Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2002, Page 28
28
ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 2002
Sport
r>v
Spáin góða
Það voru fyrirliðar, þjálfarar
og formenn knattspymudeilda
félaga Simadeildar karla sem
höfðu atkvæðisrétt í hinni ár-
legu spá KSÍ um lokastöðu deild-
arinnar. -esá
1. Grindavík ............. 257 stig
2. ÍA .........................242
3. Fylkir......................232
4. KR..........................222
5. FH..........................212
6. ÍBV ........................120
7. Fram .......................110
8. KA..........................102
9. Keflavík........................78
10. Þór............................75
Kristján Guðmunds-
son, þjálfari Þórs:
Kemur ekk-
ert á óvart
„Nei, nei,
þessi spá kem-
ur alls ekkert á
óvart. Við
bjuggumst við
þessu, meðal
annars vegna
þess að þetta er
það sem við
höfum heyrt frá boltasérfræðing-
um landsins," sagði Kristján
Guðmundsson, þjálfari nýliða
Þórs, sem er spáð því hlutskipti
að verma botnsæti Símadeildar-
innar að móti loknu.
„Þetta er engu að síður ágætt
að nokkru leyti, það losnar til að
mynda um ákveðna pressu þótt
það sé auðvitað ekkert gaman að
því að vera taldir lakastir í deild-
inni.
Hluti ástæðunnar er vitaskuld
að fyrir tveimur árum vorum
við að spila í C-deildinni og það
er stórt stökk að koma í efstu
deild á þennan hátt. Að vissu
leyti höfum við einnig áhyggjur
af því að hafa farið svona hratt
upp en á endanum hlýtur það að
snúast um viðbrögð mann-
skaparins sem við höfum að
beita og hvernig hann tekur á
málunum.
Þó langar mig að taka það
fram að þetta er afskaplega gott
fyrir Akureyrarbæ að vera
komnir í slag þeirra bestu enda
þurfti bærinn á vítaminsprautu
að halda í boltamálunum." -esá
Ólafur Þórðarson, ÍA:
Titilvörnin
rður erfið
„Já, ég er al-
veg sæmilega
sáttur við það,“
sagði Ólafur
Þórðarson,
þjálfari Islands-
meistara ÍA,
þegar hann var
inntur eftir viðbrögðum við því
að liði hans var spáð öðru sæti í
deildinni af kollegum sínum.
„Það er í sjálfu sér allt í lagi
fyrir okkur, við höfum tapað
nokkrum leikmönnum frá því í
fyrra og við erum með nokkra
lykilmenn í meiðslum eins og er.
Við sjáum til þegar líður á tíma-
bilið hvort eitthvert vit er í þess-
ari spá.
Þegar allt kemur til alls er
erfitt að verja íslandsmeistaratit-
il, það er alveg ljóst og það mun
reyna vel á mína stráka í sumar
hvort sem þeir eru tilbúnir til
þess eða ekki.
Annars vona ég bara að deild-
in verði skemmtileg í sumar og
að mörgu leyti tel ég hana verða
nokkuð svipaða þeirri í fyrra -
það er að segja jafnt og spenn-
andi mót, bæði á toppnum og á
hinum enda hennar. Það gerir
þetta bara meira spennandi fyrir
vikið.“ -esá
Eggert Magnússon, formaður KSÍ, er ánægður með sjónvarpsréttarsöluna til SportFive:
Knattspyrnan þarf á þess-
um peningum að halda
„Það er vitaskuld alltaf erfitt að
þurfa að horfa upp á að láta eitt-
hvað eftir sem maður hefur borgað
dýrum dómum fyrir en í tilfelli
SportFive held ég að ef menn horfl
skynsemisaugum á málin þá geri
þeir nákvæmlega það,“ sagði Eggert
Magnússon, formaður KSÍ, um eitt
helsta áhyggjuefnið fyrir komandi
tímabil í Simadeild karla, hvort eitt-
hvað verði sýnt frá deildinni í is-
lensku sjónvarpi en KSÍ hefur selt
sýningarréttinn til þýsk-franska
fjölmiðlafyrirtækisins SportFive.
