Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2002, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2002, Blaðsíða 27
ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 2002 27 I>V Sport Einn leikur fór fram í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöld: Geröu gamlan mann mjög hamingjusaman - sagði Terry Venables, knattspyrnustjóri Leeds, eftir sigur á Bolton, 3-0 Starfi Terry Venables, knatt- spyrnustjóra Leeds, ætti aö vera borgið í bili eftir sigur liðsins, 3-0, á Bolton á útivelli í ensku úrvalsdeild- inni í gærkvöld. Guðni Bergsson var í liði Bolton og lék allan leikinn. Leeds, sem hafði aðeins unnið einn af síðustu tólf leikjum í deildinni, fékk óskabyrjun því að eftir tæplega fnnmtán mínútna leik var staðan orðin 2-0. Bakvörðurinn Danny Milis kom þeim yfir á 9. mínútu með sínu fyrsta marki á tímabilinu og markahrókur- inn Robbie Fowler, sem var í byrjun- arliðinu í fyrsta sinn i vetur, bætti öðru marki við á 14. mínútu. Til að bæta gráu ofan á svart fyrir Bolton þá varði Paul Robinson, markvörður Leeds, vítaspyrnu frá Youri Djorkaeff á 25. mínútu. Jason Wilcox innsiglaði síðan mik- ilvægan sigur Leeds á 74. minútu þegar hann skoraði þriðja mark liðs- ins. Leeds er enn í 16. sæti deildarinn- ar með 20 stig en Bolton er í næstneðsta sætinu með 14 stig. Terry Venables, knattspyrnustjóri Leeds, sem hefur verið undir mikilli pressu að undanförnu, var léttur í lund eftir leikinn. „Þeir gerðu gamlan mann mjög hamingjusaman," sagði Venebles um frammistöðu sinna manna en bætti þó við að frábær markvarsla Paul Robinson í vítinu hefði ekki skemmt fyrir. „Píriulítil heppni skemmdi ekki fyrir. Þrátt fyrir allt hafa leikmenn- irnir staðið sig vel. Þeir hafa haldið liðsandanum góðum þrátt fyrir slæm úrslit og ekki sett hausinn undir hendina. Oft og tíðum hefur mér fundist við eiga meira skilið og ég hef alltaf haft það á tilfinningunni að gengið myndi breytast. Sigurinn í dag var mikilvægur, eiginlega hrika- lega mikilvægur og ég vona að fleiri fylgi í kjölfarið," sagði Venables eftir leikinn. Jonathan Woodgate, varnarmaður Leeds, sagði eftir leikinn að lélegt gengi Leeds á leiktíðinni væri eingöngu leikmönnunum sjálfum að kenna en ekki Terry Venables. „Þetta var mikilvægur sigur fyrir okkur og vonandi náum við að fylgja honum eftir,“ sagði Wooodgate eftir leikinn. -ósk Leikmenn Leeds fagna hér þriðja marki sínu gegn Bolton í gærkvöid. Reuters NBA-deildin í körfuknattleik í fyrrinótt: Kings enn taplausir heima - Sacramento vann sinn 12. heimasigur í röð Sacramento Kings heldur áfram sigurgöngu sinni á heimavelli í NBA- deildinni. Liðið vann sinn tólfta sigur í jafnmörgun leikjum aðfaranótt mánudags þegar það lagði New Or- leans Hornets, 107-92. Chris Webber skoraði 28 stig, tók 8 fráköst og gaf 7 stoðsendingar í liði Sacramento, Doug Christie skoraði 21 stig og Peja Stoja- kovic skoraði 17 stig. Baron Davis var stigahæstur hjá New Orleans með 23 stig og þeir David Wesley og Jamaal Magloire skoruðu 15 