Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2002, Blaðsíða 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 2002
Fréttir
DV
Forsíöa blaös fram-
haldsskólanema,
Fllters.
Umdeilt skólablað:
Topshop segir
ímynd blaðsins
ekki þóknanlega
Á baksíðu 1.
tölublaðs
blaðsins Filt-
ers, raddar
framhalds-
skólanema,
sem er stofnað
vegna skorts á
tjáningar-
möguleikum
ungs fólks á Is-
landi og að
framhalds-
skólanemend-
ur hafi þagað
of lengi, eins og segir í kynningu á
blaðinu, auglýsir fataverslunin
Topshop í Lækjargötu og Smára-
lind. Framkvæmdastjóri hennar,
Sigrún Andersen, hefur krafist þess
að nektarmynd á forsíðu blaðsins
verði tekin út, þ.e. forsíðu þess
breytt, og nektarmyndir í miðopnu
teknar út eða að auglýsing verslun-
arinnar á baksíðu verði tekin út.
Engin ákvæði eru í auglýsinga-
samningi Topshop og Filter um að
ekki megi birta auglýsingamyndir í
blaðinu. Topshop hefur fengið Ný-
herja tii liðs við sig, en auglýsing
frá þeim er á innsíðu blaðsins. Ekki
er að sjá að þetta séu aðgengilegar
kröfur fjárhagslega fyrir útgefendur
blaðsins, Inga Bjöm Amarson og H.
Mörð Gunnarsson.
Sigrún Andersen segist ekki ætla
að fara í mál við útgefendur blaðs-
ins þótt blaðið fari í dreifingu og
ekki hafi verið tekin afstaða til þess
hvort auglýsingin verði greidd en
með bréfi til útgefenda hafi hún
reynt að koma í veg fyrir að blaðið
færi í prentun.
„Ég hef engan áhuga á að tengjast
þessu blaði og það er í engum takti
við þá staðla sem Topshop vinnur
eftir og er með óviðeigandi yfir-
bragð sem verslunin getur ekki sætt
sig við. Þetta snýst heldur ekki um
að þama er nakinn karlmaður en
ekki kona, heldur heildarsvipur og
ímynd blaðsins. Þetta er ekki það
blað sem var kynnt fyrir mér,“ seg-
ir Sigrún Andersen.
Topshop auglýsir i Fókus þar sem
pissað er á jólasvein, í kvennablaðinu
Orðlaus þar sem nekt sést og í Undir-
tónum þar sem fjallað er um klám-
kónginn Ron Jeremy. Sigrún segir
það ekki vera sambærileg mál. -GG
Dimmalimm-myndskreytiverölaunin afhent í fyrsta sinn
Dimmalimm afhenti sjálf myndlistarverölaunin sem kennd eru viö hana í Geröubergi í gær. Þau hlaut Halla Sóiveig
Þorgeirsdóttir fyrir myndskreytingar sínar í Engli í vesturbænum eftir Kristínu Steinsdóttur sem Vaka-Helgafell gefur út.
Aö mati dómnefndar sýna myndirnar ríkulegt ímyndunarafl og auka víddum viö sögu Kristínar.
Eftirlit í Keflavík
Lögreglan í Keflavík stöðvaði
nokkur hundruð bíla I gærkvöld og
nótt við eftirlit. Sérstaklega er hug-
að að ölvunarakstri en grunur féll
ekki á neinn í þeim efnum. Hins
vegar einn ökumaður tekinn á of
miklum hraða.
Reglur endurskoðaðar
Brýnt er að end-
urskoða reglur um
yfirtökutilboð í
hlutafélögum og
færa þær til sam-
ræmis við það sem
gerist annars staðar
Norðurlöndum.
Þetta er mat Kaup-
hallar íslands samkvæmt frétt á
ruv.is. Kauphöllin telur að með end-
urskoðuðum reglum verði lagður
traustari grunnur að virkri verð-
myndun á hlutabréfamarkaði.
Alþýðusambandið varar við stórfelldu atvinnuleysi:
Ungir karlar án menntunar
missa fyrst vinnuna
„Það er mjög dökkt útlit í at-
vinnumálum um þessar mundir og
þá nægir ekki að benda á virkjun-
arframkvæmdir því þær munu
ekki veita störf svo heitið getur
fyrr en líður á árið 2004,“ sagði
Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmda-
stjóri Alþýðusambands íslands, í
morgun. Hagdeild ASÍ segir at-
vinnuleysi hafa aukist mikið síð-
ustu mánuði og varar við þeim vís-
bendingum sem fram koma, þær
séu ávísun á enn aukið atvinnu-
leysi á komandi vikum og mánuð-
um. Gylfi Arnbjömsson sagði í
morgun að stjórnvöld gætu á ýms-
an hátt spornað við vandanum, til
dæmis mætti félagsmálaráðuneytið
hægja á útgáfu atvinnuleyfa til út-
lendinga.
