Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2002, Blaðsíða 20
20
íslendingaþættir
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
90 ára _________________________
Sesselja Ólafsdóttir,
Kirkjuvegi 6, Hvammstanga.
85 ára__________________________
Eyrún Jóhannesdóttir,
Fannborg 8, Kópavogi.
Herdís Guðmundsdóttir,
Sólvangi, Hafnarfirði.
80 ára__________________________
Ottó Níelsson,
Kleppsvegi Hrafnistu, Reykjavík.
75 ára__________________________
Fadma Arrida,
Grettisgötu 64,_Reykjavík.
Ólafur Kjartan Ólafsson,
Unufelli 4, Reykjavík.
Svanfríður Ingunn Arnkelsdóttir,
Digranesheiði 5, Kópavogi.
70 ára__________________________
Bjarnl Guðjónsson,
Laugarásvegi 65, Reykjavík.
Gunnar Egili Sigurðsson,
Keilusíðu lc, Akureyri.
60 ára__________________________
Ásgerður Geirarðsdóttir,
Hrólfsskálavör 3, Seltjarnarnesi.
Elva Ólafsdóttir,
Háaleitisbraut 30, Reykjavík.
Hermann Jóhannesson,
Logafold 19, Reykjavlk.
Hrafnhildur Harðardóttir,
Dvergholti 20, Mosfellsbæ.
50 ára__________________________
Aðalbjörn Þór Magnússon,
Reyrhaga 1, Selfossi.
Anna Stefánsdóttir,
Tjarnarstíg 7, Seltjarnarnesi.
Guðmundur Valur Hauksson,
Skeljagranda 8, Reykjavík.
Lísbet Guðbjörg Sveinsdóttir,
Bakkaflöt 5, Garðabæ.
Svanhildur Davíðsdóttir,
Brávallagötu 8, Reykjavík.
Þorbjörg Halldórsdóttir,
Hvassahrauni 9, Grindavík.
40 ára__________________________
Bima Rut Þorbjörnsdóttir,
Glæsivöllum 13, Grindavik. .
Gunnþór Georg Þórðarson,
Álfaskeiöi 86, Hafnarfirði.
Hólmfríður Geirsdóttir,
Lyngbraut 1, Selfossi.
Óskar Gunnlaugsson,
Rofabæ 29, Reykjavík.
Óskar Sigvaldason,
Kríuási 19, Hafnarfirði.
Páll Sigtryggur Björnsson,
Múlavegi 31, Seyðisfirði.
Rita Didriksen,
Laugatúni 9, Sauöárkróki.
Sigrún Sigvaldadóttir,
Týsvöllum 4, Keflavík.
Steinunn Finnbogadóttir,
Mýrum 2, Patreksfiröi.
Tryggvi Daníel Jónsson,
Hraunsvegi 15, Njarðvík.
Ekta fiskur ebf.
J S . 4661016 J
Úlvatnuður saltfiskur,
án beina, til að sjóða.
Sérútvatnaður saltfískur,
án beina, til aðsteikja.
Andlát______________
Vaka Slgurjónsdóttlr
hjúkrunarfræöingur, Álfheimum 70, lést
föstud. 4.10.
Þóra Eiríksdóttlr, Sléttuvegi 11,
Reykjavík, lést á Landspítalanum við
Hringbraut laugard. 5.10.
Sigríður Ingibjörnsdóttir, fyrrv.
aðstoðarskólastjóri Njarðvíkurskóla,
andaðist á Heilsustofnun Suöurnesja
föstud. 4.10. sl.
Sveinbjörn Bjarnason, fýrrv.
aöalvaröstjóri lögreglunnar í Reykjavík,
lést á Hrafnistu í Reykjavík mánud.
7.10.
Eiríkur J.B. Eiríksson, fyrrv. prentari,
Blöndubakka 1, Reykjavík, lést á heimili
sínu þriðjud. 8.10.
FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2002
DV
Fótk í fréttum
Stefán Karl Stefánsson
leikari og stofnandi Regnbogabarna
Stefán Karl Stefánsson leikari
Stefán Karl hefur unniö frábært starf á síöustu þremur árum í viðleitni sinni
aö draga úr og bæta fyrir einelti gegn börnum og unglingum.
Stefán Karl Stefánsson leikari
hefur stofnað samtökin Regnboga-
börn sem berjast gegn einelti og
styðja böm sem orðið hafa fómar-
lömb eineltis. Samtökin eru nú að fá
myndarlegan fjárstuðning frá Vífil-
felli hf. og Búnaðarbankanum.
