Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2002, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2002, Blaðsíða 6
6 FTMMTUDAGUR 14. MARS 2002 Fréttir 13 V Utanríkisráðherra telur EFTA-ríkin þurfa að stilla saman strengi í lokatilraun til uppfærslu EES: Spurningin er um toll á 500 milljóna fríverslun Síldin Fryst síld er ein þeirra sjávarafuröa sem ber hvaö hæsta tolla samkvæmt bókun 9 en þaö myndi skipta máli varöandi viöskiptakjör okkar eftir stækkun ESB. Ljóst er að sú af- staða Evrópusam- bandsins sem fram kom á fúndi ráð- herraráðs EES- svæðisins í vik- unni, að ekki yrði um uppfærslu á EES-samningnum að ræða fyrr en eftir að stækkun- arferli Evrópu- sambandsins sjálfs lýkur, skapar ákveðinn vanda fyrir íslenska hagsmimi. Það sem einkum hefur valdið íslenskmn ráðamönnum áhyggjum í þessu sambandi er ann- ars vegar mögu- leikar íslendinga og EFTA-ríkjanna til að hafa áhrif á ákvarðanir í ESB og hins vegar hvort stækkun ESB muni hafa í fór með sér skerðingu á viðskiptakjörum íslend- inga í nýjum aðildarríkjum sambands- ins í Austur- og Mið-Evrópu. Þar er um að ræða útflutning upp á 1,5 miilj- arða á ári og af þeirri upphæð gæti hátt i 500 milljóna útflutningur, sem nú er tolifrjáls, orðið tollskyldur. Uppfærsla samhliða stækkun Sjónarmið Halldórs Ásgrímssonar hefur verið það að leitast við að upp- færsla á EES-samningnum færi fram samhliða stækkunarferli ESB og beitti Halldór þessum rökum m.a. á Josep Pique, utanríkisráðherra Spánar, sem var í forystu fyrir Evrópusambandið á ráðherraráðsfúndi EES í vikimni. í ljósi þess að stækkun ESB er í raun líka stækkun á EES, sem kallar á sér- stakt fullgildingarferli þjóðþinga aðild- arríkjanna, væri að dómi Halldórs lag að nýta þetta fullgildingarferli fyrir hvort tveggja, stækkun ESB og upp- færslu EES. í þessu samhengi benti Halldór ráðherraráðsfundinum í vik- unni á að fríverslunarsamningar EFTA við umsóknarríki myndu falla úr gildi við aðild þeirra að ESB og þar með myndi markaðsaðgangur fyrir sjávarafurðir frá EES/EFTA-ríkjunum versna. Miklu skipti að stækkun yrði ekki til þess að reisa nýjar viðskipta- hindranir innan EES. Halldór kvaðst í samtali við DV óttast að þrátt fyrir að stækkunarferhð verði langt komið 2003 eða 2004 geti það enn dregist í nokkur ár að geng- ið verði frá því með fúllgildingu einstakra þjóð- þinga. Fríverslun fellur burt Þegar Halldór Ásgrimsson visar til fríverslunar- samninga EFTA er hann að tala um hugsanlegar breyt- ingar á viðskipta- stöðu gagnvart ríkjum í Austur- og Mið-Evrópu, s.s. Póllandi, Sló- veníu, Slóvakíu, Rúmeníu, Tékklandi, Ungveijalandi og Eystrasaltsríkjunum, sem Islendingar hafa nú fríverslunarsamninga við. Viðskipti með flsk eru sem kunnugt er utan EES-samningsins og er frá þeim málum gengið í sérstakri bókun, bók- un 9. Sú bókun mun gilda gagnvart nýjum aðildarríkjum ESB, en hins veg- ar munu viðskiptakjörin í sumum tO- fellum versna