Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2003, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2003, Side 2
2 LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 2003 DV Fréttir Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra í Reykjavík: Niðurskurður á rekstri sambýla fatlaðra - sparnaður á að nema 40-50 milljónum króna Svæðisskrifstofa málefna fatl- aðra í Reykjavík hefur sent bréf til forstööumanna allra sambýla fatlaðra þar sem tilkynntur er 3 prósenta niðurskurður á fjár- magni til rekstursins á þessu ári, vegna þeirrar stöðu sem svæðis- skrifstofan sé í. Þetta bætist við 2 prósent sparnaðaráform ríkis- stjórnarinnar til málaflokksins. Björn Sigurbjörnsson, fram- kvæmdastjóri Svæðisskrifstofunn- ar í Reykjavik, sagði, að þessi ákvörðun um sparnað væri tekin til að ná saman endum i rekstrar- áætlun miðað við þau verkefni sem verið væri að vinna í dag eða gert væri ráð fyrir að færu af stað á þessu ári. Hugmyndin með sparnaðinum væri sú að hægt væri að koma til móts við þarfir annarra eins og til dæmis að setja af stað nýtt sambýli í haust til að vinna á biðlistum. „Við urðum því að grípa til þess neyðarúrræðis að óska eftir þvi að sambýlin og önnur starfsemi á okkar vegum endurskoði rekstur sinn, leiti allra leiða til að spara og hagrræða, þannig að það skili sem svarar 3 prósentum á hverja Páll Pétursson félagsmálaráöherra á tali við fatlaða Þriggia prósenta niöurskuröur á fjármagni til rekstar á sambýlum fatlaöra hefur veriö kynntur á þessu ári. dýr í rekstri. Þar horfðu menn til um 10 prósent sparnaðar, eða sem svaraði einu a.m.k. einu stöðu- gildi. „Mér er uppálagt af stjómvöld- um að halda mig innan íjárlag- anna,“ sagði Björn. „í gegnum tíð- ina höfum við rekið sambýlin og aðrar stöðvar miklu dýrara held- ur en ráðuneytið hefur lagt fjár- magn til. Það hefur valdið því að önnur verkefni hafa setið á hakan- um. Ég þurfti að búa til 40-50 milljónir til að svara óskum stjórnvalda um ný verkefni sem eiga að fara af stað í Reykjavík. Þess vegna erum við að biðja um þessa hagræðingu og leita allra leiða til að geta veitt fleirum þjón- ustu.“ -JSS einingu. Við erum þó með það að meginmarkmiði að þjónustan fari ekki undir lágmarksgæði né starf- semin beri sérstakan skaða.“ Björn sagði að 3 prósentin væru ekki föst tala. Sums staðar væri þegar búið að spara þannig að þar væri komið inn að kviku. Nýju heimilin tvö, Barðastaðir og Hólmasund, væru til að mynda Þjónustan er aðalatriðiö „Aðalatriðið er að menn séu að halda uppi þjónustu sem stenst lög um málefni fatlaðra," sagði Halldór Gunnarsson, formaður Þroskahjálp- ar, um fyrirhugaðar sparnaðarað- gerðir Svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra í Reykjavík. Halldór kvaðst ekki hafa kynnt sér þau áform þar sem þau væru svo nýkomin fram. Hann sagði ekkert nema gott eitt um það að segja ef hægt væri að spara þar sem umfram væri eytt. Hins vegar þyrfti alltaf að hafa þjón- ustuþegana í fyrirrúmi. -JSS Vilhjálmur Egils- son eitt ár í Washington Vilhjálmur Egllsson. Vilhjálmur Eg- ilsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks á Norðurlandi vestra, hefur ákveðið að segja af sér þingmennsku og fer hann til starfa hjá Aiþjóða- gjaldeyrissjóðnum í Washington 15. janúar nk. Adolf Bemdsen, oddviti á Skagaströnd, sest á þing íyrir Vilhjálm þegar Alþingi kemur saman 20. janúar nk. Vilhjálm- ur hefur einnig sagt af sér stöðu fram kvæmdastjóra Verslunarráðs. Vil- hjálmur neitar því að um dúsu sé að ræða - þetta sé lausn á vanda Sjálf- stæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi eftir próíkjör þar. Reglur Sjálfstæðis flokksins um próíkjör voru þar þver brotnar. Vilhjálmur segir að prófkjörs deilur sjálfstæðismanna í Norðvestur- kjördæmi