Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2002, Blaðsíða 55
h
LAUGARDAGUR i. JÚNf 2002
Helgarblctcf DV
55
Ferrarí til sölu,
kostar stóra tölu
f
yfir en samt ekki þannig að hann þurfi að teygja nið-
ur tæmar til að ná niður á ljósum. Hjólið hefur ann-
an kost, sem kemur sér vel í akstri á möl og grófari
malarvegum, en það er mjög þægilegt að standa það,
þar sem stýrið er nægilega breitt og hátt.
Gott á mölinni
Eins og áður sagði er hjólið e.k. kokkteill og ætti
því að vera kjörið fyrir hvaða aðstæður sem er. Svar-
ið er bæði já og nei. Hjólið virkar nokkuð öflugt og
léttkeyrandi alveg þangað til að það er keyrt í hópi af
sporthjólum. Auðvelt er að sveifla hjólinu til í beygj-
umar en stærðin gerir það samt örlítið klunnalegra
en þau hjól sem sérhönnuð em fyrir malbiksakstur.
Á mölinni ræður það vel við holur og kókópuffs og er
algjör draumur í dollu þegar búið er að mýkja aftur-
fjöðrunina, sem er stillanleg eins og framfjöðrunin.
Þessi möguleiki á ýmiss konar stillingum er mikill
kostur í sjálfu sér þegar kemur að þvi að keyra við
mismunandi aðstæður og með mismikla hleðslu. Vél-
in er stærri en áður, en hún var 850 rúmsentímetrar,
og gefur gott viðbragð frá lágum snúningi. 1 brekkum
finnst togið vel og það gerir hjólið mjög skemmtilegt
í akstri. Bensíngjöfm er frekar næm, sem hentar
tveggja strokka mótor ekki vel, og mætti hún gjam-
an vera aðeins stífari. Þetta er reyndar mjög algengt
með hjól sem em með beinar innspýtingar. Yamaha
TDM 900 er boðið á alveg þokkalegu verði, 1.216.000
kr., og hægt er að kaupa við það fjölda aukahluta.
-NG
DV-myndir Hari
o Bremsur eru alvörudiskabremsur og stööva hjóliö
mjög vel.
© Vindkúpan setur sterkan og ákveöinn svip á hjól-
iö en ökumaöur fær þó á sig nokkurn vind.
@ Tveggja strokka vélin er vatnskæld og þýðgeng og
hefur gott tog.
Áhangendur Ferrari geta brátt
keypt hlut í Ferrari-bílaframleið-
andanum en móðurfýrirtæki
þess, Fiat, hefur neyðst til að setja
Ferrari á hlutabréfamarkað í
fyrsta skipti til að slá á meira en
500 milljarða króna skuldir sínar. Hlutir í Ferrari fara á markað seint á þessu ári
en margir segja að með þessu sé Fiat að selja óskabarn sitt sem bendi til þess að
fyrirtækið sé í miklum vanda. Fiat hefur tilkynnt um tap upp á 25 milljarða króna
á fýrsta ársfjórðungi 2002 en sala á nýjum bilum hefur minnkað um hvorki meira
né minna en 15%. Jafnvel góð staða Fiat á heimamarkaði hefur versnað og er
slæmri sölu Fiat Stiio kennt þar um sem þykir of evrópskur fýrir ítalina. Uppi eru
getgátur um að GM muni auka við 20% hlut sinn í Fiat en þeir hafa rétt á hinum
80% árið 2004 og gætu séð sér hag í að kaupa upp fýrirtækið meðan það er i lægð
á lágu veröi. Þetta er í fýrsta skipti sem almenningi býðst aö kaupa hlut í Ferrari
en talsmenn Fiat segja að þeir muni áfram eiga ráðandi hlut í þessum þekkta fram-
leiðanda. -NG
DV-mynd E.ÓI.
Sigurjón tekur hér viö viöurkenningu úr höndum Hinriks Morthens, umboös-
manns AutoGlym á íslandi, sem gaf veglegan bónpakka í verölaun.
i _
Land Rover langflottastur
Á nýafstaðinni afmælissýningu Fombílaklúbbs íslands var margt faílegra
og eftirtektarverðra bíla en einna mesta athygli vakti þó einn bíll, Land Rover
af árgerð 1964. Greinilega mátti sjá, jafnvel fyrir óþjálfað auga, að hér var bíll
sem búið var að verja miklum tíma í og vinnu og allt gert af stökustu vand-
virkni. Eigandi búsins heitir Sigurjón Karlsson og er búinn að hafa þennan
bíl í höndunum frá 1990, þegar hann fékk bílinn til uppgerðar frá fyrsta eig-
anda hans, Hallgrími Thorlacius frá Öxnafelli í Eyjafjarðarsveit. Það er dálit-
ið skemmtilegt frá því að segja að Sigurjón var einmitt í sveit þar þegar bíll-
inn kom nýr, en þá var Hallgrimur að fá hann sem sinn fyrsta bíl og taka bíl-
prófið, kominn vel á sextugsaldur. Sigurjón hefur eytt mikilli vinnu í bílinn,
að eigin sögn um einu mannári, en hann hefur ekki þurft að kaupa mikið í
gripinn. Að vísu þurfti hann að kaupa í hann nýjar hurðir en annað gerði
hann upp sjálfur frá grunni. Fyrir alla fyrirhöfnina uppskar hann líka ávöxt
erfiðis síns því bíllinn var valinn fallegasti bíllinn á sýningu FombUaklúbbs-
ins og fékk Sigurjón afhent vel útUátið bónsett frá AutoGlym af því tUefni. Sig-
urjón ætlar að nota bUinn og bæta aðeins við hann og er um þessar mundir
að leita sér að toppgrind á gripinn sem borið getur varahjólið. -NG
LAND ROVER 88
Árqerð: 1964
Hestöfl: 77
Fjöðrun framan: Heill öxull á blaðfjöðrum
Fjöðrun aftan: Heill öxull á blaðfiöðrum
Bremsur: Skálar
Gírkassi: 4ra qíra beinskiptur
Þynqd: 1339 kq
Eiqandi: Sigurjón Karlsson