Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2002, Qupperneq 21
ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 2002
21
I>V
Tilvera %
hessœzsi
Milla Jovovich 27 ára
Milla Jovovich varð
þekkt eftir leik í tveim-
ur stórmyndum fyrir
Luc Besson, The Fifth
Element og Jóhanna af
Örk. Ekki hefur sam-
band þeirra eingöngu
verið á faglegum nót-
um því þau giftust í kjölfarið á gerð
The Fifth Element en eru nú skilin að
skiptum. Jovovich fæddist í Kiev í
Úkraínu. Foreldrar hennar, úkraínsk
leikkona og júgóslavneskur læknir,
fluttu til Bandaríkjanna þegar hún
var fimm ára. Hún var uppgötvuð 11
ára af tískuljósmyndara og hóf í kjöl-
farið atvinnuferil sem tískufyrirsæta.
Gildlr fyrlr miðvikudaginn 18. desember
Vatnsberinn (20. ian.-18. febr.r
I Vertu varkár í
' viðskiptum og
forðastu að lofa upp í
ermina á þér. Það er
mikilvægt að vera stundvís.
Happatölur þínar eru 8, 15 og 37.
Fiskarnir (19 febr.-20. mars):
: Einhver þarfnast
Ihjálpar og leitar til
þín. Ef þú sérð þér
ekki fært að veita
aðstoð ættirðu að minnsta kosti
að sýna skilning á aðstæðum.
Hrúturinn (21. mars-19. april);
#V Þessi dagur hentar vel
^■^m^til að greiða úr
deilumálum og leið-
rétta misskilning sem
gæti hafa komið upp.
Happatölur þínar eru 12,15 og 27.
Nautlð (20. april-20. maíi:
Þú finmu- fyrir þrýst-
. ingi frá vinum sem
vilja stuðning þinn í
ákveðnu máli. Vertu
eins hlutlaus og þú getur.
Happatölur þínar eru 21, 26 og 33.
Tvíburarnlr (21. maí-21. iúní):
Eitthvað kemur þér á
'’óvart og það gæti haft
í for með sér einhveija
spennu eða ævintýri.
i verður skemmtilegt.
Happatölur þínar eru 3, 4 og 11.
Krabblnn i22. iúni-22. iúm:
Þú hugar að fjármál-
| unum og kemst að
' einhverju óvæntu.
Lifðu í nútíðinni
og horföu ekki of mikið til
liðinna tíma.
Uónlð (23. iúií- 22. áeústi:
■ Flókið mál verður á
vegi þínum í dag og
það er mikilvægt að
hugsa skýrt. Reyndu
að finna auðveldustu lausnina
á málinu.
Tvíburarnlr (2:
s
Kvöldið veri
Mevlan (23. áeúst-22. sept.):
Þú þarft að verja mál-
stað þinn í dag en gættu
^^k^Lþess að sýna stillingu.
^ ' J Þér býðst gott tækifæri
en verður að vera fljótur að grípa
það þvi aðrir sækjast eftír því.
Vogin 123. sent.-?3. okt.r
J Þú hefur lengi beðið
Oy eftir þvi að geta
\ f lokið einhverju og
r f núna er líklegt að þú
náir þeim áfanga.
Happatölur þínar eru 6,10 og 14.
Sporðdrekinn (24. okt.-2i. nóv.):
IÞú ert í góðu jafnvægi
og ættir að eiga
auðvelt með að tala
| við fólk og fá það til
að hjálpa þér. Dagurinn verður
hamingjuríkur.
Bogmaðurlnn (22. nóv.-21. des.i:
Viðkvæmni gætir í
fari vinar þíns og þú
þarft að sýna varkárni
í umgengni við hann.
Þú ættir að eyða deginum
í friði og ró.
Stelneeltln (22. des.-19. ian.):
Dagurinn verður
skemmtilegur og þú
hefur meira en nóg að
gera. Samband þitt við
vin þinn er þér ofarlega í huga.
