Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2002, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2002, Side 11
11 ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 2002 DV_______________________________________________________________ Útlönd Vorfundur Atlantshafsbandalagsins hófst í Reykjavík í morgun: Gengið frá samráðsvett- vangi NATO og Rússlands Halldór Ásgrímsson utanríkisráð- herra og átján starfsbræður hans í Atlantshafsbandalaginu (NATO) settust niður í morgun til að ganga frá samkomulagi við ígor ívanov, utanríkisráðherra Rússlands, um stofnun nýs samstarfsvettvangs þessara fornu kaldastríðsóvina. Með undirritun samkomulags um hið nýja ráð verður bundinn endi á fimm mánaða samningaferli. Á hin- um nýja samráðsvettvangi munu NATO og Rússar móta sameiginlega stefnu í ýmsum málaflokkum, svo sem baráttunni gegn hryðjuverkum og annarri sameiginlegri ógn. Breið samstaða er um það meðal ráðherranna að beina sjónum sín- um aðallega að þeim málaflokkum þar sem fyrir fram er vitað um að hagsmunir fara saman. Það hefur þó ekki komið í veg fyr- ir að vandamál hafi skotið upp koll- A ponum i vesturoænum Halldór Ásgrímsson utanríkisráöherra ergestgjafi starfsbræöra sinna í Atlantshafsbandalaginu og rússnesks kollega þeirra, ígors ívanovs, á vorfundi NATO sem haldinn er í Háskólabíói í dag og á morgun. inum á samningafundum embættis- manna. Þýskur stjórnarerindreki upplýsti dönsku Ritzau-fréttastof- una um að nýliðin helgi hefði verið notuð til samningaviðræðna. Samkomulagið um samstarfsvett- vanginn verður endanlega staðfest á leiðtogafundi í Róm síðar í maí. „Það verður endanlega til marks um að kalda stríðinu er lokið,“ seg- ir George Robertson, framkvæmda- stjóri NATO. Á tveggja daga fundi utanríkis- ráðherranna er einnig ætlunin að fara yfir áætlanir um stækkun NATO til austurs. Níu ríki í Austur- Evrópu hafa sótt um aðild að NATO og verður gengið frá stækkuninni á leiðtogafundi bandalagsins í Prag í Tékklandi í haust. Þá verður skoðað hvemig hægt sé að minnka bilið milli herja Bandaríkjanna annars vegar og Evrópuríkja hins vegar. Arafat á ferð og flugi Yasser Arafat, leiötogi Palestínumanna, heimsótti í gær þrjá palestínska bæi á Vesturbakkanum í fyrstu ferö sinni út fyrir Ramallah síöan hann varö laus úr fimm mánaöa gíslingu ísraelsmanna í bækistöövum sínum í bænum. Bandarískar sér- sveitir drápu 5 hryðjuverkamenn Bandarískir sérsveitarmenn drápu fimm menn sem grunaðir eru um að tilheyra al-Qaeda eða talibön- um í áhlaupi í sunnanverðu Afganistan. í sömu árás handtóku bandarísku hermennirnir 32 menn höndum og vora sumir þeirra sárir eftir bar- dagana. Svo virðist sem sérsveitarmenn- imir hafi gert árás á gamalt heimili múllans Múhameðs Ómars, leiðtoga talibanastjómarinnar sálugu í Afganistan, sem ekkert hefur spurst til í marga mánuði. Steven O’Connor, höfuðsmaður í bandaríska landgönguliðinu, sagði fréttamönnum að ekkert mannfall hefði orðið í liði hans. Fangamir voru fluttir til Bagram- herstöðvarinnar í nágrenni af- gönsku höfuðborgarinnar Kabúl þar sem þeir verða yfirheyrðir. Höfuðs- maðurinn gat ekki fullyrt um hvort allir hinir handteknu væru al-Qa- eda-liðar eða talibanar. REUTERSMYND Tekist á í Kína Kínverskir lögregluþjónar kljást viö noröur-kóreska konu úti fyrir jaþönsku ræöismannsskrifstofunni í Shenyang í Kína. Þrír norðanmenn til Suður-Kóreu Þrír Norður-Kóreumenn sem leit- uðu hælis á bandariskri ræðis- mannsskrifstofu i Kina í síðustu viku héldu til Suður-Kóreu í morg- un. Óljóst er hins vegar hvað verð- ur um sjö manns sem leituðu hælis á ræðismannsskrifstofum Kanada og Japans. Mál þetta hefur verið afar erfitt fyrir kínversk stjómvöld. Þau hafa lengi vel talið sig skuldbundin til að senda alla norður-kóreska flótta- menn aftur til síns heima en þau era einnig undir miklum