Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2002, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2002, Blaðsíða 21
21 FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2002 DV Tilvera Harold ÍPinter 72 ára Eitt merkasta leikskáld samtímans, Harold Pinter, á afmæli í dag. Hann fædd- ist í verkamannahverfi I austurhluta Lundúna og fékk leiklistaráhuga strax í skóla, þar sem hann lék m.a. Macbeth og Rómeó. Eftir leiklist- arnám I Konunglega Leiklistarskólan- um starfaði hann í nokkur ár sem leik- ari. 1957 skrifaði hann fyrsta leikrit sitt, Herbergið, eftir pöntun leiklistar- nema. Eftir hann liggur Qöldi leik- verka, en meðal þeirra þekktustu eru Húsvörðurinn, Heimkoman, Afmælis- veislan og Tunglskin. Eiginkona hans er rithöfundurinn Antonia Fraser. Glldir fyrir föstudaginn 11. nóvember Vatnsberinn (20. ian.-is. febr.): I Eitthvað liggur í loft- inu sem þú áttar þig ekki fyllilega á. Best _ er að bíða og sjá til. Kvöldið verður fremur rólegt. Fiskamlr (19. febr-20. mars); Þú verður fyrir óvæntu I happi í fjármálum á næstunni. Hafðu augun opin fyrir nýjum tæki- færum en þar er ekki átt við tæki- færi varðandi peninga. Hrúturlnn (21. mars-19. aoríl): . Þú virðist vera í til- ’ finningalegu ójafnvægi og sjálfstraust þitt er með minnsta móti. Þetta ástand varir þó ekki lengi. Happatölur þínar eru 4, 8 og 26. Nautið (20, apríl-20. mai): Hætta er á mistökum og ónákvæmni í vinnu- brögðum ef þú gætir __ ekki sérstaklega að þér. Kunningjahópurinn fer stækkandi. Tvíburarnir (21. maí-21. iúní): Það er mikið um að vera í félagslífinu hjá 1 þér um þessar mundir og þér finnst reyndar nóg um. Einhver öfúndar þig. Krabbinn (22. iúní-22, iúií): Láttu sem ekkert sé þó I að þú verðir var við baktjaldarmakk. Lik- ____ legt er að það eigi allt aðrar órsakir en þú heldur. UÓnlð (23. iúlí- 22. áaústl: Miklar breytingar verða á lífi þínu á næstunni og búferla- flutningar eru líklegir. Þú færð óvenjulegar fréttir í kvöld. Börnin eru allan daginn - í tilbúnu umhverfi - segir Kristbjörg Hjaltadóttir, framkvæmdastjóri Heimilis og skóla Framkvæmdastjórinn „Þaö er Ijóst að glansheimurinn sem unglingarnir sjá í Friends og á PopTV er ofarlega í huga þeirra, “ segir Kristbjörg Hjaltadóttir. „Auðvitað eigum við foreldrar að geta mótað umhverfi bama okkar, hvar við viljum hafa þau og hvernig," segir Kristbjörg Hjaltadóttir, fram- kvæmdastjóri Heimilis og skóla. Hún viðurkennir þó að tími og vald for- eldra til að uppfræða börn sína hafl minnkað í seinni tíð því fræðslan komi svo víða að. „Böm sem sitja inni í sínu herbergi með tölvu tengda net- inu geta verið að skoða hluti sem við mundum ekki kæra okkur um. Auð- vitað þyrftum við að tala meira við þau og leiðrétta ýmislegt sem hefur farið inn í kollinn á þeim en þau hafa ekki þroska til að skilja," segirhún. í tilbúnu umhverfi Mikii aðsókn á málþing um lífsstil bama, sem Náttúrlækningafélagið hélt nýlega sýnir að fólk hefur áhuga og jafnvel áhyggjur af þeim aðstæðum sem íslenskum bömum eru búnar í okkar samfelagi, enda hafa þær breyst hratt á undanfómum árum. Krist- björg segir að um 90% foreldra á ís- landi óski eftir heilsdagsvistun fyrir böm sín en sækja má um leikskóla- vist fyrir börn frá 12 mánaða aldri og að samfélagið þrýsti á foreldra að koma bömum sínum inn á stofhun fremur en annast þau sjálf. „En hvað fær bam að reyna sem er 8-9 tíma á dag á leikskóla frá eins árs aldri?“ spyr hún. „Það er í tilbúnu umhverfi allan daginn, alla daga.