Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2002, Qupperneq 20
20
ÞRIÐJUDAGUR 14. MAI 2002
DV
Haraldur Johannessen
ríkislögreglustjóri
íslendingaþættir
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
90 ára_________________________________
Guðný Finnsdóttir,
Torfnesi, Hlíf 1, ísafirði.
85 ára ________________________________
Jytte Lis Östrup,
Sólvallagötu 22, Reykjavlk.
Ólafur Magnússon,
Kleppsvegi, Hrafnistu, Reykjavlk.
Bára Jóhannesdóttir,
Goöabyggð 18, Akureyri.
Snæbjörn Björnsson,
Túngötu 2, Grenivík.
80 ára_________________________________
Þórdís Nanna Nikulásdóttir,
Þórsgötu 12, Reykjavík.
Guðrún Guðnadóttir,
Fellsmúla 12, Reykjavík.
Anna Sigurlína Friöriksdóttir,
Lindasíðu 2, Akureyri.
Elín Bjarnadóttir,
Víkurgerði, Fáskrúðsfirði.
75 ára_________________________________
Halldór Hjálmarsson,
Grenimel 9, Reykjavík.
Sigurgeir Jóhannsson,
Funalind 15, Kópavogi.
70 ára_________________________________
Kristín J. Þórhalisdóttir,
Árskógum 8, Reykjavlk.
Eyjólfur Sigurjónsson,
Kópareykjum 1, Reykholti.
60 ára_________________________________
Óskar Kristjánsson,
Strýtuseli 5, Reykjavík.
Bjarni Magnússon,
Þangbakka 8, Reykjavík.
Óðinn Grímsson,
Seljalandsvegi 58, ísafirði.
Vífill Friðþjófsson,
Túngötu 21, Seyðisfirði.
50 ára_________________________________
Einar Sigurjónsson,
Þingholtsstræti 22, Reykjavík.
Ólöf Jóna Jensdóttir,
Bólstaðarhlíð 6, Reykjavik.
Henný Júiía Herbertsdóttir,
Miklubraut 38, Reykjavik.
Kristinn Kort Björnsson,
Tómasarhaga 21, Reykjavík.
Guðlaug Valgeirsdóttir,
Háaleitisbraut 51, Reykjavik.
Einar Marel Þórðarson,
Mariubakka 30, Reykjavík.
Hafsteinn Baldursson,
Staðarseli 8, Reykjavlk.
Elísabet Þórðardóttir,
Tunguvegi 8, Njarðvík.
Snædís Gunnlaugsdóttir,
Kaldbak, Húsavík.
40 ára_________________________________
Guðrún Elin Bjarnadóttir,
Granaskjóli 36, Reykjavík.
Þorbjörg Oddgeirsdóttir,
Skógarási 2, Reykjavík.
Birgir Viðarsson,
Víkurási 6, Reykjavík.
Ágúst Jakob Ólafsson,
Lindasmára 71, Kópavogi.
Brynjar Slgurjónsson,
Klukkubergi 25, Hafnarfiröi.
Kristín Guömundsdóttir,
Heiðarbraut 8, Keflavik.
Birgir Pétursson,
Heiðarhrauni 29b, Grindavík.
Guðrún Ásmundsdóttir,
Njarðvikurbraut 23, Njarðvík.
Hrefna Guðjónsdóttir,
Einigrund 5, Akranesi.
Kristrún Hermannsdóttir,
Grundarhóli 1, Bolungarvík.
Þóra Katla Bjarnadóttir,
Holtagötu 9, Súöavík.
Dagbjartur G. Halldórsson,
Þórunnarstræti 89, Akureyri.
Hrönn Ásbjörnsdóttir,
Borgarlandi 1, Djúpavogi.
ÍSSBSSMÉ^.
Steinþór Guðmundsson, Otrateigi 8,
Reykjavík, verður jarðsunginn frá
Áskirkju þriðjud. 14.5. kl. 13.30.
Hulda Svava Elíasdóttir frá Elliða í
Staðarsveit, til heimilis á Álfhólsvegi 95,
Kópavogi, veröur jarðsungin frá
Digraneskirkju þriðjud. 14.5. kl. 13.30.
Útför Hallgríms Gylfa Axelssonar,
Þjóðólfshaga, Holtum, fer fram frá
Marteinstungukirkju þriðjud. 14.5. kl.
14.00.
Sigríður K. Pálsdóttir, Jöklafold 12,
Reykjavík, verður jarðsungin frá
Grafarvogskirkju miðvikud. 15.5. kl.
13.30.
Jaröarför Einars Kristjáns Einarssonar
gítarleikara, Bergstaðastræti 64,
Reykjavík, fer fram frá Dómkirkjunni
fimmtud. 16.5. kl. 13.30.
