Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2002, Page 10
10
Útlönd
ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 2002
DV
Húsbréf
Innlausn
húsbréfa
Frá og með 15. maí 2002 hefst innlausn
á útdregnum húsbréfum í eftirtöldum fLokkum:
1. flokki 1989 - 46. útdráttur
1. flokki 1990 - 43. útdráttur
2. flokki 1990 - 42. útdráttur
2. flokki 1991 - 40. útdráttur
3. flokki 1992 - 35. útdráttur
2. flokki 1993 - 31. útdráttur
2. flokki 1994 - 28. útdráttur
3. flokki 1994 - 27. útdráttur
Innlausnarverðið er að finna í Morgunblaðinu
þriðjudaginn 14. maí.
Innlausn húsbréfa fer fram hjá íbúðalánasjóði, í bönkum,
sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum og liggja þar einnig
frammi upplýsingar um útdregin húsbréf.
Ibúðalánasjóður
| Borgartúni 21 | 105 Reykjavik | Sími 569 6900 I Fax 569 6800
Engin fótur fyrir
ásökunum
Jimmy Carter, fyrrverandi for-
seti Bandarikjanna, sem nú er í sex
daga vináttuheimsókn hjá Castro á
Kúbu, sagði í gær að bandarískir
embættismenn hefðu sagt sér að
engar sannanir væru fyrir þvi að
kúversk stjómvöld hefðu flutt út
tæknikunnáttu sem nýst gæti til
framleiðslu gjöreyðingarvopna.
Þetta kom fram í viðtali við Cart-
er eftir að hann hafði skoðað líf-
tæknistofnanir í Havana í gær, en
Castro bauð honum að skoða stofn-
anirnar vegna ásakana banda-
rískra stjómvalda í síðustu viku
um að kúversk stjórnvöld hefðu
staðið þar fyrir framleiðslu
efnavopna og flutt út tæknibúnað
til slíkrar framleiðslu til vafasamra
ríkja.
REUTERSMYND
Flöskutínsla í Argentínu
Joel Medina og sonur hans Hernan setja tómar flöskur í vagninn eftir heilan
dag á ruslahaugunum. Þar hiröa þeir nýtilega hluti til aö selja svo þeirgeti
sé fjögurra manna Ijölskyldu sinni farboröa.
Síðustu leifar kalda stríðsins:
Samkomulag um eyð-
ingu kjarnavopna í höfn
Hollendingar kjósa á morgun:
Flokkur Fortuyns
upp í annað sæti
George W. Bush Bandaríkjaforseti
tilkynnti í gær að mikilvægt skref
hefði verið stigið í samskiptum
Bandaríkjamanna og Rússa um helg-
ina þegar samkomulag náðist um
verulega fækkun langdrægra kjama-
odda.
Bush tilkynnti þetta á fréttamanna-
fundi í Washington í gær eftir fund
þeirra Johns Bolton aðstoðar-utanrík-
isráðherra Bandarikjanna, og Ge-
orgys Mamedov aðstoðar-utanríkis-
ráðherra Rússlands, sem hittust í
Moskvu um helgina.
Vladimir Pútín Rússlandsforseti
staðfesti í gær að samkomulagið væri
í höfn og að það verði undirritað á
fundi þeirra Bush í Moskvu í lok mán-
aðarins. Hann lýsti ánægju sinni með
samkomulagið og sagði að það ætti ör-
ugglega eftir að koma báðum aðilum
til góða.
Að sögn Bush gerir samkomulagið
ráö fyrir verulegri fækkun kjama-
odda úr um það bil sex til sjö þúsund
hjá hvorum aðila í um 1700 til 2200 á
næstu tíu árum. „Þessi samningur er
Bush Bandaríkjaforsetl
Bush Bandaríkjaforseti tilkynnti í
gær aö samkomulag heföi náöst viö
Rússa um verulega fækkun
langdrægra kjarnaodda.
sögulegur og með honum er í raun
verið að hreinsa upp síðustu leifar
kalda stríðsins. Hann mun gera heim-
inn friðvænlegri og binda enda á arf-
leifð kalda stríðsins í eitt skipti fyrir
öll. Hann mun marka mikil þáttaskil í
samskiptum okkar við Rússa og það
er mikilvægt," sagði Bush.
Að sögn Ari Fieischer, talsmanns
Hvíta hússins, gerir samkomulagið
ráð fyrir að hluta vopnabirgðanna
verði eytt en aðrar birgðir settar í
geymslu.
Samkvæmt fréttum frá Rússlandi
munu rússnesk stjórnvöld ekki yfir
sig hrifm af því að Bush skyldi riða á
vaðið með að tilkynna um að sam-
komulagið væri í höfn, heldur hefði
það átt að vera í þeirra verkahring
þar sem það náðist i Moskvu og verð-
ur undirritað þar.
Bush mun hafa notað fyrsta tæki-
færi til þess að tilkynna að það væri í
höfn, aðeins mínútum eftir að rúss-
neska utanrikisráðuneytið hafði til-
kynnti að dregið hefði saman í sam-
komulagsátt.
Hægriöfgaflokkur hollenska
stjórnmálamannsins Pims Fortuyns,
sem var myrtur fyrir skömmu, er
orðinn næststærsti flokkur landsins,
að því er fram kom í skoðanakönnun
sem birtist í gær. Fortuyn og flokkur
hans hafa barist gegn veru innflytj-
enda i Hollandi.
Hollendingar ganga að kjörborð-
inu á morgun og ef marka má skoð-
anakönnunina fær flokkur Fortuyns
18,5 prósent atkvæða, eða 28 þing-
menn af 150 á hollenska þinginu. í
maíbyrjun var fylgi flokksins 17 pró-
sent.
