Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2002, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2002, Blaðsíða 7
MÁNUDAGUR 21. OKTÓBER 2002 23 DV Sport Breiðablik-Hamar 125-99 2-0, 14-5, 22-9, 27-12, 29-16, (20-25), 31-01, 37-31, 44-40, 40-45, 52-45, (63-55), 63-59, 71-59, 79-61, 82-70, (89-73), 93-80, 101-80, 108-88, 115-93, 121-95, 125-99. Stig Breióabliks: Pálmi Sigurgeirsson 35, Kenny Tate 29, Friörik Hreinsson 16, Þórarinn Andrésson 14, Eyjólfur Jónsson 9, Loftur Einarsson 6, Jón Arnar Ingvarsson 6, Valdimar Helgason 6, Ólafur Guðnason 4. Stig Hamars: Robert O'Kelley 32, Gunnlaugur Hafsteinn 25, Svavar Birgisson 19, Svavar Pálsson 15, Lárus Jónsson 5, Hallgrímur Brynjólfsson 2.. Dómarar (1-10): Einar Einarsson og Einar Skarp- héöinsson (8). Gœöi leiks (1-10): 3. Á horfendur: Tæplega 300. Maöur leiksins: Pálmi Sigurgeirsson, Ðreiöab. Fráköst: Breiöablik 56 (22 í sókn, 34 í vörn, Tate 19), Hamar 33 fráköst (16 í sókn, 17 í vörn, Svavar B. 7). Stoösendingar: Breiöablik 19 (Pálmi 10), Hamar 8 (O'Kelíey 4). Stolnir boltar: Breiöablik 9 (Pálmi 5), Hamar 4 (O'Kelley 2). Tapaöir boltar: Breiöablik 14, Hamar 9. Varin skot: Breiöablik 2 (Eyjólfur, Þór- arinn), Hamar 2 (Svavar B., Svavar P,). 3ja stiga: Breiöablik 10/6, Hamar 26/10. Víti: Breiöablik 31/19, Hamar 34/18. KR-Valur 90-66 0-3, 5-S, 9-11, 15-16, (19-18), 23-18, 28-20, 33-23, 38-28, (43-28), 47-28, 53-32, 57-38, 59-42, (59-54), 66-54, 72-57, 78-59, 82-62, 90-62, 90-66. Stig KR: Darrell Flake 35, Skarphéðinn Ingason 19, Magni Hafsteinsson 16, Magnús Helgason 7, Jóhannes Árnason 6, Tómas Hermannsson 5, Steinar Kaldal 2. Stig Vals: Laverne Smith 18, Bjarki Gúst- afsson 14, Ægir Jónsson 13, Ragnar Steins- son 11, Kjartan Orri Sigurðsson 4, HinrUt Gunnarsson 3, Óiafur Már Ægisson 3. Dómarar (1-10): Leifur Garðarsson og Georg Andersen (8). Gœöi leiks (1-10): 6. Áhorfendur: 100. Maöur leiksins: Darrell Flake, KR. Fráköst: KR 56 (20 í sókn, 36 í vöm, Fla- ke 27), Valur 31 fráköst (9 í sókn, 22 í vöm, Hinrik 7, Ægir 7). Stoösendingar: KR 26 (Magni 8), Valur 15 (Ólafur 4). Stolnir boltar: KR 9 (Magni 4), Valur 12 (Smith 3). Tapaóir boltar: KR 17, Valur 16. Varin skot: KR 6 (Magni 2, Steinar Páll 2), Valur 5 (Hjörtur 2, Hinrik 2). 3ja stiga: KR 21/7, Valur 26/9. Víti: KR 23/11, Valur 24/13. Skallagr.-Snæfell 63-65 0-2, 2-11, 7-13, (11-.20), 11-22, 25-27, 30-33, (37-40), 38-40, 41-47, 45-50, (50-50), 53-50, 58-52, 58-58, 63-60, 63-65. Stig Skallagrims: Pétur Már Sigurðsson 22, Isaac Hawkins 18, Sigmar Egilsson 12, Finnur Jónsson 6, Ari Gunnarsson 3, Hafþór Ingi Gunnarsson 2. Stig Snœfell: Clifton Bush 19, Lýöur Vignisson 15, Hlynur Bæringsson 11, Jón Ólafur Jónsson 10, Helgi Freyr Guömundsson 6, Sigurbjöm Þóröarson 4. Dómarar (1-10): Rögn- valdur Hreiöars- son og Jón Bender (7). Gœöi leiks (1-10): 6. Áhorfendur: 300. Maöur leiksins: Lýöur Vignisson, Snæfelli. Fráköst’ Skallagrímur 27 (7 í sókn, 20 i vöm, Hawkins 9), Snæfell 38 fráköst (15 í sókn, 23 í vöm, Hlynur 15). Stoösendingar: Skallagrímur 18 (Finnur 5), Snæfell 14 (Helgi Freyr 5). Stolnir boltar: Skallagrímur 9 (Finnur 4), Snæfell 10 (Lýöur 4). Tapaóir boltar: Skallagrímur 15, Snæ- fell 10. Varin skof Skallagrímur 3 (Hawkins 2), Snæfell 1 (Hlynur). 