Fólk í fréttum
Haraldur Johannessen rikislög-
reglustjóri hefur mikið verið í frétt-
um að undanfornu vegna öryggis-
ráðstafana í tilefni fundar utanrik-
isráðherra NATO sem hefst í
Reykjavík í dag.
Starfsferill
Haraldur fæddist i Reykjavík
25.6. 1954. Hann lauk stúdentsprófi
frá MR 1976, lögfræðiprófi frá HÍ
1983 og stundaði framhaldsnám í af-
brotafræði við Florida State Uni-
versity í Flórida 1983-84.
Haraldur var aðstoðarmaður for-
stjóra ISAL 1984-86, lögmaður við
embætti rikislögmanns 1986-88, var
forstjóri Fangelsismálastofnunar
ríkisins frá stofnun 1988-96, var
varalögreglustjóri við embætti Lög-
reglustjórans í Reykjavik 1997-98,
var skipaður ríkislögreglustjóri
1998 og hefur gegnt því embætti síð-
an.
Haraldur var fulltrúi Vöku í
stjóm stúdentaráðs Hl 1976-78, var
varaformaður Bamavemdarráðs ís-
lands 1987-91 og formaður þess
1991-92, ritari fullnustumatsnefndar
1989-91, ritari Læknaráðs 1991-2000,
formaður fangelsismálanefndar
1991-92, formaður framkvæmda-
nefndar í fangelsismálum 1992-98,
sat í rekstrarstjóm meðferðarheim-
ilis fyrir ósakhæfa afbrotamenn að
Sogni í Ölfusi 1992-93, var skipaður
formaður umferðarnefndar Kristni-
hátíðar í tilefni þúsund ára afmælis
kristni á íslandi 1998, er stjómarfor-
maður Skráningastofunnar hf. frá
1997, sat í stjóm Neyðarlinunnar hf.
1998-2002 og stjómarformaður
1998-2001, hefur verið formaöur
sendinefnda íslands í alþjóðlegu
samstarfi um lögreglu- og fangelsis-
mál og hefur setið í íjölda opinberra
nefnda um ýmis málefni.
Fjölskylda
Haraldur kvæntist 4.7. 1976 Bryn-
hildi Ingimundardóttur, f. 15.2.1956,
hjúkrunarfræðingi. Foreldrar Bryn-
hildar: Ingimundur Kristján Helga-
son, f. 17.9. 1931, fyrrv. aðalvarð-
stjóri lögreglunnar í Reyjkavík, og
k.h., Svava Björgólfs, f. 1.5. 1935,
sjúkraliði.
Börn Haralds og Brynhildar eru
Ingvi Sveinn
Guðmundsson
Ingvi Sveinn Guðmundsson,
húsa- og skipasmiður, Miðvangi 41,
Hafnarfirði, er sjötugur í dag.
Starfsferill
Ingvi fæddist í Reykjavík en ólst
upp í Hrútafiröi og í Kópavogi.
Hann lauk námi í húsasmíöi 1954 og
skipasmíði 1962.
Ingvi vann við fasteignamat
1977-85 og hjá ÍTR frá 1985 til starfs-
loka 1999.
Ingvi var stofnfélagi ungmennafé-
lagsins Breiðablik 1950 og ung-
mennafélagsins Víkverja í Reykja-
vík, formaður ungmennafélagsins
Stjömunnar í Garðabæ 1967-69 og
1971-75 og er heiðursfélagi þess, sat
í varastjórn KSÍ 1983-85 og í stjóm
UMSK um skeið. Hann hefur hlotið
gullmerki ÍSÍ, KSÍ, KDSÍ, UMSK og
silfurmerki frá GLÍ.
Ingvi átti heima í Laxárdal og á
Borðeyri í Hrútafirði 1932-43, í
Kópavogi 1943-65, í Garðabæ
1967-77 en síðan i Hafnarfirði.
Fjölskylda
Eiginkona Ingva er Ellen Einars-
dóttir, f. 5.3. 1933, húsmóðir og
starfsstúlka á St. Jósefsspítala. For-
eldrar hennar: Helga Margrét Jóns-
dóttir og Einar Eyjólfsson.
Böm Ingva og Ellenar eru Guð-
mundur Einar, f. 9.11.1954, kvæntur
Guðnýju Bjarkadóttur og eiga þau
tvö börn; Öm Orri f. 4.9. 1959, en
kona hans er Auður Hansen og eiga
Matthías, f. 6.12.1973, hagfræðingur
í Kaupmannahöfn, en kona hans er
Saga Ómarsdóttir viðskiptafræðing-
ur; Kristján, f. 11.1. 1985, mennta-
skólanemi; Anna, f. 7.6. 1990, nemi;
Svava, f. 28.8. 1995, nemi.
