Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2002, Síða 14
14
LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2002
Helgarblað
DV
Sepp Blatter, nýkjörinn forseti FIFA. Hann er 65 ára Svisslendingur, fráskilinn fyrrverandi íþróttafréttamaður og atvinnuknattspyrnumaöur meö meiru.
framtiöinni vinna með Blatter og
FIFA í því að sameina hreyfing-
una.“
Aðalritarinn fýkur
Blatter var mikið í mun að sam-
eina þingfulltrúa eftir kosninguna.
„Við skulum takast í hendur,
öllsömul. Gerum það,“ sagði Blatter
og tók að því loknu í hönd áður-
nefnds Zen-Ruffmens, aðalritara
FIFA, en kolsvört skýrsla hans um
störf Blatters í þágu FIFA síðustu
fjögur árin er nú á borði saksókn-
ara i Zúrich.
Öruggt er talið að allt fari aftur í
bál og brand innan FIFA þegar HM
lýkur. Blatter hefur gefið sterklega
til kynna að Zen-Ruffinen verði á
brott úr höfuðstöðvum FIFA með
sitt hafurtask strax og HM lýkur.
„Ég hef heyrt haft eftir Zen-
Ruffinen að hann sé í vandræðum.
Hann hefur rétt fyrir sér. Hann er
svo sannarlega í verulegum vand-
ræðum. En eins og staðan er i dag
er hann enn aðalritari FIFA,“ sagði
Blatter eftir þingið um aðalritara
sinn og bætti við: „Ég mun í fram-
tíðinni hugsa mig betur um þegar
ég vel mér nánustu samstarfssmenn
mína. Mig langar ekki til að endur-
taka þennan leik. Ef ráðist er á
heimili þitt að utan áttu kost á því
að loka dyrum og setja lögreglu-
menn fyrir utan húsið. Ef árásin
kemur innan frá veit ég ekki hvem-
ig á að verjast henni,“ sagði Blatter.
Ljóst er að hann mun nota fyrsta
tækifæri til að víkja Zen-Ruffinen
úr starfi.
Sigur Sepp Blatters í forsetakjöri FIFA:
Sigur sannleikans á sögusögnum?
„Issa Hayatou hefur aldrei verlö óvinur minn. Hann var andstæöingur minn.
Hann hegöaði sér alltaf eins og sannur keppnismaöur. Þaö er ekki hann
sem hefur spillt andrúmsloftinu," sagöi Blatter um Hayatou. Þeir féllust í
faöma eftlr aö úrslitin voru Ijós í forsetakjöri FIFA.
Gríðarleg átök urðu á þingi Al-
þjóða knattspyrnusambandsins
(FIFA) sem fram fór á dögunum í
Seoul i Suður- Kóreu. Endurkjör
forseta FIFA skyggði á öll önnur
mál þingsins og minnast menn ekki
meiri átaka og gauragangs á þing-
um sambandsins í þau 98 ár sem
þau hafa starfað.
Sepp Blatter hefur verið sakaður
um mikla spiUingu, mútur og að
stefna FIFA í gjaldþrot. Öllum þess-
um ásökunum hefur hann ávallt
vísað á bug. Fyrir nokkrum mánuð-
um var ljóst að Issa Hayatou frá
Kamerún myndi bjóða sig fram á
þinginu gegn Blatter. Báðir voru
þeir sigurvissir fyrir þingið. Blatter
sagði yfir 100 þjóðir innan FIFA
hafa beðið sig um að gefa kost á sér
til endurkjörs. Skömmu fyrir kosn-
inguna sagði Hayatou að hann hefði
tryggt sér 95% atkvæðanna sem
hann þyrfti til að vinna sigur. Úr-
slitin urðu 139-56, Sepp Blatter í vil.
Hann stýrir því FIFA næstu 4 árin
á sínu öðru kjörtímabili.
Blatter sló ekki á óánægjuraddir
nokkru fyrir kosninguna þegar
hann á sérstöku eins dags auka-
þingi um fjármál FIFA meinaði and-
stæðingum sínum að taka til máls.
Þeir urðu viti sínu fjær af reiði og
fúkyrðin dundu á Blatter. Sjálfur lét
hann þessa gagnrýni sem vind um
eyrun þjóta, hélt sínu striki og varð-
ist með kjafti og klóm.
Sprengja aðalritarans
Fyrir nokkrum vikum varpaði
aðalritari FIFA, Michel Zen-
Ruffinen, einn nánasti samstarfs-
maður Blatters innan FIFA, mikilli
sprengju. Hann kom skýrslu um
meinta spillingu og glæpsamleg at-
hæfi Blatters á framfæri til fjöl-
miðla. í kjölfarið ákváðu 11 af 24
meðlimum framkvæmdanefndar
FIFA að kæra Blatter. Ástæðan var
ekki síst sú að fulltrúamir töldu sig
meðseka ef þeir færu ekki dómstóla-
leiðina gegn Blatter. Verði hann
fundinn sekur á hann yfir höfði sér
þungan dóm. Blatter brást við með
því að segjast saklaus þar til sekt
hans yrði sönnuð. „Ég er saklaus af
öllum þessum ákærum. Við munum
sjá hvað gerist," sagði Blatter og
bætti þvi við að honum væri mjög
brugðið vegna málaferlanna.
FIFA hefur beðið hnekki
Öll umræðan um meinta spiU-
ingu Blatters hefur skaðað FIFA.
