Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2002, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2002, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 2002 Fréttir i>v Stjórnarformaður flutningsjöfnunarsjóðs sements: Annar ráðuneytismaður fram hjá kjaranefnd - sá fyrri telur að nefndinni hafi verið kunnugt um stjórnarstörfin „Okkur var ekki kunnugt um þessar greiðslur," segir Guðrún Zoéga, formaður kjaranefndar, um laun sem Atli Freyr Guðmundsson, skrifstofustjóri í iðnaðar- og við- skiptaráðuneytinu, hefur þegið fyr- ir stjómarformennsku í Qutnings- jöfnunarsjóði sements. Hann situr í stjórn sjóðsins samkvæmt skipun ráðherra. Laun skrifstofustjóra í ráðuneyt- um eru ákveðin af kjaranefnd. Það er nefndarinnar að meta í hvert sinn hvort seta í nefndum og stjórn- um teljist eðlilegur hluti af starfi Ferðaskrifstofur: Fá stjórnvalds- sektir vegna ferðaauglýsinga Áfrýjunamefnd samkeppnismála hefur úrskurðað í áfrýjunarmálum Heimsferða ehf., Flugleiða hf. og Plúsferða ehf. gegn samkeppnisráði. Er félögunum öllum gert að greiða stjómvaldssektir vegna þess að Qug- vallarskattar voru ekki innifaldir í verði í ferðaauglýsingum félaganna fyrr á þessu ári. í niðurstöðu áfrýjunarnefndar er sektargreiðsla vegna stjórnsýslu- brots Heimsferða ehf. ákveðin 400.000 krónur. Flugleiðum hf. er gert að greiða 300.000 krónur vegna brots af sama toga. Þá er Plúsferð- um ehf. einnig gert að greiða 300.000 krónur i stjórnvaldssekt vegna brots á reglum um verðupplýsingar í auglýsingum samkvæmt 21. grein samkeppnislaga frá 1995. Málavextir eru þeir að 28. febrúar 2002 sendi Samkeppnisstofnun bréf til sex fyrirtækja í ferðaþjónustu þar sem rakin voru ákvæði laga og reglna sem í gildi eru um verðupp- lýsingar í auglýsingum og úrræði stjómvalda ef brotið er gegn þeim ákvæðum. Fyrrgreind fyrirtæki birtu síðan auglýsingar þann 10. og 12. mars sem taldar voru brot á fyrr- greindum ákvæðum. Sendi Sam- keppnisstofnun fyrirtækjunum bréf vegna þessara mála 11. og 18. mars og gaf þeim 10 daga frest til að gera leiðréttingu á sínum auglýsingum. Báru fyrirtækin m.a. við mistökum og að auglýsingar hefðu verið send- ar til birtingar áður en viðvörun Samkeppnisstofnunar var gefin. Var sú túlkun hins vegar ekki tekin til greina í niðurstöðu áfrýjunar- nefndar samkeppnismála. -HKr. Olíuleitarskip leitaði vars Rannsóknarskipið Zephyr leitaði vars í Norðfjarðarhöfn um helgina en skipið er hér við land á vegum olíuleitarfyrirtækisins TGS Nopec. Tilgangur ferðarinnar er að kanna setlög undan norðaustur- og austur- ströndinni með það fyrir augum hvort hér sé olíu að frnna. Landgrunnið við ísland hefur reyndar lengst af verið talið of ungt til að þar geti leynst olía í vinnan- legum mæli en reyndar var svipað sagt um Norðursjó á sínum tima. Auk þess hafa nokkrir íslenskir jarðfræðingar bent á það nýlega að Jan Mayen-hryggurinn kunni að teygja sig inn undir austurhluta landsins en hann er sneið af fomu meginlandi. Meðal annars er þykkt berggrunnsins undir Austfjörðum mun meiri en undir Vestfjörðum auk þess sem vísbendingar hafa fundist um að gosefni í Öræfajökli kunni að innihalda steindir úr meg- inlandsbergi. -EG