Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2002, Síða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2002, Síða 21
LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2002 21 Helgarblað DV Meg Ryan: Hann er ekki kærastinn minn Meg Ryan er vinsæl. Kannski fannst henni um daginn að hún væri orðin of vinsæl þegar fullkomlega ókunnugir menn voru famir að segjast vera kærastar hennar. Foreldrar hennar, Andrea og Thomas, lentu nefnilega í því að eina nóttina var kominn maður inn á gólf til þeirra sem haíði farið fremur óhefðbundnar leiðir inn í húsið, nefni- lega brotið rúðu og skriðió þar inn. Maðurinn, John Michael Hughes, var ekkert ánægður með að lögreglan var kölluð til. Kvaðst hann vera í fullum rétti þar sem þetta væri heimili Meg Ryan sem væri unnusta hans. Meg hefði bara gleymt að setja lykilinn undir mottuna og því hefði hann þurft að fara nýstárlegar leiðir í inngöngu sinni. Blessaður karlinn hafði aðeins rugl- ast á ættliðum og ráfað heim til tengdó en ekki meintrar unnustu. Lögreglan varð að taka eitthvert mark á manninum og kom sér i sam- band við Meg sem sagði að því færi fjarri að hún vissi hver þessi maður væri, hvað þá að hún hefði nokkru sinni lagst með honum. Að sjálfsögðu er hún búin að fá nálgunarbann á John Mich- ael sem hún telur vera mikla ógnun við öryggi sitt og sinna nánustu. Þessi saga sannar svo að ekki verður um villst að það getur verið afskaplega erfitt hlut- skipti að eiga aðdáendur. Russell Crowe: Fær hann ekki óskar? Leikarinn Russell Crowe nýtur mikiiiar hylli í Hollywood þessi misserin og kvikmyndin Beautiful Mind sem hann leikur aðalhlutverk- ið í er tilnefnd tii nokkurra óskarsverðlauna og þar með talinn hann sjálfúr fyrir stór- brotinn leik í aðalhlutverki. Myndin byggir á sannsögu- legum atburðum og fjallar um stærðfræðing nokkum og vandamál hans margvísleg. Nú hefur farið af stað slúðurherferð sem senni- lega er stýrt af öfundarmönnum Crowe og samkeppnisaðilum og er ætlað að koma í veg fyrir að myndin og Crowe fái óskarsverðlaun. Herferðin snýst um að kvikmyndin sé einn allsherjar hvítþvottur frá upphafi til enda og þar sé ekkert minnst á nokkuð lykil- atriði i ævi stærðfræðingsins John Nash sem þó hafi skipt hann miklu máli. Ekkert sé sagt um meinta samkynhneigð hans, steinþagað um óskilget- inn son sem hann eignaðist og látið líta svo út að eiginkona hans hafi stutt hann f geðveiki hans. Hið rétta mun vera að eiginkona Nash fór frá honum þegar hann truflaðist á geði. Þetta segja öfundarmenn að sé ekki nógu gott og aðeins til þess fallið að slá ryki í augu fólks og óréttlátt að gera skáldsögu úr lífi raunverulegs fólks til þess eins að fá óskar. Russell Crowe. Sportjepplingurinn sem bætir kostum jepplingsins við bestu eiginleika s smábflsins. Verð: Beinsk. 1.648.000 kr. Sjáifsk. 1.748.000 kr. Meðal staðalbúnaðar er: Sítengt fjórhjóladrif, ABS hemlar, álfelgur, upphituð framsæti, þakbogar og rafdrifnar rúður. Afimiki! og sparneytin 16 ventla vét, K9 K meöaleyösla aðeins 6.9 L á hundraöiö. $ SUZUKI #i SUZUKIBÍLAR HF Skeifunni 17. Sími 568 51 00. www.suzukibilar.is Smáauglýsingar allt fyrir heimilið 550 5000 Skoðaðu smáuglýsingarnar á VÍSÍf.ÍS Forvarnir einfaldari en meðferð Hollir lífshættir duga best gegn beinþynningu Árlega verða allt að 1200 einstaklingar fyrir beinbrotum sem rekja má til beinþynningar hér á landi. Þar af eru mjaðmabrot um 200. Beinbrot valda yfirleitt miklum búsifjum, sársauka og jafnvel örkumlum. Auk þess nemur árlegur kostnaður samfélagsins vegna þeirra hundruðum milljóna króna. Þar kemur margt til, jafnt heilbrigðisþjónusta sem félags- og öldrunarþjónusta. Stjómvöld á fsiandi hafa einsett sér að fekka brotum af völdum beinþynningar um fjórðung á næstu árum. Til þess að það megi takast þurfa ailir að vera upplýstir um vandamálið og huga að þáttum sem styrkja beinin. Það er einfaldara að koma við forvömum gegn beinþynningu en aö meðhöndla hana. Áhrifaríkasta vörnin felst í holtum lífsháttum, hæfilegri og reglutegri hreyfingu, og mataraeði sem tryggir D-vítamín og raðlagðan dagskammt af kalki. Hann fest auðveldlega úr fslenskri mjólk og mjólkurvörum. BEINVERND

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.