Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2002, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2002, Blaðsíða 20
32 FIMMTUDAGUR 14. MARS 2002 Tilvera DV Frumsýningar í bíóum: Box, draugar og f j ölskyldudrama likamlega stæltur. Smith hefur feng- ið góða dóma fyrir leik sinn og er tilnefndur til óskarsverðlaunanna. Þær þrjár kvikmyndir sem frum- sýndar verða á morgun eru mjög ólíkar. í Ali er verið að fjalla um fer- il frægasta hnefaleikakappa sögunn- ar, Muhammed Ali, sem áður hét Cassius Clay. 13 Ghosts er hrein- ræktuð draugamynd og In the Bedroom er fjölskyldudrama sem hefur fengið mjög góðar viðtökur og er meðal annars tilnefnd til ósk- arsverðlauna. Fyrir þá sem vilja listrænar kvikmyndir sem eru ekki á ensku er vert að benda á frönsku bíódagana í Regnboganum en þar eru áhugaverðar kvikmyndir sýnd- ar alla helgina. Allir sem eitthvað eru komnir til ára sinna vita hver Muhammed Ali er. Þessi frægasti hnefaleikakappi sögunnar var mikill fjölmiðlamatur In the Bedroom Sissy Spacek og Tom Wilkinson eru bæöi tilnefnd til óskarsverðlauna fyrir leik sinn. á sínum tima auk þess sem hann kom í fyrstu öllum á óvart með getu sinni. Ali, sem er í dag þjáður af Parkinsons-veikinni, var aldrei spar á stóryrðin og lét alla fá það óþveg- ið sem að hans mati áttu það skilið. Einkalíf hans var fjölskrúðugt. Hann neitaði að taka þátt í Víetnam-stríðinu, tók þátt í kröfu- göngum gegn stjórn Bandaríkjanna, gerðist múslími og var dyggur bar- áttumaður fyrir réttindum svartra. Það þótti því mörgum tími til kom- inn að gera kvikmynd um Ali og það féll í hlut hins ágæta leikstjóra Michael Mann (The Insider, Heat) að taka það að sér og gaf hann sér góðan tíma í verkið. Will Smith, sem leikur Ali, tók einnig góðan tíma til undirbúnings. Það gaf auga leiðþegar hann sam- þykkti að leika Ali, þá rúm hann 80 kíló, að hann þyrfti að þyngja sig og sú þyngd þurfti að fara í vöðvana. I marga mánuði æfði hann fimm daga í viku í æfingabúðum í Colorado þar tO hann var búinn að ná 100 kílóa þyngd og var orðinn Atvinna Innheimta áskriftar Útgáfufélagiö DV leitar að starfsmanni til framtíðarstarfa á innheimtudeild áskriftar. Leitað er eftir áreiðanlegum og stund- vísum starfsmanni með einhverja bókhaldsþekkingu, almenna kunnáttu á helstu tölvuforrit og færni í mannlegum samskiptum. Þarf að geta byrjað strax. Vinnutími er milli kl. 9 og 17. Alla tíð hefur DV verið lifandi hluti af lífi þjóðarinnar með ábyrgri og kjarkmikilli fréttamennsku, vönduðum skrifum og þjónustu við lesendur sína. Hjá DV starfar öflugur og samstilltur hópur starfsmanna sem lítur til framtíðar með sóknarhug. Vilt þú starfa með okkur? Sendu þá skriflega umsókn með almennum uppl. og lýsingu á fyrri störfum til: Útgáfufélagsins DV, Þverholti 11, 105 Reykjavík, merkt „Áskrift“ eða á netfangið selma@dv.is ff:.; 13 Ghosts Hér hefur einn draugurinn látiö vita af sér og Matthew Lillard öskraraf hræðslu. góðri leið með að verða þekktur djassspilari þegar hann hóf að nema leiklist með tónlistinni og eftir að því námi lauk sneri hann sér alfar- ið að kvikmyndum, hefur leikið í hátt i 30 myndum. Meðfram leikn- um hóf hann að skrifa handrit og leikstýra stuttmyndum. Það er svo með In the Bedroom, sem er hans fyrsta kvikmynd í fullri lengd, sem hann er að tryggja sér sess á meðal þeirra bestu. 13 Ghosts 13 Ghosts er hreinræktuð drauga- mynd og er endurgerð kvikmyndar sem bar sama nafn og var gerð 1960. Þá kvikmynd gerði William Castle, sem gerði út á brellur og var mikill hugmyndasmiður í þeim efnum. Myndir hans þótt þó ekki merkileg- ar, sannkallaðar b-myndir. Castle hefur þó áunnið sér vissan sess í kvikmyndasögunni fyrir uppátæki sín. Fyrir tveimur árum var önnur kvikmynd hans endurgerð, The House on the Haunted Hill. 1 13 Ghosts segir frá fjölskyldu sem hefur misst allt sem hún átti i eldsvoða. Það verður því ekki með orðum sagt sú gleði sem umlykur fjölskylduna þegar hún fær þær fréttir að fjölskyldufaðirinn Arthur hefur erft hús eftir dularfuUan frænda. Húsið er glæsilegt að innan sem og utan, uppfullt af fallegum húsgögnum og dýrgripum. Fjöl- skyldan er alsæl þar til i ljós kemur að húsinu fylgja þrettán draugar. í aðalhlutverkum eru Tony Shaloub, Embeth Davidts, Matthew LiUard, Shannon Elizabeth og F. Murray Abraham. Leikstjóri er Steve Beck og er þetta fyrsta kvik- mynd hans. -HK *?.-íýk ■ tU-iiílUÍ+i:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.