Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2002, Page 57

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2002, Page 57
LAUCAROAG U R I. JÚNÍ 2002 He Iqo rb lctö X>"V 57 ina. Farangursrými í bílnum er mjög gott og með því að taka úr aftursæti fullyrðir framleiðandinn að koma megi fyrir tveimur fjallahjólum aftur L Afturhleri opn- ast vel og auk þess er rafstýrð opnun á afturglugga sem er kostur við léttari hleðslu. Sérlega hljóðlátur 1 akstri er CRV alveg sérlega hljóðlátur 1 alla staði. Nýja tveggja lítra VTEC-vélin er þýðgeng og aflmikil enda skilar hún 150 hestöflum og góðu togi. Sjáifskipt- ingin virkar vel og bíllinn hefur gott upptak þrátt fyrir hana. Best er að nota yfirgír á langkeyrslunni og þarf þá nánast aldrei að skipta niður úr honum. Fjöðrun er nokkuð stíf og hefur CRV því góða aksturseiginleika miðað við bíl með þessu byggingarlagi en er aldrei óþægilegur, eins og í akstri á möl. Fjórhjóladrifið hefur verið endurbætt þannig að afturdrifið kemur nú fyrr inn og hefur hann því betri eiginleika í torfærum en áður þrátt fyrir að fjöðrun hafi minni hreyfigetu. Bill- inn fékk fimm stjömur i árekstrarprófi vestra enda kominn með fjóra öryggispúða sem staðalbúnað en eftir á að prófa hann hjá NCAP í Evrópu. Honda CRV verð- ur svo fáanlegur með beinskiptingu í haust, en hann kostar 2.949.000 kr. með sjálfskiptingunni og því óhætt aö segja að hann komi sterkur inn á þennan ört vaxandi markað hér á landi. -NG DV-myndir Hari o Hægt er að opna afturglugga með því að ýta á takka í mælaborði. © Rými í aftursætum er sériega gott og þar er líka armpúði í miðjusæti. © Gott rými er aftur í og með einu handtaki í viðbót má taka sætin úr aö hluta eða öllu leyti. Öryggisinn köllun á Defender Stefnum á druslustigiö í fyrra voru keyptir til landsins 9019 bílar alls. Nýir og notaðir. Að meðaltali 751,6 bílar á mánuði. Fyrstu fjóra mánuði ársins í ár hefúr verið fluttur inn 2151 bill með sömu skilgreiningu. Það em 537,75 bílar á mánuði. Meðalaldur allra bíla á Islandi var um síðustu áramót 10,9 ár, fólksbfla Um 8,8 ár. Frá 1971 má telja 12 ár þar sem samanlagður bílainn- flutningur hefúr farið yfir 10 þúsund bíla. Aöeins eitt ár þar sem hann komst yfir 20 þúsund bíla. Það var árið 1987. Þá rötuðu hingað 23.459 bílar, 1955 bílar á mánuði. j Næstbest varð árið 1999 með 18.979 bíla, 1581,6 á mánuði. 18 ár af þessum 30 síðustu hefur bílainnflutningurinn verið innan við 10 þúsund bílar á ári. Lakasta árið var j 1976, með aðeins 4477 bila, 373 bila á mánuði. Heildarbilaeign okkar í árslok 2001, miðað við bíla á skrá, var 181.557 bílar, þar af 159.857 fólksbílar. Það þýð- j ir að hér eru 1,79 einstaklingar um hvern bíl miðað við alla bila, 1,57 einstaklingar um hvem bíl miðað við fólks- : bíla, jeppa þar meðtalda. Miðað við að 10% sé eðlileg endumýjun fólksbíla ætti ársinnflutningurinn að vera 15.986 bílar. Miðað við 7% endumýjun, sem hinir hógvæmstu telja fullnægjandi, ætti innflutningurinn að vera 11.190 bílar á ári. Miðað Ár: Fiöldi bíla o mánuði 1975 373 1987 1955 1999 1582 2001 751 2002 538 Miðað við 7% endumýjun 932 við söluna það sem af er árinu í ár stefnir í að hún verði 6.453 bílar, eða 57,7% af því sem eðlilegt getur talist að lágmarki. Samkvæmt þessu er útlit fyrir að íslendingar stefni aftur á druslustigið í bílaeign sinni. -SHH Byggt á heimildum frá Skráningarstofu Land Rover hefur þurft að inn- kalla 15.000 Defender-jeppa sem framleiddir vom frá september 1998 til apríl 2001. Um er að ræða galla í samsetningu á bremsuslöngu við framfjöörun sem hefur þau áhrif að hún skemmir út frá sér í fjöðrunina. Þessi innköll- un nær til Defender-jeppa sem seld- ir hafa verið héma og að sögn Atla Vilhjálmssonar þjónustustjóra hafa B&L þegar látiö laga þetta í óbreyttum bilum. „Við erum búnir að laga þetta í þeim bílum sem ekki eru upphækkaðir en í þeim bílum sem eru upphækkaðir hér á landi er þessari staðsetningu breytt svo að ekki þarf að hafa áhyggjur af þessu þar,“ sagði Atli. Varðandi innköllun vegna hemlalæsivamar í Discovery II vildi Atli einnig taka það fram að varahlutimir í þá væru komnir og mættu því eigend- ur þeirra búast við að fá bréf um innköllun þeirra bráðlega. Sú við- gerð mun taka stuttan thna, eig- endunum að kostnaðarlausu. Notaðir bílar hjá Suzuki bílum hf. Suzuki Grand Vitara 2,5, V6, bsk. Skr. 3/01, ek. 22 þús. Verð kr. 2390 þús. Suzuki Jimny JLX 4x4, bsk. Skr. 7/99, ek. 76 bús. Verð kr. 990 þus.. d., 1998, ek. 59 þus. kr. 1090 þús. Suzuki Vitara JLX. 3 d., bsk.Skr. 7/98, ek. 75 þús. Verð kr. 970 þús. Suzuki Swift GLS, 3 d., bsk.Skr. 4/99, ek. 25 þús. Verð kr. 750 þús. Renault Mégane RT, 5 d., bsk.Skr. 3/99, ek. 47 þús. Verð kr. 1190 þús. Nissan Micra GX, 5 d., bsk.Skr. 8/01, ek. 8 þús. Verð kr. 1250 þús. Opel Astra GL, 5 d., ssk.Skr. 7/97, ek. 52 þús. Verð kr. 650 þús. Sjáðu fleiri á suzukibilar.is $ SUZUKI ✓///- ^SUZUKI BÍLMt^ Wagon, ssk. k. 26 þús. 230 þús. Suzuki Baleno GL, 4 d., bsk. Skr. 2/99. Ek. 39 þús. Verð kr. 870 þús. -NG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.