“ Hún segir áberandi að börn leiki sér minna úti við en áður hafi tíðkast. Nú sjáist böm varla lengur á bygging- arsvæðum eða niðri á bryggju. Kost- imir séu þeir að líkamlegum slysum hafi fækkað á bömum en sálarleg slys hafi jafnvel komið í staðinn sem minni gaumur sé gefínn. „Við full- orðna fólkið erum sofandi gagnvart tölvuleikjunum. Það er til dæmis í gangi leikur í dag sem er kallaður morðleikurinn (GTA). Hver og einn fær hundrað líf þegar hann byrjar, þannig að það er allt í lagi að drepast alloft. Þessu em krakkar niður í sex ára að leika sér að og þama era skila- boðin þau að það sé í lagi að meiða, beija og drepa, menn geti staðið upp aftur.“ Frí á launum Heimili og skóli hefur útbúið svo- kallaðan Foreldrasamning sem hjálp- ar foreldrum eins bekkjar eða árgangs í skóla að starfa saman og hafa betri stjóm á hópnum en annars væri. For- eldrar sameinast þar um að virða úti- vistartíma, hafa ekki foreldralaus partý, leyfa bömum ekki að gista nema vita hvemig aðstæður eru og kaupa ekki áfengi fyrir böm. Þetta samstarf hefur víða tekið gildi og skil- ar góðum árangri. Kristbjörg telur líka mikinn akk í því fyrir foreldra að starfa í foreldrafélagi skóla, þar séu þeir að gera bömunum sínum greiða á marga vegu. „Ég vildi líka gjaman sjá fyrirtæki gefa fólki frí á launum meðan það sinnti slíku starfi einn klukkutíma í mánuði og sýna með því viðhorf sitt gagnvart fjölskyldum og bömurn," segir hún. Öll jól á Kanarí - Þú minntist á gemsaæðið á mál- þinginu. Þar varstu með sláandi skila- boð. „Já, það var kannski táknrænt. Bömin geta fengið mjög sláandi SMS- skilaboð inn á gemsana og það er ekki óalgengt að krakkar séu lagðir í ein- elti meö ógeðslegum skilaboðum jafiit og þétt yfir daginn. Þeir sýna öðram þetta ekki svo glatt því þeir eru hræddir við einstaklingana eða hóp- inn sem sendir. Foreldrar halda kannski að þeir séu að auka öryggi barna með því að hengja á þau gemsa en það getur skapað bömunum nýjan vanda. Áður kynntumst við foreldrum vinanna er við hringdum til að spyrja um bamið en nú hringir hver og einn í sitt bam. Svo er það lífsstíllinn sem unga fólkið sér fyrir sér i framtíðinni. Kristbjörg lagði þá spumingu fyrir hóp 16 ára unglinga. „Það er ljóst að glansheimurinn sem þau sjá í Friends og á PopTV er ofarlega íhuga þeirra. Þau ætla mörg að verða rik, falleg, fræg og hafa sem minnst fyrir lifinu, sofa sem mest, halda öll jól á Kanarí og „fá sér flotta stelpu sem hefur góð laun“. Svo kemur inn á milli líka, lifa reyklausu lífi, ekki nota eiturlyf og ýmislegt sem við teljum eftirsóknar- verðari markmið. Kristbjörg, telurðu íslenska for- eldra vera að bregðast sínu hlutverki? „Nei, en þrátt fyrir góðar skóla- stofnanir mega þeir ekki gleyma þeirri ábyrgð sem þeir bera á fræðslu og umönnun barnsins sins. Stundum þyrftu þeir að setjast niður og hugsa. Hvað er mér mest virði? Ef við ættum mánuð ólifað hvort mundum við velja, vinnuna eða bömin?" -Gun. Bíógagnrýni Laugarásbíó - Orange County: icir“i Stjörnubörn Sif Gunnarsdóttir skrifar gagnrýni um kvikmyndir. Mevian (23. áeúst-22. sept.l: Þú ert að skipuleggja frí og ferðalag ásamt fjölskyldu þinni. Það þarf að mörgu að hyggja áður en lagt er af stað. Kvöldið verður rómantískt. Vogin (23. sept.-23. oktö: Líklegt er að samband njilli ástvina styrkist verulega á næstimni. Þú færð óvænt tæki- hendumar sem þú ætt- ir að nýta þér. Sporðdreklnn (24. okt.-2i. nóv.): ■ Gamalt mál, sem þú varst nærri búin að gleyma, kemur upp á yfirborðið á ný og krefst mikils tíma og veldur þér áhyggjum. Bogmaðurinn (22. nóv.-2l. des.): Farðu varlega í öUum viðskiptum þar sem einhver gæti verið að reyna að hlunnfara þig. Leitaðu ráðleggina ef þú þarft. Stelngeitin (22. des.