ilniiMiiui (Mj<im hálfa milljón króna ýjaranefnd Frétt DV í gaer. þeirra sem ekki beri að greiða sér- staklega fyrir. Launagreiðslur Qutningsjöfnun- arsjóðs sements námu í fyrra sam- tals 1,3 milljónum króna en þrír menn sitja í stjóminni. Einn þeirra, Gunnar G. Þorsteinsson, aðstoðar- forstjóri Samkeppnisstofnunar, er jafnframt framkvæmdastjóri sjóðs- ins. Hann þiggur einnig laun sem starfsmaður annars sjóðs - Qutn- ingsjöfnunarsjóös olíuvara. Laun Gunnars eru hins vegar ekki ákveð- in af kjaranefnd og eiga viðmiðun- arreglur nefndarinnar því ekki við um hann. Atli Freyr Guðmundsson er ekki eini skrifstofustjórinn í iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu sem þegið hefur laun fram hjá kjaranefnd. Eins og DV greindi frá í gær hefur Jón Ögmundur Þormóðsson þegið 400 þúsund krónur á ári fyrir að sitja í stjóm Qutningsjöfnunarsjóðs olíuvara, en formaður kjaranefndar tjáði DV að sér hefði ekki verið kunnugt um þær greiðslur. DV náði ekki tali af AQa Frey í gær. Jón Ögmundur segist hins veg- ar hafa haft samband við formann kjaranefndar símleiðis í október 1999 og upplýst um setu sína í stjórn sjóðsins, svo og að hann teldi störf sín þar ekki tengjast störfum hans í ráðuneytinu. Myndi hann því ekki víkja sérstaklega að setu sinni í sjóðnum í svari til kjaranefndar vegna fyrirspurnar nefndarinnar, f formlegu svarbréQ til nefndarinnar nokkrum dögum síðar sagðist Jón Ögmundur ganga út frá því að nefndin fengi ætíð nýjustu upplýs- ingar frá iðnaðar- og viðskiptaráðu- neytum um störf hans sem skrif- stofustjóra. Sagðist hann af þeim sökum ekki senda nefndinni sérstök gögn þar að lútandi. „Samkvæmt framansögðu tel ég að nefndin haQ vitað um Qutnings- jöfnunarsjóð olíuvara og setu mína í stjóminni," segir Jón Ögmundur. -ÓTG Hamingjusamar fjölskyldur Hamingjusamir foreldrar meö dætur sínar í Kanton-garöinum í Kína. Fjölskyldurnar eru væntanlegar heim síöar í vik- unni. Tíu litlar kjördætur á leiðinni heim til íslands frá Kína: Einstök og ólýsanleg upplifun - að halda á dótturinni í fyrsta skipti, segir Hjalti Jón Sveinsson „Þetta var alveg einstök og ólýs- anleg upplifun," sagði Hjalti Jón Sveinsson, skólameistari við Verk- menntaskólann á Akureyri, þegar DV spurði hann í gær hvemig það hefði verið að halda í fyrsta skipti á lítilli dóttur sinni í fanginu, eftir að hafa ferðast alla leið til suðurhluta Kína til þess að sækja hana. Nú eru foreldrar tíu stúlkubama staddir í Kína til þess að sækja bömin sín. Þessi tíu stúlkuböm era hin fyrstu sem ætQeidd eru hingað frá Kína. Það er félagið íslensk ætt- leiðing sem hefur milligöngu um ætQeiðingu bama þaðan, eins og frá fjöldamörgum öðrum löndum. LiQu stúlkurnar, sem koma brátt heim með foreldrum sínum, eru all- ar um það bil eins árs. Þær hafa búiö á bamaheimili eftir að hafa verið bomar út. Nú hafa þær eign- ast íjölskyldur og ný heimili. For- eldrarnir hafa þurft að bíða mis- munandi lengi eftir að fá þær. Stysta biðin hefur verið um það bil eitt ár. Það var því eftirvæntingarfullur hópur sem hélt út til Kína laugar- daginn fyrir rúmri viku til að hitta börnin sín. Fyrst var Qogið tQ Peking og haldið þaðan til Kanton- borgar, sem