Happatölur þínar eru 1, 3 og 9.
var alltaf bókakarl
- segir Jón Stefán Karlsson, kaupmaður í Ulfarsfelli
Bóka- og ritfangaverslunin Úlf-
arsfell við Hagamel fagnaði þrjátfu
ára afmæli með pompi og pragt fyr-
ir skemmstu og þótt það sé ekki
ýkja hár aldur hefur bókaverslun-
um af svipaðri stærð fækkað. Þvi
var heilsað upp á afmælisbamið.
Það eru hjónin Hafdís Ólafsdóttir og
Jón Stefán Karlsson sem hafa átt
Úlfarsfell síðustu þrettán árin. Að
þeirra sögn hefur verslunin aðeins
tvisvar skipt um eigendur frá því
hún var stofnuð og alltaf hafa það
verið hjón sem séð hafa um rekstur-
inn í sameiningu, gjarnan með
hjálp bama sinna.
í Skeifuna eftir rennilás
Úlfarsfell er í litlum verslunar-
kjama, ásamt bakaríi, blómabúð, ís-
búð og sjoppu. Hún hefur yfir
hundrað fermetrum að ráða og segja
þau hjón hana þó hafa stækkað frá
því sem hún var upphaflega því þá
var líka vefnaðarvöruverslun á
hluta gólfplássins. „Nú þarf fólk að
fara alla leið í Skeifuna til að kaupa
sér rennilás,“ segir Hafdís og bætir
við að sú reynsla komi þeim
kannski til góða. „Fólk hugsar að-
eins um hvaða þjónustu það vill
hafa í sínu hveríi og fjölbreytnin
hefur líka hjálpað þessari búð,“ seg-
ir hún og bendir á framköllunar-
þjónustu, leikfong og gjafavöru, auk
jólavamingsins sem að sjálfsögðu
setur sterkan svip á þessa daga.
Stilla klukkurnar eftir kúnn-
unum
Hafdís og Jón voru í hótelrekstri
áður en þau sneru sér að bóksöl-
unni, meðal annars í Borgamesi og
á Hvolsvelli. Hvað skyldi hafa feng-
ið þau til að snúa sér að bókunum?
„Fyrst og fremst áhugi," segir
Jón. „Ég var alltaf bókakarl og las
□VWYND SIG. JÓKULL
Afgreiðslufólkið
Jón Stefán og Hafdís ásamt Sigrúnu Guömundsdóttur (lengst til vinstri) sem hefur veriö dyggur starfsmaöur hjá þeim
í mörg ár.
+r.
mikið þegar ég var yngri en á síðari
árum er orðinn minni tími til að
sökkva sér í lesturinn." Þau hjón
segjast þó alltaf kynna sér bækum-
ar sem þau séu með á boðstólum og
það kunni viðskiptavinir að meta,
auk hins persónulega andrúmslofts
sem ótvírætt skapist í svona hverf-
isverslun.
„Þetta er búð sem lifir fyrst og
fremst á því að nágrannamir vilja
versla hér í stað þess að keyra lang-
ar leiðir. Við fylgjumst líka með
fólkinu okkar, vitum hver er ný-
kominn af Reykjalundi og hver er á
leið til Kanarí og svo framvegis,"
segir Hafdís brosandi. „Sumir okk-
ar fostu viðskiptavina koma alltaf á
sömu tímum þannig að við getum
næstum stillt klukkurnar eftir
þeim,“ segir Jón.
Innan um kjöt og smjör
Þau hjón draga ekki dul á að erf-
iðara sé að reka bókabúðina eftir að
stórmarkaðir hófu bóksölu í jóla-
mánuðinum og segja útilokað að
keppa við þá í afsláttum á einstakar
bækur. „Við getum ekki tekið álagn-
inguna af neinu öðru, eins og þeir,“
segir Sigrún. Jón kveðst sakna siða-
reglna í viðskiptalífinu en segir við-
skiptavinina marga hverja heiða í
hugsun. „Mörgum er það tilfinn-
ingamál aö kaupa bækur í bókabúð-
um en ekki innan um kjöt og smjör
og þegar fólk er búið að lenda í
nokkrum bílabiðröðum þá áttar það
sig á því að tíminn er líka mikils
virði,“ segir hann. -Gun
Bíógagnrýni
Sam-bíóin - Ghost Ship ^
Sjóreknir draugar
Hilmar
Karlsson
skrifar gagnrýni
um kvikmyndir.
