Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2002, Side 40

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2002, Side 40
 Helgarblaö DV LAUGARDAGUR l. JÚNÍ 2002 Uppreisn snillingsins Guðmundur Pétursson er af mörgum talinn einn af bestu qítarleikurum heims. Hann er qoðsöqn ílifanda lífi oq hann talar i/ið DV um undrabarnið sem vildi ekki vera undra- barn, uppreisnina qeqn ímqnd qítarhetjunn- ar, sanna túlkun oq eftirlíkinqar ítónlist, qildi þjáninqarinnar fyrir túlkun ítónlist oq sinn skammt af þjáninqum. ÞAÐ ER SAGT AÐ GUÐMUNDUR Pétursson gítar- leikari sé með fámálustu mönnum. Þaö er ekki sér- lega gott veganesti í viðtal en við látum samt á það reyna og hittum snillinginn snemma morguns á kaffi- húsi. Guðmundur var skilgreindur sem undrabarn þegar hann kom fyrst fram á sjónarsviðið en hann sást í kosningasjónvarpi í RÚV, þá aðeinsl4 ára gamall. Hann tók gítarinn þannig til kostanna í umræddum þætti að menn töluðu um að Jimi Hendrix hefði end- urfæðst i Reykjavík. Guðmundur ólst upp í Kleppsholtinu undir handar- jaðri foreldra sem höfðu gaman af tónlist og hlustuðu talsvert á alls konar tónlist. Hann segist hafa farið að spila á gítar 11 ára gamall í bilskúrshljómsveit sem átti eftir að föndra svolítið við blús og hét Bláa bíl- skúrsbandið. Sveitin keppti í Músíktilraunum 1987 og varð mönnum þá ljóst að Guðmundur hafði ýmsa takta á valdi sínu sem almennt voru ekki á færi pilta um fermingu. í kjölfarið var Guðmundur fenginn til að troða upp í umræddu kosningasjónvarpi. Undrabamið Guðmundur „Þetta varð i rauninni dálítið afdrifarík útsending. Ég held að Bubbi Morthens hafi bent Hemma Gunn á að fá mig í þáttinn en Bubbi kom fram á lokakvöldi Músíktilrauna þetta ár með sveit sinni, MX 21, og ég var látinn spila nokkra takta með félögum í þeirri sveit. Hemmi vissi greinilega ekkert hvað hann var að kynna og ég vissi ekkert til hvers var ætlast af mér. En Hemmi álpaðist til þess aö nota orðið undrabarn þegar hann kynnti mig og það loddi býsna lengi við,“ segir Guðmundur þegar hann rifjar þessa tíma upp. Guðmundur viðurkennir að Hendrix-nafnbótin hafi ekki verið svo fráleit á þessum tíma því hann hafði fáum misserum áður kynnst tónlist Jimi Hendrix sem þá var erfitt að nálgast á plötum. „Ég heillaðist strax af þessu gamla, dularfulla, kraftmikla og skítuga hljóði sem var í andstöðu við þann hljóðheim sem mín kynslóð átti að venjast," seg- ir Guðmundur en á þessum árum var vélrænt poppið allsráðandi og á íslandi var að vaxa úr grasi kynslóð sem hafði aldrei heyrt almennilega spilað á rafgítar. „Ég var sjálfur upp úr 1982 að hlusta á Human League og langaði mest af öllu til að eignast synthe- sizer,“ viðurkennir Guðmundur og segist reyndar upphaflega ætlað að verða málari þegar hann var barnungur og hafði ekki enn ánetjast tónlistinni. En hvað breytti þeim áformum hans? „Þegar ég var að verða unglingur hafði pönkið rutt sér til rúms á íslandi og ég sá kvikmyndir eins og Rokk í Reykjavík, sem hafði gífurleg áhrif á mig, og tónleikamynd með Bowie í Austurbæjarbíói." Fannst ég gerður að sirkusapa Eftir flugeldasýningu Guðmundar í sjónvarpinu var hann almennt talinn undrabarn og snillingur en hann segir að sér hafi alltaf verið það nokkur ráðgáta hvers vegna hann fékk þá nafnbót. „Ég var alls ekki undrabarn í hefðbundnum skiln- ingi þess orðs þó að áreiðanlega sé það rétt að ég hafi búið yfir hæfni sem var óvenjuleg miðað við tíðar- andann. Um þetta leyti fór ég í viðtal í Helgarpóstin- um og þar var orðið undrabarn notað í fyrirsögn og það hnykkti enn frekar á þessu. Svo var fólk alltaf að segja þetta við mig en ég skildi ekki almennilega hvað það átti við. Ég gekk fyrst og fremst á sannfær- ingu og innblæstri en fannst ég vera gerður að sirkusapa." Guðmundur segist hafa alist upp við prog- og fol- krokkið, auk glamrokksins og Bowie. Á unglingsár- unum bættust við blúsinn, soulið og framúrstefnu- djassinn. Þegar blústónlist naut skammvinnra vinsælda á ís- landi í kringum 1990 stóð Guðmundur þar í framlín- unni með sveitum eins