er í suðurhluta lands- ins, suður undir Hong Kong. Ekki liðu nema tvær klukkustundir frá því foreldramir lentu þar til þeir vom komnir með stúlkumar sínar í fangið. Þama urðu miklir gleðifund- ir eins og nærri má geta. Sam- kvæmt upplýsingum blaðsins hefur allur undirbúningur heimferðarinn- ar gengið eins og best verður á kos- ið. Fjölskyldurnar eru væntanlegar heim síðari hluta þessarar viku. -JSS «E Ný hjúkunarrými Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra og Ingibjörg Sólrún GísladóQir borgar- stjóri undirrituðu í gær sameiginlega viljayQrlýsingu um endurbætur og upp- byggingu nýrra hjúkrunarrýma í Reykjavík á ámn- um 2003 til 2007. Gert ráð fyrir að 326 ný hjúkrunarrými verði tekin i notkun í Reykjavík á tímabilinu en 42 eldri rýmum verði lokað eða breyR í sérbýli. - Mbl. greindi frá. Kvartað undan flugi Mikið var hringt tU lögreglunnar í Reykjavík í nótt og kvartað undan hávaða af völdum Qugvéla sem sveima yflr borginni. Vélamar, sem em kafbátaleitarvélar af gerðinni P- 3 Orion, Qjúga yOr borgina í örygg- isskyni vegna ráðherrafundar Atlantshafsbandalagsins. Landmat á CNN Hugbúnaður frá upplýsinga- tæknifyrirtækinu Landmati hefur vakið umtalsverða athygli í Ind- landi og var m.a. tU uppfjöllunar hjá sjónvarpsstöðmni CNN í Asíu í gærmorgun. Um er að ræða stefnu- mótahugbúnað fyrir farsíma, DateTrak, sem Landmat hefur hannað og byggist á landfræðUegri staðsetningu. Vill banna olíuflutninga Hafnasamlag Suðumesja vUl að olíuQutningar á Reykjanesbraut verði bannaðir og eldsneytið verði í staðinn QuR sjóleiðina tU og frá Helguvík. Þorsteinn Ámason, form. stjómar HASS, telur öryggi aukast á Reykjanesbrautinni, slit minnka og að rekstur hafnarinnar styrkist. - VíkurfréRir greindu frá. Loftinntök athuguð Rannsóknamefnd sjóslysa leggur tU að hugað verði að staðsetnmgu loftinntaka á skipum í framhaldi af rannsókn sjóslyssins þegar Svan- borg SH 404 varð vélarvana og fórst við Svörtuloft yst á SnæfeUsnesi 7. desember. Tvö tilboð Orkuveitu Reykja- víkur hafa borist tvö tUboð í rekstur lík- amsræktarstöðvar sem fyrirhugaður er í nýjum höfuðstöðvum Orkuveitunnar sem nú rísa við RéRarháls í Reykjavík. Annað tUboðið mun vera frá Bimi Leifssyni í World Class en ekki er ljóst frá hverjum hiR tUboðið er. Aiireð Þor- steinsson segir tUboðin tU skoðunar. - Mbl. greindi frá. Ný skoðanakönnun Reykjavíkurlistinn hefur tæplega 52% fylgi og SjálfstæðisQokkurinn tæp 43% í nýrri fylgiskönnun sem Talnakönnun hf. gerði fyrir vefsíðuna heimur.is. Fylgi Frjálslyndra og óháðra mældist um 4,5%. Leitað að síld Grindvíkingur GK hélt frá Seyðis- Qrði í gærmorgun og var ferðinni heitið í SUdarsmuguna. Frést hafði af dönskum skipum sem orðið höfðu vör við sUd í veiðanlegu magni norður undir 70’N og verður farið þangað ef sUd Qrrnst ekki sunnar á veiðisvæð- inu. - Interseafood greindi frá. Fær ekki X DeUur hafa staðið yQr undanfarið í Fjarðabyggð vegna listabókstafs Biðlistans sem var X en er nú orðinn Á. Ákveðin mótframboð í Fjarðabyggð hótuðu að kæra notkun bókstafsins þar sem hann gæti valdið kjósendum ruglingi. - Austurglugginn greindi frá. -Hkr

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.