Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2002, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2002, Blaðsíða 10
26 MÁNUDAGUR 21. OKTÓBER 2002 Sport_____________________ Mikilvægur sig- ur Stjörnunnar - heldur í við ÍBV eftir 23-19 sigur á Val á Hlíðarenda Stjaman vann góðan sigur á Val í mikilvægum leik í gærkvöld að Hlíðarenda og heldur öðru sætinu á eftir ÍBV en Valur kemur ekki langt á eftir í 4. sæti. Vamir beggja liða voru í aðal- hlutverki í fyrri hálfleik. Eftir að staðan hafði lengi verið 1-1 tók Stjaman góðan kipp og komst í 7-1 eftir 19 minútna leik og útlit fyrir að úrslitin væru að ráðast. Valur komst ekkert áleiðis þessar fyrstu 20 mínútur gegn mjög góðri og hreyfanlegri vöm Stjörnunnar en jafnframt var framtaksleysið algjört hjá Valsstúlkum. Með mikilli bar- áttu unnu þær sig inn í leikinn og minnkuðu muninn í þrjú mörk fyr- ir hálfleik. Vöröu forskotið af krafti Stjömustúlkur voru ekkert á því að hleypa Val betur inn í leikinn og vörðu forskot sitt af krafti en Valsliðið er hvað sterkast þegar það þarf að vinna upp forskot andstæð- inganna. Munurinn var lengst af fjögur til sex mörk og þrátt fyrir að vera oft manni færri tókst Stjömu- stúlkum jafnan að skora og þá helst með langskotum. Undir lokin þegar Stjarnan hafði náð sex marka for- ystu og jafn margar mínútur eftir, slökuðu þær verulega á og Valur minnkaði muninn í tvö mörk þegar tæpar tvær minútur voru eftir. Lengra komust þær ekki og Stjam- an vann sannfærandi sigur. „Ég er mjög ánægður með að fá tvö stig hérna að Hlíðarenda. Þetta var langt frá því að vera létt og við þurftum að berjast fyrir þessu. Við lögðum grunninn að þessu í fyrri hálfleik með mjög góðri byrjun. Vörnin var einbeitt og klár í þetta. Þær voru virkflega tilbúnar í þetta en svo þegar komið er svona gott for- skot er erfitt að halda einbeitingunni og bæta við. Þetta gerist í undirmeð- vitundinni og við slökuðum fullmik- ið á. Þetta gekk sömuleiðis vel sókn- arlega nema hvað við kláruðum ekki alltaf 100% færin sem við sköpuðum okkur,“ sagði Matthías Matthíasson, þjálfari Stjömunnar, í leikslok. HRM b ViAnHHn • *: ■ Kristín Clausen Stjörnustúlka fer hér inn úr horninu en Valsstúlkan Árný ísberg reynir aö stööva hana. Margrét Vilhjálmsdóttir fylgist meö og viröist henni ekki lítast á blikuna. DV-mynd Hari Æsilegur lokakafli að Ásvöllum Haukar lögðu FH að velli, 26-24, i spennandi baráttuleik að Ásvöllum í Essódeild kverma í handknattleik í gærkvöld. Haukamir náðu strax frum- kvæöinu í leiknum og leiddu með þetta tveimur til þremur mörkum lungann úr fyrri hálfleiknum. Lokakafli hálfleiksins var hins veg- ar þeirra og munurinn jókst upp í fimm mörk, 15-10. Þessi munur hélst lengstum í síðari hálfleik. Haukunum gekk þó afar illa að slíta FH-liðið endanlega af sér og þær virtust halda að þetta kæmi af sjálfu sér eftir að munurinn fór tvisvar sinnum upp í sex mörk. FH- liðið gekk á lagið og komst með mikilli baráttu og seiglu aftur inn í leikinn og lokakaflinn var æsispennandi. Þegar sex og hálf mínúta var eftir var munurinn kominn niður í tvö mörk og þremur mínútum síðar fengu gestimir kjörið tækifæri til þess að jafna í stöðunni 24-23. Þá tók Lukresija Bokan, markvörður Haukanna, málin í sínar hendur og varði víti frá Hörpu Vífilsdóttur og hún gerði sér lítið fyrir og varði annað víti frá Hörpu mínútu seinna. Það var svo fyrirliði Hauk- anna, Harpa Melsted, sem guO- tryggði sigurinn með góðu marki íjörutíu og fimm sekúndum fyrir leikslok. Lukresija Bokan var frábær á lokakafla leiksins og þá var Hanna G. Stefánsdóttir góð. Harpa Melsted og Tinna HaOdórsdóttir stóðu fyrir sínu. Hjá FH átti Kristín M. Guð- jónsdóttir góða innkomu í markið. Björk Ægisdóttir var sterk og Dröfn Sæmundsdóttir skoraði góð mörk en tók allt of mörg skot. Harpa Víf- Osdóttir var góð í