Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2003, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2003, Blaðsíða 27
LAUGARDAGUR A-. JANÚAR 2003 Helqarblað X>V Snillingurinn úr námaþorpinu lan McKellen leikur Gandálf töframann íHringa- dróttinssöqu sem nú fer siqurför um heiminn í kvikmqndum Peters Jacksons. Ferill McKellens á leiksuiði hefur einniq verið siqurför frá unqa aldri. Gandálfur töframaður er mikilúðleg persóna í Hringadróttinssögu og verðugur fulltrúi hins góða í þessari stórbrotnu sögu. í ljósi ungs aldurs stórs hluta bíógesta er rétt að rifja snöggvast upp helstu áfanga á listferli hins stórbrotna leikara sem túlkar Gandálf. Það er Sir Ian McKellen sem leikur Gandálf en Kellen er 63 ára gamall og á afmæli 25. maí. Hann fæddist í smáborginni Burnley i Norður-Englandi. Foreldrar hans fluttu fljótlega eftir fæðingu hans til lítils kolanámuþorps í grenndinni sem heitir Wigan og þar ólst snillingurinn upp. Hann heillaðist fljótlega af leikhúsinu og öllu sem tengdist því og var hvattur til dáða af foreldrum sín- um sem deildu áhuga hans. Þótt ekki væri mjög öflugt leikhúslíf í námaþorpinu þá starfaði þar áhugaleikfé- lag en slík starfsemi stendur á mjög gömlum merg í Bretlandi og þar sá hinn ungi Kellen sinar fyrstu leik- sýningar ásamt því að fylgjast með leiksýningum í skólanum. Fyrsta hlutverk hans á sviði var Malvolio í Þrett- ándakvöldi Williams Shakespeares en á unglingsárum fór hann að sækja leiklistarhátíðirnar í fæðingarbæ skáldsins, Stratford-upon-Avon, og þar sá hann stór- leikara á borð við Olivier, Richardson, Gielgud og Hiller túlka texta Shakespeares. McKellen lagði stund á leiklistamám en segja má að ferill hans í bresku leikhúsi hafi hafist fyrir alvöru 1961 þegar hann lauk námi. Hann var fyrst og fremst sviðsleikari framan af ferli sínum og hefur reyndar ít- rekað sagt að þar kunni hann betur við sig en í kvik- myndum. Hann vakti mesta athygli í verkum Shakespeares á borð við Ríkharð konung og Hamlet en túlkun hans á Napóleon var einnig rómuð. Hann hóf að leika í kvikmyndum 1969 og má nefna myndir eins og The Promise og Alfred the Great en þær vöktu samt litla athygli utan Bretlands og Kellen einbeitti sér áfram að leikhúsinu. Það var síðan á ár- unum eftir 1980 sem hann tók aftur upp þráðinn og lék í Priest of Love, sem fjallaði um ævi D.H. Lawrence, og nokkrum öðrum breskum myndum en sú frægasta varð The Scandal sem var gerð 1989 og fjallaði um Profumo-hneykslið sem skók bresk stjórnmál seint á sjöunda áratugnum. Á efri árum sínum fór McKellen að leika í kvik- myndum i ríkara mæli og hann náði athygli amerískra bíógesta svo um munaði í kvikmyndum eins og Apt Pupil og Gods and Monsters sem báðar voru sýndar 1998 og fengu fjölmörg verðlaun og tilnefningar bæði fyrir leik Kellens og handrit. Einkalíf Ians McKellens hefur verið talsvert í sviðs- ljósinu en árið 1988 kom hann opinberlega fram og ræddi um samkynhneigð sína þegar hann mótmælti reglugerð sem Margaret Thatcher hugðist setja og hefði gert „opinberan áróð- ur“ fyrir samkynhneigð að glæp. Það vakti mikla at- hygli í Bretlandi og síðan hefur Kellen verið mjög virk- ur talsmaður fyrir réttindmn samkynhneigðra. Hann býr i Limehouse ásamt sambýlis- manni sínum til átta ára en sá heitir Sean Mathias og er leikari. Þeir hafa starfað saman í nokkrum kvikmynd- um og Mathias leikstýrði Bent sem var gerð 1997 þar 'sem Kellen lék stórt hlut- verk. Sir Ian McKellen hefur leikið margvísleg