hafi ekki snúist um hann persónulega en rétt íyrir jól barðist Vilhjálmur af hörku vegna prófkjörs sjálfstæðismanna í Norðvesturkjör- dæmi og lögð hefur verið inn kæra til kjördæmisráðsins til að fá prófkjörið dæmt ógilt. Sérframboð Vilhjálms, sem var í undirbúningi meðal stuðnings- manna hans á Norðurlandi ef kæran yrði ekki tekin til greina, virðist því vera fallið um sjálft sig. Kæran hefur enn ekki verið tekin fyrir. Ólafur ísleifsson hagfræðingur hef- ur gegnt stöðunni í Washington í eitt ár. Hann hefur verið kallaður heim til að sinna ráðgjafarstörfum fyrir ríkis- stjómina og Seðlabankann. „Þetta starf sem ég er að fara í er mjög gott og min framtíð er góð. Ég er aðeins ráðinn til eins árs en þá fer staðan til annars lands. Ég hlakka til þess að takast þetta starf á hendur. Ég veit ekki um framtíð kærunnar til kjördæmaráðsins, þar sem ég er ekki aðili að málinu, en ég reikna með að mitt fólk fari yfir stöðuna og ákveði hvað það vill gera. Við stöðu minni hjá Verslunarráði tekur Birgir Ármanns- son til að byrja með en síðan verður ráðinn framkvæmdastjóri,“ segir Vil- hjálmur Egilsson. Ekki náðist í Ólaf ís- leifsson vegna stífra fundarhalda í stjómarráðinu. -GG DV-MYND SIG.JOKULL Framtíð háskóla Tómas Ingi Olrich menntamálaráöherra ávarpar ráöstefnu um uppbygggingu háskóla á íslandi en ráöstefnan leitaöi m.a. svara viö því hvort íslenskir há- skólar væru orönir ofmargir. Reyk j avíkurakademían: Uppbygging háskóla Fjöldi nemenda á háskólastigi hér á landi hefur fjórfaldast frá árinu 1977 og frá árinu 1980 hefur fjöldi þeirra sem útskrifast úr háskólum hér á landi tvöfaldast. Liðlega 1.800 manns útskrifast árlega úr háskólunum sem starfræktir era hér á landi. Fram til ársins 1971 var Háskóli íslands eini skólinn sem útskrifaði nemendur á háskólastigi en árið 2000 vora þeir orðnir átta talsins. Atvinnuleysi fer vaxandi hérlendis og segir það í aukn- um mæli til sín meðal háskólamennt- aðs fólks. Um þetta fjallaði Reykjavík- urakademínan á ráðstefnu í JL-hús- inu í gær en i henni tóku m.a. þátt rektorar, prófessorar, framkvæmda- stjóri Samtaka atvinnulífsins, þing- menn og embættismenn. -GG 2 ár fyrir að misnota yngri systur ítrekað - kvaðst sjálfur hafa orðið fyrir einelti sem barn 25 ára karlmaður var í gær dæmd- ur í tveggja ára fangelsi fyrir að mis- nota systur sína kynferðislega mörg- um sinnum í meira en eitt ár. Honum er einnig gert að greiða stúlkunni 1,2 milljónir króna í miskabætur. Hún var 9 til 10 ára þegar brot bróöurins voru framin en nú eru liðin 2 til 3 ár frá þeim. Maðurinn var undir áhrif- um fíkniefna og misnotaði róandi lyf á því tímabili sem hann misnotaði systurina. Stúlkan hefur farið í mörg viðtöl og fengið andlega aðstoð og ljóst er að hún mun um ófyrirséðan tíma þarfn- ast slíks áfram. Fram kemur í dómin- um að rannsókn sálfræðings, sem tók manninn í viðtöl, að hann hélt því fram að systirin hefði „verið að hugga sig“ þar sem hann hefði misnotað ró- andi lyf og fíkniefni. Svo hefðu gerst hlutir sem „áttu ekki að gerast". Hann kvaöst hafa orðið svo raglaður af lyfjaneyslu en hann geti „náttúr- Hérapsdómur Reykjavíkur lega ekki kennt lyfjunum um ... hún er systir mín og aldursmunurinn er mikill," sagði hann. Maðurinn kvaðst hafa orðið fyrir einelti í skóla frá 7 eða 8 ára aldri. Það heföi gengið svo langt að hann hefði verið handleggsbrotinn af dreng sem var tveimur árum eldri en hann. Mað- urinn sagði að hann heföi alltaf verið að fá nýja og nýja vini en sér hefði lið- iö sérstaklega illa á aldrinum 19 til 20 ára, hann hefði orðið fyrir slysi og far- iö að neyta fikniefna. Maðurinn kvaðst einnig hafa orðið fyrir kyn- ferðislegri misnotkun af hálfli pflts er hann var í skóla. Héraðsdómur segir að maðurinn