Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2002, Síða 4
Fréttir
LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2002
DV
Jarðvegseyðing mesta umhverfisvandamál þjóðarinnar að mati Landsvirkjunar:
Þráhyggja hjá andstæðingum
- að beina sífellt spjótum sínum að orkufyrirtækjum, segir Friðrik Sophusson
Orkumálin eru ekki stærsta um-
hverfisvandamál þjóðarinnar í dag.
Flestir sérfræðingar þjóðarinnar í
umhverfis- og náttúruverndarmál-
um eru sammála um að jarð-
vegseyðing sé þar í fyrsta sæti en
þrátt fyrir það beina margir sér-
fræðingar spjótum sínum að orku-
fyrirtækjunum og telja þau jafnvel
verri en eyðingaröflin.
Þetta sagði Friðrik Sophusson,
forstjóri Landsvirkjunar, á vorfundi
Samorku sem lauk á Akureyri í
gær. Hann sagði algjörlega horft
fram hjá þeirri staðreynd að það
væru hvorki virkjanir né lón sem
hefðu valdið jarðvegseyðingunni
heldur allt aðrir áhrifaþættir. Sum-
ir af mannavöldum en aðrir vegna
hamfara náttúrunnar sjálfrar.
„Þessi þráhyggja sumra virkjunar-
andstæðinga hefur leitt til þess að
ekki hefur verið horft til þeirra
miklu möguleika sem orkufyrirtæk-
in hafa til að endurheimta landgæði
með margvíslegri uppgræðslu eins
og dæmin sanna,“ sagði Friðrik.
Stuðlar að sjálfbærri þróun
Forstjóri Landsvirkjunar sagði að
í málflutningi sumra „náttúru-
verndarsinna" væri oft áberandi
hvernig reynt væri að höföa til
ferðaþjónustunnar og „jafnvel ala á
óvild milli hennar og orku-
nýtingar". „Þvi miður hef-
ur þessi sundrungarher-
ferð stundum haft áhrif í
ferðaþjónustunni. Flestum
er þó ljóst aö ferðaþjónusta
og orkubúskapur eiga sam-
leið eins og dæmin sanna.
Orkufyrirtækin hafa opnað
ferðamönnum nýja sýn á
landið með betri vegum
um hálendið. Sívaxandi
flöldi innlendra og erlendra ferða-
manna leggur leið sína í orkuverin
til að sjá hvemig þar er framleidd
hrein, endumýjanleg orka. Og loks
má geta þess að langfjölsóttasti við-
komustaður erlendra ferða-
manna er Bláa lónið, sem
væri ekki til ef ekki væri
orkuver við Svartsengi,"
sagði Friðrik.
Varðandi hagvöxt þjóðar-
innar sagði Friðrik að ör
vöxtur útflutnings væri eina
öragga leiðin til að tryggja
lífskjör íslendinga á við það
sem best þekktist annars
staðar. „í þvi skyni er mikil-
vægt að nýta íslenskar orkulindir,
en nýting þeirra er hagkvæm og
umhverflsvæn auk þess sem hún
stuðlar að sjálfbærri þróun.“
-BÞ
Friörik
Sophusson.
Afmælishátíð FÍB í dag:
Fjölskyldurall
og bílasýning
Félag íslenskra bifreiðaeigenda,
FÍB, fagnar 70 ára afmæli á þessu
vori. í því tilefni heldur félagið af-
mælishátið í Perlunni í dag, 1 júní.
Hápunktur hennar verður fjöl-
skyldurall um byggðir og nátt-
úruperlur Reykjaness. I þessum leik
er nauðsynlegt að allir í bílnum,
böm og fullorðnir, vinni saman að
því að leysa ýmis verkefni og að þvi
að komast ferðarhringinn innan
timamarka. Fyrsti bíllinn verður
ræstur kl. 10 árdegis við Perluna.
Inni í Perlunni og utandyra verður
bíla- og sögusýning sem tengist 70
ára sögu FÍB. Meðal sýningargripa
er forláta Studebaker-bifreið, árgerð
1930. Sýningin verður opin á laug-
ardag frá kl. 9.30 til 20 og aðgangur
er ókeypis. -hlh
Björgunarafrekið íVogum á Vatnsleysuströnd:
Bjargvætturinn fær
viðurkenningu
Þórður Vormsson, maðurinn á
sjötugsaldri sem var nærri drukkn-
aður í heitum potti í Vogum á
Vatnsleysuströnd á kosninganótt-
ina, hefur afhent piltinum sem
bjargaði honum viöurkenningu fyr-
ir björgunarafrekið. Þórður afhenti
honum dágóða peningaupphæð um
leið og hann þakkaði honum enn og
aftur fyrir björgunina.
Eins og DV greindi frá vann pilt-
urinn, Stefán Guðmundsson, sem
aðeins er 17 ára, einstætt afrek þeg-
ar hann bjargaði Þórði úr heita pott-
inum. Hinn síðarnefndi hafði sofnað
í honum og lá á botni hans þegar
Stefán bar að. Þórður var þá hættur
að anda, orðinn fjólublár og með
opin augu.
