Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2002, Blaðsíða 19
ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 2002
I>v
19
Tilvera
Myndgátan
Lárétt: 1 rekald,
4 frumeind, 7 klifra,
8 hönd, 10 veltingur,
12 ask, 13 lögmæt,
14 bragð, 15 hlaup, 16
ljúki, 18 merki, 21 sorg,
22 blæ, 23 grind.
Lóðrétt: 1 illmenni,
2 hag, 3 vandræðunum,
4 ábati, 5 þvottur,
6 venslamann,
9 suddinn, 11 óleik,
16 brún, 17 mynt,
19 púki, 20 gagnleg.
Lausn neðst á síðunni.
Umsjón: Sævar Bjarnason
Skák
Hvitur á leik! Þeir Hannes Hlífar,
Helgi Áss og Jón Viktor sitja allir að
tafli úti á Kúbu i miklum hitum og
gengur bara rétt sæmilega - allir með
um 50% vinninga eftir 6 umferðir.
Mótin sem þeir tefla á eru þó sterk og
það er helst Jón Viktor sem gloprað
hefur niður unnum stöðum. Hér vinn-
ur Hannes félaga minn frá ísrael, Art-
ur Kogan, sem teflir eins og oft áður
heldur of fifldirfskulega. Það þýðir lít-
ið gegn Hannesi sem vinnur hér ör-
uggan sigur!
Hvítt: Hannes H. Stefánsson
(2598)
Svart: Artur Kogan (2540)
Sikileyjarvöm.
Minningarmót um Capablanca.
Havana (2), 07.05. 2002
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 Dc7 5. Rc3 e6 6. Be2 a6 7. 0-0
Rf6 8. Be3 d6 9. f4 Bd7 10. Del b5
11. a3 Be7 12. Dg3 h5 13. Bf3 Rg4
14. Bxg4 hxg4 15. Dxg4 Bf6 16. Rf3
Ra5 17. Bd4 Bxd4+ 18. Rxd4 Dc5 19.
Rce2 Rc4 (Stöðumyndin) 20. Dxg7 0-
0-0 21. b4 Db6 22. Hf2 e5 23. fxe5
dxe5 24. Rb3 Hxh2 25. Rc5 Hdh8 26.
Hxf7 Dd8 27. Rg3 Re3 28. H£2 H2h7
29. Df6 Dxf6 30. Hxf6 Hg8 31. Hf3
Rxc2 32. Rxd7 Kxd7 33. Hdl+ Ke6
34. Rf5 Rd4 35. Rxd4+ exd4 36.
Hxd4 Ke5 37. Hd2 Kxe4 38. HfB Ha7
39. He6+ Kf4 40. Hde2 Kg3 41.
H2e3+ Kf4. 1-0
Bridge
Umsjón: ísak Öm Sigurösson
Sem sagnhafi i norður i tvímenn- unni. Nægir punktar eru til staðar
ingi í þremur gröndum er nauðsyn- en slæm lega setur strik í reikning-
legt áð vanda sig í spilamennsk- inn:
* ÁD2
ÁK8
* KD43
* 654
4 G109
• 975
+ G1096
é K103
* 865
* G1043
■+ Á87
* ÁDG
Þegar spilið kom fyrir í tvímenn-
ingskeppni Evrópumóts para í
Ostende í síðasta mánuði fékk sagn-
hafi, Phillippe Toffier frá Frakklandi,
verðlaun fyrir vandvirkni. ÚtspO
austurs var áttan í laufi og Toffier
gerði vel þegar hann tók strax fyrsta
slaginn á ásinn. Næst svínaöi hann
hjartagosanum, austur drap á drottn-
ingu og spilaði laufi. Vestur fékk á
kónginn og spilaði næst spaðagosan-
rnn. Toffier svínaði drottningunni og
austur fékk á kónginn
og spilaði litnum
áfram. Örlög vesturs
voru hins vegar ráðin.
Þrlr tökuslagir á
hjarta og einn á lauf
settu óverjandi þving-
un á vestur í tígli og
spaða, en spaðaáttan í blindum
gegndi þar lykilhlutverki. Flestir
sagnhafar uröu að láta sér nægja 9
slagi í þremur gröndum en 10 slagir
til Toffiers gáfu 93% skor í saman-
burðinum.
