Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2002, Side 6
6
LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2002
DV
Fréttir
Vel heppnaðar karfamerkingar í hafdjúpinu:
Bylting með nýrri
íslenskri tækni
DV-MYND E.ÖL
Svona er þetta gert
Sigmar GuObjörnsson, framkvæmdastjóri Stjörnu-
Odda, útskýrir hvernig merkjum er komiö fyrir í fiskin-
um á miklu dýpi. Meö honum á myndinni eru, taliö frá
vinstri: Guömundur Bjarnason, skipstjóri á Árna Friö-
rikssyni og Þorsteinn Sigurösson, fiskifræöingur og
verkefnisstjóri Hafrannsóknastofnunar, lengst til hægri.
Hafrannsóknaskipið Árni
Friðriksson er nýkomið úr
leiðangri af karfaslóð suður
af íslandi þar sem gerðar
voru allsérstæðar tilraunir.
Þar var um að ræða merking-
ar á karfa í hafdjúpunum með
tækjabúnaði sem íslenska fyr-
irtækið Stjörnu-Oddi hefur
hannað. Tókst tilraunin vel,
merktir voru 50 karfar, og
telja vísindamenn að þetta sé
bylting í merkingu lífvera á
miklu hafdýpi.
Felst hugmyndin í því að
tölvumerkjum í plasthylkjum
er komið fyrir í kviði
fiskanna. Er það gert með sér-
stökum búnaði sem komið er
fyrir i fiskitrolli sem safnar
fiskinum að búnaðinum. Þar
fer fiskurinn í gegn og er
skorið á roðið og búnaðinum
komið fyrir með vélrænum
hætti sem stýrt er úr brú skipsins.
Þegar merkingu er lokið er opnað
fyrir pokann á trollinu og fiskinum
sleppt.
Merkin eru í hvítum plasthylkj-
um og stendur vírspotti út um kvið
fiskanna eftir aðgerðina. Á að
vera auðvelt að koma auga á
búnaðinn þegar hann lendir á
borðum fiskvinnslunnar. Það
er von sérfræðinganna að sjó-
menn og fiskverkendur verði
á varðbergi fyrir slikum
merkjum og skili þeim til
Hafrannsóknastofnunar.
Vandinn við merkingar á
karfa og öðrum fiskum sem
hafast við á miklu dýpi hefur
fram til þessa verið sá að þeir
þola ekki eða illa ferðalag úr
miklum þrýstingi í hafdjúp-
inu og upp á yfirborð. Því hef-
ur hugmynd Stjömu-Odda um
að fara með tæki niður í haf-
djúpið til merkingar gjör-
breytt hugmyndum manna um
fiskimerkingar. Þorsteinn Sig-
urðsson, fiskifræðingur og
verkefnisstjóri Hafrannsókna-
stofnunar, segir kollega sína
víða um heim bíða spennta eftir nið-
urstöðum tilraunanna hér heima.
Þetta gefi alveg nýja möguleika í
merkingum fiska í stómm stíl, jafn-
vel á miklu dýpi, sem ekki hafi ver-
ið mögulegt áður.
Framkvæmdastjóri Stjörnu-Odda,
Sigmar Guðbjörnsson, segir sam-
starfið við Hafrannsóknastofnun
ómetanlegt en þróun þessa merki-
búnaðar sé líklega búin að kosta um
100 milljónir króna. Bara úthald á
skipi stofnunarinnar kostar eina
milljón króna á dag. Hann segir að
hugmyndin hafi kviknað 1997 og ver-
ið í stöðugri þróun síðan. Nú yrðu
gerðar frekari endurbætur á búnaö-
inum í ljósi nýjustu tilrauna. Áður
hafi verið gerðar tilraunir um borð í
hafrannsóknaskipinu Bjarna Sæ-
mundssyni en hann væri ekki nógu
vel búinn og ekki nógu öflugur til að
draga flotrollið sem nota þyrfti. Guð-
mundur Bjarnason, skipstjóri á
Áma Friðrikssyni, sagði að tilraun-
in, sem gerð var 11.-15. maí, hefði
gengið vel. Skipið sé mjög vel búið
til slíkra aðgerða og hægt að stýra
trollinu með öflugum spilum skips-
ins að ósk rannsóknarmanna. -HKr.
