Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2002, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2002, Síða 22
 22 Tilvera ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 2002 DV lí f iö Tangó í Operunni Cenizas de tango er glæsileg tangósýning sem kemur beint frá Argentínu. Alls taka 12 dansarar þátt í sýningunni sem þykir í alla staði glæsileg. Sýnt verður í kvöld í íslensku ópenmni kl. 20.30 en uppákoman er liður í Listahátíð sem stendur nú sem hæst. •Tónleikar ■ F.ll.C.K. NATO rokkhátíð í Tiarnarbiöi Nokkrar rokkhljómsveitir í haröari kantinum hafa tekiö sig saman um að mótmæla fundahaldi NATO hérlendis með tónleikum í Tjarnarbíói. í kvöld koma fram Lack of Trust, Down to Earth, I Adapt, Elexír, Changer, Fídel og Forgaröur helvítis. Tón- leikarnir standa frá 19-23 og kostar 500 krónur inn. 16 ára aldurstakmark. ■ ísland Úr NATÓ Á Gauknum f kvöld veröa tónleikar meö yfir- f skriftinni „ísland úr NATÓ“ og eins og gefur að skilja eru þeir á vegum herstöövaand- stæöinga. Fram munu koma XXX Rottweilerhundar, 200.000 Naglbítar, Tvö dónaleg haust, Heiöa og heiöingjarnlr auk fjölda annarra hljómsveita. Húsið opnar kl. 21 og verður rokkaö gegn NATÓ eitthvaö fram eftir kvöldi. • Listir ■ Leikrit í strætóskýli Kl. 17.05 veröur flutt örleikverkið Aldur og ævi f strætóskýlinu á horni Lækjargötu og Bókhlööustfgs. Verkið er eftir Ragnheiði Gestsdóttur og Guðlaug Valgarösson. ■ Glæsileg tangósvning , Cenizas de tango er glæsileg tangósýning, beint frá Argentínu. Tólf dansarar taka þátt f sýningunni en þeir skipa danshópinn El Escote. Sýnt veröur I islensku óperunni i kvöld kl. 20.30. • Fundir ■ Klæónaöur og búnaöur á fiðUMrn, Kl. 20 á skrifstofu Útivistar, Laugavegi 178, veröur farið yfir það hvernig skuli klæöa sig á fjöllum og búnað sem nauösyn- legt er aö hafa meö sér f feröir. Fyrirlestur- inn stendur i ca 2-3 klst. Öllum er heimill ókeypls aögangur. Umsjón meö herlegheitunum hefur Hallgrímur Kristins- son ^ • Klassik ■ Bandarískir slagarar Kvintett málmblásara flytur bandariska slagara og söngleikjatónlist í Ráöhúsi Reykjavfkur kl. 12.30. Þar ættu allir aö geta fundið eitthvað við sitt hæfi. ■ Kammermúsik Kl. 20 f kvöld verður Kammersveit Reykja- víkur meö stórtónleika f Ustasafni Reykja- vikur. Margs konar verk munu þar verða flutt í bland við þekktari slagara en miöaverð er 2500 krónur. ■ Vortónleikpr Karlakórs Reykjayjkur I kvöld heldur Karlakór Reykjavíkur vortónleika f tóniistarhúsinu Ými. Á efniskránni eru fslensk og erlend lög, bæði ný og gömul, f bland viö þekktari óperukórverk. Miðasala hefst klukkustund fyrir tónleikana á tónleikastaönum. Allar nánari upplýsingar er hægt aö nálgast á vefsvæðinu www.kkor.is/ymir.html. eöa í sfma Karlakórsins. Sýning listadeildar FB í Gerðubergi: Hús fyrir gíraffa og blokk úr eggjabökkum Málverk, skúlptúrar, ljósmyndir, grafik, módelteikningar og arki- tektúr. Allt blasir þetta við í sölurn og á göngum Gerðubergs þessa dag- ana þar sem efnilegir útskriftar- nemendur Fjölbrautaskólans í Breiðholti bjóða til sýningar. „Það er gríðarleg orka i nemendum deild- arinnar, bæði í dagskólanum og kvöldskólanum," segir Elín Þóra Rafnsdóttir kennari sem stýrir deildinni. Hún segir um þrjátíu nemendur útskrifast þetta árið og aðsókn mikla, eins og verið hafi frá upphafi. „Það komast alltaf færri að en vilja,“ segir hún, „og það á bæði við um dagskólann og kvöldskól- ann.“ Elín segir nemendur fara víða eftir veru sína í deildinni, flestir stefni á áframhaldandi listnám, hönnun, arkitektúr eða aðrar grein- ar. Norræna húsiö á eldspýtu- stokk Listadeildin hefur veriö við lýði frá upphafi skólans en er alltaf að stækka og eflast. Nýlega var til dæmis sett þar upp ljósmyndadeild og það nýjasta er undirbúningsdeild fyrir arkitektúr sem Helgi Gíslason myndlistarmaður er kennari við. Við Elín stöndum einmitt innan um sýningargripi úr þeirri deild þegar viðtalið hefst. Þar eru módel af bæði byggingum og húsgögnum sem gleðja augað og greinilega mikil vinna búin að eiga sér stað áður en hlutirnir hafa tekið á sig þau form sem við blasa. Þama er meðal ann- ars sýningarhús fyrir gíraffa og blokk sem gerð er úr eggjabökkum. Hugsunin bak við hana er sú að hægt sé að bæta við einingum, eftir þörfum, að sögn Elínar. Margs kon- DV-MYNDIR HARI Deildarstjóri myndlistadeildar Elín Þóra Rafnsdóttir, myndlistarkennari í FB, viö eina af myndum Magn- úsar Birkis Skarphéöinssonar