Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2002, Side 8
8
Útlönd
LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2002
DV
Merkava-dreki
Hefndarárás
á bækistöð
Palestínu-
manna
ísraelskar F-16 orrustuþotur gerðu
í gærkvöld árásir á bækistöð palest-
ínsku öryggislögreglunnar í bænum
Jebalya, um þrjá kílómetra norður af
Gaza-svæðinu.
Talið er að nokkrir foringjar úr
palestínsku öryggissveitunum hafi
verið staddir í bækistöðinni þegar
loftárásin var gerð í gæ en engar
frekari fréttir af mannfalli höfðu
borist í gærkvöld.
Að sögn sjónarvotta urðu þrjár öfl-
ugar sprengingar í byggingunni og
braust út mikill eldur í kjölfarið.
Ætla má að árásin hafi verið gerð
til að hefna árásar palestínskra Sala-
hudin-liða á ísraelska bilalest í ná-
grenni Netzarim-landnemabyggðar-
innar í fyrraköld, þar sem þrir ísra-
elskir hermenn létu lífið. Mannfallið
var mikið áfall fyrir íraelska herinn
og einnig það að helsta stolt þeirra,
Merkava-3 skriðdrekinn, skyldi
sprengdur í tætlur í árásinni. Má því
ætla að árásarinnar verði grimmi-
lega hefnt.
Deilt um starfs-
lokasamninginn
Fullyrt er að Uffe Ellemann-Jen-
sen, fyrrum utanríkisráðherra Dan-
merkur, hafi vitað um starfsloka-
samninginn sem gerður var við tvo
fráfarandi framkvæmdastjóra Royal
Greenland, fiskiðnaðarfyrirtækis
grænlensku heimastjómarinnar.
Mennirnir tveir skiptu á milli sín
um 140 milljónum íslenskra króna.
Uffe, sem er stjórnarformaður
fyrirtækisins, hefur gagnrýnt samn-
inginn harðlega og ítrekar við
danska blaðið Politiken að hann
haíl ekkert um hann vitað.
Málið hefur vakið mikla athygli
þar sem annar viðtakenda fjárins er
Lars Emil Johansen, fyrrum for-
maður grænlensku heimastjómar-
innar. Rekstur Royal Greenland hef-
ur gengið afleitlega og er búist við
að í næstu viku verði greint frá tapi
upp á 2,7 milljarða íslenskra króna.
Tattúið kom upp
um nauðgarann
Sextíu ára gamall Svíi var í vik-
unni dæmdur til sex ára fangelsis-
vistar og greiðslu þriggja miiljóna
króna í skaðabætur fyrir margítrek-
aðar nauðganir.
Maðurinn deildi íbúð með syni
sínum í Helsingborg í Svíþjóð. Það
voru kærustur sonarins sem urðu
fórnarlömb mannsins. önnur
þeirra, fimmtán ára gömul stúlka,
mátti þola að maðurinn nauðgaði
henni funmtiu sinnum án þess að
mark væri tekið á ákæmm hennar
vegna þess að hún gat ekki sannað
verknaðinn. Þegar sambandi henn-
ar við soninn lauk varð hann sér úti
um nýja vinkonu.
Hún varð einnig fyrir barðinu á
fóðurnum. Stúlkurnar ákváðu síð-
an báðar að leggja fram nýjar kær-
ur á hendur manninum. En orð stóð
á móti orði og lögreglan hafði ekki
sannanir sem nægðu til að dæma
manninn fyrr en seinni kærasta
sonarins lýsti tattúveringu á limi
tengdafóður síns. Það dugði til að
sakfella þrjótinn og dæma, að sögn
Aftonblaðsins í Svíþjóð. -GÞÖ
Fótboltafár í Kabúl:
Oeirðir brutust út
á knattspyrnuleik
Til óeirða kom utan við Ólympíu-
leikvanginn í Kabúl í gær þegar úr-
valslið alþjóðlega friðargæsluliðsins
atti kappi við úrvalslið höfuðborgar-
innar, í fyrsta alþjóðlega íþróttavið-
burðinum sem fram fer í Afganistan
síðustu fimm árin.
Óeirðirnar hófust þegar miðalaus-
ir knattspyrnuáhugamenn reyndu
að ryðja sér leið inn á leikvanginn,
sem fyrir var troðfullur þar sem um
25 þúsund manns nýttu hverja
smugu á áhorfendasvæðunum.
Afganska lögreglan, studd 350
manns úr alþjóðlegu friðargæslu-
sveitunum, reyndi að halda fólkinu í
skefjum en varð í lokin að beita bar-
eflum, táragasi og hundum til að
halda fólkinu utan vallarins. Sumun
tókst þó að troða sér í gegn eða klifra
yfir veggi og girðingar til að veröa
vitni að þessum sögulega kappleik
sem endaði með 3-1 sigri friðar-
gæsluliðsins.