Starfsferill
Stefán Karl fæddist í Hafnarfirði
10.7. 1975 og ólst þar upp í foreldra-
húsum. Hann var í Öldutúnsskóla,
Flensborgarskóla um skeið, lærði
flugvirkjun og tölvunarfræði við
Iðnskólann í Hafnarfirði og Iðnskól-
ann í Reykjavík, hóf nám við Leik-
listarskóla íslands 1995 og útskrifað-
ist þaðan 1999.
Stefán Karl starfaði hjá Síldarút-
vegsnefnd í Kópavogi í nokkur ár á
unglingsárunum frá þrettán ára
aldri, starfaði hjá S.H.-verktökum í
Hafnarfirði og við Blönduvirkjun í
einn vetur, við lagnadeild Húsa-
smiðjunnar í Reykjavík og við upp-
skipun hjá Eimskip í Hafnarfirði.
Stefán Karl hefur verið fastráð-
inn leikari við Þjóðleikhúsið frá
1999. Auk þess lék hann í Litlu
Hryllingsbúðinni í Borgarleikhús-
inu 1999; í Þjónn í súpunni hjá Leik-
félagi íslands í Iðnó 1998-99, og í
Þúsundeyjasósu í Iðnó 1999-2000,
auk þess sem hann hefur leikið
tjölda hlutverka við Þjóðleikhúsið,
s.s. í Glanna glæp; Með fulla vasa af
grjóti, og í Singing in the rain.
Hann leikur nú Henry í Lífið 3x í
Þjóðleikhúsinu.
Stefán Karl lék í kvikmyndunum
Regína, frumsýnd 2001, og í Stella í
framboði sem frumsýnd verður á
næstunni. Þá hefur hann leikið og
komið fram í fjölda sjónvarpsþátta
og tekið þátt í fjórum ára-
mótaskaupum. Hann hefur sungið
inn á níu geisladiska með ýmsum
tónlistarmönnum og skemmtikröft-
um, s.s. með Landi og sonum á disk-
inum Með allt á hreinu; Með Pöpun-
um á Riggarobb, minningardiski
um Jónas Árnason, og sungið með
Selmu Björnsdóttur og Jóhönnu
Vigdísi á diskinum Með sykri og
rjóma. Loks hefur hann komið fram
sem skemmtikraftur í samkvæmum
og stundað veislustjórnun víðs veg-
ar um land.
Stefán Karl varð sjálfur fyrir ein-
elti á barnsaldri og hefur vakið at-
hygli á og haldið fræðsluerindi um
einelti frá 1999. Hann hefur haldið á
fjórða hundrað fyrirlestra um ein-
elti og rætt um málefnið við rúm-
lega tuttugu þúsund manns.
Fjölskylda
Systkini Stefáns Karls eru Ólafur
Stefánsson, f. 3.3. 1968, hótelstjóri á
Hótel Vík í Síðumúla, búsettur í
Reykjavík en kona hans er Lilja
Björg Eysteinsdóttir og er sonur
þeirra Burkni Ólafsson; Björgvin
Sigmar Stefánsson, f. 22.7. 1970,
húsasmiður sem starfrækir bygg-
ingafyrirtækið Þúsund fjalir, búsett-
ur í Hafnarfirði en kona hans er
Steinunn Jóhanna Sigfúsdóttir hús-
móðir og eru börn þeirra Jökull
Steinan Jökulsson, Stefán Ægir
Björgvinsson og Sigríður Karen
Björgvinsdóttir.
Foreldrar Stefán Karls eru Stefán
Björgvinsson, f. 7.12.1945, verkstjóri
hjá SÍF - Saltkaupum, og Hulda
Karen Ólafsdóttir, f. 14.12.1949, hús-
vörður.
Ætt
Stefán er sonur Björgvins Sig-
mars, vélstjóra Stefánssonar, sjó-
manns á Akureyri Péturssonar,
bónda Bjömssonar. Móðir Stefáns
sjómanns var Björg Stefánsdóttir.
Móðir Björgvins Sigmars er Guðrún
Hafliðadóttir, b. í Bjamagili Eiríks-
sonar. Móðir Guðrúnar var Sigur-
björg Guðmundsdóttir.
Móðir Stefáns verkstjóra er Krist-
ín Böðvarsdóttir, b. á Melum við
Akureyri Björnssonar. Móðir Krist-
ínar var Guðný Jóninna Kristjáns-
dóttir.