og Vinum Dóra, Tregasveit- Guðmundur og kona hans rækta Ahbyssiníuketti í tómstundum sínum. Guðmundur segir að kötturinn sé áhugaverð skepna sem, eins og maðurinn, fari sínar eigin leiðir. DV-myndir: Hari inni og Blúsmönnum Andreu. Þetta var timabil sem varði frá 1989 fram til 1993 og hverfðist mikið í kring- um tónlistarbar sem hét Púlsinn og var til húsa á Vitastíg. Á þessum árum mátti ganga að því nánast visu að þar á sviðinu stæðu ýmsir spámenn og blús- arar eins og Guðmundur, Halldór Bragason, Andrea Gylfadóttir, Pétur Tyrfingsson, Haraldur Þorsteins- son og fleiri snrllingar. Spilaði með goðsögnum Um tíma hlustuðu allir á blústónlistina og Púlsinn og Tveir vinir á Frakkastíg voru vinsælir staðir þar sem fastagestir hlustuðu dáleiddir á tregatónlistina. Þessi bylgja leiddi til þess að hingað til lands var boð- ið frægum blústónlistarmönnum frá háborg blúsins, Chicago. Þetta voru stórsnillingar eins og Jimmy Dawkins, Pinetop Perkins og Billy Boy Arnold sem allir voru nánast goðsagnir á sínu sviði þegar þeir komu til íslands. „Það gerðist margt á þessum árum og það var upp- lifun fyrir 18 ára ungling spila með þessum mönnum. Sennilega hafa þeir hrifist af því hvað við vorum sjálfumglaðir og vorum ekkert að reyna að stæla neinn heldur spiluðum bara eftir okkar sannfæringu þótt við værum ekki svartir eða gamlir." í gegnum þessi tengsl fóru Guðmundur og félagar hans til Bandaríkjanna og víðar og léku með erlend- um blúsurum á tónleikum og hátíðum og ferðuðust með þeim. En tímarnir breytast hratt. „Ég held að í síðasta skiptið sem ég lék á Púlsinum hafi gestimir aðallega verið einhverjir vafasamir kallar sem ég kannaðist ekki við. í hléinu kom fram sænsk fatafella og það kom í ljós að hún hafði verið auglýst en ekki hljómsveitin. Skömmu síðar var staðnum breytt í nektarstað og gefið nafnið Bóhem en Tveir vinir urðu síðar að Vegas. Þetta er reyndar kómísk hliðstæða við tíma Charlie Parkers á 52 Street, en þar breyttist heilt hverfi djassklúbba í nektarbúllur. í Reykjavik leiddi þessi þróun, ásamt gríðarlegri fjölgun veitingastaða og vinsældum dans- tónlistar og „rave“, til þess að lifandi tónlist varð ein- hvern veginn út undan um skeið.“ Hermikrákur og áhugamenn Ekki er að efa að á þessum tíma hefði Guðmundur getað horfið úr landi og haslað sér völl í blúsheimin- um en það gerði hann ekki. „Blúsheimurinn kom mér fyrir sjónir sem hópur fráfallandi goðsagnapersóna, smekklausra hermi- kráka eða lélegra áhugamanna. Tónlistin var oftast útvötnuð uppriijun á gullaldarskeiðinu. Ég hafði víð- tækari áhugamál og hugur minn leitaði ekki á þessar fjalir." Guðmundur hefur leikið inn á ótölulegan fjölda hljómplatna með ýmsum listamönnum og tekið þátt i leikhús- og kvikmyndatónlist, bæði sem flytjandi og tónskáld. Hann hefur leikið verk á klassískan gítar með Kammersveit Reykjavikur og komið fram með Sinfóníuhljómsveit íslands með rafgítarinn á öxlinni. „Ég lærði á klassískan gítar um árabil en hafði það aldrei að markmiði að verða klassískur flytjandi. Ég hef verið heppinn og fengið tækifæri til að fást við ís- lensk samtímaverk." Síðustu tíu ár hefur einhvern veginn komist það skipulag á að ákveðnir listamenn láta sér ekki til hugar koma að gera plötu án þess að njóta fulltingis og fingralipurðar Guðmundar. Hann er oftast nálæg- ur þegar Bubbi Morthens vOl gefa út. Hann sat bak við Bubba með kassagítar á frægum Bellman-konsert sem var gefinn út á diski og þegar Bubbi rokkar þá stendur Guðmundur þar með rafgítarinn. Blúsmenn Andreu eru ein fárra hljómsveita á íslandi sem fást við að spila blús og þar er Guðmundur einn burða- rásanna ásamt drottningunni. Hann hefur ferðast með KK um landið og spilað fyrir fólkið i hans anda. Stílltari en áður Guðmundur er nú stilltari listamaður en i árdaga. Hann hoppar ekki eða stekkur og engist á sviðinu þótt hann sé að leika tjáningarrika tónlist. Hann stendur með sinn axlasíða, úfna hármakka grafkyrr og hinn eini sanni rokkgitar, Fender Stratocaster,

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.