þrýstingi annars staðar frá um aö virða mannréttindi. Það sem af er þessu ári hafa 162 Norður-Kóreumenn flúið suður yfir landamærin. í fyrra flúðu 583, eða fleiri en nokkru sinni fyrr. Tugir létust í árás í Kasmír Að minnsta kosti þrjátíu og tveir týndu lífi þegar harðlínumenn réð- ust á langferðabíl og herbúðir í ind- verska hluta Kasmírs í morgun. Meðal hinna látnu voru bæði konur og börn. Þetta er mannskæðasta árás í héraðinu í nærri átta mánuði. Árásin var gerð í dagrenningu í morgun. Hana bar upp á sama tíma og Christina Rocca, aðstoðarutan- ríkisráðherra Bandarikjanna, var í Nýju-Delhi til að reyna að draga úr spennunni milli Indverja og Pakistana vegna Kasmír. Talsmaður indverska hersins sagði að bardagamir hefðu staðið í fjórar klukkustundir og að árásar- mennirnir þrír hefðu verið drepnir. Colin Powell ítrekar stuðning við stofnun palestínsks ríkis Viltu auka við atvinnumöguleikana? Komdu þá til okkar á aukin ökuréttindi ! Við kennum þér á leigu- vöru og hópbifreið einnig vörubifreið með effirvagn. Yasser Arafat, leiðtogi Palestínu- manna, heimsótti í gær þrjá bæi á Vesturbakkanum í sinni fyrstu ferð út fyrir, Ramallah þar sem hann var í gíslingu tsraela í bækistöðvum sínum í heOa fimm mánuði. Arafat notaði tækifærið í Nablus til að sannfæra þjóð sína um að ekkert yrði gefið eft- ir i frelsisbaráttu Palestínumanna og sagði að palestínskt rfki yrði að veru- leika fyrr en seinna með eða án sam- þykkis ísraelsmanna. Samþykkt mið- stjómarfundar Likud-bandaiagsins um helgina hefði engin áhrif á þær ráðagerðir. „Með þessari samþykkt er Likud-bandalagið að brjóta Óslóar- samkomulagið frá árinu 1993,“ sagði Arafat. Hann bætti síðan við að Jerúsalem yrði höfuðborg sjálfstæðs ríkis Palest- ínumanna. „Jerúsalem er og verður höfuðborg okkar hvað svo sem aðrir segja," sagði Arafat sem fékk hlýjar móttökur hjá hundraðum stuðnings- manna sem tóku á móti honum í Nablus. Arafat kom einnig við í Fæðingar- kirkjunni í Betlehem, þar sem hann skoðaði verksummerki eftir umsátrið áður en hann hélt til Jenin. Þar stoppaði hann í ráðhúsi borgarinnar en varð að hætta við fyrirhugaða heimsókn til flóttamannabúðanna af öryggisástæðum, en Arafat hafði ætl- að sér að skoða rústimar í búðunum eftir eyðileggingu ísraelsmana. Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, ítrekaði f gær stuðn- ing bandaríkra stjómvalda við stofn- un palestínsks ríkis og sagðist hafa rætt samþykkt Likud-bandalagsins viö Ariel Sharon í gær. Sharon hefði sannfært sig um að samþykktin hefði engin áhrif á afstöðu hans um stofiiun palestínsks rikis, en samþykktin þykir mikið pólitískt áfaU fyrir Sharon og merki um aukinn stuðning við harðlínustefnu Netanyahus og viss merki um sterka stöðu hans inn- an flokksins. Israelar héldu í nótt áfram aðgerð- um sínum gegn meintum hryðju- verkamönnum á Vesturbakkanum þegar þeir réðust til atlögu í bænum Hebron, þar sem þeir skutu einn liðs- mann öryggissveitanna tU bana auk þess að handtaka 14 manns. Frábær kennsluaðstaða. Reyndir kennarar og góðir kennslubílar. Mörg verkalýðsfélög styrkja félagsmenn sína til náms í auknum ökuréttindum, (allt að 40 þúsund krónur.) Greiðsluskilmálar við allra hæfi ! Hringið eða komið og leitið upplýsinga. Sfmi 567-0300 E-mail mjodd@bilprof.is Þarabakka 3 109 Reykjavík Fagmennska í fyrirrúmi!! LTU Þýsk gæði og þjónusta Miinchen Flugsæti 29.500u Föst aukagjöld innifalin Diisseldorf Flugsæti 30*400kr. Föst aukagjöld innifalin Flug og bíll Ævintýraheimar Mið-Evrópu Verð32*350kr. á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn 2-11 ára Innifalið: Flug, bíll í B-flokki í viku og föst aukagjöld ODYRT FLUG TIL EVRÓPU! TERRA vdv NÓVA jso -SPENNANDI VALKOSTUR- I Stangarhyl 3A • 110 Reykjavík • Simi: 591 9000 • terranova.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.