Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2002, Blaðsíða 9
9
ÞRIPJUDAGUR ,14. MAÍ ,2002
DV_____________________________________________________________________________________________________Neytendur
Erum sáttir við
stöðu okkar
á markaði
- segja forsvarsmenn Krónunnar og Nettó
Fyrir um hálfu öðru ári var
fyrsta Krónuverslunin opnuð í
Skeifunni og upphófst þá mikill has-
ar á matvörumarkaði. Vöruverð
ákveðinna tegunda, svo sem græn-
metis, lækkaði niður úr öllu valdi
og hugsuðu neytendur sér gott til
glóðarinnar. Fljótlega komst þó á
jafnvægi á lágvöruverðsmarkaðin-
um og þeir þrír aðilar sem hafa
staðsett sig þar, Bónus, Krónan og
Nettó, mælast yfirleitt með svipað-
an mun innbyrðis. Bónus hefur
ætíð verið með lægsta verðið, Krón-
an hefur fylgt þar á eftir og svo
Nettó. Svo virðist sem Krónunni og
Nettó hafi ekki tekist að ógna veldi
Bónuss. En eru Krónan og Nettó
sátt við stöðu sina á markaðinum?
„Við erum næstlægstir
á markaðinum og telj-
um það vera ágæt-
an ávinning,"
segir Sigurð-
ur Teits-
son, fram-
kvæmda-
stjóri
Krónunn-
ar. „Við
þurfum að
hafa tölu
vert
fyr-
ir
halda þeirri stöðu - erum að vinna
á lítilli framlegð og höfum ekki
treyst okkur til að fara neðar.“
En nú var þessi keðja sett af stað
til höfuðs Bónus en mælist ailtaf
með hærra verð. Eruð þið búnir að
gefast upp?
„Nei, við erum i mikilli sam-
keppni en þeir
Bónusmenn
svara öllu sem
við gerum mn
hæl. Við getum
hins vegar ekki
farið út í neina
vitleysu; fyrir-
tæki verða að
standa undir
því sem þau eru
að gera og þar
má lítið út af
bregða."
Eins og kunn-
ugt er hafa
miklar breyt-
ingar átt sér
stað í verslun-
um Krónunnar
- m.a. hefur
vöruval verið
aukið að mun.
„Við erum að styrkja Krónubúðim-
ar, fjölga þeim, laga útlit, afgreiðslu-
tíma og vöruúrval - í stuttu máli
sagt gera allt til að vera samkeppn-
ishæfir í þessum bransa til framtíð-
ar. Þetta er að skila sér og við
merkjum mikla aukningu, enda
horfir fólk líka á vöruúrvalið og við
reynum að uppfylla allar þarfir á
hnitmiðaðan hátt.“
„Við erum síður en svo ósáttir við
stöðu okkar á markaðinum," segir
Hannes Karlsson, rekstrarstjóri
Nettóverslananna sem yfírleitt koma
út með þriðja lægsta verðið í verð-
könnunum á matvöru. „Við teljum
okkur fyllilega samkeppnishæfa. Sé
t.d. litið til síðustu verðkönnunar
DV er harla lítiil munur á verði
okkar og þeirra lægstu séu
grænmeti og ávextir teknir
Hannes segir að
ettó bjóði upp á allt
aðra umgjörð á græn-
meti og ávöxtum og
að lagt sé meira upp
úr gæðum og fersk-
leika vörunnar.
„En það sem að-
greinir okkur helst
frá Bónus er að við
upp á hag-
stæð heildar-
innkaup.
Verslanir sem
aðeins bjóða upp á
2000 vörunúmer gera það að verkum
að viðskiptavinirnir þurfa að klára
innkaupin annars staðar og þá er
spurning hvað heildarpakkinn kost-
ar þegar heim er komið. Það kostar
bæði tíma og peninga að fara á milli
búða.“ -ÓSB
Hið Ijúfa líf enn á sama verði
Fátt er betra en aö flatmaga á sólarströnd í sumarleyfinu. Þó sjá ekki allir sér fært aö fara til útlanda í sumarfríinu en
haldi gengi krónunnar áfram aö styrkjast er von til þess aö verö feröa lækki.
Ferðaskrifstofur:
Engin lækkun á
pakkaferðum
- þrátt fyrir að lækkun gengis nú sé svipuð hækkun í fyrra
Á síðasta ári hækkuðu sólar-
landaferðir töluvert frá þvi að bæk-
lingar komu út og fram á vor.
Ástæðan var hækkandi gengi doll-
ars en hann fór úr um 86 kr. í janú-
ar í 95 kr. um miðjan apríl. í ár var
gengi dollarans um 102 kr. 11. janú-
ar, þegar verð sólarlandaferðanna
var ákveðið, en um miðjan apríl var
það komið niður í 92 kr. Lækkunin
nú er því svipuð og hækkunin var í
fyrra. Því vaknar sú spuming hvort
ferðaskrifstofur ætli að lækka verð
eitthvað.