3ja stiga: Skallagrímur 24/8, Snæfell 24/4. Víti: Skallagrímur 14/11, Snæfell 11/9. Breiðablik hafði sigur- viljann en Hamar ekki Baráttujcixlinn Loftur Einars- son er kominn aftur í lið Blika eftir meiðsli og haföi hann góo áhrif á liðið gegn Hamri i gærkvöld. Hér sést hann skora tvö af sex stigum sín- um. Svavar Pálsson kemur engum vörnun við. DV-mynd Hari Blikar voru ekki í vandræðum með slaka Hvergerðinga í Smáran- um i gærkvöld og var ljóst hvort lið- ið langaði meira í sigurinn. Blikar mættu tObúnir til leiks á meðan leikmenn Hamars voru illa fyrirkall- aðir þó svo að það eigi ekki við aUa. Lokatölur urðu 125-99 og var mál manna að aldrei hefði Breiðablik skorað eins mikið í leik, ekki einu sinni þegar liðið lék í 1. deOd. Pálmi Sigurgeirsson fór fyrir lið- inu í fyrri hálfleik og gerði 26 stig fyrir hlé. Kenny Tate gekk iUa að finna körfuna í fyrri hálfleik en var þeim mun öflugri í þeim seinni. AO- ir aðrir leikmenn liðsins voru að standa fyrir sínu og var mótspyrnan lítU sem engin. Engin vörn spiluð Það var í byrjun seinni hálfleiks sem leiðir skOdi fyrir fuUt og aUt og virtust gestirnir ekki hafa neinn áhuga á að spUa vörn. Leikmenn liðsins virtust eingöngu vera að bíða eftir næstu sókn og var tekið skot við fyrsta tækifæri. Það kom á óvart hversu áhuga- lausir Hamrar voru eftir að hafa virkað sprækir tU þessa í haust. Svavar Birgisson, sem á að vera lyk- Umaður i Hamarsliðinu, var eitt- hvað pirraður og verður að gefa meira frá sér en hann gerði að þessu sinni. Hann toppaði geðUlskuna með því að láta henda sér úr úr húsinu fyrir að brúka kjaft við annan dóm- ara leiksins og fær bann fyrir vikið. Robert O'KeUey er greinilega mik- U skytta en það kom á óvart að hann fékk ekki eina hindrun frá félögum sínum í leiknum og þarf að skapa öU sín skot sjálfur. Þar af leiðandi verða þau misgóð. Svavar Pálsson gerði fína hluti inn á mUli og ef aUir leikmenn liðs- ins myndu berjast eins og Lárus Jónsson og HaUgrímur BrynjóUsson þá væri liðið ekki að fá á sig 125 stig. Pálmi með frábæran leik Eins og áður sagði átti Pálmi frá- bæran leik og skoraði 35 stig, gaf 10 stoðsendingar, stal 5 boltum og tók átta fráköst. Þórarinn Andrésson komst vel frá sínu og sama má segja um Eyjólf Jónsson. Blikar voru í miklum vandræðum með fráköstin i fyrsta leik gegn Haukum en virðast vera búnir að laga það. Tate var grimmur að rífa þau niður og tók 19 stykki. Jón Arnar Ingvarsson, þjálfari liðsins, spilaði á mörgum mönnum og skoruðu níu leUcmenn í fyrri hálf- leik. Engu að síður vantaði Þórólf Þorsteinsson en ekki er hægt að segja annað en Pálmi hafi leyst leik- stjórnandahlutverkið með prýði. -Ben Auðveldur KR-sigur Réðst í blálokin - Lýður Vignisson tryggði Snæfelli sigur í Borgamesi Það var frábær stemning á pöUun- um í íþróttahúsinu í Borgamesi í gær þegar nágrannamir úr Stykkishólmi komu í heimsókn. Leikurinn var jafn og spennandi eins og Uestar viður- eignir þessara liða í gegnum tíðina, en þetta var í 21. sinn sem liðin mæt- ast í úrvalsdeUdinni. Úrslitin réðust ekki fyrr en á siðustu sekúndum leiksins og voru það gestimir sem fóru með sigur af hólmi. Það voru leikmenn SnæfeUs sem byrjuðu betur í leiknum og náðu þægUegri forystu í upphafi leiks. Vömin hjá SkaUagrimi var engan veginn að ganga upp og gestimir hirtu t.a.m. 6 sóknarfráköst í fyrsta leikhlutanum. Þegar staðan var 11-22 í upphafi 2. leikhluta brá Valur Ingi- mundarson, þjálfari SkaUagrims, á það ráð að skipta yfir i svæðisvöm. Á sama tíma var Hlynur Bæringsson hvUdur hjá Snæfelli. Vörn Skalla- gríms small saman og Pétur Már datt í stuð í sókninni hjá Sköllunum og setti niður þrjár þriggja stiga körfur i röð. SkaUagrímur náði að minnka muninn í þrjú stig fyrir hálfleik. Skallar jöfnuðu Síðari hálUeikur einkenndist af gríðarlegri baráttu og liðu oft margar mínútur án þess