í greiningu hagdeildarinnar
kemur fram að atvinnuleysi hafi
aukist um allt land, en hraðast á
höfuðborgarsvæðinu. Áberandi er
að atvinnuleysið er mest meðal
fólks á aldrinum 16 til 24 ára, en í
þeim aldurshópi er nánast tíundi
hver atvinnulaus samkvæmt
vinnumarkaðsrannsókn Hagstof-
unnar.
„Það eru hópar með minnsta
menntun sem verða fyrstir fyrir
barðinu á atvinnuleysinu," segir
Gylfi. „Stækkun vinnumarkaðsins
hefur dregið fólk út úr skólunum
og það finnst mér áhyggjuefni.
Þessi mikli hagvöxtur hefur sogað
til sín fólk i vinnu og það hefur orð-
ið brottfall í skólum af þessum
völdum. Það er einmitt þetta fólk
sem fyrst missir vinnuna. Við lýst-
um yfir áhyggjum okkar af þessari
þróun í fyrra og nú er þetta að
koma í ljós.“
Tölum ber ekki saman
Páll Pétursson félagsmálaráð-
herra sagði í morgun að tölum ASÍ
bæri ekki fyllilega saman við at-
vinnuleysistölur Vinnumálastofn-
unar en vinnubrögðin væru nokk-
uð ólík. „En það er ekki vafi á að
atvinnuleysi hefur aukist, tölurnar
eru kannski ekki svo skelfilegar,
en hjá ungu fólki eru þær ískyggi-
legar,“ sagði ráðherrann og sagði
jafnframt að fjarstæða væri að líkja
ástandinu nú við atvinnuleysið
1990.
Páll sagði að atvinnuleyfi til út-
lendinga væru nú í lágmarki, veitt
voru 11 slík leyfi í nóvember, en
allt árið í fyrra á annað þúsund.
Eldri leyfi eru hins vegar endurnýj-
uð.
í greiningu ASÍ á stöðu og horf-
um á vinnumarkaði má sjá að ekki
hefur mælst meira atvinnuleysi
hér síðan í marsmánuði 1998. Um
aukningu atvinnulausra er að ræða
um allt landið, mest á höfuðborgar-
svæðinu og eins og fyrr greinir
mest hjá ungu fólki, eða 8,8% með-
al ungra karlmanna á aldrinum 16
til 24 ára. -JBP
BB.,!
Framlag til Fjölsmiðjunnar
Tómas Ingi 01-
rich menntamála-
ráðherra tilkynnti í
gær um fjögurra
milljóna króna
framlag til að
tryggja kennara-
stöðu við Fjölsmiðj-
una. Fjölsmiðjan er
samstarfsverkefni Rauða krossins
og félagsmálaráðuneytis en þar
leggja 36 ungmenni á aldrinum 16
til 24 ára stund á hagnýtt verknám
samhliða vinnu við matreiðslu,
tölvuvinnslu, trésmíði og fleira.
Bíll valt á Skeiðavegi
Bíll valt á Skeiðavegi, norðan við
bæinn Ólafsvelli, um níuleytið í
gærkvöld. Ökumaður bfisins var
einn á ferð. Hann fann fyrir eymsl-
um í baki og hálsi og var fluttur í
slysadeild í Fossvogi. Fljúgandi
hálka var á veginum.
Öllum sagt upp
Öllum kennurum í Vélskóla Is-
lands verður sagt upp störfum þann
1. maí á næsta ári - með þriggja
mánaða uppsagnarfresti. Menntafé-
lagið tekur við rekstri skólans af
ríkinu 1. ágúst.
Metsölulisti DV vikuna 9.-15. desember:
Jón Baldvin enn söluhæstur
„Ég er náttúr-
lega ánægð. En ég
geri ráð fyrir að
það séu skiptar
skoðanir um
þessa bók eins og
aðrar. Hún virðist
hins vegar spyij-
ast vel út því hún
hefur ekki verið
auglýst grimmt.
Jón Baldvin stóð
sig síðan mjög vel í markaðssetning-
unni þá viku sem hann var heima,“
sagði Kolbrún Bergþórsdóttir við DV
en bók hennar Tilhugalíf, ævisaga
Jóns Baldvins Hannibalssonar sendi-
herra, trónir efst á metsölulista DV
aðra vikuna í röð.
Litlar breytingar eru á röð 10 sölu-
hæstu bókanna samkvæmt þessum
lista sem nær til bóksölunnar vikuna
9.-15. desember. Rödd Amalds Ind-
riðasonar er aftur komin i 2. sætið en
var í 3. sæti á síðasta metsölulista
DV. Brauðréttir Hagkaupa eru nú í 3.
sæti eftir að hafa verið í 1. sæti fyrir
hálfum mánuði og í 2. sæti fyrir viku.
Sonja Reynis Traustasonar er enn
í 4. sæti og Óttar Sveinsson hoppar
úr 7. í 5. sæti. Öðruvísi dagar eftir
Guðrúnu Helgadóttur eru á sömu
slóðum og síðast en Eyðimerkurdög-
un er á niðurleið. Bæði bókin um KK
eftir Einar Kárason og ísland í ald-
anna rás eftir Illuga Jökulsson o.fl.
eru á uppleið.
