Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2002, Blaðsíða 1
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
DAGBLAÐIÐ VÍSIR 290. TBL. - 92. ÁRG. - ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 2002
■ ÁG VAR ALLTAF
BÓKAKARL. BLS. 21
• Matgæðingurinn Ulfar
Eysteinsson er á meöal
þriggja álitsgjafa sem
dæma gæöi jólabjórsins
fyrir DV í ár. Þaö er
íslenskur og danskur bjór
sem þykja standa upp úr
aö þessu sinnl. Bls. 6
Forstjóri Vinnumálastofnunar um væntanlega stækkun ESB:
Óttast flæði vinnu-
afls frá A-Evrópu
„Þetta slær mig ekkert allt of vel,“
sagði Gissur Pétursson, forstjóri
Vinnumálastofhunar, um samkomu-
lag leiðtoga ríkja Evrópusambandsins
við tíu ríki um fjárhagslega skilmála
aðildar þeirra að sambandinu árið
2004. Átta af ríkjunum tiu eru úr aust-
urhluta Evrópu, þar á meðal Pólland,
sem samþykktu ekki fyrr en þeir
fengu loforð fyrir frekari styrkjum frá
ESB.
„Það hefur verið gifurlegt atvinnu-
leysi í þessum löndum," sagði Gissur.
„Ég hef áhyggjur af því að vinnuafl
frá þessum svæðum flæði til Vestur-
og Norður-Evrópu og að þar séu ef til
vill einhverjir um að ráða þetta fólk
til vinnu, en kæri sig kollótta um
launakjör, vinnuöryggi og fleira sem
eru réttindamál sem menn hafa verið
að vinna í og náð árangri, oft með
mikilli baráttu. Staðreyndin er sú að
það er ekkert eins auðvelt að höndla
þau mál fyrir ríki sem koma af Evr-
ópska efnahagssvæðinu eins og það er
gagnvart vinnuafli sem kemur utan
Evrópska efnahagssvæðisins."
Gissur sagði nokkuð skýrar heim-
ildir fyrirliggjandi tU að krefjast þess
að tUteknum skUyrðum væri fullnægt
þegar atvinnuleyfin væru gefin út,
þ.e. að búið væri að gera ráðningar-
samning, að séð væri fyrir húsnæði
og svo framvegis. Þetta væri þyngra í
vöfum og erfiðara þegar um væri að
ræða ríki innan svæðisins, þar sem
ekki þyrfti atvinnuleyfi. Hlutir sem
miðuðu að því að herða eftirlit með
þessu gætu verið túlkaðir sem hindr-
un.
Gissur sagði enn fremur að Vinnu-
málastofnun væri tU dæmis nú að fást
við portúgalskt útleigufyrirtæki sem
leigði Portúgala hingað tU lands tU
vinnu. Vitað væri að þeir væru að
vinna á öðrum og lakari kjörum held-
ur en væru umsamin hér. Því má
bæta við að DV fjallaði um þennan
hóp manna fyrir skömmu, þar sem
hann býr á vegum íslenska vinnuveit-
andans á geymslulofti yfir bifreiða-
verkstæði. Hafa heUbrigðisyfirvöld
haft afskipti af því fyrirkomulagi.
Gissur sagði að umræða varðandi
þessi mál ætti sér nú stað á norræn-
um vinnumarkaðsvettvangi.
„Stjórn Vinnumálastofnunar, þar
sem aðUar vinnumarkaðarins sitja,
hefur verið að fara í gegnum þessi
mál,“ sagði Gissur. „Við munum setja
kraft í þá vinnu þegar ljóst er orðið að
þetta verður að ári liðnu væntanlega
orðinn sameiginlegur vinnumarkað-
ur.“ -JSS
VERÐ í LAUSASÖLU KR. 200 M/VSK
Viöskiptaverð-
launin 2002:
Björgólfsfeðgar
og Magnús
Þorsteinsson
hljóta hnossið
- Jón Hjaltalín Magnússon
er „Frumkvöðull ársins“
Björgólfi Thor Björgólfssyni,
Björgólfi Guðmundssyni og Magn-
úsi Þorsteinssyni verða í dag veitt
Viðskiptaverðlaunin 2002, sem Við-
skiptablaðið, Stöð 2 og DV standa
að. Jón Hjaltalín Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Altech JHM hf., hlýt-
ur viðurkenningu sem FrumkvöðuU
ársins.
Viðskiptablaðið, Stöð 2 og DV
hafa veitt Viðskiptaverðlaunin ár-
lega frá árinu 1996, en verðlaunin
eru veitt þeim einstaklingum sem
skarað hafa fram úr í íslensku at-
vinnulífi. Árið 2001 hlutu bræðurn-
ir Ágúst og Lýður Guðmundssynir í
Bakkavör Viðskiptaverðlaunin, en
Arngrímur Hermannsson, fram-
kvæmdastjóri íslenskra ævintýra-
ferða, var FrumkvöðuU ársins.
Björgólfur Thor Björgólfsson,
Björgólfur Guðmundsson og Magn-
ús Þorsteinsson hafa komið víða við
sögu i íslensku viðskiptalífi árið
2002. í upphafi árs seldu þeir hol-
lenska risafyrirtækinu Heineken
bjórverskmiðju Bravo Intemational
í Pétursborg í Rússlandi. Þá hafa
þeir undanfarin ár verið í hlutverki
kjölfestufjárfesta í lyfjafyrirtækinu
Pharmaco og undanfarna mánuði
einnig mikið verið í fréttum vegna
innkomu þeirra sem kjölfestufjár-
festar í Landsbanka íslands.
Frumkvöðull ársins
FrumkvöðuU ársins er Jón
Hjaltalín Magnússon verkfræðing-
ur. Hann er stofnandi og frumkvöð-
ull að tæknifyrirtækinu Altech
JHM sem hefur frá árinu 1987 þróað
tæknibúnað fyrir álver, einkum í
skautsmiðjur þeirra. Fyrirtækið
hefur nú þróað um 30 mismunandi
tæki og kerfi og hefur selt þau til á
þriðja tug álvera. Altech JHM er
orðið þekkt nafn í áliðnaði um allan
heim. -HKr.
■ SJÁ LEIÐARA
Á BLS. 16 í DAG
FLEIRI TOMMUR FVRIR KRÓNUNA
UNITED
UTU3028
2B' Nicam Stereó
sjónvarp með textavarpi
og 2 Scart tengjum.
Sjónvarpsmiðstöðln
RAFTÆKJAUERSLUN • SÍÐUMÚLA 2 • SÍMI 568 9090 YWJU,,HT»
BÓKAVERTÍÐIN:
JÓLAGETRAUN DV:
Ekki dissa
ömmu
sína
Flott tæki
tól í verð-
laun fýrir
rétt svör
og