Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2003, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2003, Blaðsíða 11
LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 2003 11 Skoðun Að sjá sjálfan sig eða fram í tímann tKjartan Gunnar Kjartansson Laugardagspistill Áramót verða gjaman tilefni þess að staldra við, líta um öxl og horfa fram á veginn. Þeir sem sem leggja áherslu á að hver sé sinnar gæfu smiður stíga stundum á stokk um áramót og heita sjálfum sér mannbótum í ein- hverri mynd. Sumir hyggjast hætta að reykja, aðrir hætta að drekka, enn aörir breyta matarvenjum og auka hreyfmgu og útivist eða draga úr skapgerðargöllum. Aö læra af mistökunum Auðvitað vérða efndimar með ýmsu móti en ásetningurinn og við- leitnin eru engu að síður virðingar verð. Sá sem horfist í augu við galla sína og hefur áhuga á að draga úr þeim er yfirleitt minni gallagripur en hinn sem aldrei viðurkennir vankanta sína. Jafnvel þó hátíðlegur ásetningur um áramót haldi ekki út fyrsta mánuð ársins er engin ástæða til að örvænta. Viðkomandi hefur a.m.k. lært svolítið af reynslunni, aö freist- ingin sé meiri og viljinn veikari en hann gerði ráð fyrir. Hann hefur kynnst sjálfum sér betur og verður betur í stakk búinn að takast á við freistinguna i næstu atrennu. Enginn er fullkominn Þegar nýársheitið fer fyrir lítið er gott að minnast þess að enginn er fullkominn og breyskleikinn er mannlegur. Meira að segja Páll postuli sagði: „Það góða sem ég vil, það gjöri ég ekki. Það illa sem ég vil ekki, það gjöri ég.“ Þó flestum fmnist áramótin tilval- inn tími til að bæta ráð sitt, má auð- vitað verða betri manneskja hvenær sem er. Kannski væri það einmitt ágætis áramótaheit að heita því að stíga á stokk um hver mán- áðamót á nýju ári og endumýja heitin eða setja sér ný. Áheit og lífsreglur Þetta minnir okkur á að áramóta- heit eru aðeins ein tegund lifs- reglna. Til eru einstaklingar, - og jafnvel fleiri en okkur grunar, - sem setja sér lífsreglur, jafnvel margar, og fara eftir þeim í hvívetna, án þess að minnast nokkum tíma á þær við nokkurn mann. Sumir drekka aldrei áfengi fyrr en eftir klukkan 18.00. Aðrir drekka ekki yf- ir höfuð og hafa aldrei gert. Sumir tala aldrei illa um náungann, aðrir fara í göngutúr á hverjum degi, hvemig sem viðrar, eða í sund tvisvar í viku. Sumir bijóta aldrei trúnað og enn aðrir gera slök- unaræfingar eða æfa hugleiðslu í tuttugu mínútur á hveijum degi. Lífsreglur era oft siöareglur. En þær þurfa ekki að hafa siðferðilega skirskotun. Flestar lífsreglur eiga það þó sammerkt að vera hagnýtar. Að auðvelda einstaklingnum að lifa lífmu I þokkalegum friði við aðra og auðvelda þeim stjóm á sjálfum sér og aðstæöum sínum. Þórbergur og I. paragraf A í íslenskum bókmenntum eru lífs- reglur hins unga Þórbergs Þórðar- sonar líklega þær frægustu. Ofvitinn í Bergshúsi lét sér ekki nægja eina lifsreglu heldur setti sér heila reglu- gerð sem sífellt var verið að brjóta, endurskoða og hreinskrifa. Þar var frægust greinin I. paragraf A: Hugsa aldrei um kvenfólk. Fara aldrei á kvennafar. Þessi grein fór fyrir lítið er Þórbergur rölti með vini sínum og fraukunni vestan af Seltjamar- nesi upp í kirkjugarð. En það sem gerir lífsreglur Ofvitans svo sjarm- erandi er ekki staðfesta hans, heldur áhugi hans á því að verða betri mað- ur. Ekki verkið, heldur viljinn, - jafnvel í öllum sínum veikleika. Sjálfsstjóm eða örlagahyggja Önnur áramótaárátta, og svolítið andstæð þeirri sem hér hefur verið gerð að umtalsefni, felst ekki í þvi að líta í eigin barm og reyna að hafa stjóm á sjálfum sér og atburða- rásinni, heldur þvert á móti, að gera ráð fyrir því að ytri aðstæður og annað fólk ráði fyrst og fremst ör- lögum manns. Þeir sem þannig hugsa eru oft ginnkeyptir fyrir spá- dómum, en áramótin eru einmitt tími spádómanna. Spádómsþorstinn Spádóms- eða forspárgildið er lík- lega sá þáttur allra vísinda, fræða og alþýðuspeki sem höfðar sterkast til almennings. í aldaraðir hafa spá- menn og töfralæknar stjómað söfn- uðum sínum með þvi að telja þeim trú um að þeir séu þess umkomnir að sjá og segja fyrir um ókomna at- burði. Spádóms- eða forspárgild- ið er líklega sá þáttur allra vísinda, frœða og al- þýðuspeki sem höfðar sterkast til almennings. í aldaraðir hafa spámenn og töfralœknar stjómað söfnuðum sínum með því að telja þeim trú um að þeir séu þess umkomnir að sjá og segja fyrir um ókomna