Bróðir Haralds er dr. Ingólfur Jo-
hannessen, f. 17.2. 1964, læknir og
lektor við Edinbogarháskóla.
Foreldrar Haralds eru Matthías
Johannessen, f. 3.1. 1930, skáld og
fyrrv. ritstjóri Morgunblaðsins, og
k.h., Hanna Johannessen, f. 28.11.
1929, hárgreiðslumeistari og hús-
móðir.
Ætt
Matthías er sonur Haralds Jo-
hannessen, aðalgjaldkera Lands-
banka íslands, bróður Ellen, móður
Louisu Matthíasdóttur listmálara.
Haraldur var sonur Matthíasar Jo-
hannessen kaupmanns frá Björgvin
í Noregi og Helgu Jónsdóttur Norð-
fjörð, verslunarmanns í Reykjavik,
bróður Sigriðar, ömmu Jakobs
Möller ráðherra, ioður Baldurs,
fyrrv. ráðuneytisstjóra og skák-
meistara, fóður Markúsar hagfræð-
ings. Önnur systir Jóns var Helga,
langamma Hans G. Andersen haf-
réttarfræðings. Jón var sonur
Magnúsar Norðfjörð, beykis í
Reykjavík, Jónssonar, beykis í
Reykjafirði, bróður Guðbjargar,
langömmu Sigríðar, ömmu Friðriks
Ólafssonar stórmeistara og
langömmu Jóhanns, afa Jóhanns
Hjálmarssonar skálds. Önnur systir
Jóns var Hallgerður, langamma
Ágústs H. Bjamasonar, heimspek-
ings og háskólarektors. Móðir Jóns
verslunarmanns var Helga Ingi-
mundardóttir, systir Ingigerðar,
langömmu Bjargar, ömmu Garðars
Cortes óperusöngvara. Bróðir Helgu
var Ólafur, langafi Valgerðar,
ömmu Einars Benediktssonar
sendiherra.
Móðir Matthíasar var Anna Jó-
hannesdóttir, bæjarfógeta í Reykja-
vík, Jóhannessonar, sýslumanns í
Hjarðarholti, Guðmundssonar, b. á
Miklahóli, Jónssonar, bróður Halls,
foður Sigurðar, langafa Páls Péturs-
sonar félagsmálaráðherra. Annar
bróðir Guðmundar var Jóhannes,
afi Vilhjálms Stefánssonar land-
þau tvö böm auk þess sem hann á
fjögur böm frá því áður; Dagmar
Svanhvít, f. 30.11. 1962, en hennar
maður er Hjörvar Guðmundsson og
eiga þau tvö börn; Jóhann Ingvi, f.
6.6. 1972, en kona hans er Sólveig
Magnúsdóttir og eiga þau eitt barn.
Systkini Ingva: Kristvin Kristins-
son, f. 13.6. 1926, nú látinn, verka-
maður; Auðbjörg Brynjólfsdóttir, f.
1.11.1929, nú látin, húsmóðir; Björg-
vin Guðmundsson, f. 18.6. 1935, nú
látinn, bankamaður; Benóný, Sig-
ríður og óskirð, létust öll rétt eftir
fæðingu; Friöbjöm Halldór Guð-
mundsson, f. 27.3. 1940; Rakel Guð-
mundsdóttir, f. 26.10. 1949.
Foreldrar Ingva voru Guðmundur
Benónýsson, bóndi og verkamaður,
og Dagmar Friðriksdóttir, húsmóðir
og matráðskona. Þau bjuggu fyrst í
Hrútafirði og síðan í Kópavogi en
eru nú bæði látin.
Ungmennafélagið Stjaman er
með opið hús fyrir Ingva í tilefni af-
mælisins í Stjömuheimilinu í
Garðabæ í dag kl. 18.00-21.00 fyrir
frændur, samstarfsfólk úr íþrótta-
hreyfingunni og fleiri.
könnuðar. Móðir Jóhannesar bæjar-
fógeta var Maren Lárusdóttir
Thorarensen, sýslumanns á Enni,
Stefánssonar, amtmanns á Möðru-
völlum, Þórarinssonar, ættfóður
Thorarensenættar, Jónsonar. Móðir
Marenar var Elin Jakobsdóttir Haf-
stein, systir Péturs Hafstein amt-
manns, fóður Hannesar ráðherra.
Móðir Önnu var Jósefína, systir
Haralds, afa Halldórs alþingisfor-
seta. Jósefína var dóttir Lárusar
Blöndcds, amtmanns á Komsá,
Björnssonar Blöndals, ættfoður
Blöndalsættar, Auðunssonar. Móðir
Jósefinu var Kristín Ásgeirsdóttir,
dbrm, og bókbindara á Lambastöð-
um, Finnbogasonar, bróður Jakobs,
langafa Vigdísar Finnbogadóttur.