Leikurinn fór fram i kjölfar óeirð-
anna á flugvellinum í Kabúl í fyrra-
dag, þar sem Abdul Rahman, sam-
Afganskar fótboltabullur
Miöalausir fótboltaáhugamenn
klifra inn á troöfuilan völlinn.
gönguráðherra þjóðstjórnarinnar,
lést eftir áverka sem hann hlaut þeg-
ar æstir pílagrímar réðust að hon-
um, þar sem hann beið flugs í opin-
bera heimsókn til Delhí á Indlandi.
Pílagrímarnir, sem voru um 1000 á
leið til Mekka í Sádi-Arabíu, höfðu
sumir beðið flugs í tvo daga og þegar
kvisaðist að bandaríska herstjórnin í
Kandahar heföi ákveðið að loka vell-
inum fyrir fluginu létu þeir reiði
sína bitna á ráðherranum.
Fréttir af atburðinum eru þó mis-
vísandi og að sögn talsmanna stjórn-
valda er hugsanlega um samsæri að
ræða. Hafa fjórir menn þegar verið
handteknir, þar af tveir háttsettir
foringjar úr afgönsku öryggissveit-
unum.
Aðeins nokkrum stundum eftir at-
burðina á flugvellinum lenti Jack
Straw, utanríkisráðherra Breta, á
vellinum og átti hann viðræður við
Hamid Karzai, leiðtoga þjóðstjórnar-
innar, áöur en hann heilsaði upp á
landa sína í friðargæslusveitunum. í
ljósi atburðanna er ljóst að Karzai
hefur ítrekað óskir sínar um fjölgun
í friðargæslusveitunum og aukna að-
stoð við þjálfun og uppbyggingu af-
ganska hersins.
REUTERMYND
Útför Margrétar prinsessu var gerð frá Windsor-kastala í gær
Þúsundir Breta vottuöu Margréti prinsessu viröingu sína í nágrenni Windsor-kastala í London þegar útför hennar fór þar fram í St.
George-kapellunni í gær. Um 400 manns, meölimir konungsfjölskyldunnar, vinir og starfsfólk, voru viöstaddir athöfnina og þar á
meöal öldruð móöir prinsessunnar og börn hennar tvö, Linley lávaröur og laföi Sarah. Hér á myndinni sjáum viö líkfylgdina yfirgefa
Windsor-kastala en Margrét veröur lögö til hinstu hvíldar viö hiiö fööur síns, Georgs konungs sjötta, í einni hvelfingu kastalans.
Milosevic ætlar að kalla Clinton fyrir stríðsglæpadómstólinn:
Segir Clinton hafa fyrirskipað
árásina á kínverska sendiráðið
Slobodan Milosevic, fyrrum
Júgóslavíuforseti, sagði í gær á öðr-
um degi málsvamar sinnar fyrir
stríðsglæpadómstólnum í Haag, að
hann ætlaði að kalla Bill Clinton,
fyrrum Bandaríkjaforseta, og
nokkra aðra vestræna stjómmála-
leiðtoga fyrir réttinn þegar að vitna-
leiðslum kæmi. Hann sagðist einnig
vilja leggja spumingar fyrir þá
Helmut Kohl, fyrrum kanslara
Þýskalands, Tony Blair, forsætis-
ráðherra Bretlands, Kofl Annan, að-
alritara Sameinuðu þjóðanna,
Madeleine Albright, fyrrum utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna, Klaus
Kinkel, fyrram utanríkisráðherra
Þýskalands, og þá bandarísku emb-
ættismenn sem komu að gerð
Daytons-samningsins sem batt enda
á stríðið í Bosníu og Króatíu. Milos-
evic hafði áður tilkynnt að hann
ætlaði að kalla Jacques Chirac
Frakklandsforseta fyrir réttinn en
Milosevic þungur á brún.
hann hefur fullan rétt á að kalla
hvem sem honum sýnist til vitna-
leiðslu, svo framarlega sem dómar-
amir telji vitnisburð viðkomamdi
skipta máli.
Milosevic, sem sjálfur sér um
málsvörn sína, hélt í gær áfram að
ásaka NATO um glæpi gegn mann-
kyninu í Balkanskagastríðinu og
staðhæfði að Clinton hefði persónu-
lega og með ráðnum hug fyrirskipað
loftárásina á kínverska sendiráðið í
Belgrad. Hann væri því kominn á
spjöld sögunnar sem fyrsti vestræni
leiðtoginn til að láta varpa sprengj-
um á kínverskt yfirráðasvæði.
