Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2002, Page 12
12
LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2002
DV
Fréttir
Bono er hættur að láta sig dreyma heldur lætur verkin tala:
Rokkarinn sem
vill bjarga Afríku
Irski rokkarinn Bono er sammála
breska skáldinu W.H. Auden sem
skrifaði einhverju sinni að skáld-
skapurinn kæmi engu til leiðar.
„Ég er orðinn þreyttur á að láta
mig dreyma. Þessa stundina vil ég
láta verkin tala.“
Og Bono hefur svo sannarlega
ekki látið sitja við orðin tóm. For-
söngvari írsku stórsveitarinnar U2
er nýkominn heim úr ellefu daga
ferð um fjögur Afríkuríki þar sem
hann og Paul H. O’Neill, fjármála-
ráðherra Bandaríkjanna, kynntu
sér málefni álfunnar. Tilgangur
ferðarinnar var meðal annars sá að
vekja athygli umheimsins á vanda-
málum Afríku og um leið varpa
ljósi á þær rökræður sem fram fara
um hvemig vinna eigi bug á fátækt
í heiminum.
Skrýtnir ferðafélagar
Þeir voru kallaðir „furðuparið",
eða „odd couple" upp á ensku, á
ferðalagi sínu um Afríkulönd. Enda
gefur varla að líta ólíkari menn.
Bono aldrei í öðm en safarífotum,
með blálituðu sólgleraugun stöðugt
á nefinu. O’NeUl alltaf í óaðfinnan-
lega pressuðum skyrtum með flott
hálstau og buxum i stíl.
Ekki nóg með það, heldur fara
skoðanir þeirra á aðstoð við fátæk
lönd hreint ekki saman. Bono er
ákafur talsmaður þess að auðug ríki
Vesturlanda auki aðstoð sína við
Afríkuríki og gefi þeim upp skuldir
til að þau megi koma fótunum und-
ir sig. Hann notaði hvert tækifæri í
nýafstaöinni ferð til að hamra á
þessu við hvem sem heyra vildi.
Frjáls markaður lifi
O’Neill aftur á móti er ekki jafn-
viss um ágæti aðstoðar. Þvert á
móti telur hann að gífurlegir fjár-
munir hafi farið í súginn á umliðn-
um árum þar sem hjálparféð hafi
ekki orðið til að örva efnahagslíf
landanna sem aðstoðina þáðu. Hann
vill aö Afrikuríki opni markaði sína
fyrir erlendum fjárfestum.
„Ég er áhugamaður meðal at-
vinnumanna," sagði Bono við John
Kufor, forseta Gana, þegar þeir
O’Neill heimsóttu hann á dögunum.
En ekki áhugamaður af verri end-
anum.
„Ég neitaði að hitta hann í fyrstu.
Ég hélt að hann væri bara einhver
poppstjarna sem vildi notfæra sér
mig,“ segir O’NeUl um fyrstu kynni
sín af popparanum. Hann var þó
ekki seinn að skipta um skoðun eft-
ir að heldur betur teygðist á fyrsta
fundi þeirra. Fundurinn átti að
standa í hálftíma en varö klukku-
tímanum lengri en það.
„Hann tekur þetta alvarlega. Hon-
um stendur ekki á sama um þessi
mál og veistu hvað? Hann veit heil-
mikið um þau.“
Svo mörg voru þau orð banda-
ríska fjármálaráðherrans um rokk-
arann.
Geldof kom honum á bragðið
Bono er ekki fyrsti rokkarinn
sem mjög er í mun að bæta kjör Afr-
íkuþjóða. Flestir muna sjálfsagt eft-
ir öðrum íra, Bob Geldof, sem hætti
aö syngja og tók að skipuleggja fjár-
safnanir fyrir hungraða Afríkubúa.
Það var einmitt fyrir tilstilli
Geldofs sem Bono og félagar hans í
U2 komust í kynni við hrikalegt
ástandið í mörgum Afríkuríkjum.
Þeir léku á tvennum tónleikum,
Band Aid og Live Aid, sem Geldof
skipulagði 1984 til að safna fé fyrir
fórnarlömb hungursneyðarinnar
sem þá ríkti í Eþíópíu.
Bono og eiginkona hans, Alison
Stewart, ákváðu í framhaldi af því
að kynna sér ástandið af eigin raun.
REUTERSMYND
Rokkarinn bregöur á leik
írski rokkarinn Bono bregöur á leik viö HlV-smitaö barn á sjúkrahúsi í Soweto í Suöur-Afríku.
Þau lögðu land undir fót og fóru til
Wello i Eþíópíu og störfuðu þar í sex
vikur á munaðarleysingjahæli.