á sýningunni. virkjum. „Þegar Alvar Alto teiknaði Norræna húsið gerði hann fyrstu frumskissuna á eldspýtnastokk og sá fyrir sér Bláfjöllin. Það var upp- hafið,“ segir Elín. Nú gefst þeim sem vilja leggja fyrir sig arkitektúr í fyrsta sinn kostur á að nema þau fræði hér á landi þar sem arkitekta- deild verður hleypt af stokkunum í haust við Listaháskólann. Títuprjónalist „Stór hluti af náminu í listadeild FB er módelteikning. Þar er mikil fjölbreytni í gangi og áhersla lögð á skissuvinnuna," segir Elin þar sem við göngum um sali Gerðubergs og bætir við að mannslíkaminn sé sígilt viðfangsefni en aðferðir við að fanga hann á pappír breytist stöðugt og eigi það bæði við mn módel og anatómíuteikningar. Hún segir líka mikið unnið með birtu og rými og sýnir skuggamyndir á vegg sem lýsa þeim æfingum. Þar blasa líka við myndir af íburðarmiklum fatn- aði sem saumaður hefur verið við búningadeild skólans. Afrakstur ljósmyndaranna er til sýnis á öðru tjaldi. Við erum staddar í setustof- unni og þar hanga líka nokkur myndverk, meðal annarra eitt sem byggist að nokkru á títuprjónum. Elín tekur fram að lærður klæð- skeri eigi það. Greinilega með næmt auga fyrir því sem í kringum hann er. Á göngum neðstu hæðar eru nokkur stór málverk eftir nemend- ur úr málverkadeild. Einnig skissur og skúlptúrar og öll ber sýningin vott um hugmyndaauðgi og kraft. -Gun. ar form geta komið að notum síðar meir og smæstu hlutir orðið að stór- Skúlptúr Verk eftir Kristínu Vilborgu Þóröardóttur. Títuprjónar mynda mynstrið Verk eftir Hildi Ásmundsdóttur. Maður lifandi Heimasigur Don Kíkóta Koibrún Bergþórsdóttir skrífar. Skáldsagan Don Kíkóti var nýlega valin besta skáldverk heims i könnun meðal 100 rit- höfunda frá rúmlega fimmtiu löndum. Þessi úrslit vöktu mikinn fógnuð á mínu heimili og í því sambandi má reyndar tala um heimasigur. Við Don Kíkóti erum nefnilega í sam- búð. Hann er reyndar bara stytta uppi í hillu (besta jóla- gjöf sem ég hef fengið) meðan ég er af holdi og blóði en þessi munur skyggir ekki á sam- skiptin. Don veit að hans stað- ur er uppi í hillu og þar stend- ur hann, 31 sentímetri, með skjöld og prik og brjálæðisleg- an glampa i augum, reiðubú- inn að verja heimilið. Ekki langt frá honum er Sókrates, 33 sentímetrar, og eina vopn hans er afar gáfulegt augnatillit sem hefur ekki fleygt honum langt í vinsælda- kosningu. Síðan Don var kosinn bestur í heimi hefur staða hans á heimilinu styrkst mjög og hann er vandlega dustaður á hverjum laug- ardegi svo ekki falli ryk á titilinn. Nú ætla ég ekki að svíkja minn mann enda erum við mjög kát sam- an þessa dagana. Það eru bara hin sætin, þessi 99, sem deila má um. Um niðurstöðu þessarar könnunar má nefnilega segja eins og um ís- lensku bókmenntaverðlaunin að vinningsbókin er vissulega góð en ýmsar tilnefningar hljóta að teljast vafasamar og nokkurra bóka er sár- lega saknað. Ýmislegt bendir til að stór hluti höfundanna sé ekki læs á enska tungu, en það hlýtur að vera eina skýringin á því að Lísa í Undralandi, skemmtilegasta bók í heimi, lenti ekki á listanum. Þeir sem hafa lesið hana á frum- málinu vita að hún er óþýð- anleg þótt margir hafi gert atlögur að henni. Eða kannski er bara of mikið af leiðindaskjóöum í þessum rithöfundahópi. Dálæti þeirra á Beckett gefur vís- bendingu í þá átt. Dickens á bara eina bók á listanum, Glæstar vonir, og David Copperfield og Oliver Twist komast ekki á lista. Senni- lega of skemmtilegar. Af hverju er Biblian ekki á þessum lista? æpti ég þegar ég sá listann og gáfukonan í næsta bás muldraði þreytulega: „Biblían er ekki skáldverk.“ Mér er illa við að hafa á röngu að standa en ákvað að gefa eftir í því máli. Nokkrum dög- um seinna sá ég að Jobsbók er á list- anum. Skil ekki af hverju hún er eina bók Biblíunnar sem er flokkuð sem skáldverk og kemst á listann. „Nú ætla ég ekki að svíkja minn mann enda erum við mjög kát sam- an þessa dagana. Það eru bara hin sœtin, þessi 99, sem deila má um. Um niðurstöðu þessarar könnunar má nefnilega segja eins og um íslensku bókmenntaverðlaunin, að vinningsbókin er vissu- lega góð en ýmsar til- nefningar hljóta að telj- ast vafasamar og nokk- urra bóka er sárlega saknað. “ Biblían er náttúrlega mesta bók- menntaverk allra tíma þótt vissu- lega megi deila um það hvort hún teljist skáldverk. Og með þeim orð- um er ég búin að svíkja Don minn og set því punkt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.