stig hvor. Sá um gömlu félagana Shaquille O’Neal sá um sina gömlu félaga í Orlando Magic þegar Los Ang- eles Lakers bar sigurorð af Orlando, 107-84. O’Neal skoraði 30 stig, tók 14 fráköst og hitti úr 12 af 17 skotum. Ko- be Bryant skoraði 21 stig og gaf 8 stoðsendingar. Tracy McGrady skor- aði 21 stig fyrir Orlando og Grant Hill skoraði 16 stig. Jordan ískaldur Michael Jordan var ískaldur og skoraði aðeins tvö stig gegn Toronto Raptors en það kom þó ekki að sök því að aðrir leikmenn liðsins drógu vagninn og tryggðu því sigur, 95-82, gegn vængbrotnu liði Toronto sem var án Vince Carter og Antonio Dav- is. Jerry Stackhouse skoraði 28 stig fyrir Washington og Kwame Brown skoraði 14 stig. Lindsay Hunter skor- aði 22 stig fyrir Toronto og Voshon Lenard skoraði 18 stig. Fjórir í röö hjá Detroit Detroit Pistons vann sinn fjórða sigur í röð þegar liðið bar sigurorð af New Jersey Nets, 101-91. Zeljko Rebr- aca skoraði 21 stig fyrir Detroit, Chauncey Billups skoraði 16 stig og Richard HamUton skoraði 15 stig. Lucious Harris skoraði 18 stig fyrir New Jersey og Jason Kidd skoraði 15 stig og gaf 8 stoðsendingar. Indiana Pacers vann öruggan sigur á PhUadelphia 76ers, 107-97. Jermaine O’Neal skoraði 24 stig, tók 16 fráköst og varði 5 skot í liði Indiana, Jamaal Tinsley skoraði 20 stig og gaf 9 stoðsendingar og Brad MUler skoraði 19 stig og tók 9 fráköst. AUen Iverson var stigahæstur hjá Philadelphia 76ers með 32 stig og Keith Van Horn skoraði 21 stig og tók 9 fráköst fyrir PhUadelphia. Úrslit í nótt: Philadelphia-Denver .........93-71 Iverson 23, Van Hom 15, Macculloch 13 (7 frák.) - Hilario 23, Howard 12 (8 frák., 7 stoös.), Harvey 11 (10 frák.), Posey 11 Cleveland-Seattle............98-111 Davis 20, Jones 19, llgauskas 17 (9 frák.) - Lewis 29 (10 frák.), Payton 23 (9 frák., 9 stoðs.), Drobnjak 23 Miami-Houston ..............100-105 Jones 32 (10 frák., 7 stoðs.), Butler 18 (8 frák.), Grant 16 (8 frák.) - Mobley 27, Francis 21, Griffin 15 (8 frák.), Rice 15 (8 frák.) Memphis-Golden State........104-91 Gasol 18 (8 frák.), Giricek 18, Wright 15 (12 frák.) - Jamison 19 (6 frák,), Arenas 17 (7 frák., 7 stoðs.), Mills 13 Chicago-Boston ...............94-83 Rose 24, Marshall 20 (13 frák.), Fizer 20 (17 frák.) - Pierce 37 (15 frák.), Walker 16 (9 frák.), WUliams 10 (6 frák„ 7 stoðs.) Phoenix-Orlando...............87-84 Marion 19, Hardaway 16 (10 frák., 8 stoðs.), Stoudemire 15 - Garrity 21, Sasser 14 (11 frák.), Hffi 11 (8 frák., 7 stoðs.) LA Clippers-San Antonio .... 91-79 Richardson 21, Olowokandi 17 (18 frák.), Brand 17 (8 frák.) - Duncan 32 (11 frák.), Parker 12, Robinson 10 (8 frák.) A horni Latigavegar og Klapparstigs bttp://simnet. is/bomedecorl928/ Skoðið heimasíðuna okkar og kíkið á tilboðin jólagjöffrá 1928 Þeir setn versla fyrir yfir 5000 krónurfá í gjöf kristalsvasa eða skál í lit meðan birgðir etulasl MR.JONES MR.SMITH MENINBLACKn Leigcm í þínu hverfí p ái jlll nl t? Í7\ I • b

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.