Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2002, Qupperneq 13
13
ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 2002
x>v
HEILDARVIÐSKIPTI 3.494 m.kr.
Hlutabréf 1.741 m.kr.
Bankavíxlar 738 m.kr.
MEST VIÐSKIPTI
; Össur 193 m.kr.
Eimskip 188 m.kr.
Búnaðarbankinn 188 m.kr.
MESTA HÆKKUN
OSÍF 6,5%
Q Íslandssími 3,3%
© Isl. flársj. 3,2%
MESTA LÆKKUN
o Grandi 5,8%
© Kaupþing 5,3%
© Delta 3,6%
ÚRVALSVÍSITALAN 1.276 stig
- Breyting O 1.22 %
Bætt afkoma á
milli fjórðunga
hjá Keri
Hagnaður Kers hf. (áður Olíufé-
lagsins) nam 313 milljónum króna á
fyrsta ársfjórðungi. Framlegð af
vörusölu nam 963 milljónum sem
samsvarar 28,3% af veltu samanbor-
ið við 26,9% framlegð allt árið í
fyrra. Sölu- og dreifmgarkostnaður
hækkaði nokkuð sem hlutfall af
vörusölu frá fjórðungnum á undan
og nam 443 milljónum króna.
Hagnaður fyrir afskriftir nam 269
milljónum og fjármagnsliðir voru
jákvæðir um 222 milljónir króna.
Munar þar mest um 257 milljóna
króna gengishagnað en Olíufélagið
hefur afnumið verðbólgureiknings-
skil sem hefðu aukið hagnað félags-
ins um 17 milljónir króna. Veltufé
frá rekstri nam 271 milljón króna.
Ágæt afkoma
Skagstrendings
Hagnaður Skagstrendings hf. var
97 milljónir króna á fyrstu þremur
mánuðum ársins, samanborið við 33
milljóna króna tap á sama tíma í
fyrra. Uppgjörið er verðleiðrétt en
hagnaður hefði orðið 9 milljónum
króna lægri ef verðleiðréttingu
hefði ekki verið heitt.
Betri afkomu milli ára má eink-
um rekja til áhrifa af gengisþróun
krónunnar. Meðalgengisvisitala ís-
lensku krónunnar var 13,9% hærri
á fyrsta fjórðungi þessa árs en á
samá tímabili í fyrra. Nær allar
tekjur Skagstrendings eru í erlend-
um gjaldmiölum og stuðlaði lægri
króna því að aukinni veltu og hærri
framlegð milli ára. Á fyrstu þremur
mánuðum þessa árs styrktist krón-
an á ný og því kom einnig til geng-
ishagnaður af erlendum skuldum fé-
lagsins.
Velta Skagstrendings jókst um
17,7% á fyrstu þremur mánuðum
ársins miðað við sama tíma í fyrra
og nam 706 milljónum króna.
Rekstrargjöld jukust á sama tíma
um 11,8% og var hagnaður fyrir af-
skriftir 146 milljónir eða sem jafh-
gildir 20,7% af veltu.
Sparisjóðirnir kaupa
Profile-fyrirtækja-
upplýsingakerfi
Tölvumiðstöð Sparisjóðanna og
Mens Mentis hf. hafa gengið frá
samningum um sölu og uppsetn-
ingu á Profile-fyrirtækjaupplýsinga-
kerfinu hjá Sparisjóðunum. Kerfið
einfaldar til muna alla skráningu og
úrvinnslu á gögnum um viðskipta-
vini sparisjóðanna, meðal annars
vegna útlánamats, samanburðar
milli félaga og atvinnugreina og yf-
irlits yfir rekstrarþróun og stöðu.
Profile-upplýsingakerfið einfaldar
skráningu og meðhöndlun fyrir-
tækjaupplýsinga, svo sem úr árs-
reikningum og milliuppgjörum.
Kerfið heldur meðal annars utan
um upplýsingar um hluthafa og
eignarhluti í öðrum félögum, arð-
greiðslur og útgáfu jöfnunarbréfa,
stjóm og stjómendur. Upplýsing-
amar er hægt að kalla fram og
greina með margvíslegum hætti, t.d.
á vefsíðum eða í Excel. Kerfið er
hannað með það í huga að skráning
sé hraðvirk og einfóld og villur séu
í lágmarki. Sérstakt tillit er tekið til
öryggismála og aðgangsstýringar til
að tryggja að gögn birtist aðeins
þeim sem hafa tilskilin réttindi.
Mens Mentis hefm' áður lokið
uppsetningu á Profile hjá Verð-
bréfaþingi Islands hf., sem nýtir
kerfið við skráningu upplýsinga í
Þingbrunn VÞÍ, hjá íslandsbanka
hf. og hjá Landsbanka Islands hf.