Móðir Kristínar var Sigríður Þor-
valdsdóttir, systir Þuríðar,
langömmu Vigdísar.
Jóhanna er dóttur Ingólfs, b. á
Víðihóli á Hólsvöllum, Kristjáns-
sonar, b. á Grimsstöðum á FjöÚum,
Sigurðssonar, b. á Hólum í Laxár-
dal, Eyjólfssonar, systur Þuríðar,
langömmu Sigurðar, fóður Sigurðar
dýralæknis. Móðir Kristjáns var
Arnbjörg Kristjánsdóttir, systir
Áma, afa Aðalgeirs Kristjánssonar
skjalavarðar. Annar bróðir Arn-
bjargar var Kristján, langafi Jónas-
ar Jónssonar búnaðarmálastjóra og
Kristjáns Ámasonar dósents.
Móðir Jóhönnu var Katrin María
Magnúsdóttir, b. í Böðvarsdal í
Vopnafirði, Hannessonar, b. í Böðv-
arsdal, Magnússonar, b. í Böðvars-
dal, Hannessonar. Móðir Magnúsar
eldra var Guðný Bjömsdóttir, stúd-
ents í Böðvarsdal, Björnssonar og
Guðrúnar Skaftadóttur, systur
Árna, langafa Magðalenu, ömmu
Ellerts Schrams, forseta ÍSÍ og
Ólympíunefndar Islands. Móðir
Magnúsar yngra var Guðrún Jóns-
dóttir, b. í Syðrivík, Einarssonar og
Guðrúnar Stefánsdóttur, systur
Svanborgar, langömmu Halldórs,
fóður Kristínar, fyrrv. alþm. Bróðir
Guðrúnar var Guðmundur, faðir
Stefáns, langafa Agnars, föður Guð-
rúnar Agnarsdóttur, forstjóra
Krabbameinsfélagsins, og Gunn-
laugs Snædals prófessors. Móðir
Guðrúnar var Sólveig Bjömsdóttir,
systir Guðnýjar frá Böðvarsdal.
Olafur Einarsson
hrossabóndi og starfrækir Meðferðarheimiliö
Torfastöðum í Biskupstungum
Ólafur Einars-
son, hrossarækt-
andi og bóndi,
sem rekur Með-
ferðarheimilið
Torfastöðum, til
heimilis að Torfa-
stöðum í Biskups-
tungum, varð
fimmtugur í gær.
Starfsferill
Ólafur fæddist í
Hafnarflrði og ólst
þar upp. Hann er
lærður prentari
og vann á Morg-
unblaðinu til
nokkurra ára.
Ólafur lék handbolta með FH til
1974 og fór þá í atvinnumennsku til
Þýskalands í eitt ár. Eftir heimkom-
una lék hann með Víkingi til 1979.
Ólafur stofnaði Meðferðarheimil-
ið að Smáratúni í Fljótshlíð, ásamt
Drífu 1979, en þau fluttu að Torfa-
stöðum 1983.
Ólafur var fastamaður í landslið-
inu á árunum 1975-79. Hann spilaði
fimmtíu og níu landsleiki, skoraði í
þeim tvö hundruð og átta mörk og
er margfaldur íslands- og bikar-
meistari, bæði innan- og utanhúss.
Ólafur var formaður hestamanna-
félags Loga í nokkur ár. Hann hef-
ur gegnt margvíslegum trúnaðar-
störfum í þágu hestamennsku á ís-
landi, situr í
stjórn Hrossa-
ræktarsambands
Suðurlands og er
einnig í stjóm Fé-
lag hrossabænda á
íslands.
Fjölskylda
Ólafur er
kvæntur Drífu
Kristjánsdóttir, f.
31.10. 1950, sem
einnig rekur Með-
ferðarheimilið að
Torfastöðum. For-
eldrar hennar eru
Rósa Bjömsdóttir
og Kristján Sigurðsson.
Börn Ólafs og Drífu em Fannar, f.
20.11.1978, nemi en unnusta hans er
Margrét Sigtryggsdóttir; Björt, f. 2.3.
1983, nemi; Eldur, f. 24.7.1985, nemi.
Systkini Ólafs em Steinunn, f.
1949, hjúkrunarfræðingur í Vest-
mannaeyjum; Gunnar, f. 1955, for-
stöðumaður fræðslu- og menningar-
sviðs í Garðabæ. Hálfsystur Ólafs
eru Fríða Einarsdóttir og Áslaug
Einarssdóttir.
Ólafur er sonur Einars Ólafsson-
ar vélstjóra og Sigrúnar R. Steins-
dóttur húsmóður.
Ólafur og Drifa halda upp á af-
mælið að Torfastööum að kvöldi
laugard. 25.5. og vona að sem flestir
gleðji þau með nærvem sinni.