Lausn á krossgátu
JÁu 03 ‘ue 61 ‘jPp il ‘3§a 91 ‘>PITJ§ II
‘urnQn 6 ‘Sbui 9 ‘nui g ‘unisijBjjB f ‘nuupuupj g ‘ipiB z ‘IQJI piojqoi
‘)SIJ £Z ‘njoS ZZ ‘JnSun \z ‘uj{Bi 81 ‘ipua 91 ‘SBj'91
‘unasi H ‘P[!§ 81 ‘bqu z\ ‘33nj oi ‘B>{ni 8 ‘Bjipi L ‘uio)B p ‘>(Bij 1 pjajBj
húsaleigusamningar
550 5000
Sandkorn_______________________.
Umsjón: Höróur Kristjánsson # Netfang: sandkorn@dv.is
Kaldar kveðjur
Utanríkisráðherrar NATO-
landanna og samstarfslanda
þeirra, ýmsir afar mikilvægir
menn á vegum bandalagsins og
urmull erlendra blaða- og
fréttamanna, hópast nú til
landsins. Tilefnið er tveggja
daga NATO-fundur. Sagt er í
smáatriðum hvenær þessi og
hinn lendir í Keflavík þar sem
lögregla og öryggisverðir eru
gráir fyrir járnum. Colin
Powell er aðalstjarnan, Jack
Straw þekkja margir og allir
þekkja hann Halldór okkar. Ég
verð að viðurkenna að ég man
ekki eftir öðrum nöfnum í svip-
inn. Væntingarnar til fundar-
ins eru miklar. Hótelhaldarar
og veitingamenn ráða sér vart
fyrir kæti, enda nánast öll her-
bergi og borð bókuð. Að ár-
angri sjálfs fundarins slepptum
vona ófáir að þessi uppákoma
verði hin þokkalegasta land-
kynning sem muni skila sér til
lengri tíma litið - eins og
alltaf. Hins vegar er hætt við
að veðrið verði hinum erlendu
gestum eftirminnilegt, ekki
vegna þess að himnarnir skarta
sínu fegursta með sólina 1 aðal-
hlutverki heldur vegna hins að
það er skitakuldi - eins og svo
oft. Dagfari man þegar Nixon
og Pompidou komu forðum. Þá
var bjart en skítkalt. Og ekki
viðraði betur á guðsútvalið höf-
uð kaþólsku kirkjunnar,
páfann, og fylgdarlið hans.
Hrollurinn kemur enn upp í
hugann þegar útimessunnar við
Kristskirkju er minnst. Dan
Rather og fleiri heimilisvinir
af skjánum láta ekki sjá sig
vegna þessa fundar en Dagfara
kæmi ekki á óvart þótt þeir
brygðu sér til Rómar, þar sem
fundinum verður fram haldið
síðar í mánuðinum. Þar sendir
sólin ekki kaldar kveðjur.
Skoöanakönnun forsætisráð-
herra um viðhorf landsmanna til Evrópu-
sambandsins hefur farið mjög fyrir brjóst-
ið á mönnum og þykir
mörgum sem spuming-
amar séu ansi leiðandi.
Nú hafa gárungarnir
samið kjörseðil fyrir al-
þingiskosningar á næsta
ári: Forsætisráðuneytið
hefur ákveðið að næsti
kjörseðill verði svona: Hvað kýst þú í ljósi
eftirfarinna staðreynda:
Frjálslyndir - formaðurinn var rekinn
frá Landsbankanum og þeir munu eyði-
leggja rekstrargrundvöll sjávarútvegsins.
Vinstri grænir - þeir eru á móti öllum
framfórum og munu hækka skatta um tugi
milljarða. Samfylking - formaðurinn er
hálfviti og þeir munu láta okkur ganga í
ESB sem kostar okkur 15 milljarða á ári og
skerðir sjáifstæði þjóðarinnar. Framsókn
- sveitaflokkur sem mun leiða okkur í ESB
sem kostar okkur 15 milljarða á ári og
skerðir sjálfstæði þjóðarinnar. Sjálfstæð-
isflokkurinn - sterkur leiðtogi sem lækk-
ar skatta og gerir ísland að himnaríki.