Terra Nova-Sól
„Ljóst er að ferðaskrifstofur tóku
á sig meirihluta þeirrar gengis-
hækkunar sem varð á síðasta ári
þvi henni var ekki hægt að veita út
í verðlagið sökum samdráttar," seg-
ir Goði Sveinsson, markaðsstjóri
hjá Terra Nova-Sól. „Enda var árið
þungt í rekstri hjá ferðaskrifstofum,
eins og best sést á afkomu þeirra, og
sumar eru jafnvel ekki tO lengur."
Hann segir að enn sem komið er
sé ekki grundvöllur fyrir lækkun,
sérstaklega ekki þegar tekið sé tillit
til þess að verð ferða hafi í mörgum
tilfellum lækkað frá síðasta ári en
það hafi verið gert til að mæta
þungum markaði. „Þess má einnig
geta að stóran hluta þess sem við
erum að selja er búið að greiða fyr-
ir fram á háu gengi og á það bæði
við um gistingu og flugferðir.
Þannig eru ekki enn aðstæður til
lækkunar enda vita menn ekki hvar
þetta endar.“
Heimsferðir
Andri Már Ingólfsson, fram-
kvæmdastjóri Heimsferða, segir að
þar á bæ vilji menn sjá hvort geng-
ið sé orðið stöðugt áður en þeir
hlaupi til og breyti verði. „Eins og
staðan er í dag sýnist mér sem geng-
isbreytingar hafi um 4% áhrif á
verð ferðanna en í almennum skil-
málum segir að ferðaskrifstofum sé
heimilt að hækka eða lækka verð ef
um er að ræða meira en 5% breyt-
ingu. Því er ekki ástæða til verð-
breytinga að svo stöddu. En við
munum fylgjast vel með næstu daga
því breytingar á gengi gerast hratt;
gengið hækkaði t.d. svolítið sl.
þriðjudag."
Andri segir að Heimsferðir hafi
gert framvirka samninga um gengi
til að tryggja verð, auk þess sem
stór hluti gistingar sé greiddur fyr-
irfram og þá á meðan gengið var
enn mjög hátt. „Svo má líka nefna
að töluverður hluti kostnaðar okkar
er innlendur og því hafa gengis-
breytingar engin áhrif á hann. En
auðvitað vonum við að gengið hald-
ist svona því það leiðir til lækkunar
seinna í sumar."
Úrval-Útsýn
Páll Ármann, markaðsstjóri
Ferðaskrifstofu íslands, Úrvals-Út-
sýnar, segir að þar sé fylgst vel með
gengisþróun eins og alltaf. „En í ár
gerðum við mikið af framvirkum
samningum til að tryggja verð til að
lenda ekki í þeim hremmingum sem
við lentum í á síðasta ári. Eins
greiddum við mikið fyrir fram og
þetta tvennt minnkar getu okkar til
að koma til móts við þá gengis-
hækkun krónunnar sem verið hefur
undanfarið.“
Úrval-Útsýn mun þó lækka verð
um leið og mögulegt er, en Páll
bendir á að engin leið sé að sjá fyr-
ir hvort af því verði. „Við erum að
skoða málið gaumgæfilega en við
búum við miklar sveiflur og verð-
um því að reyna að tryggja okkur
fyrir þeim. En slíkar tryggingar
gilda jafnt fyrir sveiflum sem verða
niður á við sem og þeim sem eru
upp á við.“
Þær reglur sem gilda hjá ferða-
skrifstofum um verðbreytingar eru
þannig að þeir sem hafa greitt
minna en helming ferðarinnar fá
verðbreytingu á alla ferðina. Þeir
sem hafa greitt meira en helming
ferðar fá hækkun/lækkun á helm-
ing en þeir sem hafa fullgreitt þurfa
ekki að taka á sig neinar verðbreyt-
ingar. Því getur sú staða komið upp
að haldi krónan áfram að styrkjast
og verð ferða lækki muni þeir sem
hafa fullgreitt ferðir sínar snemma
greiða hærra verð en hinir sem
ekki sjá sér fært að gera það. -ÓSB
I
HHS
Nýju braudin og sósurnar hafa slegið í gegn
ert þú búin(n) að smakka?
iSUBUURY*
•SUBUJHy*
húffengar
3 sosdr
riONF.Y MUSTARD SÓSA
\SIAG0 CAESAR SÓSA • SOUTHW’EST SÓSA
Horseradish sósa
I
Esso-stöðinni Reykjavíkurvegi Hfj. • Kaupvangsstræti Akureyri • Hafnargötu Keflavík • Varnarstöðinni Keflavíkurflugvelli