Hann sagði einnig að leyniþjón-
usta sín hefði hlerað talsvöðvarsam-
skipti milli höfuðstöðva NATO og
orrustuflugmanna þar sem þeim
hefði verið fyrirskipað að skjóta á
lest traktora í Kosovo. Þar með
hefði NATO gerst sekt um glæpi
gegn mannkyninu.
Talið er að réttarhöldin yfir
Milosevic muni standa í allt að tvö
ár en eftir að málsvörn hans lýkur
mun ákæruvaldið hefja vitnaleiðsl-
ur yfir allt að 350 vitnum sem ætl-
unin er að kalla fyrir réttinn.
Stuttar fréttir
Tillögur Bush gagnrýndar
Tillögur George
W. Bush Banda-
ríkjaforseta um að-
gerðir til að draga
úr losun loftteg-
unda sem taldar
eru valda gróður-
húsaáhrifum í
heiminum, hafa
fengið misjafnar viðtökur bæði
heima fyrir og erlendis. Tillögur
Bush, sem gera ráð fyrir hvetjandi
skattaafslætti til þeirra fyrirtækja
og einstaklinga sem draga úr losun
slíkra efna, em hugsaðar sem svar
við Kyoto-bókuninni sem Bush
hafnaði í fyrra.
Gagnrýnisraddir segja að tillög-
urnar beri keim af undanlátssemi
við stóriðnaðinn og séu aðeins léleg
tilraun til að losa sig undan ábyrgð-
inni.
Kommar saman I Nepal
Helstu stjórnarandstöðuflokkar
Nepals, Kommúnistaflokkurinn og
Marx-Lenínistasamtökin UML og
ML, hafa sameinast aftur í einn
stóran kommúnistaflokk eftir að
hafa starfað hver í sínu lagi síðustu
fjögur árin. Sameiningin á sér stað
fyrir þingkosningar þar sem stjóm-
arandstaðan hyggst styrkja stöðu
sína í baráttunni gegn ríkjandi Con-
gressflokki sem nú hefur þægilega
meirihlutastöðu í þinginu.
Lifandi martröð
Alsirski flugmað-
urinn, Lotfl Raissi,
sem sakaður er um
að hafa þjálfað
nokkra af hryðju-
verkamönnunum
sem þátt tóku í
árásunum í Banda-
ríkjunum þann 11.
septemter og nýlega var látinn laus
gegn tryggingu úr fangelsi i
London, hefur lýst vem sinni bak
við rimla sem lifandi martröð. „Ég
mun aldrei ná mér eftir þessa
þrekraun," sagði Raissi sem segist
vera saklaus. „Ég er enginn hryðju-
verkamaður og hef andstyggð á
verkum þeirra. Samt hef ég fengið
meðferð eins og sekur maður.“
Eldur I flóttamannabúðum
Mikill eldur kom upp í Yarl
Wood-flóttamannabúðum í nágrenni
Bedford í Englandi, eftir að óeirðir
brutust þar út i fyrrakvöld. Eldar
loguðu í alla fyrrinótt og fram eftir
degi í gær og er talið að tjónið nemi
allt að 35 milljónum punda. Um 400
flóttamenn munu að jafnaði dvelja í
búðunum og munu nokkrir þeirra
hafa sloppið lausir og er nú leitað.
Að sögn lögregluyflrvalda hófust
óeirðirnar eftir að reynt var að
koma 55 ára gamalli konu óviljugri
undir læknishendur. Fimm manns
munu hafa slasast í eldinum, þar af
tveir starfsmenn, en fjórar hjúkrun-
arkonur sluppu naunlega þegar þær
lokuðust inni í eldinum.
hjálpar
Hjálparsamtök
sem stýrt er af syni
Gaddafis Líbíuforseta
og kennd era við for-
setann, hafa að und-
anfórnu aðstoðað illa
stadda araba sem af
ýmsum ástæðum hafa orðiö innlyksa
í Afganistan, en eru á engan hátt
tengdir talibönum eða al-Qaeda-sam-
tökum Osama bin Ladens. Sumir
þeirra hafa búið í landinu í meira en
áratug og eftir að aðgerðir Banda-
ríkjamanna hófust hefur fólkið þurft
að búa við miklar hörmungar. Fjöra-
tíu manna hópur, aðallega konur og
börn, var nýlega fluttur til Trípólí í
Líbíu og stendur til að flytja fleiri
þangað á næstunni.
Ákærður fyrir njósnir
Brian P. Regan, 39 ára fyrram
foringi í bandaríska flughemum,
sagðist í gær saklaus af ákærum um
njósnir fyrir írak, Kína og Líbíu
þegar hann var leiddur fyrir rétt í
Bandaríkjunum i gær. Þetta er í
annað sinn sem Regan lendir í
njósnamáli, en í fyrra var hann
ákærður fyrir að leka í Líbíumenn.
Gaddafi til