Hulda Karen er systir Magnúsar
Ólafssonar leikara. Hulda er dóttir
Ólafs, prentara og framkvæmda-
stjóra Karlssonar, verksmiðjustjóra
á Akureyri Friðrikssonar. Móðir
Ólafs var Guðrún Sigurðardóttir.
Móðir Huldu Karenar er Rósa
Fjóla Hólm Guðjónsdóttir, vélstjóra
á Siglufirði Kristjánssonar. Móðir
Rósu Fjólu var Magnúsina Jóhanns-
dóttir.
Fímmtugur
Björn Sveinsson
tamningamaöur að Varmalæk II í Skagafirði
Bjöm Sveinsson tamningamaður,
Varmalæk n, Varmahlíð, er fimm-
tugur í dag.
Starfsferill
Björn fæddist að Stóru-Ökrum í
Blönduhlíð en fluttist ungur að
Varmalæk og ólst þar upp. Um tví-
tugt tók hann við búskapnum og
stundar þar nú aðallega hrossarækt.
Hann starfar sem tamningamað-
ur en hefur þó enn fremur réttindi
sem reiðkennari. Bjöm stundaöi
ferðaþjónustu á Varmalæk yfir
sumartímann á árunum 1974-2001
sem einkum fólust í hestaleigu og
hestaferðum yfir hálendið. Þá
stundar hann hestasýningar og
heldur uppi annarri kynningu á ís-
lenska hestinum í samvinnu við
Hestasport.
Bjöm hefur sungið í mörg ár með
karlakómum Heimi í Skagafirði, oft
sungið í dúettum og lítillega í kvart-
ettum.
Fjölskylda
Bjöm var í sambúð með Sólveigu
Sigríði Einarsdóttur, f. 4.5.1966, tón-
listarmanni. Hún er dóttir Einars
Höskuldssonar, f. 28.11. 1939, og
Bryndísar Júlíusdóttur, f. 28.4. 1945.
Bjöm og Sólveig eiga þrjá syni,
þeir em; Einar Bjami, f. 24.6. 1989;
Höskuldur Sveinn, f. 14.5. 1990, og
Gunnar Sigfús, f. 8.12.1991.
Sambýliskona Bjöms er Magnea
Kristjana Guðmundsdóttir, f. 6.2.
1959, húsfreyja á Varmalæk. Hún er
dóttir Guðmundar Hagalínssonar og
Guðrún Bjamadóttir húsmóður.
Þau eru búsett á Flateyri en voru
áður bændur að Hrauni á Ingjalds-
sandi.
Systkini Bjöms eru: Lovísa, f.
23.12. 1950, húsfreyja á Varmalæk,
og á hún fjögur böm; Jóhann Pétur,
f. 18.9. 1959, d. 5.9. 1994, lögfræðing-
ur í Reykjavík og formaður Sjálfs-
bjargar, landssambands fatlaðra.
kvæntur Jóninnu Hörpu Ingólfs-
dóttur skrifstofumanni; Gísli, f.
27.12. 1960, smiður, með ferðaþjón-
ustu i Hestheimum, kvæntur Ástu
Ólafsdóttur húsmóður og eiga þau
tvær dætur; Sigríður, f. 27.12. 1960,
nuddfræðingur, gift Smára Borgars-
syni, bónda í Goðdölum og eiga þau
fjögur böm; Ólafur Stefán, f. 7.3.
1966, starfsmaður í Pennanum.
Foreldrar Bjöms: Sveinn Jó-
hannsson, f. 6.6. 1929, d. 17.9. 1987,
bóndi á Varmalæk, og k.h., Herdís
Bjömsdóttir, f. 23.12. 1925, hús-
freyja.
Ætt
Sveinn var sonur Jóhanns Péturs,
b. á Mælifellsá Magnússonar, b. í
Gilhaga Jónssonar, b. á írafelli Ás-
mundssonar. Móðir Magnúsar var
Ingigerður Magnúsdóttir. Móðir Jó-
hanns var Helga Indriðadóttir, b. á
írafelli Árnasonar og Sigurlaugar
ísleifsdóttur.
Móðir Sveins var Lovisa Sveins-
dóttir, b. og hagyrðings á Mælifellsá
Gunnarssonar, b. á Syðra-Vallholti,
Gunnarssonar, b. á Hrafnagili
Gunnarssonar, hreppstjóra á Skiða-
stöðum, bróður Þorvalds, langafa
Magnúsar Jónssonar ráðherra og
Jóns Pálmasonar alþingisforseta,
töður Pálma, fyrrv. alþm. á Akri.