þar sem þeir fríverslun- arsamningar, sem i gildi hafa verið, munu falla niður og tilteknar sjávaraf- urðir því fá á sig tolla. Þar er síldin mikilvægust, en hún ber 15% toli frá miðjum júni til miðs febrúar, og einnig mun þetta koma niður á afurðum s.s. hörpudiski, humri og unnum laxaaf- urðum og fleiri vöruflokkum sem bera tolla sem eru á bilinu frá 3% og allt upp í 10%. Ekki til WTO Nokkuð skiptar skoðanir eru á því hvort og hversu alvarleg ógn þessar viðskiptahindranir séu. Þannig segir t.d. nýr formaður utanríkismálanefnd- ar Alþingis, Sigríður Anna Þórðardótt- ir, að breytingar á viðskiptakjörum vegna stækkunar ESB sé ekki stórt mál. „Við höfum alltaf EES-samning- inn og ég bendi líka á að þessi lönd eru ekki komin inn í ESB enn þá. Þangað til gilda fyrri samningar og ég trúi því að utanríkisráðherra nái að leysa það mál með einhveijum hætti í tæka tíð,“ sagði Sigríður. Hún er hvað þetta varð- ar á svipaðri linu og ráðherrar flokks- ins, þeir Davíð Oddsson og Tómas Ingi Olrich, sem hafa lýst þeirri skoðun sinni að ef í ljós komi að viðskiptakjör versni gagnvart þessum löndum þá sé eðlilegt að taka það upp við Alþjóða viðskiptastofnunina, WTO. Halldór Ás- grímsson segir hins vegar í samtali við DV að þessi leið sé ekki fýsileg þvi það hafi komið skýrt fram af hálfu Evrópu- sambandsins að það telji íslendinga ekki hafa neinn rétt á grundvelli reglna WTO. „Við höfum vissulega haldið þessum skilningi okkar til haga, en þeir hafa á móti sagt að ef íslending- ar hyggist fara þessa leið séu menn famir að tala um að málið sé allt ann- ars eðlis,“ segir Halldór. Á hinn bóg- inn er ESB tilbúið að ræða málið á grundvelli bókunar 9 og í þeim farvegi er það, að sögn utanríkisráðherra. Franrtíöarmarkaður Viðmælendur úr viðskiptalífrnu og á Viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneyt- isins telja hins vegar að ekki megi gera lítið úr þeim viðskiptahagsmunum sem hér séu í húfi. Vissulega sé það rétt að til skamms tíma hafl íslensk fyrirtæki ekki sótt inn á þessa markaði að ráði en ýmislegt bendi til að það hafl verið að breytast. Norðmenn hafa byggt upp markaði í Póllandi og víðar og eiga þangað mikil viðskipti, sem er talin vís- bending um þá möguleika sem Islend- ingar gætu haft á þessum markaði. Full- yrt er að þama séu framtiðarhagsmun- ir í húfi. Högni Kristjánsson á Við- skiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins segir þannig að greinileg aukning hafi orðið á útflutningi sjávarafurða til þess- ara ríkja og ekki sé ástæða til að ætla annað en að sú aukning haldi áfram. Þannig er neysla á fiski í Póllandi t.d. aðeins rúmlega helmingur af því sem fiskneyslan er að meðaltali í ESB. Efna- hagur fer batnandi í þessum löndum og þvi má gera ráð fyrir að neysla fiskaf- urða, þar á meðal verðmætari afurða, aukist. Gott betur en tvöfaldast Samkvæmt upplýsingum frá Við- skiptaskrifstofu utanríkisráðuneytis- ins nam