Jákvæð umskipti hjá Guð-
mundi Runólfssyni hf.
Guðmundur Runólfsson hf. var
rekið með 81 milljónar króna hagn-
aði eftir skatta á fyrstu þremur
mánuðum ársins 2002, samanborið
við 20 milljóna króna tap á sama
tímabili 2001. Hagnaður fyrir af-
skriftir og fjármagnsgjöld jókst um
19% á milli ára, úr 70,6 milljónum í
84 milljónir króna. Veltufé frá
rekstri nam 65,2 milljónum króna á
tímabilinu, samanborið við 43,6
milljónir árið áður, og jókst því um
tæp 43,8%.
Rekstrartekjur félagsins námu
260 milljónum króna en voru 298
milljónir króna árið áður og lækk-
uðu því um 12,8%. Veltuminnkun-
ina má alfarið skýra með breyting-
um á viðskiptum viö Fiskiðjusam-
lag Húsavíkur. Rekstrargjöld félags-
ins námu 176,2 milljónum króna en
voru 227,7 milljónir króna árið
áður. Hagnaður félagsins fyrir af-
skriftir og fjármagnsliði er 84 millj-
ónir króna eða 32,29% af rekstrar-
tekjum, samanborið við 70,6 milljón-
ir króna og 23,65%.
Afskriftir námu samtals 36 millj-
ónum króna en voru 34 milljónir
króna árið áður. Fjármagnsliðir
voru jákvæðir um 52 milljónir
króna en voru neikvæðir um 61,7
milljónir árið áður. Nær allar skuld-
ir félagsins eru í erlendum myntum
og nam gengishagnaður félagins
55,6 milljónum króna á tímabilinu,
samanborið við 45,9 miUjón króna
gengistap.
Heildareignir félagsins 31. mars
námu 2.338 milljónum króna en
skuldir og skuldbindingar 1.792
milljónum. Bókfært eigið fé félags-
ins var þvi 545,5 mUljónir króna og
jókst um 88 mUljónir á tímabilinu,
eða um 19,23%. Eiginfjárhlutfallið
er nú 23,3% en var 19,8% í árslok.
Þróun gengis, sem var félaginu
mjög óhagstæð á sl. ári, hefur nú
snúist við og verulegur gengishagn-
aður myndast. Aftur á móti er geng-
ishækkunin farin aö hafa áhrif á
framlegð félagsins vegna lægra af-
urðaverðs.
Ingrid Kuhlman, framkvæmdastjóri Þekkingarmiölunar.
Námskeið í sjálfs-
trausti og sjálfsöryggi
14. 05. 2002 kl. 9.15
KAUP SALA
SÉÉDollar 91,200 91,660
ráSPund 132,390 133,060
1*11 Kan. dollar 58,380 58,740
CB Donsk kr. 11,1130 11,1740 :
-HNorskkr 10,9480 11,0090
E5 Sænsk kr. 8,8910 8,9400
13 Sviss. franki 56,8200 57,1300
[*]jap.yon 0,7102 0,7145 :
!1 ECU 82,6329 83,1294
SDR 115,7300 116,4300
Þekkingarmiðlun ehf. stendur
fyrir námskeiði í sjálfstrausti og
sjálfsöryggi 16. maí nk. í Ásbyrgi á
Hótel íslandi frá kl. 9-17. Námskeið-
iö er sérstaklega ætlað konum sem
vUja öðlast aukið sjálfstraust og
betra sjálfsálit.
Við þurfum öU á sjálfstrausti og
sjálfsöryggi að halda tU að takast á
við lífsins áskoranir og breytingar í
umhverfi okkar. Skortur á sjálfs-
trausti getur hamlað jafnvel fær-
ustu einstaklingunum, haft áhrif á
baráttuvUja þeirra og haldið aftur
af þeim. Á námskeiðinu læra þátt-
takendur að virkja afl jákvæðs
sjálfsálits. Þeir auka eigin færni tU
að læra af eigin mistökum og takast
á við gagnrýni. Þeir þroska með sér
nauðsynlegt sjálfstraust sem hjálpar
þeim að ná markmiðum sinum og
takast á við breytingar. Leiöbein-
andi er Ingrid Kuhlman, fram-
kvæmdastjóri Þekkingarmiölunar.
Upplýsingar um námskeiðið er
hægt að nálgast með því að senda
tölvupóst á
ingrid@thekkingarmidlun.is
Viðskipti
Umsjón: Viöskiptablaðiö
Ánægöir eftir undirskrift kaupsamnings.
Brckkuhús
520 3500
Gnoðavogur
Brekkuhús a
■ ■ ■ ■ ■
GAS-Naglabyssur
Hentar vel til að festa
blikkleiðara fyrir gifsveggi