Líkin fyrir utan tjaldið
„Þegar maður vaknaði á morgn-
ana var þokunni að létta. Maður
gekk út úr tjaldinu og taldi lík barn-
anna sem höfðu verið yfirgefin," rifj-
ar Bono upp í samtali við frétta-
mann bandaríska tímaritsins Time.
„Eða það sem verra er, einhver fað-
Erlent fréttaljós
irinn kom til manns og reyndi að
gefa manni barnið sitt og sagði:
Taktu það af því að ef þetta er barn-
ið þitt mun það ekki deyja."
Atburöir þessir liðu Bono ekki úr
minni. Hann lét þó ekki almennilega
að sér kveöa aftur fyrr en á árinu
1999 þegar hann gekk til liðs við
Jubilee 2000 hreyfinguna. Markmið
hennar var að fá Bandaríkin og önn-
ur stöndug riki, svo og Alþjóðabank-
ann og Aiþjóðagjaideyrissjóðinn til
að afskrifa opinberar skuldir 52 fá-
tækustu rikja veraldar. Flest þeirra
eru í Afríku. Seint á síðasta ári
skipti hreyfingin um nafn og kallast
núna Drop the Debt, eða Fellum nið-
ur skuldirnar.
Sjálfur hefur Bono stofnað eigin
hreyfingu, DATA, til að berjast fyrir
aukinni aðstoð, hvort sem er efna-
hagslegri eða á sviði heilbrigðis-
mála, eins og í baráttunni við al-
næmisfaraldurinn sem hefur gengið
mjög nærri mörgum Afríkuþjóðum.
Enga tilfinningasemi, takk
„Ég veit hversu fáránlegt það er
að rokkstjarna skuli tala um Al-
þjóðaheilbrigðismálastofnunina eða
niðurfellingu skulda eða alnæmi í
Afriku," segir Bono.
Rokkarinn leggur áherslu á að
gera herferð sína fyrir aukinni að-
stoð við Afrikuríki ekki alit of tii-
finningaþrungna.
„Við færum rök fyrir því að hún
komi efnahagsmálum og öryggi
Bandaríkjanna við. Tíu lönd í Afr-
iku hafa alla burði til að fara sömu
leið og Afganistan og það er hundr-
að sinnum ódýrara að koma í veg
fyrir að eldar kvikni en að slökkva
þá,“ segir Bono.
Það besta og það versta
Á ferðalagi sínu um Afríku urðu
félagamir Bono og O’Neill vitni að
mörgu því besta sem álfan hefur
fram að færa og einnig mörgu af því
versta. Þeir vita, rétt eins og milljón-
ir Afríkubúa, að efnahagskreppan
fer versnandi.
Samkvæmt upplýsingum frá Sam-
einuðu þjóðunum hefur nærri helm-
ingur 600 milljóna ibúa Afríkuríkja
sunnan Sahara minna en eitt
hundrað krónur á dag til að draga
fram lifið. Lifslikur fara minnkandi
og á síðasta áratug hafa framfarir í
heilbrigðis- og menntamálum verið
afar takmarkaðar. í Gana, einu land-
anna fjögurra sem Bono og O’Neill
heimsóttu, eru meðalárstekjur rétt
undir 400 dollurum, eða hinar sömu
og þær voru fyrir 40 árum.
Rúmlega þriðjungur ailra barna
sunnan Sahara er vannærður, fjög-
ur af hverjum tíu ganga ekki í skóla
og nemendum hefur fækkað. Þá er
víða mikill vatnsskortur og vatn er
enn fremur svo dýrt að fátæklingar
hafa ekki ráð á því.
Maður með stórt veski
„Þetta er maðurinn sem ræður yf-
ir seðlaveski Ameríku," sagði Bono
um ferðafélaga sinn þegar þeir
heimsóttu Suður-Afríku. „Og það er
rétt að ég vil opna veskið það.“
Kannski ekki skrýtið. Bandaríkin
eru ríkasta land veraldar en þau
leggja samt hlutfallslega miklu
minna af mörkum tii aðstoðar við
fátæk lönd en önnuð þróuð ríki, eins
og lönd Evrópusambandsins. Það
stendur þó eitthvað til bóta.
Bono varaði við því í Suður-Afr-
íku að reiði í garð Bandaríkjanna
kynni að vaxa ef þau gripu ekki til
aðgerða gegn fátæktinni.
„Fólk veifar til okkar og hoppar
þegar við ökum eftir götunum af því
að það er glatt yfir að sjá Banda-
ríkjamenn. Ef þetta land fær ekki
aðstoð mun fólkið kasta grjóti í rút-
una þegar við komum aftur eftir
fimm ár,“ sagði rokkarinn Bono.