„Ég treysti mönnum til að klára
þessi mál, enda er framkvæmda-
stjóri SportFive staddur hér á landi
til að ganga frá þessum málum. Það
virðist hins vegar sífellt vera eitt-
hvert tregðulögmál í þessu, að
menn vakni ekki til lífsins fyrr en
mótið er rétt handan við hornið. En
ég hef fulla trú á að menn klári
þetta.
Um samninginn sjálfan hef ég svo
ekkert nema gott að segja. Við gerð-
um hann á alveg hárréttum tíma,
áður en verð á sjónvarpsrétti i Evr-
ópu fór að hríðlækka. Við vorum
mjög heppnir að því leyti því ís-
lensk knattspyma þarf á öllum þess-
um peningum að halda og gott bet-
ur,“ sagði Eggert enn fremur.
Eins og landsmenn vita, eftir
óvissuna um sýningarrétt HM í
knattspyrnu, er staða íslenskra fjöl-
miðla þannig að ekki er rik ástæða
til að vera bjartsýnn að samningar
náist við SportFive en núverandi
samningur KSl við fyrirtækið nær
til næstu þriggja tímabila. Auk sýn-
inga frá deildakeppninni er einnig
verið að ræða um bikarkeppnina og
landsleiki, bæði heima og heiman.
Eggert er hins vegar greinilega
vongóður um að aðilar komist að
sameiginlegri niðurstöðu og segir
framkvæmdastjóra fyrirtækisins
staddan hér á landi til að ganga frá
samningum og að hann fari ekki á
brott fyrr en þeir séu í höfn.
„Auðvitað vildi ég að þessu máli
væri löngu lokið og auðvitað ætti
það að vera þannig en það virðist
sem aðilar hafi ekki sest almenni-
lega niður til þess að klára þetta
fyrr en núna. En fyrst og fremst
skiptir það okkur helst máli að við
getum nú borgað til íslensku félag-
anna það sem þau eiga að fá því
peningamir eru fyrir hendi.
I ræðu sinni sagði Eggert að
ásýnd knattspymunnar fælist í
markaðsvinnu KSÍ og lýsti hann
ánægju með samstarfið við Sport-
Five, og vonaðist til að það gæti
haldið áfram um ókomin ár. -esá
Karsten Mahlmann frá SportFive, Agnar Már Jónsson frá Símanum og Eggert Magnússon, formaður KSÍ, sýna
samstarf sitt í verki á kynningarfundi KSÍ fyrir Símadeild karla sem hefst 20. maí næstkomandi.
Óstöðugleiki í liðum
- en býst við mjög spennandi móti, segir Bjarni Jóhannsson, þjálfari Grindavíkur
„Ég gef nú ekki
mikið fyrir spána
nema að því leyti
að ég vona að þetta
efli mína menn og
áhangendur liðsins
í baráttunni i sum-
ar,“ sagði Bjarni
Jóhannsson, þjálf-
ari Grindavíkur, sem var spáð titl-
inum i gær.
„Það er þó afar athyglisvert að
litlu sjávarplássi suður með sjó, þar
sem búa ekki nema 2300 manns, sé
spáð titli í upphafi aldar. Þetta skap-
ast þó kannski mest af tilvistar-
kreppu stórveldanna, bæði mann-
skaps- og fjárhagslega, og reyna um
leið að koma sökinni i þessu kaffi-
samsæti yfir til Grindavíkur.
Annars tel ég það ógjöming að
spá með einhverri vissu um útkomu
mótsins og enginn fær stigin sem
telja hér í þessum sal.