-19. ian.): Nú er mikilvægt að halda vel á spöðunum þvi að nóg verður við að fást á næstunni. Vinir standa vel saman um þessar mundir. ý fæn upp í Akkúrat þegar maður heldur að mönnum sé það lífsins ómögulegt í heimalandi kvikmyndanna að gera unglingamynd sem gengur út eitt- hvað annað en ber brjóst, kynlíf, lík- amsvessa, kynlíf, fyllirí og kynlíf þá kemur allt í einu kvikmynd sem af- sannar þá trú. Orange County fjall- ar að visu um jafn margnota efni og aðrar unglingamyndir - nefnilega nauðsyn þess að fara að heiman til að verða að manni og að vísu eru at- riði með fólki á nærfötum, pissi í glasi og rosagellu sem sefur hjá ljót- um strákum af því hún er full. En hún er líka um umburðarlyndi, fjöl- skyldubönd og það að vaxa og þroskast (og reyndar eru atriðin með pissinu og fólkinu á nærbuxun- um alveg prýðilega fyndin). Colin Hanks (já - sonur Tom ofur- stjömu) leikur Shaun Brumder, al- veg týpiskan kvikmynda-Kalifomíu- strák, í bænum Orange County, sem finnst skólinn skipta minna máli en brimbrettið sitt, partí og kærastan. Alveg þangað til dag einn þegar hann situr á ströndini og finnur bókina „Spennitreyjan" eftir Marcus Skinner hálfgrafna í sand- inn. Shaun les bókina 52 sinnum í röð og ákveður upp úr því að selja brimbrettið, taka góð próf og kom- ast í hinn fina Stanford-háskóla þar sem Skinner kennir og á endanum að verða jafhgóður rithöfundur og hetjan hans. Planið á að vera skot- Shaun Brumder Skiptir á brimbretti og bökmenntum. Colin Hanks í hlutverki Brumders. helt en í sönnum unglingamyndastíl gengur allt úrskeiðis og Shaun þarf aö stóla bæði á sjálfan sig, ruglaðan bróður, fulla móður, fráhverfan föð- ur og veralega elskulega kærustu til að ná takmarkinu. Orange County hefur næg atriði með dópi, misskilningi og manni í hjólastól sem er ítrekað laminn í hausinn tO að skemmta hláturþyrst- um unglingum en sleppur við heOa- dauðann með góðri aðalpersónu sem er aö slást við örlitla tOvistar- kreppu og alveg prýðOegum samtöl- um inn á mOli skemmtiatriðanna. Leikstjórinn Jake Kasdan (já, sonur hins fræga Lawrence) stýrir þessu léttOega og þótt myndin sem slík sé ekki eftirminnOeg skapar hann per- sónur sem einfalt er að samsama sig við. Hanks er skemmtOegur í hlut- verki Shaun og hefur þetta sama af- flllIIKllliISIItllllIlllllli slappaða fas og sjarma og pabbi hans. Kærustuna Ashley, sem einnig er ágætlega skrifuð persóna, leikur Schuyler Fisk (dóttir Sissy Spacek), glæsOeg stelpa sem á ör- ugglega eftir að koma meira við sögu kvikmyndanna, en senunni stelur Jack Black í hlutverki upp- dópaða bróðurins Lance - hvað eft- ir annað er hægt að veltast um af hlátri ef maður hefur á annað borð ^ smekk fyrir slapstick húmor. Catherine O’Hara og John Lithgow standa sig að sjálfsögðu með prýði í hlutverkum hinna ómögulegu (en hjartahlýju) foreldra. Þetta er að mörgu leyti fyrirtaks- mynd fyrir unglinga og foreldra að fara á saman, það er of lítO nekt og kynlif tO að það sé pínlegt fyrir kyn- slóðirnar saman, foreldrarnir í myndinni eru svo vonlausir að von er tO að unglingamir sættist við sína og boðskapurinn er meira að segja elskulegur - það þýðir ekkert að hlaupast frá fortíð sinni og ^ vandamálunum heldur veröur aö vinna úr þeim og læra að lifa með þeim - þannig verður maður að manni (og jafnvel rithöfundi). Leikstjóri: Jake Kasdan. Handrit: Michael White. Kvlkmyndataka: Greg Gardiner. Tónlist: Michael Andrews. Aóal- lelkarar: Colin Hanks, Schuyler Fisk, Catherine O’Hara, Jack Black og John Lithgow. illliltllf

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.