Svo mjög að margir fulltrúa á þing-
inu í Seoul töldu að það tæki mörg
ár að endurbæta ímynd sambands-
ins. Sumir höfðu á orði að það tæk-
ist ekki að fullu fyrr en Blatter væri
á bak og burt.
Frambjóðendurnir tveir, auk
fjölda annarra þingfulltrúa, lögðu
áherslu á það í sínu máli að endur-
vekja traust umheimsins á FIFA.
Það væri knattspymunni í heimin-
um slíkt grundvallaratriði að íþrótt-
in biði þess seint bætur ef ekki yrði
tekið hraustlega til hendinni. Víst
er að þingið í Seoul og framvinda
mála þar verður ekki til þess að
endurvekja traust almennings á
FIFA. Á meðan spillingarmál forset-
ans eru fyrir dómstólum í Sviss og
raddir mjög háværar um ótrúlega
fjármálaóreiðu hans er ekki von til
þess að trúverðugleiki FIFA fari
vaxandi.
Stórsigurinn kom á óvart
Miklir yfirburðir Blatters í kosn-
ingunni komu andstæðingum hans
í opna skjöldu. Þeir töldu sig hafa
vissu fyrir því að kosningin yrði
jöfn og að Hayatou myndi jafnvel
bera sigur úr bítum. Blatter var
kokhraustur eftir að sigurinn var í
höfn og sagði að fólk sem bæri hag
knattspymunnar fyrir brjósti
skrökvaði ekki. „Þið getiö ekki
ímyndað ykkur hve undanfamir
mánuðir hafa verið erfiðir fyrir
mig. Á mér hafa dunið ásakanir og
vissir fiölmiðlar gert allt sem í
þeirra valdi stendur til að upplýsa
almenning um það hve slæmur
maður ég er. Ég þakka ykkur öllum
stuðninginn, það getur ekki verið
að ég sé jafn slæmur og mér hefur
verið lýst. Sannleikurinn sigraði
hér í Seoul,“ sagði Blatter í ræðu á
þinginu eftir kosninguna og bætti
við: „Við skulum gleyma því sem
gerst hefur. Við skulum endurvekja
samheldni okkar og trúverðug-
leika.“
Engu líkara var en að Hayatou,
sem gagnrýnt hafði Blatter mjög
harkalega á þinginu, hefði gleymt
öllum sinum orðum er hann tjáði
sig í kjölfar ósigursins: „Eins og
hingað til getur Blatter treyst á
áreiðanleika minn í starfi sínu sem
forseti. í mínum huga þýða þau 56
atkvæði sem ég fékk ekki að ég hafi
tapað kosningunni. Ég er mjög
ánægður með útkomuna og mun í
Zen-Ruffinen sagðist ekki myndu
segja af sér: „Ég stend enn við það
sem ég sagði og hef gert. Ég hef sýnt
hugrekki og fiöldi manns í sfióm
FIFA er á mínu bandi. Ég mun ekki
segja af mér en líklega verð ég að
víkja,“ sagði Zen-Ruffinen.
Forseti UEFA vonsvikinn
í upphaflþings FIFA flutti Chung
Mong-joon, formaður knattspyrnu-
sambands Suður Kóreu og einn
varaforseta FIFA, ræðu og vandaði
Blatter ekki kveðjumar. Gagnrýndi
hann raunar mjög harkalega og í
kjölfarið þakkaði Blatter honum
fyrir ræðuna og gestrisnina. Þegar
Blatter hafði verið kosinn forseti
sagði þessi sami Chung Mong-joon:
„Ég vona að ég og Blatter getum
unnið saman og reyndar veröum
við að vinna saman að málefnum
FIFA. Þessi úrslit vom ekki slys og
við verðum að horfa fram á veg-
inn.“
Svíinn Lennart Johansson, for-
seti Knattspymusambands Evrópu,
UEFA, sem gagnrýnt hafði Blatter
harkalega fyrir þingið og margoft
lýst yfir stuðningi við Hayatou, var
dapur í bragði eftir kosningu Blatt-
ers: „Ég er mjög vonsvikinn og
hissa á þessum úrslitum. Ég hélt að
þetta yrði mun jafnari leikur,"
sagði Johansson og lét í ljós að enn
einu sinni væri hann fús til að leita
sátta.
Litlu löndin gerðu útslagið
í kjölfar stórsigurs Blatters er
eðlilegt að spurt sé: Hvers vegna í
ósköpunum var maöurinn endur-
kjörinn miðað við allt það sem á
undan var gengið?
Svarið við þessari spumingu er i
raun einfalt. Þeir sem fara með fiár-
málin innan FIFA sögðu á þinginu
að FIFA ætti tugi milljarða á banka-
reikningum. Þeir sem gagnrýndu
þetta voru á örlítið annarri skoðun
og sögðu FIFA ramba á barmi gjald-
þrots. „Milljarðamennirnir" höfðu
betur i áróðursstríðinu á þinginu.
Fúlltrúar fiölmargra þjóða innan
FIFA, sem eiga alla sína framtíð
undir styrkjum frá sambandinu,
bitu á agn núverandi valdhafa FIFA
og greiddu Blatter atkvæði sitt í
kosningunni.
Þeir sem harðast gagnrýna Blatt-
er fullyrða að hann hafi keypt at-
kvæði þessara litlu þjóða. -SK
Husgögn eftir þínum þörfum
I hornsófar
! stakir sófar
Istólar
hvíldarstólar
Isvefnsófar
! veggeiningar
S borðstofuhúsgögn og fl.
JJJJgJ
Höfðatúni 12 105 Reykjavík Slmi 552 5757