Tvær nýjar bækur eru á metsölu-
lista DV að þessu sinni en eiga það
þó sammerkt að hafa veriö á listan-
um sem birtur var 3. desember.
Leggðu rækt við ástina eftir Önnu
Valdimarsdóttur var í 6. sæti listans
3. desember og Betri kostur - kjöt-
réttir í 12. sæti sama lista.
I 20 efstu sætunum eru 7 bækur
sem teljast til ævisagna en 6 þeirra
eru á Topp 10 listanum. Af bókunum
í 10 efstu sætunum eru aðeins tvær
skáldsögur, bækur Amaldar Indriöa-
sonar og Guðrúnar Helgadóttur.
Metsölulisti DV er birtur í sam-
vinnu við eftirtaldar verslanir: Penn-
inn-Eymundsson (12), Bókabúðir
Máls og menningar (6), Hagkaup (7),
Bónus (8), Samkaup (3), Nóatún, Sel-
fossi (1) og Bókabúðina Hlöðum, Eg-
ilsstöðum (1), og er þessum aðilum
þökkuð góð samvinna við öflun upp-
lýsinga. -hlh
Jón Baldvin
Hannibalsson.
Metsölulisti
Sala bóka 9.-15. desember
[
O* Jón Baldvln Tllhugalíf - Kolbrún Bergþórsdóttlr pw mo
0 Röddln - Arnaldur Indrlöason AO
O Brau&réttlr Hagkaupa - Jól Fel Ý ©
O Sonla - Reynlr Traustason O
O Útkall - Geyslr er horflnn - Óttar Svelnsson A0
0 Ööruvísl dagar - Gu&rún Helgadóttlr ©
O Ey&lmerkurdögun - Waris Dlrle ,, ...Ý©
0 KK- Þangað sem vlndurlnn blæs - Elnar Kárason A©
0 ísland í aldanna rás - lllugl Jökulsson o.fl.
© Landnemlnn mlkll - Vl&ar Hrelnsson yo
0 Artemls Fowl - Samsærlö - Eoln Colfer to
0 Legg&u rækt vlö ástlna - Anna Valdlmarsdóttlr A*
© Gallstelnar afa Glssa - Krlstín Helga Gunnarsdóttir A®
0 Lovestar - Andrl Snær Magnason A VT
© Stollö frá höfundi stafrófslns - Davíö Oddsson Ý ©
© Nafnlauslr veglr - Einar Már Gu&mundsson Ý ©
© Stelpur í stu&l - Jacquellne Wllson Ý®
© NJála - Brynhlldur Þorgelrsdóttlr Ý ©
© Betrl kostur - Kjötréttlr
© Jón Slgur&sson - Gu&jón Frl&rlksson f®
wwiw.dv.ís
er hægtað fara iim á sma a iígl> s i n ga r. i s,
Pareru jólakveðjur sem hægt er að senda vinum
Á Ahlircyrí erum við að sjálfsögðu með smáauglýsingaþjónustu
..-afeaiipvaiigistræ.t.U.5g^minti'J)arer46230.0.0^j
o
ogiettíngiím. '
Stefán gerði jafntefli
Stefán Kristjánsson gerði jafntefli
við íranska stórmeistarann Ehsan
Ghaem Maghami í 9. umferð heims-
meistaramóts unglinga, 20 ára og
yngri, sem fram fór í Goa á Indlandi
í morgun. Stefán hefur 5,5 vinninga
og er í 14.-21. sæti, 1 vinningi á eft-
ir efstu mönnum. Davíð Kjartans-
son tapaði í gær fyrir indverska al-
þjóðlega meistaranum J. Deepan
Chakravarthy og er í 52.-66. sæti
með 4 vinninga. Átta skákmenn
leiða mótið.
Virkjun mótmælt
Fyrirhuguðum framkvæmdum
við Kárahnjúkavirkjun og álver í
Reyðarfirði var mótmælt um helg-
ina af hópi fólks í Lausanne í Sviss.
Hópurinn afhenti skrifleg mótmæli
við Evrópuhöfuðstöðvar Alcoa í
Lausanne.
Hlynur í þriðja sæti
Hlynur Hallsson, myndlistarmað-
ur á Akureyri, skipar þriðja sæti á
framboðslista Vinstri hreyfingar-
innar - græns framboð í norðaust-
urkjördæmi fyrir komandi þing-
kosningar. Ragnar Stefánsson skip-
ar fjórða sætið - Steingrímur J. Sig-
fússon og Þuríður Backman skipa
tvö efstu sæti listans.
Gagnrýnir lögreglu
Guðrún Arna Ingólfsdótth, sem
sótti dóttur sína til Egyptalands, gagn-
rýnir lögreglu fyrir að leggja aðal-
áherslu á að hún notaði falsað vega-
bréf- en ekki þær misgjörðir sem fað-
irinn gerði dóttur sinni. Hún segir
ekkert hafa gerst í kærumáli sínu
gegn hinum egypska fóður. -aþ/HK