Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2003, Blaðsíða 9
LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 2003
DV
9
Fréttir
George W. Bush Bandaríkjaforseti stefnir ótrauður inn í írak:
Erlendar fréttir vikunnar
Hvaö býr að baki
heimssýn Bush?
Fjöldi látinna kominn í 61
Þegar leit var hætt í
rústum stjórnsýslu-
hússins í Grosní, höf-
uðborg Tsjetsjeníu á
sunnudaginn, tveimur
dögum eftir að sjálfs-
morðsliðar skæruliða
höfðu sprengt þar
tvær öflugar sprengjur á föstudaginn í
fyrri viku, var fjöldi látinna kominn í
61 og var óttast að sú tala ætti enn eft-
ir hækka þar sem margir lægju illa
særðir á sjúkrahúsum borgarinnar.
Það virðist afar fátt geta komið í
veg fyrir að Bandaríkjamenn mimi
ráðast inn í Irak, líklega eftir fáein-
ar vikur, í þeim tilgangi að koma
íraksforsetanum, Saddam Hussein,
frá völdum og í eitt skipti fyrir öll
eyða öllum efa um hugsanleg ger-
eyðingarvopn sem landið kann að
búa yflr. George W. Bush Banda-
ríkjaforseti hefur að undanfórnu
verið mjög svo berorður varðandi
málið og skipað Hussein ítrekað að
afvopnast, ellega sæta innrás. Þús-
undir bandarískra hermanna eru
komnar til Persaflóa og enn fleiri
eiga eftir að bætast í hópinn.
Opinber ástæða fyrir afskiptum
Bandaríkjamanna af írak er vitan-
lega sú að fjarlægja þá ógn sem ger-
eyðingarvopn í höndum þessara
manna er gagnvart heimsbyggðinni,
ekki síst Bandaríkjunum. Það er
hins vegar ekki jafn ljóst hvað
liggur að baki þeirri stefnu Banda-
ríkjanna, þessari heimssýn sem
Bush virðist búa yfir.
Vendipunkturinn 11/9
Eftir hryðjuverkaárásimar 11.
september árið 2001 sagði Bush
hvers kyns hryðjuverknaði stríð á
hendur og myndar það rauða þráð-
inn í núverandi utanríkisstefnu
landsins. Það stríð hefur nú teygt
anga sína til íraks og annarra ríkja
sem kunnu að framleiða gereyðing-
arvopn og selja hryðjuverkamönn-
um.
Það hefur þó ekki gengið áfalla-
laust fyrir sig að sannfæra banda-
menn Bandaríkjanna um að íraks-
stjóm sé i raun jafn hættuleg og
þeir vilji meina. Þeir em ófáir sem
segja að hin raunverulega ástæða
þess að Bush sýni írak jafn mikinn
áhuga og raun ber vitni sé til þess
að ná stjórn á geysimiklum olíu-
birgðum landsins.
Olían er málið
Stjómmálaskýrendur segja að ef
fyrsta atriðið í utanríkisstefnu rík-
isstjómarinnar sé að útrýma
hryðjuverknaði í allri sinni mynd,
sé það næsta á listanum aö tryggja
landinu meira magn af erlendri ol-
íu.
Dick Cheney, varaforseti Banda-
ríkjanna, skrifaði fyrir tæpum
tveimum ámm skýrslu um orku-
notkun Bandaríkjamanna þar sem
hann spáði því að innflutningur á
olíu til landsins muni hafa tvöfald-
ast árið 2020. Að hluta til vegna
þess að ríkisstjóm Bush hafi engan
áhuga á að minnka neyslu landans.
í skýrslunni var mælt með þvi að
auka innflutning frá Persaflóa, en
einnig líta til svæða eins og Kaspía-
hafsins, Suður-Ameríku og Afríku-
landa sunnan Sahara-eyði-
merkurinnar. Cheney var tekinn á
orðinu og er þetta raunin í dag.
Sameiginleg markmið
Að fylgja þessum tveimur atrið-
um eftir krefst mikils valds, hvort
sem það er í formi stjómmálaáhrifa,
viðskipta eða hervalds - sem er
vissulega þeirra sterkasta „vopn“.
Að láta til skarar skríða áður en
hugsanlegar hótanir verða að veru-
leika mætti vera þriðja atriðið á áð-
umefndum lista en ljóst er að þessi
þrjú atriði vinna saman. Bush hefur
sýnt með afdráttarlausu máli sínu
að síðastnefnda atriðið er lykillinn
að þessu öllu saman.