Mannskapurinn lítur ágætlega út
og við erum alveg þokkalega undir
þetta mót búnir. Nú er bara að
henda sér út í djúpu laugina næsta
mánudag. Það er hugsanlegt að það
bætist einhverjir leikmenn við hóp-
inn okkar i vikunni en það mál er á
það viðkvæmu stigi að ég get ekki
gefið neitt nánar út um það,“ segir
Bjarni grafalvarlegur.
„Við höfum horft upp á það und-
anfarin ár að hefðin hefur gífurlega
mikið að segja og það getur vel ver-
iö aö liðum eins og KR og álíka lið-
um líði vel að vera spáð sæti um
miðja deild.
Um mótið almennt vil ég segja að
það er afar langt síðan ég hef séð lið
búa við jafn mikinn óstöðugleika á
undirbúningstímabilinu og nú og
ber það vitni um þá bremsu sem er
sett á kaup á erlendum leikmönn-
um. Á móti kemur að yngri leik-
menn fá að spreyta sig meira og af
þvi stafar óstöðugleikinn. Ég bíð eft-
ir spennandi móti.“
-esá
Dómgæslumálin:
Hugsað um
velferð leik-
manna
„Heiðarleiki og háttvísi" er og
hefur verið aðalsmerki knatt-
spymudómgæslu um heim all-
ann og er ísland engin undan-
tekning. Að sögn Halldórs B.
Jónssonar, formanns dómara-
nefhdar, hafa dómarar sennileg-
ast aldrei komið jafn vel undir-
búnir til leiks og nú og sér fram
á góöa samvinnu dómara, þjáif-
ara og ekki síst leikmanna. „Að
þeir nái að skapa sér gott starfs-
umhverfi," eins og hann orðaði
það sjálfur í ræðu sinni á kynn-
ingarfundi KSÍ fyrir Simadeild-
ina sem senn fer að hefjast.
Halldór sagði helstu áherslur
sumarsins vera að hugsað verði
um velferð leikmannanna og eru
áherslur í dómgæslu samkvæmt
því. Til að mynda verður leik-
maður að yfirgefa völlinn þegar
hann þarf aðhlynningu í leik og
má hann ekki koma aftur inn á
hann fyrr en leikurinn hefur
hafist á ný. Er það gert svo hug-
urinn beri ekki menn ofurliði og
þeir fái þá aðhlynningu sem
þeim ber.
Ekki nóg með að þessu verði
framfylgt í efstu deild karla held-
ur einnig í 1. deildinni þar sem
þessi regla á einnig við í milli-
ríkjaleikjum og U-21 landsleikj-
um svo eitthvað sé nefnt.
Engar auglýsingar á buxum
Varðandi auglýsingamál á
búningum félaga er það nýmæli
að frá og með 1. júlí mega hér á
landi auglýsingar aðeins vera á
treyjum, ekki buxum. Sagði Hall-
dór að fyrirmönnum UEFA
greinilega blöskrað ástandið
víðs vegar um Evrópu og sett því
þessar reglur.
Þá er leikmönnum óheimilt að
vera með hvers konar auglýs-
ingu eða áróður á nærklæðum
en víða hefur það þekkst að
menn séu í bolum sem á standi
einhvers konar slagorð eða þess
háttar sem þeir svo sýni þegar
þeir fagna marki. Halldór tók
skýrt fram að hvers kyns „X-eitt-
hvað“ væri með öllu óheimilt.
-esá
Fvrirliðar liöanna i Símadeildinni
Efri röð frá vinstri: Þorvaldur Makan
(KA), Gunnlaugur Jónsson (ÍA),
Kjarfan Antonsson (ÍBV), Ólafur Örn
Bjarnason (Grindavík) og Zoran Lju-
bicic (Keflavík).
Neðri röð frá vinstri: Finnur Kol-
beinsson (Fylki), Einar Þór Daníels-
son (KR), Hilmar Björnsson (FH),
Ágúst Gylfason (Fram) og Hlynur
Eiríksson (Þór).