REYKJAViK AKUREYRI
Sólariag í kvöld 23.30 23.15
Sólarupprás á morgun 03.20 03.05
Síðdegisflóð 23.08 16.10
Árdegisflóð á morgun 11.37 03.41
Hæg suðlæg eða breytileg átt og
víða úrkoma. Skýjaö með köflum og
þurrt Norðaustan og Austanlands.
Fremur milt veður sunnanlands en
hlýjast á austurlandi.
ÞfijiJJJ
jp ®
10°
10°Y->
O 1T?
V
Skýjað um mestallt land
Fremur hæg austlæg átt, skýjað
með köflum en dálítil rigning
sunnanlands og þokuloft við
norður- og austurströndina. Hiti 7
til 13 stig.
Bannmerki í nýju símaskránni
Símaskráin 2002 er komin út og
hefur þegar tekið gildi. Hún er prent-
uð í 230 þúsund eintökum í lit á
vandaðan pappír, með plasthúðaðri
kápu og er umfangsmesta prentverk
sem unnið er hérlendis árlega.
Helstu nýjungar í skránni eru
svokölluð bannmerki sem eru sér-
stök merking við notendur sem óska
eftir að vera ekki ónáðaðir af aðilum
sem stunda beina markaðssetningu.
Merkingin er fyrir framan símanúm-
erin og er rauður kassi með hvítum
krossi. Af um 300 þúsund aðilum ósk-
uðu um 54.000 eftir merkingunni. í
skránni er jafnframt að finna leik-
daga í Símadeildinni 2002, þ.e. úr-
valsdeild karla og kvenna í knatt-
spyrnu. Forsíðu Simaskrárinnar 2002
prýða verk eftir Kristínu Jónsdóttur
(1888-1959), en hún varð fyrst ís-
lenskra kvenna til að leggja fyrir sig
myndlist. Myndin á forsíðu höfuð-
borgarskrárinnar heitir „Við Þvotta-
laugarnar" á landsbyggðarskránni
heitir myndin „Fiskverkun við Eyja-
fjörö“. -GG
DV-MYND PJETUR
Símaskrá
Heiðrún Jónsdóttir, forstööumaöur
upplýsinga- og kynningarmála Sím-
ans, og Anton Órn Kærnested, rit-
stjóri Símaskrárinnar 2002, meö
bókina á milli sín.
Lækkaöu byggingarkostnaðinn!
• Styttu byggingartímann
Hús þetta er 151 fm. (125 + 26 fm bílsk.) íslenskt timbureiningahús.
Efni í fokh.hús m.stand. vatnsklæðningu afhendist í gámi tilb.
til uppsetningar á höfuðb.sv. Reisingartími er um 10 dagar
kr: 5.490.000.-
sp hÖnnun húseiningar, dalvegi 16 - b, 200kópavogi
sími: 564 6161 - netfang: spdesign@mmedia.is
íslenskur barþjónn leik-
stýrir á Manhattan
„Ég var búin að
spara barpeningana til
að geta látið þetta
verða að veruleika. Nú
hefur draumurinn
ræst,“ segir Margrét
Óskarsdóttir, leikstjóri
og barþjónn, sem frum-
sýndi fyrsta leikrit sitt,
„taken for a loop“, í
leikhúsi á Manhattan á
miðvikudag. Húsfyllir
var á fyrstu sýningu
Margrétar sem reyndar
er hámenntuð 1 þeim
fræðum sem snúa að
leiklist.
Hún stundaði nám í
Bandaríkjunum við
American Academy of
Dramatic Arts og Hunt-
ir Collage og útskrifað-
ist þaðan með BA í leiklist og kvik-
myndagerð.
Margrét starfar sem barþjónn á
Manhattan þar sem hún hefur búið
og starfað í 11 ár. Hún á að baki
nám I leikstjórn við virtan skóla.
Auk þess að leikstýra verkinu
skrifaði Margrét handritið að
„taken for a loop“.