Leikhúsfólk hefur íöngum
þótt vera afar viðkvæmt fyrir gagnrýni og
ekki er óalgengt í þeim bransa að menn
svari fyrir sig. Hávar
Sigurjónsson skrifaði
fyrir skömmu grein í
Morgunblaðið um upp-
færslu Þjóðleikhússins á
Veislunni, þar sem hann
segir uppfærsluna
hreina stælingu á sýn-
ingu í Dresden. Magnús Þórbergsson,
leiklistargagnrýnandi Víðsjár, tók síðan
undir orð Hávars í pistli í Víðsjá. Stefán
Baldursson, þjóðleikhússtjóri og leikstjóri
sýningarinnar, var ekki ánægður og sendi
Hávari einkabréf þar sem hann mótmælti
skrifum hans. Stefán hengdi síðan bréf sitt
upp á töflu í Þjóðleikhúsinu þar sem auð-
velt var fyrir starfsmenn að lesa það. Háv-
ar frétti af því að einkabréf Stefáns væri
ekki lengur einkabréf og þegar hann sendi
Stefáni svarbréf sendi hann öllum meðlim-
um í Félagi íslenskra leikara bréf Stefáns í
tölvupósti ásamt svari sínu. í bréfi sinu
til Hávars vísar Stefán því á bug að upp-
færslan á Veislunni sé hrein stæling á
þýskri uppfærslu. Stefán segir í lok bréfs-
ins: „Ég ítreka aftur að ég veit ekki alveg
hvað þér gengur til að reyna að gera lítið
úr sýningunni okkar, sem hefur hlotið
óvenju einróma lof og mönnum ber saman
um að sæti verulegum tíðindum í leikhús-
lffi okkar.“
í svarbréfl sínu segir Hávar meðai
annars: „Ég er klár á þvi að sviðsetningin,
rýmisnotkunin og Ijölmargar hugmyndir
eru þær sömu og í Dres-
densýningunni ... Hávar
segir síðan að greinin
hafi ekki verið skrifuð til
að gera lítið úr sýningu 1
Þjóðleikhússins sérstak-
! lega „heldur sem innlegg
! í umræðu um okkar ein-
hæfa leikhúslíf sem þrátt fyrir bæði magn
og gæði er ótrúlega ógagnrýnið á sjálft sig;
sjálfumglatt satt að segja, og verður sífellt
uppteknara af að spegla sig í vinsældum og
aðsókn. Jafn mótsagnakennt og það nú
hljómar fínnst mér gagnrýnendur vera
orðnir svo uppteknir af að vinna sig í álit
hjá leikhúsfólki að lítið sem ekkert er að
marka það oflof, smjaður og mærð sem við-
gengst. Sjálfstæði þeirra í umfjöllun er
sorglega ábótavant oftast nær.“
Vikan fékk á dögunum völvu sína
til að spá fyrir nokkrum stjómmálamönn-
um. Völvan fullyrðir að Davíð Oddsson sé ‘
orðinn þreyttur á stjórn-
málum en Halldór Ás-
grímsson sé allur að fær-
ast í aukana og muni fara
að segja hluti sem hann
I hafi lengi byrgt inni.
Hún segir Ingu Jónu á
leið út úr stjómmálum
og það sama eigi við um Össur Skarphéð-
insson sem hafi gert mörg mistök og sagt
meira en hann geti staðið við. Björn
Bjarnason er einnig sagður hafa gert mis-
tök með því að snúa sér að borgarmálum
og muni tapa fyrir Ingibjörgu Sólrúnu
sem muni ekki sitja lengi sem borgarstjóri
og sé þegar farin að þjálfa aðra manneskju
til að taka við af sér. Þarf kannski ekki
mikla spádómsgáfu til að sjá þessa hluti
gerast. Um Áma Johnsen segir völvan að
frekar hljótt verði um hann á næstunni en
mál hans eigi eftir að blossa upp síðar. Spá
völvunnar er í blaði sem dagsett er 7. maí
en á sama tima gaus upp umfjöllun um
málefni Áma Johnsens. Spádómsgáfa völv-
unnar er því umdeilanleg.
fX meðan minnast Hrúðurkarla-Hreið
Hvað hefur komið fyrir státt-
ina, Hreiðar? Paö var stíll yfir
okkur í Sjallanum í gamla dagai
Við vorum fínir!
Við vorum virðulegir!
Manstu eftir
gaUraatriðinu á
Hótel Vala6kjálf
árið ‘32?
ar oq ^hinn óviðjafnanlegi Garöar
[gömlu tímanna!
Þegar þú
dróst kanínu
út úr nefinu
á þér?
Hann brtur
hausinn af
gúmmíhænum?!