aö skoruð væri karfa. SnæfeUingar voru ívið sterkari í upphafi síðari hálUeiks og náðu sex stiga forystu 41-47. Þá smaU vöm Borgnesinga aftur í gang og sókn SnæfeUinga hrökk í baklás í sama mund. Finnur Jónsson spUaði frá- bæra vörn og stjómaði sínum mönn- um eins og herforingi. Þegar 3. leik- hluta lauk var staðan jöfa, 50-50, og spennan í hámarki. SkaUagrimur byrjaði betur í 4. leikhluta og náðu mest 6 stiga forskoti þegar 6 mínútur lifðu leiks. Lukkudísirnar með gestunum Þá var röðin komin að gestunum og þeir félagar Clifton Bush og Hlynur Bæringsson virtust einráðir undir körfunum. Þeir skoruðu sex stig í röð og jöfnuðu 58-58 þegar skammt var eft- ir. Þeir tveir voru ógnarsterkir í frá- köstunum og hirtu alls 11 fráköst i 4. leikhluta. í stöðunni 63-60 heima- mönnum í hag virtust lukkudísirnar snúast í liði með Hólmurunum. Skallagrímsmenn nýttu skot sín illa og Clifton Bush minnkaði muninn í 1 stig þegar um mínúta var eftir. Borgnesingum tókst ekki að nýta næstu sókn sína og Snæfellingar héldu í sókn þegar 50 sekúndur eru eftir. Boltinn barst til Lýðs Vignisson- ar þegar 36 sekúndur voru eftir og hann smellti niður þriggja stiga körfu og kom Hólmurum yfir 63-65. Skalla- grími tókst ekki að nýta síðustu sókn sína og leikklukkan rann út og leik- menn Snæfells fógnuðu gríðarlega í leikslok. -RG Það var lið KR sem fór með sig- ur af hólmi í leik sínum við Val í gærkvöld í DHL-Höllinni i vestur- bænum i gærkvöld. Leikur lið- anna var fremur kaflaskiptur og virtust leikmenn KR hafa hann í hendi sér allan tímann. Þegar þeir beittu sér af fullum krafti áttu baráttuglaðir Valsmenn lítið í þá að segja. Leikurinn fór rólega af stað og var i jafnvægi fyrsta fjórðunginn. I öðrum fjórðung settu heima- menn í gír og náðu fimmtán stiga forystu. Vörnin var sterk og það var einungis Laverne Smith sem skoraði stig fyrir Val, alls tíu talsins. Valsmönnum tókst aðeins að laga stöðuna í upphafi síðari hálfleiks virtist stefna i að KR væri að stinga af en með mikilli baráttu og góðri vörn náðu Valsmenn að minnka muninn niður í fimm stig fyrir upphaf síðasta fjórðungs. Þá urðu þáttaskil því Valsmenn voru hreinlega stungnir af og leik- menn KR skoruðu hverja körfuna á fætur annarri. Munurinn varð á endanum 24 stig. Á þessum tima spiluðu heimamenn sterka vörn og skoruðu nokkrar auð- veldar körfur upp úr því. í liði KR var Darrell Flake grið- arlega atkvæðamikill, en hann skoraði 35 stig og tók 27 fráköst. Magni Hafsteinsson átti einnig mjög góðan leik í sókn sem vörn og Skarphéðinn Ingason var einnig áberandi. Hjá Val var enginn einn sem bar af. Hjá Val verður það liðs- heildin sem verður að vera sterk svo að þeim gangi vel í' vetur. Annars lítur þetta út fyrir að verða langur og erfiður vetur hjá Hlíðarendapiltum. Lið KR er sterkt og verður lík- lega mun sterkara þegar líða tek- ur á tímabilið því enn þá vantar í leikmannahóp liðsins sterka leik- menn eins og Arnar Kárason, Herbert Arnarson, Baldur Ólafs- son og Óðin Ásgeirsson, leik- menn sem eiga eftir að styrkja liðið gríðarlega. -MOS Íí ÚRVALSDEILDIN KR 2 2 0 0186-161 4 Grindavík 1 1 0 110-60 2 Breiðablik 2 1 1 202-190 2 Haukae 1 1 0 91-79 2 ÍR 1 1 0 86-81 2 Tindastóll 1 1 0 86-84 2 Njarðvik 1 1 0 83-81 2 Snæfell 2 1 1 149-149 2 Keflavík 1 0 1 81-83 0 Skallagrm. 2 0 2 144-151 0 Hamar 2 0 2 194-219 0 Valur 2 0 2 126-200 0 Næstur leikir: Grindavík-ÍR .......í kvöld kl. 19.15 Keflavík-Tindastóll . í kvöld kl. 19.15 Njarðvík-Haukar . . í kvöld kl. 19.15

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.