Það er í raun alveg ótrúlegt að
það skuli hafa verið hægt að gera
spennandi hryllingskvikmynd úr
jafn mikilli þvælu og Ghost Ship er.
Segja má að það sé ekki heil brú í
sögunni, allt frá því að verið er að
telja okkur trú um að eitt af stærstu
skemmtiferðaskipum heims hafi
verið að reki á Beringshafi (það er
kapítuli út af fyrir sig að leiða hug-
ann að sjávarhitanum á þessum
slóðum og hvernig persónurnar
geta yfirleitt athafnað sig léttklædd-
ar í slíkum sjó, hvort sem það er í
skipinu, sem er hálft af sjó, eða utan
þess) og þar til við fáum að vita að
björgunarleiðangur átti aldrei neina
möguleika þar sem aörir réðu ferð-
inni. Það er nú samt svo aö Ghost
Ship er ailan tímann hin besta
skemmtun fyrir þá sem hafa gaman
af draugum og dulúð. Myndin er
sem sagt skyndibiti framreiddur
sem eðalmatur.
Byrjunin er flott ef undan er skil-
inn subbuskapurinn með vírinn
sem þeir skilja sem séð hafa mynd-
ina. Upphafsatriðiö skilur eftir
margar spumingar sem veriö er að
svara smátt og smátt í myndinni og
eftir þvi sem svörin verða fleiri
verður sagan heimskulegri.
Þegar ljóst er
orðið að rúmlega
þúsund manns um
borð í skemmti-
ferðaskipinu, Ant-
onia Graza hefur
verið slátrað fær-
um við okkur í
nútímann. Á krá
einni fær áhöfn
björgunarskips
þær fréttir frá
flugmanni að
hann hafi tvisvar
séð skip ,á reki á
Beringshafi, langt
utan siglingar-
leiða. Freistingin
um vegleg björg-
unarlaun verður
til þess að áhöfnin
ákveður að taka
tilboðinu og fær
flugmaðurinn að
fljóta með. Það er lítill vandi að
finna skipið. Vandamálin koma um
leið og áhöfn björgunarskipsins
stígur um borð, en ljóst er að þar er
ekki allt eins og það á að vera. Sjón
er sögu rikari í þeim efnum,
Vandamálið með Ghost Ship er
fyrst og fremst að láta söguna ganga
upp. Það tekst ekki og skýringamar
eru bamalegar og heimskulegar.
Lokaatriðiö fyllir svo mælinn i
þeim efnum. Á móti kemur að leik-
stjórinn Steve Beck (Thirteen
Ghosts) er sér sjáifsagt meðvitandi
um veika sögu og hylur hann veik-
leikann snyrtilega, heldur vel utan
Á tali við draug
Julianne Margolies leikur björgunarkonuna Maureen
Epps sem fyrst veröur vör viö drauga.
>
Kinq
2? Koil
um dulúðina í sögunni með hraðri
atburðarás og flottum klippingum
og þegar á allt er litið er Ghost Ship
hinn sæmilegasti hryllingspakki.
Leikstjóri: Steve Beck. Handrit: Mark
Hanlon og John Pogue. Kvikmyndataka:
Gale Tattersall. Tónlist: John Frizzell. A5-
alhlutverk: Julianna Margulies, Gabriel
Byrne, Rion Eldard, Desmond Harrington
og Isaiah Washington.
Verð frá
9S.300
mm
m. grind
153 x 203
Skipholti 35 * Sími 588 1955