ustu og bestu lausnina tel ég vera að
stífla Jökulsá, hækka í lóninu og
loka þannig fyrir strauminn fram
og til baka á eyðinu og að veita ánni
úr lóninu annars staðar þar sem
hún á langa leið til sjávar og þá er
hægt að verja þennan fiörustubb
sem er í hættu,“ sagði Páll í gær.
„Ef þetta er gert og vatninu hleypt
vestur í Nýgræðnakvísl eða austur og
í farveg Stemmu þá á áin svo langa
leið út í sjó og af því að þá væri orð-
ið hærra í lóninu en sjávarmálið þá
rennur áin ailtaf í eina átt, enginn
straumur og Jökulsá orðin venjuleg á
en ekki sjávarfallaós eins og hún er
nú,“ sagði Páll Þór Imsland.
Páll segir að við þetta myndi lón-
ið stækka eitthvað og jökum fiölga í
því fyrst, síðan mundu jakarnir
bráðna hægar og endast betur því
sjórinn sem nú kemur inn í lónið á
flóðinu er um 5 gráða heitur en hita-
stig í lóninu 0 gráður og myndi það
haldast þannig..
Mælingar á heildarrofi á þessu
svæði frá 1904 til 1999 sýna að rofið
er samtals 769 metrar eða að meðal-
tali 8,1 metri á ári og því auðvelt að
gera sér grein fyrir að hverju stefn-
ir. -JI
Markús Örn
Antonsson.
REYKJAVIK AKUREYRI
Sólariag í kvöld 18.05 17.40
Sólarupprás á morgun 08.26 09.12
Síödegisflóð 21.05 13.21
Árdegisflóö á morgun 09.19 01.38
Hægt kólnandi
SV átt, víða 10-15 m/s og él
sunnan- og vestantil en léttskýjað á
Norðausturlandi. Hægt kólnandi
veður og vægt frost um mestallt land
slðdegis.
VeðWgl
íi mosjiim
Norðaustanátt
NA 8-13 m/s á Vestfjörðum en
annars SV 8-13. Él sunnan- og
vestantil en skýjað með köflum á
Noröausturlandi. Frost 0 til 5 stig.
[ Vedtiö n.
Mánudagur (T' \ Þriðjudagur Miðvikudagur
W3 HHi 3* Ww Hiti 0° Hiti 0°
«1 12” til O* til 4°
Vtndur: 10-15 "Y* Vindur: 15-20 "V* Vindur: 10-15‘A
K *
Þykknarupp meö vaxandi SA átt vestantll. NV Hvöss SA átt og slydda eða snjókoma Norðlæg átt og éljagangur, einkum
10-15 m/s og austantll en noröantil. Frost
él á hægarl SV átt og 0 tll 4 stig.
Norðausturlandi él vestantll. Hltl
en léttskýjaö kringum
suðaustanlands. frostmark.
Frost 3 tll 12
stlg.
Logn Andvari Kul Gola Stinningsgola Kaldi Stinningskaldi Allhvasst Hvassviöri Stormur Rok Ofsaveöur Fárviöri m/s 0-0,2 0,3-1,5 1,6-3,3 3.4- 5,4 5.5- 7,9 8,0-10,7 10.8- 13,8 13.9- 17,1 17,2-20,7 20,8-24,4 24.5- 28,4 28.5- 32,6 >= 32,7
4 »—i
AKUREYRI rigning 7
BERGSSTAÐIR rigning 6
BOLUNGARVÍK úrkoma í gr. 5
EGILSSTAÐIR skýjað 6
KIRKJUBÆJARKL. alskýjaö 7
KEFLAVÍK súld 6
RAUFARHÖFN rigning 2
REYKJAVÍK rigning 6
STÓRHÖFÐI þokumóða 7
BERGEN skýjaö 7
HELSINKI snjókoma 0
KAUPMANNAHÖFN skýjað 4
ÓSLÓ skýjaö 3
STOKKHÓLMUR 5
PÓRSHÖFN skúr 8
ÞRÁNDHEIMUR skúr 3
ALGARVE heiðskírt 16
AMSTERDAM léttskýjaö 4
BARCELONA léttskýjað 10
BERLÍN léttskýjaö 5
CHICAGO skýjaö 4
DUBLIN þokumóða 8
HALIFAX skýjaö 1
FRANKFURT léttskýjaö 6
HAMBORG skýjaö 4
JAN MAYEN úrkoma í gr. -8
LONDON léttskýjaö 7
LÚXEMBORG heiðskírt 5
MALLORCA skýjað 11
MONTREAL heiöskirt 0
NARSSARSSUAQ snóél -2
NEW YORK skýjaö 1
ORLANDO heiðskírt 10
PARÍS léttskýjaö 4
VÍN léttskýjað 4
WASHINGTON hálfskýjaö -2
WINNIPEG heiöskírt -8