Sem dæmi má nefna nokkur at-
riði. Bandarískar herstöðvar í Asíu
gætu einnig þjónað þeim tilgangi að
vemda olíubirgðir og það er sjálf-
sagt engin tilviljun að ný olíuleiðsla
er lögð í gegnum Georgíu, þar sem
bandariski herinn er staddur til að
■a •nnr. • ■ ■ i
REUTERS
Heilsubótarganga
George W. Bush Bandaríkjaforseti fær sér hressandi göngutúr ásamt fréttamönnum og starfsmönnum sínum á
búgaröi sínum í Texas, Prairie Chapel, í fyrradag. Síöar þann dag sagöist hann búast við kjarnorkufríum Kóreuskaga
og aö komiö væri aö „skuidadögum“ Saddams Husseins íraksforseta.
þjálfa heimamenn til að berjast
gegn hryðjuverkamönnum.
Brothætt ástand
George W. Bush var frekar
hlynntur því að minnka afskipti
hersins erlendis fyrir 11. september
2001 en honum virðast engin mörk
sett nú. En ástandið er vissulega
mjög hættulegt og ef illa fer, gæti
Eiríkur Stefán
Ásgeirsson
biaöamaöur
Fréttaljós
það hæglega versnað mun meira en
það er nú. Olían á þessu svæði gæti
orðið enn illfáanlegari fyrir Banda-
ríkjamenn en hún er nú takist Bush
og hans mönnum að reita þá menn
til reiði sem olíunni stjóma. Flókn-
ar heraðgerðir á svæðum þar sem
stjómvöld standa höllum fæti gæti
aðeins leitt til meira haturs í garð
Bandaríkjamanna á þessu svæði.
Hvað með Norður-Kóreu?
Ástandið í Norður-Kóreu virðist
koma á allra versta tíma fyrir
Bandaríkjamenn enda segist Bush
ekki sjá ástæðu til þess að beita her-
valdi þar og að hægt sé að leysa þá
deilu sem upp er komin eftir hefð-
bundnum diplómatískum leiðum.
Sú staðhæfing Bush hlýtur að vekja
nokkra furðu þar sem brot N-Kóreu-
manna eru ekki síður alvarleg en
meint brot íraka.
Árið 1994 komust löndin tvö, N-
Kórea og Bandaríkin, að samkomu-
lagi um að fyrmefnda landið hætti
allri kjamorkustarfsemi gegn efna-
hagslegri aðstoð Bandaríkjanna.
Svo virðist sem N-Kóreumenn hafi
fundið sig knúna til að rjúfa það
samkomulag fyrir nokkrum vikum
og hófu þeir starfsemi á ný í kjam-
orkuverum í landinu. Þeir segja
ástæðuna vera rafmagnsframleiðslu
en staðreyndin er sú að með þessu
áframhaldi gæti N-Kórea hafa fram-
leitt nægilegt magn af plútóníum til
þess að búa til 5 eða 6 kjamorku-
sprengjur á næsta hálfa ári. Og það
eru vissulega fordæmi fyrir því að
N-Kórea hafi selt vopn til fjand-
manna Bandaríkjamanna með
glöðu geði.
Allt undir í írak
Þetta getur þó varla þýtt að
Bandaríkjamenn eigi aö beina at-
hygli sinni að N-Kóreu og frá írak.
Það fer ekki á milli mála að þeir
hafa veðsett heiður sinn og orðstír
hjá alþjóðasamfélaginu með aðgerð-
um sínum gagnvart ríkisstjórn
Saddams Husseins og því er þeim
mikið í mun að standa rétt að hlut-
unum. Sem þýðir að ráðast ekki inn
í landið fyrr en alþjóðasamfélagið
gefi grænt ljós, steypa Hussein af
stóli með sem minnstum hugsanleg-
um skaða fyrir íraska borgara og
síðast en ekki síst farsælan eftir-
mála striðsaðgerða.
En ef á versta veg fer í N-Kóreu
er ljóst að þama er komið upp veldi
með gífurlegt magn hættulegra
vopna sem gerir Suðaustur-Asíu að
verulega hættulegu svæði. Klípan
sem upp er komin verður því varla
leyst svo auðveldlega af Bush og
hans mönnum.
Aðrar ástæður?
Þeir sem vilja taka sem dýpst í ár-
inni hafa sagt að írak sé bara byrj-
unin. Eftir að Saddam Hussein hafi
verið komið frá völdum sé komið að
löndum eins og íran og Sýrlandi
sem einnig hafa verið nefnd sem
ríki sem styðja við bakið á hryðju-
verkamönnum. Enn aðrir segja að
hin raunverulega ástæða sé að afmá
allar þær hættur sem steðja að ísra-
el og þá em þeir sem vilja meina að
hin raunverulega stefna Banda-
ríkjastjómar sé aö endurskapa Mið-
austurlönd í sinni lýöræðismynd.