fyrri hálfleik en dalaði þegar á leið. Dómarar leUís- ins, þeir Gísli H. Jóhannsson og Hafsteinn Ingibergsson, dæmdu vel lungann úr leiknum en þeir misstu taktinn í öOum látunum í lokin og haOaði þá nokkuð á Haukana. Best að segja sem minnst Gústaf Adolf Bjömsson fékk að líta rauða spjaldið þremur mínút- um fyrir leikslok og hann vfldi ekki tjá sig við blaðamann í leikslok, sagði að á svona stundum væri best að segja sem minnst. Tinna HaO- dórsdóttir var hins vegar tfl í smá- viðtal og hún hafði þetta að segja: „Við erum ekki alveg sáttar við spOamennsku okkar nú um helgina en uppskárum þó þrjú stig. Við urð- um aUt of værukærar þegar staöan var orðin góð, eins og við eigum stundum tO, og það má einfaldlega ekki. Það eru aUtaf hörkuleikir þeg- ar þessi lið mætast og það gekk mik- iö á en sigurinn var fyrir rnestu," sagði Tinna HaUdórsdóttir, leikmað- ur Hauka, en hún er óðum að nálg- ast sitt besta form eftir erfiða meiðslatíð. -SMS DV Staöan ÍBV 9 9 0 0 525-176 18 Stjarnan 8 6 1 1 185-144 13 Haukar 8 5 1 0 218-173 11 Valur 8 5 0 3 164-170 10 Grótta/KR 8 5 0 3 157-163 10 FH 8 3 1 4 180-169 7 Víkingur 8 3 1 4 154-148 7 KA/Þór 9 2 0 7 191-214 4 Fram 8 1 0 7 156-232 2 Fylkir ÍR 8 0 0 8 138-206 0 Nœstu leikir: Stjarnan-Grótta/KR 23. okt. kl. 20 Fylkir/ÍR-Valur 23. okt. kl. 20 FH-Fram . 23. okt. kl. 20 KA/Þór/Víkingur . 23. okt. kl. 20 ÍBV-Haukar 23. okt. kl. 20 Valur-Stjarnan 19-23 0-1,1-7, 2-8, 4-8, 6-9, (7-10). 7-12,6-12,11-16,13-17, 15-21,19-21,19-23. Valur: Mörk/viíi (skot/víti): Drífa Skúladóttir 5/1 (12/1), Hafrún Kristjánsdóttir 4 (5), Ámý Björg ísberg 4 (7), Sigurlaug Rúnarsdóttir 3 (5), Kolbrún Franklín 2/2 (4/2), Lilja Björg Hauksdóttir 1 (1). Eygló Jóns- dóttir (1), Díana Guöjónsdóttir (3). Mörk úr hraöaupphlaupum: 2 (Ámý, Hafrún). Vitanýting: Skoraö úr 3 af 3. Fiskuö vitL' Sigurlaug, Drífa, Díana. Varin skot/víti (skot á sig): Berglind Hansdóttir 14/1 (37/3, hélt 7,38%) Brottvísanir: 4 mínútur. Dómarar (1-10): Anton Pálssoii og Hlynur Leifsson. (8). Gœói leiks (1-10): 7. Áhorfendur:110. Best á vellinum: ____ Jóna M. Ragnarsdóttir, Stjörnunni Stiarnan: Mörk/víti (skot/viti): Jóna Margrét Ragnarsdóttir 6/2 (16/3), Amela Hegic 4 (10), Anna Blöndal 3 (5), Ebba S. Brynjarsdóttir 3 (7), Kristín Clausen 2 (2), Elísabet Gunnarsdóttir 1 (2). Mörk úr hraöaupphlaupum: 2 (Kristín, Anna). Vitanýting: Skoraö úr 2 af 3. Fiskuö vitL Elísabet, Amela, Ebba. Varin skot/viti (skot á sig): Jelena Jovanovic 14 (33/3, hélt 7, 42%). Brottvisanir: 14 mínútur. Haukar-FH 26-24 1-0, 6-3, 9-8,13-9. (15-10), 15-12,19-13, 21-18, 24-21, 25-24, 26-24. Haukar: Mörk/víti (skot/viti): Hanna G. Stefánsdóttir 10/2 (15/2), Harpa Melsteð 5 (10), Tinna HaUdórsdóttir 4 (7), Nína K. Bjömsdóttir 3 (7/1), Inga Fríöa Tryggvadóttir 2 (2), Ragnhildur Guðmundsdóttir 2 (6). Mörk úr hraóaupphlaupum: 5 (Hanna 4, Harpa). Vitanýting: Skoraö úr 2 af 3. Fiskuö vítL Inga Fríða, Hanna, Harpa. Varin skot/víti (skot á sig): Lukresija Bokan 16/4 (40/10, hélt 7,40%). Brottvísanir: 14 mínútur (Gústaf Adolf Bjömsson þjálfari fekk rautt spjald). Dómarar (1-10): Gísli H. Jóhanns- son og Hafsteinn Ingibergsson (5). Gœöi leiks (1-10): 8. Áhorfendur:150. Best á Lukresija Bokan, Haukum FH: Mörk/viti (skot/viti): Harpa Vífilsdóttir 8/5 (12/8), Dröfr Sæmundsdóttir 8/1 (25/2), Björk Ægisdóttir 3 (5), Berglind Björgvinsdóttir 2 (2), Sigrún Gilsdóttir 2 (4), Sigurlaug Jónsdóttir 1 (2), Helga H. Jónsdóttir (1). Mörk úr hraóaupphlaupum: 3 (Berglind, Harpa, Dröfii). Vitanýting: Skorað úr 6 af 10. Fiskuó vítL Björk 4, Sigrún 2, Sigurlaug 2, Berglind, Harpa.) Varin skot/víti (skot á sig): Jolanta Slapikiene 4 (15/1, hélt 1, 27%), Kristín Guöjónsdóttir 13 (28/1, hélt 7,46%. Brottvísanir: 6 mínútur. (Sigurlaug rautt fyrir 3x2 mín.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.