hlutverk um dagana og mætti nefna til viðbótar hlutverk Salieri í upphaflegu Broadway-upp- færslunni á Amadeus og hann lék blóðsugu í mynd- bandi fyrir lag The Pet Shop Boys, Heart. Hann var aðlaður árið 1990 og hefur feng- ið flest verðlaun sem einhvers virði eru fyrir leiklist. Hann leikur enn af fullum krafti á sviði breskra leik- Sir Ian McKellen leikur Gandalf i kvikmyndunum um Ilringadróttinssögu. Hann er á sjötugsaldri og ólst upp í breskum kolanáinubæ. húsa og er almennt talinn verðugur arftaki Laurence Oliviers sem breskir leikhúsgestir höfðu lengi í guða- tölu. -PÁÁ Ozzy gerist djúpur Ozzy Osbourne, fyrrum söngvari Black Sabbat, núverandi sjónvarps- stjarna og höfuð Osbourn- eíjölskyldunnar, hefur al- deilis skipt um gír og gerst djúpur. Á árum áður var hann þekktur fyrir mikla áfengis- drykkju, flkniefnaneyslu og hikaði ekki við að bíta hausinn af leðurblökum á sviði til að ná fram leik- rænum tilþrifum. Fyrir skömmu sendi Ozzy frá sér lítið hefti sem nefnist The Tao of Ozzy, eða lítil bók um uppljómunina eftir myrkraprinsinn. í heft- inu er að finna ýmis heillaráö og vangaveltur frá karlinum. Hann hefur til dæmis þetta að segja um freistinguna: „Hættið að reykja - það leiðir hvort eð er ekki til annars en óhamingju." Um hógværðina Ozzy Osbourn Fyrir skömmu sendi Ozzy frá sér lítið liefti sem nefnist The Tao of Ozzy, eða lítil bók um segir hann: „Kyngið stolt- inu og biðjist afsökunar." Það er engu líkara en karl- inn hafi fengið vitrun og hafi svar á reiðum höndum við öllum spurningum sem snerta vandamál mannlífs- ins. Þegar Ozzy er spurður um ástina ráðleggur hann fólki að nota smokk. Um ofgnótt segir hann einfald- lega: „Ekki drekka eða neyta annarra vímugjafa." Hann hefur þetta að segja við þá sem eru að hugsa um að fá sér gæludýr: „Þú getur ekki átt gæludýr í fimm mínútur, þau eru til lífstíðar." Að lokum ráð- uppljómunina eftir myrkra- hann foreldrum að prinsinn. vera heiðarlegir gagnvart börnunum sínum og segja þeim sannleikann, hversu óþægilegur sem hann kann aö vera, og að gefa þeim tækifæri til að afla sér menntunar. Skyldi ekki allt vera í lagi heima fyrir? Vin Diesel Fjölmiðlar vestanhafs hafa að undanförnu velt því fyrir sér hvernig stendur á miklum vin- sældum Diesels. Hann er frein- ur grófgerður og ófríður að margra mati og býr yfir tak- iniirkuðum leikhæfileikum. Vin Diesel heitur Leikarinn Vin Diesel, sem skaust eins raketta upp á stjörnuhimininn í fyrra, í myndinni XXX, er meðal allra eftirsóttustu leikara í heiminum í dag og þykir mikið kyntröll. Diesel hafði reyndar vakið athygli fyrir leik sinn í myndunum Pitch Black og The Fast and the Furius sem báðar nutu mikilla vinsælda hér á landi. Fjölmiðlar vestanhafs hafa að undanförnu velt því fyrir sér hvernig stend- ur á þessum miklu vinsældum Diesels. Hann er fremur grófgerður og ófríð- ur að margra mati og býr yfir takmörkuðum leikhæfileikum. Svariö viö spurningunni er í raun sáraeinfalt: Vin Diesel er réttur maður á réttum stað. Hetjur á borð við Arnold Schwarzenegger, Sylvester Stallone og Bruce Will- is eru orðnar of gamlar og leikarar eins og Matt Damon, Keanu Reves og Ben Affleck eru of sætir til að fylla í skarðið fyrir þá. Diesel er aftur á móti hæfl- lega ófríður, með vöðva sem eru á stærð við melónur og með djúpa og karl- mannlega rödd. Kvikmyndin XXX höfðar einnig til nýrrar kynslóðar sem er alin upp við tölvuleiki og því vön meiri hraða.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.