Þessi miklu afskipti Bandaríkja-
manna af heiminum hafa alið af sér
mikið hatur hjá gífurlegum fjölda
manns. Og ekki er útlit fyrir að
þeim fari fækkandi.
Byggt á efni frá BBC, The Was-
hington Post og The Guardian.
REUTERS
Eftlriit með eftirlitsmönnum
Fjöldi íraskra manna fylgist meö þegar bifreiö vopnaeftirlitsmanna Sam-
einuöu þjóöanna yfirgefur gasverksmiöju sem þeir höföu skoöaö fyrr um
daginn. írösk yfirvöld segja eftirlitsmennina ekkert gruggugt hafa fundiö
og aö þannig veröi þaö áfram.
Leyfa Sádar afnot?
Samkvæmt fréttum bandaríska
dagblaðsins New York Times, hafa
Sádi-Arabar samþykkt að leyfa
Bandaríkjamönnum afnot af lofthelgi,
her- og stjómstöðvum sínum í Sádi-
Arabíu komi til stríðs við íraka.
Þetta var haft eftir ónefndum yfir-
manni í bandaríska hernum og ef rétt
reynist þá hafa Sádar tekið algjörum
sinnaskiptum í afstöðu sinni til
aðgerða gegn írökum.
Engin áform um aðgerðir
Colin Powell, utan-
ríkisráðherra Banda-
ríkjanna, sagði í
byrjun vikunnar að
Bandaríkjamenn
hefðu ekki uppi nein
áform um að ráðast
gegn Norður-Kóreu-
mönnum, þrátt fyrir hótanir þeirra
um að hefja aftur vinnslu á kjam-
orku. „Við munum ekkert aðhafast til
þess að auka á spennuna en þó halda
opnum öllum möguleikum," sagði
Powell og bætti við að nægur tími
væri til stefnu.
Þá kom fram í ræðu Bush forseta
seinna í vikunni að hann vildi hefja
viðræður við Norður-Kóreumenn og
láta reyna á friðsamlega lausn deil-
unnar.
Heil herdeild til Persaflóa
Bandaríkjamenn sendu í vikunni
heila herdeild, eða um 15 þúsund
hermenn, sem sérþjálfaðir em í eyði-
merkurhernaði, til Persaflóa og mun
það vera fyrsta heila deildin sem er
flutt á staðinn til undirbúnings fyrir
hugsanleg átök og innrás í írak.
Það er því greinilegt að Bandaríkja-
menn búa sig undir það allra versta og
mun risasjúkrahússkip leggja af stað
til Persaflóa á allra næstu dögum auk
þess sem gert er ráð fyrir að sex flug-
móðurskip verði til taks á svæðinu
innan nokkurra vikna.
Lula tekur við í Brasilíu
Luiz Inacio Lula
da Silva, fyrsti
vinstrisinnaði for-
seti Brasiliu í fjöm-
tíu ár, tók formlega
við embætti við há-
tíðlega athöfn í höf-
uðborginni Brasilíu
um áramótin að við-
stöddum fulltrúum 119 þjóðlanda.
Um tvö hundruð þúsund manns
fógnuðu embættistöku Lula, en mikl-
ar væntingar eru gerðar til þessa fyrr-
um verkalýðsleiðtoga, sem lofað hefur
stjórnarfarslegum umbótun, eða „end-
urreisn virðingar þjóðarinnar", eins
og hann segir sjálfur.
Þrír drengir skotnir
ísraelskir hermenn skutu á
fimmtudaginn þrjá 15 ára palestínska
drengi til bana við Alei Sinai-land-
tökubyggðina á Gaza-svæðinu.
Að sögn talsmanns ísraelska hers-
ins vom þeir komnir um hundrað
metra inn fyrir afgirt svæði þegar
þeir vom skotnir og reyndust þeir
bera á sér einn hníf og tvennar vír-
klippur.
Fundu freðið mannshöfuð
Ung systkin, 13 ára stúlka og 10 ára
piltur, fundu á mánudaginn gaddfreð-
ið mannshöfuð í ánni Nissan sem
rennur í gegnum bæinn Hamstad í
Svíþjóð en það reyndist vera af 22 ára
gömlum karlmanni sem lýst hafði ver-
ið eftir í síðustu viku. Grunur leikur
á að hann hafi verið myrtur og eru
uppi getgátur um að morðið tengist
blóðsuguleik ungmenna í bænum.
Lögreglan fann aðrar líkamsleifar
mannsins á gamlársdag.