Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2003, Qupperneq 29
LAUGARDAGUR -L. JANÚAR 2003
HelQctrblcið 33V
29
Butt að
hressast
Manchester United hefur ver-
iö að endurheimta leikmenn
sína úr meiðslum imdanfarið og
er ekkert lát á því þar sem
miðjumaðurinn Nicky Butt
verður klár í slaginn eftir helg-
ina. Butt meiddist í landsleik
Englendinga og Makedóníu-
manna i október og hefur því
verið frá í tæpa þrjá mánuði.
Honum liggur þó ekki mikið á
aö verða klár þar sem hann á
væntanlega ekki greiða lið í lið
United þar semJuan Sebastian
Veron er í fantaformi og fyrir-
liðinn Roy Keane er mættur til
leiks á ný eftir meiðsli.
Houllier fer
hvergi
Gerard Houllier, stjóri Liver-
pool, hefur verið mikið í sviðs-
ljósinu undanfarið og eru marg-
ir búnir að missa þolinmæðina
gagnvart honum og vilja hann
burt en Liverpool hefur ekki
sigrað í síðustu tíu leikjum sín-
um í deildinni. Hann viröist þó
enn njóta trausts stjórnar Liver-
pool því Rick Parry, stjórnar-
maður hjá félaginu, lýsti því yf-
ir í gær að félagið hefði enn
tröllatrú á Frakkanum. „Við íor-
um inn í nýja árið enn í barátt-
unni um þijá bikara. Þegar illa
gengur verða menn að þjappa
sér saman og þótt leikurinn
gegn Newcastle hafl verið áfall
þá var hann enginn heimsend-
ir,“ sagði Parry. Spurning hvort
Houllier þurfi fyrst núna að
hafa áhyggjur af starfi sínu því
oftar en ekki hafa þjálfarar ver-
ið reknir skömmu eftir slíka yf-
irlýsingu.
Richards
rólegur
Dean Richards, varnarmaður
Tottenham, hefur ekki mikiar
áhyggjur af þeim móttökum sem
hann kemur til með aö fá á St.
Mary's, heimaveUi Sout-
hampton, í dag. Richards fylgdi
Glenn Hoddle til Spurs frá Sout-
hampton í september 2001 og
voru mikU læti varðandi þau
leikmannakaup. Stuðningsmenn
Saints hafa ekki gleymt því
hvernig Richards kom fram við
þá og má hann búast við hressi-
legum móttökum. „Ef það verð-
ur baulað á mig þá verður bara
að hafa það. Þessir hlutir gerð-
ust fyrir ári og ég hef lagt það tU
hliðar. Ég er leikmaður Totten-
ham í dag og stoltur af því. Þeir
létu mig heyra það í fyrra en
það hafði engin áhrif á mig og
kemur ekki til meö að gera það
heldur að þessu sinni,“ sagði
Richards.
Robert
neitar
ásökunum
Frakkinn Laurent Robert,
leikmaður Newcastle, neitar því
aö hann hafi ráðist á blaðamann
í Newcastle. Robert segir að
blaðamaðurinn hafi verið með
óvægUega gagnrýni í hans garð
eftir leikinn gegn Tottenham um
daginn og í kjölfarið hafi hann
farið tU hans og látið hann fá
sína skoðun á skrifunum en
neitar því staðfastlega að um
einhverja árás hafi verið að
ræða. Blaðamaðurinn stendur
fastur á sínu og segir að Robert
hafi ráðist á sig og málinu því
hvergi nærri lokið.
-HBG
í bann á
barnum
Máli Morrison-fjölskyldunnar og
Fulham er hvergi nærri lokið en
Fulham hefur ákveðið að meina
Clinton Morrison, leikmanni
Birmingham, og móður hans að-
gang að leikmannabar félagsins eft-
ir leik Fulham og Birmingham í
bikarnum á sunnudaginn.
Er félögin mættust í deUdinni í
siðasta mánuði lenti móðir Morri-
sons í slagsmálum við Rufus Bre-
vett, leikmann Fulham, á barnum
þar sem hann hafði verið að út-
húða syni hennar. Hún sagði að
enginn kæmist upp með að tala um
fjölskyldumeðlimi sína á slíkan
hátt.
Þessi ákvörðun forráðamanna
Fulham kemur væntanlega tU með
að faUa í grýttan jarðveg hjá for-
ráðamönnum Birmingham en sama
hvað því líður þá verða þau
mæðginin að leita á önnur mið eft-
ir hressingu að leik loknum á
sunnudaginn.
-HBG
Félagar Morrisons fagna hér 1. deildarsætinu £ maí síðastliðnum en
Morrison fær ekki að skála með þeim á Loftus Road. Reuter
Verð frá kr.
33.900.-
Verð frá kr.
12.900.
Verð frá kr.
Verð frá kr.
e>jÓÐAýÖ?p
20" Verð frá kr.
22.800.
19.900.-
Verð frá kr.
39.900.-
Verð frá kr.
Barkalausir þétti-
'9TST
meö rakaskynjara
49.900
■■ Komdu núna og
gerðu kaup ársins!
11.900.
Verð frá kr.
17.940.-
Verð frá kr. með'yMrlrri tromlu
ctlfflWMM«Miiiiuiiiiiiiíiiii«iiii'iii|iinn>piiii
21.900.
Verð miðast við staðgreiðslu
*Miöast við að greitt sé með Visa- eða Euroraðgreiðslum
RflFTfEKOflPERZLUM ÍSLflNDS EE
- AN NO 1 929 -
Skútuvogur 1 • Sími 568 8660