hafl brotið alvarlega siöferðisskyldur gegn systurinni sem treysti á vernd hans sem eldri bróður - hann hafi svipt hana tækifæri til að öðlast eðli- lega kynlífsreynslu og brotið rétt hennar til friðhelgi og öryggis heimil- is. Dómurinn telur ijóst að maðurinn hafi átt við ýmis vandamál að etja, m.a. vegna lífsreynslu sem bam og unglingur - þaö afsaki þó á engan hátt brot hans gegn systurinni. „Um er að ræða endurtekið gróft ofbeldisbrot gagnvart barni þar sem beitt er yfir- burðum aldurs og bragðist trausti," segir í niðurstöðu héraösdóms. Þrir dómarar kváðu upp samhljóða niðurstöðu. -Ótt Halldór kæmist á þing Samkvæmt könn- un Gallup í desem- ber nær Halldór Ás- grímsson utanríkis- ráöherra kjöri í Reykjavíkurkjör- dæmi norður en Framsókn fær eng- an þingmann í Reykjavík suður. Flokkurinn fær 3 þingmenn í Suðurkjördæmi, kjör- dæmi Guðna Ágústssonar varafor- manns. Samfylkingin er sterk í Suð- vesturkjördæmi og fengi 5 þingmenn en 4 í Reykjavíkurkjördæmunum. Sjálfstæðisflokkur fengi 5 þingmenn í Reykjavíkurkj ördæmunum og Suð- vesturkjördæmi, 4 í Suðurkjördæmi og Norðvesturkjördæmi en 3 í Norð- austurkjördæmi. VG fengi þingmenn í öllum kjördæmum. Sjálfstæðis- flokkur fengi 26 þingmenn, Samfylk- ingin 21 og VG og Framsóknarflokk- ur 8 þingmenn hvor. Úrtakið var 3.128 manns á aldrinum 18 til 75 ára og var svarhlutfall 75%. Geir hættir hjá Keri Geir Magnússon lætur af störfum forsijóra Kers hf. 1. mars samkvæmt til- kynningu til Kaup- hallar Islands. Þar segir að samkomu- lag hafi orðið milli Geirs og stjómar fe- lagsins um að hann hætti. Ker á meðal annars Olíufélagið ESSO þar sem Geir var áður forstjóri. Mesta aflaverðmæti Skip Síldarvinnslunnar í Nes- kaupstað hafa aldrei skilað jafn miklu aflaverðmæti og á síðasta almanaksári, en veruleg aukning varð á afla skipanna á milli áranna 2001 og 2002. Heildarafli skipanna á síðasta ári var tæplega 167 þúsund tonn samanborið við rúm 143 þús- und tonn árið 2001. Aukningin er því um 24 þúsund tonn á milli ára. Verðmætaaukningin er einnig mik- il, en árið 2002 var aflaverömæti skipanna tæpir 2,4 milljarðar kóna og jókst aflaverðmætið um 392 millj- ónir króna á milli ára. Styrkur úr Minningarsjóöi Anh Dao Tran hlaut 250 þúsund króna styrk úr Minningarsjóði Gunnars Thorodd- sens þann 30. desem- ber sl. Það er í fyrsta lagi vegna þess starfs sem hún hefur þegar unnið fyrir innflytjendur af asískum uppruna. Anh Dao Tran er af víetnömskum uppruna. I öðra lagi fyrir að þróa hugmyndir að skipu- lögðu verkefni á vegum Reykjavíkur- borgar sem hefur að markmiði að kortleggja þarfir og þróa úrræði til að mæta menntunarþörfum barna og ungmenna í hópi innflytjenda. Ljóst er að margar borgarstofnanir munu þurfa að koma að þessu verkefni. Ný Umhverfisstofnun Um áramótin urðu mikilvægar breytingar á stofnanauppbygginu umhverfisráðuneytisins. Umhverfis- stofnun tók til starfa 1. janúar i sam- ræmi við lög. Umhverfisstofnun tek- ur yfir verkefni Náttúravemdar rík- isins, Hollustuvemdar ríkisins, Veiðistjóraembættis, Dýraverndar- ráðs og Hreindýraráðs. Dýravemdar- ráð verður áfram starfrækt í breyttri mynd en það verður einungis ráðgef- andi fyrir Umhverfisstofnun. For- stjóri Umhverfisstofnunar hefur ver- ið skipaður Davíö Egilson, en hann gegndi áður starfi forstjóra Hollustu- verndar ríkisins. Þréttándabrenna í Garðabæ Þrettándabrenna og varöeldur skátafélagsins Vífils í Gcirðabæ verð- ur mánudaginn 6. janúar. Brennan verður við skátaskálann Vífilsbúð í Heiðmörkinni og kveikt verður í henni kl. 20.00. Skátar úr Vifli sjá um fjöldasöng og undirspil og bjóða upp á kakó og kex að lokinni flugeldasýn- ingu, sem verður í umsjá Rjálpar- sveitar skáta í Garðabæ. -GG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.