Kristilegir demókratar, sem var
bolað út út ríkisstjórn Hollands 1994,
njóta mests fylgis, 20,5 prósenta.
Nýr leiötogi flokks Fortuyns fetaði
í fótspor fyrirrennara síns og veittist
að vinstri flokkunum.
Vinsæll eftlr dauðann
Flokkur hins myrta hollenska stjórn-
málamanns Pims Fortuyns nýtur
mikils fylgis meöal kjósenda.
Kallsberg boðar
nýjar viðræður
Anfinn Kalls-
berg, lögmaður
Færeyja, hefur
ákveðið að halda
áfram að reyna
stjórnarmyndun, í
þetta sinn án þátt-
töku Þjóðveldis-
flokks Hogna
Hoydals. Kallsberg,
sem stýrir Fólkaflokkinum, hefur
boðað fund með leiðtogum Sjálfstýr-
isflokksins, Jafnaðarflokksins og
Sambandsflokksins laust eftir há-
degi í dag til að kanna grundvöll
breiðrar samsteypustjómar.
Lisbeth L. Petersen, leiðtogi Sam-
bandsflokksins, staðfesti við fær-
eyska útvarpið í nótt að flokkur
hennar væri tilbúinn til stjómar-
myndunarviðræðna.
Ef þessir flokkar koma sér saman
um myndun nýrrar landstjómar má
telja ömggt að sjálfstæðismálin
verði sett í salt. Hogni Hoydal og
flokkur hans voru helstu talsmenn
sjálfstæðis Færeyja innan fráfar-
andi landstjómar. Jafnræði var
með fylkingum stjórnar og stjómar-
andstæðinga eftir kosningar í apríl.
Viðræður Fólkaflokks, Þjóðveld-
isflokks, Sjálfstýrisflokks og Jafnað-
arflokks fóru út um þúfur í gær-
kvöld. Flokkarnir gátu ekki komið
sér saman um hversu mikið skyldi
lækka ríkisstyrkinn frá Danmörku
næstu fjögur ár og hvaða mála-
flokka Færeyingar ættu að taka að
fullu yfir frá Dönum.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi
eignum verður háð á þeim sjálf-
um sem hér segir:
Neðstatröð 6, ehl. gþ., þingl. kaup-
samningshafi Hjalti E. Hafsteinsson,
gerðarbeiðendur fslandsbanki-FBA
hf. og Sparisjóður Rvíkur og nágr.,
útib., föstudaginn 17. maí 2002, kl.
14.30.
Smiðjuvegur 4a, 0112, jarðhæð, þingl.
eig. Vilborg Baldursdóttir, gerðabeið-
andi Sparisjóður Hafnarfjarðar, föstu-
daginn 17. maí, kl. 14.00.
SÝSLUMAÐURINN í KÓPAVOGI
Kardínáli reiðist
Bernard Law,
kardínáli í Boston,
reiddist við yfir-
heyrslu fyrir dómi í
gær. Hann vísaði
því þar alfarið á
bug að hann hefði
vanrækt skyldur
sínar með því að
koma ekki í veg fyrir að prestur
sem var sakaður um kynferðislega
misnotkun á bömum hefði sam-
neyti við böm í sókn hans.
Rætt við stuðningsríki
Leiðtogar Austur-Timor hófu í
dag viðræður við erlend ríki um að-
stoð við að koma efhahag landsins á
réttan kjöl. Austur-Tímorar óska
eftir að fá tæpa níu milljarða króna.
Atkvæði um írak
Búist er við að Öryggisráð SÞ
samþykki í dag umfangsmikla end-
urskoðun á tólf ára gömlum refsiað-
gerðum gegn Irak. Tafir urðu á at-
kvæðagreiðslunni á meðan Sýriend-
ingar vom talaðir til.
Kosið í Sierra Leone
Þingkosningar fara fram í Afriku-
ríkinu Sierra Leone í dag og hefur
baráttan verið friðsöm. Hjálmar
Jónsson dómkirkjuprestur er meðal
eftirlitsmanna með því að kosning-
arnar fari vel fram.
Skjálfti í San Francisco
Meðalstór jarðskjálfti skók San
Francisco og nærsveitir í gærkvöld.
Ekki er vitað til að neinn hafi
slasast né að skemmdir hafi orðið
en mörgum brá óþyrmilega.
í París
Laura Bush, for-
setafrú í Bandaríkj-
unum, var í heim-
sókn í París í gær
þar sem hún hvatti
meðal annars til
fordæmingar á
„þeim hræðilega
harmleik" þegar
böm sprengja sig í tætlur í Mið-
Austurlöndum til að vinna öðrum
mein.
Laura Bush
Segjast ráða við sjúkdóm
Yfirvöld í Suður-Kóreu sögðust í
morgim myndu geta komið í veg
fyrir frekari útbreiðslu gin- og
klaufaveikitilfella með slátrun þús-
unda dýra á smitsvæöum.
Vill ræða við herforingja
Aung San Suu
Kyi, leiðtogi stjóm-
arandstöðunnar í
Burma sem nýlega
var látin laus eftir
nítján mánuði í
stofufangelsi, hvatti
i gær til að sáttavið-
ræður við herfor-
ingjastjóm landsins myndu hefjast
þegar í stað.
Barist gegn barnaklámi
Ríku löndin ætla að koma upp al-
þjóðlegum gagnabanka með nöfnum
fómarlamba bamakláms og kvalara
þeirra í baráttu gegn ósómanum.
Chirac heitir refsingu
Jacques Chirac Frakklandsforseti
hét því í gær að þeim yrði refsað
sem urðu ellefu Frökkum að bana í
sprengjutilræði í Pakistan á dögun-
um. Chirac heiðraði hina látnu í
Cherbourg.