atburði. Einn fyrsti fræðimaðurinn sem komst á blað sögunnar sem heim- spekingur í vestrænum skilningi var Grikkinn Thales frá Míletos. Ástæðan er sú að hann reiknaði út og sagði rétt fyrir um sólmyrkva. Forspárgildi vísindakenninga hefur gert raunvísindin að einum áhrifa- mestu trúarbrögðum allra tíma og þegar verst lét á tuttugustu öld stjórnuðu marxistar þriðjungi mannkynsins, m.a. í krafti þeirrar firru að söguhyggja Karls Marx segði til um meginþróunarþætti mannkynsins. Ekkert er einfaldara né meira kitlandi en að firra sig ábyrgð, skella skuldinni á heiminn og bíða spenntur eftir spádómum um lottó- vinninga, ferðalög og rómantik. Völvuspá Vikunnar Hér á landi hafa áramótaspádóm- ar fyrir löngu fengið sinn fasta far- veg í Völvuspá Vikunnar. Um hver áramót spáir völvan í aflabrögð, ár- ferði, efnahag, hamfarir, pólitík og persónur. Ekki þarf að taka fram að völvan er með ólikindum sannspá enda bíða landsmenn í ofvæni eftir því að hún opinberi stórviðburði komandi árs. Heilu fjölmiðlaþætt- irnir snúast um völvuspána, stjóm- málamenn eru spurðir í þaula um hrakspár hennar eða fyrirheit og fjölmiðlastórveldi á borð við BBC sjá ástæðu til að leggja við hlustir, ef marka má Vikuna. Galdurinn við spádóma Einn helsti galdurinn við spá- dóma snýst um það að hafa þá hvorutveggja, nógu óljósa og nógu almenna, þannig að heimfæra megi spádóminn upp á framtíðina þó túlkunin verði stundum æði lang- sótt. Þannig spáði völvan fyrir árið 2001 að i Bandaríkjunum yrðu mik- il flóð og miklir brunar. Ekki þarf mikið hugmyndaflug til að gera ráð fyrir brunum og flóðum í jafn stóru og fjölmennu landi og Bandaríkin eru. En þegar árið var gert upp hlaut þetta að merkja árásimar á World Trade Center 11. september. Ef spádómar hefðu raunverulegt og nákvæmt forspárgildi myndu spákonumar ekki þurfa að hafa of- an af fyrir sér með því að segja fyr- ir um rómantík og ferðalög fólks útí bæ. Þær myndu einfaldlega spila í happdrætti og stunda veðmál og verðbréfaviðskipti, - og gerðu það býsna gott. Spár, tölfræði og sálfræði Sálfræðin á bak við spádómana snýst einkum um þá staðreynd að heimurinn og rás atburða eru æði flókin. Ef spáð er fyrir um nógu margt hlýtur, samkvæmt tölfræð- inni, eitthvað að koma fram sem heimfæra má upp á spádóminn. Spádómur sem ekki rætist gleymist býsna fljótt. En spádómur sem ræt- ist er auðvitað miklu eftirtektar- verðari og verður samstundis að dá- samlegri sönnun. Það sem gleymist Það er athyglisvert að sjaldan eða aldrei er fjallað um þá spádóma völvunnar sem ekki rætast. Hún spáði t.d. fyrir árið 2000 að þá yrði leyft að selja áfengi í marvöruversl- unum hér á landi, að hér myndu finnast haldgóð svör við krabba- meini, sóríais og parkinsonsveiki, að Landhelgisgæslan flytti til Suð- umesja, að ríkisfjölmiðill yrðu seld- ur, líklega Rás 2. Hún hefur gefið í skyn hamfarir, jarðskjálfta og jafn- vel eldgos á Reykjanesinu og fyrir árið 2001 taldi hún líklegt að eldgos yrði í sjó við ísland. í pólitíkinni spáði hún þvi að dul- arfull huldukona yrði formaður Samfylkingarinnar og tók þá fram aö sú væri hvorki Margrét Frí- mannsdóttir né Ingibjörg Sólrún. Þá spáði hún fyrir um nýjan, dularfull- an grasrótarflokk sem ætti eftir að standa lengi, spáði fyrir um mikil átök innan ríkisstjómarinnar sem er sú traustasta og friðsamlegasta í sögu lýðveldisins og spáði fyrir um klofning Framsóknarflokksins sem aldrei varð. Völvan er augljóslega ekki fram- sóknarmaður því samkvæmt henni átti sá flokkur að leggja upp laupana árið 2001. Hún virðist held- ur ekki hrifin af Guðlaugi Þór. í spánni fyrir 2002 segir hún að hann eigi aldrei eftir að ná sér almenni- lega á strik í pólitíkinni. Það ár vann hann samt einn glæsilegasta prófkjörssigur í sögu Sjálfstæðis- flokksins. Um Davíð Oddsson segir völvan fyrir 2002 að hann sé ekki að hætta og verði á meðan hann stend- ur. Um Baltasar Kormák segir völv- an fyrir 2002 að hann verði ekki mikið í sviðsljósinu, enda sópaði hann og kvikmynd hans, Hafið, til sín flestum Edduverðlaununum ársins. Um Elínu Hirst, fyrir árið 2002, var þvi svo haldið fram að hún hafi ekki náð sér á strik og fái ekki að njóta sin sem skyldi. En í árslok 2002 var gengið frá ráðningu Elínar sem fréttastjóra ríkissjónvarpsins. Þannig má halda áfram að láta dæluna ganga. En til hvers? Hver hefur áhuga á spádómum sem ekki rætast?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.