heildarútflutningur sjávaraf- urða til umsóknarríkja ESB árið 2000 tæplega 570 milljónum króna. Fyrstu 11 mánuði ársins í fyrra nam þessi út- flutningur hins vegar rúmlega 1,5 milljörðum króna, þannig að í krónum talið hefur þessi útflutningur gott bet- ur en tvöfaldast milli ára. Sé hins veg- ar skoðað sérstaklega hversu stór hluti þessa útflutnings yrði tollskyldur eftir inngöngu ríkjanna í ESB miðað við bókun 9 kemur eftirfarandi í ljós: Árið 2000 hefðu tæplega 254 milljónir af þessum 570 milljónum hafa orðið toll- skyldur útflutningur. Árið 2001 (jan,- nóv.) hefði rúmlega 421 milljón af þess- um 1,5 milljörðum sem nú var toll- fijáls orðið tollskyldur útflutningur. Samkvæmt þessum tölum má ljóst vera að það er á milli fjórðungur og helmingur af útflutningi til þessara rikja sem myndi veröa tollskyldur miðað við óbreytta bókun 9 eftir stækkun ESB. Halldór Ásgrímsson. Tómas Ingi Olrich. Davíö Oddsson. Sigríöur Anna Þóröardóttlr. KA-maður með tönn úr leikmanni Hauka í nefinu: Með heljarstórt og helaumt nef - tönnin f jarlægð í dag. - Verður minjagripur eða skilað til eiganda DV-MYND -SBS Meö putta á bólgnu nefi Jónatan bendir á hvernig nef sitt bólgnar út - og fyrir innan situr tönnin úr Haukamanninum. Hún veröur fjarlægö af læknum í dag. „Þetta er með því kynlegra sem ég hef lent í um dagana. Mér finnst sjálfsagt að eiga tönnina sem minjagrip, nema ef ég skila henni til upphaflegs eiganda," seg- ir Jónatan Magnússon, leikmaður KA í handbolta, í samtali við DV. Við röntgenmyndatöku á Fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri á mánudag kom í ljós að brot úr tönn Þorvarðar Tjörva Ólafssonar situr fast í nefi Jónatans. Þeir kappar lentu í harkalegu samstuði í leik KA og Hauka í handknattleik í maí sl. vor. Nefið á Jónatani laskaðist þá nokkuð og tönn í Þorvarði brotnaði en engan óraði fyrir hvar tönnin - sem aldrei fannst - hefði lent. Aðskotahlutur var tönnin „Strax eftir þennan leik sl. vor leitaði ég til heimilislæknis- og síðar háls-, nef- og eymalæknis. Sá síðamefndi vildi meina að eitthvað hefði flísast úr nef- beininu og það gróið vitlaust saman. Það væri lýtalæknis að taka á þessu máli. Þegar ég leitaði til slíks læknis í Reykjavík vildi hann ekkert gera fyrr en að ár væri liðið frá óhappinu," sagði Jónatan þegar hann reifaði sína sögu í samtali við DV í gær. Hann sagðist alla tíð eftir þetta óhapp hafa verið helaum- ur í nefinu og það verið bólgið, aumt og rautt. Og slæmur var hann sem aldrei fyrr eftir leik KA og Aftureldingar sem háður var sl. laugardag. í kjölfar þess leiks leitaði hann til sérfræðinga á sjúkrahúsinu nyrðra - sem sáu strax að eitthvað talsvert var að. „Ég talaði við Eirík Pál Sveinsson sem er háls-, nef- og eymalæknir. Fyrst hélt hann að það væri einhver sýking í nefinu og ætlaði að setja mig á sýklalyf. Honum datt síðan í hug að verið gæti að einhver aðskotahlutur væri þama fast- ur og því var ég