Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2002, Page 32
'Jf
am
ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 2002
Allianz (m)
- Loforð er loforð
Kristlnn H.
Gunnarsson.
óeðlilegur," sagði
Kristinn í morg-
un þegar DV náði
sambandi við
hann í útlöndum.
Bréfið er skv.
heimildum DV
dagsett 22. apríl
sl. þannig að
rúmar þrjár vik-
ur eru liðnar frá
ritun þess. Krist-
inn segist verða að íhuga stöðuna
áður en hann gefi stórar yfirlýsing-
ar en bendir á að einn þeirra fimm
sem hafi ritað undir bréfið hafi ekki
getað haft upplýsingar um sakarefn-
in nema frá öðrum og það sé ekki
trúverðugt. „Þetta er ekki eðlilegur
framgangsmáti máls og það er deg-
inum ljósara að það er komið aftan
að mér. Menn vinna ekki svona ef
þeir ætla að vera heiðarlegir í sam-
skiptum," segir Kristinn.
Samskipti Theodórs Bjamasonar,
forstjóra Byggðastofnunar, og Krist-
ins hafa verið stirð um skeið og er
ekki langt síðan Theodór gekk út
miðjum stjómarfundi. Þá tók hann
með sér ýmis fundargögn að sögn
Kristins sem torveldaði þeim sem
eftir sátu að vinna. „Við gátum ekki
afgreitt allt sem til stóð vegna þess
að forstjórinn fór burt með ýmis
DV-MYND GVA
Það tókst!
Grétar Þorsteinsson, forseti ASl, og
Gylfi Arnbjörnsson framkvæmda-
stjóri rýna glaöbeittir í frétt
Hagstofunnar í morgun.
Rauða strikið hélt:
Búist við vaxta-
lækkun í vikunni
í nýlegu ársfjórðungsriti Seðla-
banka Islands kom fram að ef allri
óvissu yrði eytt um hvort gildandi
kjarasamningar héldu myndi
bankinn að öllum líkindum lækka
vexti skjótt í kjölfarið. Eftir að
Hagstofan birti verðbólgutölur i
morgun er ljóst að óvissu um
kjarasamninga hefur verið eytt.
Greiningadeild Búnaðarbankans
túlkar yfirlýsingu Seðlabankans á
þann veg, að vextir verði lækkað-
ir strax í þessari viku.
Már Guðmundsson, aðalhag-
fræðingur Seðlabankans, segir að
líkumar á að verðbólga fari inn
fyrir þolmörk bankans í haust
hafi aukist enn frekar við nýjustu
fréttir. „Að sama skapi eru enn
meiri líkur á að verðbólgan náist
i 2,5% á næsta ári. Seðlabankinn
hefur sagt að vextir muni að öll-
um líkindum lækka skjótt i kjöl-
far svona niðurstöðu og það hefur
ekkert breyst,“ segir Már.
Verðbólgutölur dagsins fela
einnig í sér að breytingar, sem
voru hluti af samkomulagi ASÍ og
SA um rauða strikið og háðar því
að markmið þess næðu fram að
ganga, koma til framkvæmda.
í fyrsta lagi er um það að ræða,
að frá og með 1. júlí greiða vinnu-
veitendur 1% framlag í séreigna-
sjóð launamanns án framlags af
hans hálfu. Þetta gildir þó ekki til
hækkunar á 2% mótframlagi
vinnuveitenda gegn 2% viðbótar-
spamaði launamanns sem kom til
framkvæmda um síðustu éiramót
skv. samningum. í ööru lagi verð-
ur almenn launahækkun um
næstu áramót 0,4% hærri en ella.
I tengslum við samkomulag ASÍ
og SA í desember lýsti ríkisstjórn-
in því enn fremur yfir, að gengju
verðlagsmarkmiðin eftir myndi
hún beita sér fyrir lækkun trygg-
ingagjalds úr 6% í 5,73% á næsta
ári.
-ÓTG
anríkisráðherrar NATO með utanrikisráðherra
Rússlands, Igor Ivanov, þar sem semja á um
stofnun sameiginlegs ráðs Rússa og NATO-
rikja. Mál manna er að slíkt ráð muni vera mik-
il tímamót í samskiptum Rússa og Bandaríkj-
anna. Eftir það verður svo sameiginlegur utan-
ríkisráðherrafundur NATO og Evrópusam-
bandsins. Á morgun fundar svo Evró-Atlants-
hafsráðið í íþróttahúsi Hagaskóla og síðdegis
DV-MYND PJETUR
Powell kemur til NATO-fundarlns
Utanríkisráðherrafundur NATO hófst í Reykjavík í morgun. Hér sést Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, koma til fundarins ásamt fylgdarliði.
46 utanríkisráðherrar hittust í morgun /
NATO-fundurinn hófst kl. 8.30 i morgun í Há-
skólabíói en ráðherramir 46 sem munu sitja
fundinn komu til landsins í gær. I þessum hópi
eru utanríkisráðherrar allra 19 aðildarríkjanna
auk 27 samstarfsrikja.