Þá fjármagnar hún sjálf uppsetn-
inguna en stærstur hlutinn felst í að
leigja leikhúsið þar sem verkið fer á
fjalirnar.
„Áhættan er ekkert gríðarleg.
Það tekur mig þrjár vikur að vinna
upp í kostnaðinn á
barnum. Miðinn
kostar aðeins 12
dollara. Uppselt
var á fyrstu sýning-
una löngu fyrir
frumsýningardag
og búið að selja þó
nokkuð inn á
næstu sýningar,“
segir hún.
Leikhúsið er á
'23. stræti og milli 6.
og 7. breiðgötu á
Manhattan. Mar-
grét segir áð mn sé
að ræða svokallaða
Off, off Broadway-
sýningu sem mark-
ist af því að i hús-
inu eru færri en 99
sæti.
Meðal þeirra sem sótt hafa sýn-
ingamar er nokkur fjöldi íslendinga
sem komu gagngert til New York til
að sjá verkið sem alls verður sýnt
fnnm sinnum.
Eftir að seinasta sýningin verður
að baki á sunnudagskvöld ætlar
hún að meta árangurinn og halda
áfram að vinna á barnum þar til
fleiri tækifæri dúkka upp.
„Lokatakmarkið er að fá vinnu
sem leikstjóri. Þar er ég ekki að spá
í peninga en það væri þó gott að
geta hvílt mig frá starfinu á barn-
um,“ segir Margrét. -rt
DV-MYND REYNIR TRAUSTASON
Lelkstjórinn
Margrét Óskarsdóttir er
sprenglærö í þeim fræöum
sem snúa að leikritum og
kvikmyndagerö.
Mánudagur Þriðjudagur Miðvikudagur
e & £3
HHi 5" Hitl 5° Hiti 6°
til 15° til 15° til 14°
Vindur: 3-10 os Vindur: 5-lOnV* Vindur: 5-10 m/s
NA-átt og rigning um landið norðarv og austanvert. Annars skýjaö. Áustlæg átt og dálrtil rignlng. Skýjaö meö köflum og úrkoma í öörum landshlutum. Áfram austlæg átt og úrkoma um mest alft landiö.
i- 'l í tfst-
Logn
Andvari
Kul
Gola
Stinnlngsgola
Kaldi
m/s
0-0,2
0,3-1,5
1,6-3,3
3.4- 5,4
5.5- 7,9
8,0-10,7
Stinningskaldi Allhvasst Hvassviöri Stormur Rok Ofsavefiur Fárvifiri 10.8- 13,8 13.9- 17,1 17,2-20,7 20,8-24,4 24.5- 28,4 28.5- 32,6 >= 32,7
JfL Á2
AKUREYRI rigning 4
BERGSSTAÐIR rigning 3
BOLUNGARVÍK alskýjaö 9
EGILSSTAÐIR súld 9
KIRKJUBÆJARKL. rigning 10
KEFLAVÍK skýjaö 9
RAUFARHÖFN súld 3
REYKJAVÍK skýjaö 9
STÓRHÖFÐI súld 8
BERGEN rigning 11
HELSINKI léttskýjað 22
KAUPMANNAHOFN skúr 11
ÓSLÓ skýjaö 16
STOKKHÓLMUR 18
ÞÓRSHÖFN skúr 11
ÞRÁNDHEIMUR léttskýjaö 16
ALGARVE skýjaö 25
AMSTERDAM hálfskýjaö 15
BARCELONA léttskýjaö 22
BERLÍN skúr 20
CHICAGO léttskýjaö 22
DUBLIN skýjaö 14
HALIFAX súld 13
FRANKFURT hálfskýjað 22
HAMBORG þrumuveöur 14
JAN MAYEN rigning 4
LONDON skýjaö 17
LÚXEMBORG léttskýjað 19
MALLORCA léttskýjaö 27
MONTREAL 18
NARSSARSSUAQ úrkoma 8
NEW YORK léttskýjaö 21
ORLANDO léttskýjað 22
PARÍS léttskýjaö 21
VÍN hálfskýjaö 23
WASHINGTON léttskýjaö 21
WINNIPEG heiöskírt 13