Gunnar var sonur Gunnars, ættföð-
ur Skiðastaðaættarinnar Guð-
mundssonar. Móðir Sveins var Ing-
unn Ólafsdóttir frá Dlugastöðum.
Móðir Lovísu var Margrét, systir
Sæmundar, langafa Jóhönnu, móð-
ur Sighvats Björgvinssonar, fyrrv.
ráðherra. Margrét var dóttir Áma,
ljósföður í Stokkhólma.
Herdls er dóttir Björns, b. á
Stóru-Ökrum Sigurðssonar, b. í
Vallholti, bróður Sveins. Móðir
Bjöms var Herdís Ólafsdóttir, b. í
Selhaga Bjömssonar, b. í Valabjörg-
um, bróður Andrésar, langafa Eyj-
ólfs Konráðs alþm., Magnúsar Jóns-
sonar, dósents og ráðherra, og Þóris
Bergssonar rithöfundar. Bjöm var
sonur Ólafs, ættfoður Valadalsætt-
arinnar Andréssonar og Bjargar,
systur Guðmundar, rika í Stóradal.
Móðir Herdísar var Sigríður
Gunnarsdóttir, b. i Syðra-Vallholti,
bróður Sigurðar. Móðir Sigríðar var
Ingibjörg Ólafsdóttir, b. í Kálfárdal
Rafnssonar trá Tyrfingsstöðum.
Bjöm tekur á móti gestum í Ár-
garði, föstud. 11.10. kl. 20.30.
i Merkír íslendíngar
Guðmundur Gíslason Hagalín rithöfund-
ur fæddist að Lokinhömrum í Arnar-
firði 10. október 1898. Hann var sonur
Gísla Guðmundar Kristjánssonar, bónda
og skipstjóra að Lokinhömrum, og k.h.,
Guðnýjar Guðmundsdóttur Hagalín.
Dóttir Guðmundar var Sigríður Haga-
lín leikkona, móðir Hrafnhildar Haga-
lín leikritaskálds.
Guðmundur var í ungmennaskólan-
um að Núpi í Dýrafirði, stundaði nám
hjá séra Böðvari Bjamasyni á Hrafns-
eyri, lauk gagnfræðaprófi við MR 1917
en hætti í menntaskóla ári síðar. Hann
stundaði sjómennsku á árabátum, skútum
og vélbátum, stundaði blaðamennsku, m.a.
við Alþýðublaðið og var lengi kennari við
Guðmundur Gíslason Hagalín
Gagnfræðaskólann á ísafirði og við Kvöld-
skóla iðnaöarmanna. Þá var hann bóka-
vörður Bæjarbókasafnsins á ísafirði
1929-1945 og svo nefndur bókafúlltrúi
ríkisins 1955-1969.
Guðmundur var jafnaðarmaður og
lýðræðissinni og í hópi helstu ísafjarð-
arkratanna á sinni tíð, sat í bæjar-
stjóm ísafjarðar 1934-1945 og var þá
lengst af forseti bæjarstjómar.
Guðmundur var afkastamikill og
vinsæll rithöfundur. Hann samdi fjölda
skáldsagna sem oft byggja á þjóðlegum
grunni og tókst með afbrigðum vel að
lýsa því mannlífi, manngerðum og málfari
sem þá var að hverfa á Vestfjörðum.
Þekktasta saga hans er Kristrún í Hamravík.
Jarðarfarir
Hrönn Albertsdóttir, Seiöakvísl 13,
Reykjavík, verður jarðsungin frá Árbæjar-
kirkju fimmtud. 10.10. kl. 13.30.
Heigi Kristbjarnarson læknir, Miklubraut
48, veröur jarðsunginn frá Dómkirkjunni
fimmtud. 10.10. kl. 13.30.
Gunnar H. Steingrímsson, Leiðhömrum
48, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Bú-
staðakirkju fimmtud. 10.10. kl. 15.
Útför Krlstjáns Albertssonar, Jófríðar-
staöavegi 10, Hafnarfirði, fer fram frá
Hafnarfjaröarkirkju föstud. 11.10. kl.
15.
Útför Jóhanns Benediktssonar, Eyrar-
landi, Eyjafjarðarsveit, fer fram frá
Kaupangskirkju föstud. 11.10. kl.
13.30.
Ásdís Þóra Kolbeinsdóttir, Dalsbyggö 4,
Garðabæ, veröur jarðsungin frá Garða-
kirkju á Álftanesi 11.10. kl. 13.30.