Byggt á efni frá Time, The
Guardiari, BBC, The Washington
Post, Reuters o.fl.
REUTERSMYND
Ráðherra og rokkari
Paul H. O’Neill fjármáiaráöherra BNA, og rokkarinn Bono saman í Afríku.
Erlendar fréttir
iUtyi3Jj
Þrýst á um friö
Maður gekk undir
manns hönd i vik-
unni við að reyna að
koma vitinu fyrir
ráðamenn í Pakist-
an og á Indlandi svo
afstýra mætti stríði
milli landanna. Jack
Straw, utanríkisráðherra Bretlands,
heimsótti bæði Pakistan og Indland
og Bush Bandarikjaforseti ákvað að
senda landvarnaráðherra sinn, Don-
ald Rumsfeld, til landanna í næstu
viku. Þá hafa Rússar lagst á deiiend-
ur um að slíðra sverðin. Friðarvið-
leitnin virðist hins vegar lítinn ár-
angur hafa borið til þessa og undan-
farna daga hafa verið stöðugar
skærur við landamæri hins um-
deilda Kasmírhéraðs.
Ys og þys á átakasvæði
Mikill gestagangur hefur verið
fyrir botni Miðjarðarhafs síðustu
daga þar sem hver evrópski stjórn-
málamaðurinn á fætur öðrum hefur
reynt að fá ísraela og Palestínu-
menn til að láta af hemaðaraðgerð-
um og semja um frið. Halldór Ás-
grímsson utanríkisráðherra og
þýskur starfsbróðir hans, Joschka
Fischer, hafa rætt við ísraelska og
palestínska ráðamenn og Javier Sol-
ana, utanríkismálastjóri Evrópu-
sambandsins, er þegar kominn til
þessa heimshluta til viðræðna við
ráðamenn helstu landanna. Þrátt
fyrir allt þetta réðust ísraelskir her-
menn inn í borgina Nablus á Vest-
urbakkanum á föstudagsmorgun, að
sögn í leit að Palestínumönnum sem
bera ábyrgð á sjálfsmorðsárásum á
ísraelska borgara.
Deilt um lögmanninn
Anfmni Kallsberg, lögmanni Fær-
eyja, hafði ekki fyrr tekist að
mynda meirihluta-
stjóm með núver-
andi stjómarflokk-
unum þremur og
Miðflokknum á
fimmtudag en upp
risu deilur um hver
skyldi gegn embætti
lögmanns í nýrri
stjóm. Kallsberg vill að vonum sitja
áfram í lögmannsstólnum en Hogni
Hoydal, helsti sjálfstæðissinni Fær-
eyja, gerir einnig tilkall til stöðunn-
ar. Ef hefðin fær að ráða verður
Hogni lögmaður þar sem hann er
leiðtogi stærsta stjórnarflokksins.
Stjómarmyndun Kalisbergs tók
einn mánuð en í kosningunum í
aprillok fengu fylkingar stjórnar og
stjórnarandstöðu jafnmarga þing-
menn, eða sextán hvor.
Óánægja með niðurskurð
Mikil óánægja er meðal margra
þjóða Evrópusambandsins með tillög-
ur framkvæmdastjómarinnar um nið-
urskurð á fiskiskipaflota aðildarþjóð-
anna. Tillögumar kveða á um að
sóknarþungi Evrópuflotans dragist
saman um 30 til 60 prósent. Það hefði
í för með sér að nærri þijátíu þúsund
manns í sjávarútvegi misstu atvinn-
una. Spánverjar fara fremstir í flokki
andófsþjóðanna og hafa þeir hótað að
koma í veg fyrir aö tillögurnar nái
fram að ganga ef ekki verði fallist á
tillögur þeirra um breytingar.
Óvinir féllust í faðma
NATO og Rússar
féllust endanlega í
faðma i vikubyrjun
þegar undirritað var
á Ítalíu samkomulag
um samstarfsráð
þessara tveggja fyrr-
um erkifjenda. Tutt-
ugu þjóðaleiðtogar, þar á meðal Davíð
Oddsson forsætisráðherra, komu sam-
an í herstöð skammt frá Róm í tilefni
þessa tímamótaviðburðar. í hinu nýja
ráði standa Rússar jafnfætis NATO-
rikjunum þegar rætt er um hryðju-
verkavá og afvopnunarmál.
Andófskona í blaðaútgáfu
Lýðræðisbaráttukonan Aung San
Suu Kyi í Búrma sagði í blaðaviðtali í
vikunni að hún ætlaði að stofna dag-
blað stjómarandstæðinga i landinu.
Herforingjastjórn Búrma hefur i
strangt eftirlit með öllum fjölmiðium í
landinu.