Fundurinn hófst á því að Robertson lávarður
og Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra fluttu
ávörp og hófu þannig vorfund utanríkisráð-
herra NATO-ríkja. Síðdegis i dag funda svo ut-
fundar svo samstarfsnefnd NATO og Úkraínu.
Eins og fram kemur í blaðinu í dag verðurj
töluverð röskun á umferð í kringum fundar-
svæðið og þurfa krakkar í Melaskóla og Haga-
skóla m.a. að ganga aðra leið í skólann en|
venjulega. Þá þurfa þijár strætisvagnaleiðir að ’
leggja lykkju á leið sína.
HIÍ
Forstjóri Byggðastofnunar óánægður með launin sín að sögn stjórnarformanns:
/
Komið aftan að mer /
- segir stjórnarformaður, Kristinn H. Gunnarsson, vegna bréfs starfsmanna
Kristinn H. Gunnarsson, stjómar-
formaður Byggðastofnunar, segir
vegna bréfs sem nokkrir starfsmenn
Byggðastofnunar rituðu forstjóra
stofnunarinnar, að andmælaréttur
sinn hafi verið þverbrotinn. I bréf-
inu eru störf Kristins gagnrýnd en
hann segist fyrst hafa frétt af því
eftir að málið komst í fjölmiðla.
„Mér hefur ekki verið kunnugt
um þetta bréf en ef ég hef fengið
réttar upplýsingar um innihald þess
þá er ég borinn þungum sökum.
Þeir sem em bomir sökum eiga að
fá pata af því þannig að þeir geti
svarað fyrir sig þannig að mér
finnst þessi framgangsmáti mjög
/
gögn. Það fmnst mér alvarlegt mál.
Svona eiga menn ekki að gera.“
En hyggur Kristinn að forstjórinn J
sé á förum?
„Hann lét að því liggja á stjómar- .
fundi í vetur að hann ætlaði aðl
ihuga sína framtíð hjá stofnuninni í
ljósi niðurstöðu kjaranefndar um
launakjör. Hann var mjög ósátturj
við sín kjör en ég hef lagt áherslu á'
að hann gefi skýr svör um framtíð
sína hjá stofnuninni en þau hafaj
enn ekki borist.“
DV reyndi árangurslaust að ná
tali af forstjóra Byggðastofnunar í
morgun. -BÞ j
/
/
í
/
Viðbúnaður, vélmenni og varúðarráðstafanir vegna Nato:
Ferðataska sprengd upp í Öskjuhlíð
- sængurföt og fatnaður var innihaldið - grunsamlegar mannaferðir
Blá ferðataska, sem fannst á
flugvallarsvæðinu nálægt Hótel
Loftleiðum, var sprengd upp í
Öskjuhlíð í gærkvöld. Lögregla og
sérfræðingar Landhelgisgæslunn-
ar vom að verki en þama var ver-
ið að kanna innihald töskunnar.
Reyndist það vera fatnaður og
sængurfot.
Mikil öryggisgæsla er við hótel-
ið, flugvöllinn og víðar í borginni
vegna NATO-fundarins. I gær-
kvöld sást til grunsamlegra
mannaferða, fólks í bíl, þar sem
taskan fannst, við aðkeyrsluna á
móts við byggingu Flugmálastjórn-
ar íslands við flugvöllinn. Bílnum
var ekið á brott frá staðnum þar
sem taskan lá. Lögreglan kallaði til
sprengjusérfræðinga sem fóru með
töskuna upp í Öskjuhlíö. Þar var
hún sprengd upp til að opna hana.
Við þessar aðgerðir var tekið fram
eins konar vélmenni sem gjarnan
er notað þegar hliðstæö atvik eiga
sér staö. Ekkert hættulegt eða
gmnsamlegt reyndist vera í tösk-
unni.
Að sögn ríkislögreglustjóraemb-
ættisins er taskan nú í vörslu Lög-
reglunnar í Reykjavík vilji eigand-
inn vitja hennar. Hún er að vísu
skemmd eftir sprenginguna. Ekki
hefur verið útilokaö að taska þessi
hafi hreinlega fallið úr bíl en þó er
eitt víst að það liggur ekki fyrir
hvers vegna hún lá á framan-
greindum stað eða hvort það var
óviðkomandi fólk sem sást í biln-
um skömmu áður en hún var tek-
in.
-Ótt
Utafakstur
í hálku
Bifreið lenti utan vegar i gær í
hálku á Siglufjarðarvegi við Graf-j
ará. Bíllinn er mikið skemmdur og |
bílstjórinn kvartaði undan eymsl-
um i baki. -GG .
/
í
/
/
/
f ER KIDDI
l&OSSINN?
FRJALST, OHAÐ DAGBLAÐ
FRÉTTASKOTIÐ
SlMINN semaldrei sefur
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá I síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555