Stefán brást snarlega við og hóf
lífgunartilraunir. Þær báru svo
skjótan árangur að Þórður var kom-
inn til meðvitundar áður en sjúkra-
bíllinn kom sem var þó örskömmu
eftir aö kallað var á hann. Sjúkra-
flutningamennimir sögðu við Þórð
á leiðinni á Landspítalann í Reykja-
vík að hann hefði án efa verið dáinn
en hárrétt viðbrögð Stefáns á ör-
lagastundu heföu bjargað lífi hans.
Þórði hefur gengið nokkuð vel að
jafna sig eftir atburðinn. Þó fékk
DVWYND E.ÓL.
Viðurkenning
Þórður Vormsson afhenti Stefáni Guömundssyni, bjargvætti sínum, dágóöa
peningaupphæö sem viöurkenningu fyrir björgunarafrekiö.
hann vott af lungnabólgu en kvaðst góður og kenndi sér nú einskis
í samtali við DV í gær vera orðinn meins. -JSS
71% vilja hvalkjöt
Mikill meirihluti fólks hyggst
neyta hvalkjöts ef og þegar það býðst
í verslunum á næstu mánuðum.
Kemur þetta fram í skoðanakönnun
sem Sjávamytjar hafa látið gera í
Heita pottinum, nýju vefriti sem
dreift er til 53.000 áskrifenda strik.is
og kassi.is. Rúmlega 530 manns tóku
þátt í könnuninni en spurt var: „Ætl-
ar þú að neyta hvalkjöts þegar það
býðst hér?“ Alls svaraði 71% spum-
ingunni játandi en 22% neitandi og
7% voru óákveðnir. -HKr.
Styrktarsjóður
Opnaður hefur verið styrktarsjóður
fyrir fjögurra manna fjölskylduna sem
missti allt sitt í eldsvoða við Fannafell
2 í Breiðholti 8. maí síðastliðinn. Þeim
sem vilja leggja fjölskyldunni lið er
bent á reikningsnr. 115-05-070393 við
Landsbankann í Mjódd. -vig
NOTAÐIR BÍLAR
Dalhatsu Gran Move
Nýskr. 03/1999, 1600 cc,
5 dyra, sjálfskiptur, vínrauður, ekinn 53 þ.
->990þ.
Land Rover Dlscovery
Nýskr. 04/1998, 2500 cc, dfsil,
5 dyra, sjálfskiptur, gylltur, ekinn 74 þ.,
álfelgur, 7 sæta.
■>2.190/3
Við færum þér
beinar sjónvarpsútsendingar
frá HM 2002.
■>580þ
Toyota Yarls Terra
Nýskr. 06/2000, 1000 cc,
3 dyra, 5 gfra, silfurgrár, ekinn 43 þ.
Volkswagen Polo
Nýskr. 05/1999, 1400 cc,
5 dyra, 5 gíra, blár, ekinn 37 þ.
■>890ö
■>99/)
Subaru Forester Cs
Nýskr. 07/2000, 2000 cc,
5 dyra, 5 gíra, vínrauður, ekinn 60 þ.
Topplúga.
->1.890/3
Nlssan Terrano II
Nýskr. 08/1999, 2700 cc, dfsil,
3 dyra, 5 gíra, grasnn, ekinn 46 þ.
->1.950/>.
Hyundai Accent Lsi
Nýskr. 07/1997, 1300 cc,
5 dyra, 5 gíra, hvítur, ekinn 36 þ.
->830/3.
Renault Clio RN
Nýskr. 09/1999, 1600 cc,
3 dyra, sjálfskiptur, svartur, ekinn 24 þ.
Renault Laguna II RT
Nýskr. 05/2001, 1600 cc,
5 dyra, 5 gfra, grár, ekinn 14 þ.
->1.850/3.
Peugeot 306 Break st.
Nýskr. 06/1998, 1600 cc.
5 dyra, 5 gíra, rauður, ekinn 67 þ.
■>880/3.
Fiat Marla Weekend Sx
Mitsubíshi Lancer Glxi
Land Rover Freelander
Mercedes Benz E280
Renault Mégane RN Classlc
Nýskr. 10/1999,1600 cc.
5 dyra, 5 gíra, rauöur, ekinn 40 þ.
Nýskr. 04/2000, 1300 cc,
4 dyra, 5 gíra, hvítur, ekinn 26 þ.
Nýskr. 12/1999, 1800 cc,
5 dyra, 5 gíra, hvítur, ekinn 70 þ.
Nýskr. 06/1993, 2800 cc,
4 dyra, sjálfskiptur, blár, ekinn 158 þ.
Nýskr. 06/1999, 1400 cc
4 dyra, 5 gíra, rauður, ekinn 57 þ.
■> 1.150/3 ->1.050/3
->1.740/3.
->1.380þ.
■>1.080/3
575 1230
Opið mán-fös 09-18 og lau 10-16
J