settur í röntgenmynda- töku. Og mikið rétt; á myndinni sást að ég var með einhvem aðskotahlut þama sem við nánari athugun kom í ljós aÖ var tönnin úr Þorvarði Tjörva," sagði Jónatan. I dag, fimmtudag, fer hann í aðgerð þar sem þess verður freistað að ná tönn- inni burt. Jónatan hefur þó orð Eiríks Páls læknis fyrir því að slíkt sé hægara sagt en gert - og verið geti að það takist ekki í fyrstu atrennu. Hreint ekki fyndið „Fyrst eftir að ég frétti að tönnin sæti fóst í nefinu á mér fannst mér það hreint ekki fyndið. En þetta er búinn að vera helsti brandarinn á æfingum hjá okkur í KA-liðinu síðustu daga og menn sjá ýmsa fleti á þessu máli,“ sagði Jón- atan. Hann segist hafa reynt að hlifa sínu heljarstóra og helauma nefi frá átökum í leikjum að undanfómu og það hafi sloppið merkilega vel, svo sem í þeim átakamikla og stimpingasama leik sem Akureyrarliðin KA og Þór háðu sín í millum sl. þriðjudagkvöld. -sbs SJÍi Tzltsí>\\ REYKJAVÍK AKUREYRI Sólariag í kvöld 19.25 19.08 Sólarupprás á morgun 07.47 07.34 Síódegisflóö 19.09 23.42 Árdegisflóð á morgun 07.22 11.55 Stöku skúrir Suðlæg eöa breytileg átt, 3-10 m/s. Skýjaö með köflum og stöku skúrlr eða él vestan til, en rigning sunnan- og vestan til síðdegis. Hiti 0 til 7 stig en sums staðar vægt frost inn til landsins. Hæg breytileg átt og úrkoma víða um land, þó síst austanlands. Hiti O til 7 stig, en sums staðar vægt frost inn til landsins, einkum noröan til. Laugardagur Sunnudagur Mánudagur Hiti 2° tii e6 Vindun 5-13 NA 5-13 m/s og frtils háttar él noröan- og Hiti 0° til 8° Vindur: 5_13 iii/í. NA 5-13 m/s og lítilsháttar él noröarv og Hlti o° til 8* Vindur: 5-13 '*'/*> NA 5-13 m/s og Irtils háttar él austan tll, en austan tll, en austan tll, en annars annars bjartviöri. annars bjartviöri. Frost Frost 0 til 8 stlg bjartvlöri. Frost O til 8 stig, en O til 8 stlg. frostlaust meö suöurströndinnl. m/s Logn 0-0,2 Andvari 0,3-1,5 Kul 1,6-3,3 Gola 3,4-5,4 Stinningsgola 5,5-7,9 Kaldl 8,0-10,7 Stinningskaldi 10,8-13,8 Allhvasst 13,9-17,1 Hvassviðri 17,2-20,7 Stormur 20,8-24,4 Rok 24,5-28,4 Ofsaveður 28,5-32,6 Fárviðri >= 32,7 AKUREYRI léttskýjaö 1 BERGSSTAÐIR skýjaö 1 BOLUNGARVÍK léttskýjað 1 EGILSSTAÐIR skýjaö 2 KIRKJUBÆJARKL. skýjaö 0 KEFLAVÍK þokumóða -1 RAUFARHÖFN skýjað 1 REYKJAVÍK skýjaö 0 STÓRHÖFÐI léttskýjað 2 BERGEN heiöskírt -3 HELSINKI heiöskírt -6 KAUPMANNAHÖFN skýjaö 1 ÓSLÓ heiöskírt -6 STOKKHÓLMUR -5 ÞÓRSHÖFN léttskýjað 1 ÞRÁNDHEIMUR alskýjað -11 ALGARVE skýjaö 14 AMSTERDAM skýjað 4 BARCELONA léttskýjað 7 BERLÍN slydda 2 CHICAGO skýjaö 6 DUBUN léttskýjaö 3 HAUFAX rigning 4 FRANKFURT skýjað 4 HAMBORG rigning 2 JAN MAYEN skafrenningur -1 LONDON skýjaö 5 LÚXEMBORG skýjaö 3 MALLORCA léttskýjaö 8 MONTREAL 4 NARSSARSSUAQ skýjaö -11 NEW YORK þokumóöa 7 ORLANDO heiöskírt 4 PARÍS skýjaö 7 VÍN heiöskírt 3 WASHINGTON þokumóöa 9 WINNIPEG alskýjaö -12

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.