Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2003, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2003, Blaðsíða 31
LAUGARDAGUR JANÚAR 2003 Helgarblað I>"V 3 I Viltu léttast um nokkur kíló? Nú er líklegt að hálf eða öll þjóðin sé ímeqr- unarkúr og þá er gott að rifja upp nokkrar skemmtilegar aðferðir til þess að telja hita- einingar. Það er nefnilega alls ekki sama huernig það er gert. Sennilega er byrjun janúar sá tími sem flest- ir telja ástæðu til þess að fara í megrun. Hvers vegna? Sennilega er stjórnlaust át og sællífi undanfarinna vikna næg ástæða en margir komast í gegnum hátíðahöld eins og jól og ára- mót án þess að fitna neitt. Sumum finnst megrun ekki flókiö fyrirbæri því það felist einfaldlega í því að borða minna en maður brennir. Það kemur samt ekki í veg fyrir að sístækkandi hluti þjóða hins vestræna heims þjáist af offitu og hún er í auknum mæli skilgreind sem eitt helsta heilsufarsvandamál nútímans. Megrunarkúrar eru háðir tískusveiflum og ef- laust hafa flestir heyrt um súpukúrinn, greip- djúskúrinn, hvítvínskúrinn, egg-og-beikon-kúr- inn, Scarsdale-kúrinn, Herbalife-kúrinn, vatn- og eggjakúrinn og hvað þeir nú heita allir. Það er jafn erfitt að halda þá alla. Margir megrunarkúrar ganga út á það að telja hitaeiningar og til þess eru margar ólíkar leiðir. Það eru nokkrar aðferðir sem getur ver- ið gott að kunna skil á áður en maður byrjar að telja hitaeiningar og við skulum líta á nokkrar. Sennilega er best að ganga út frá því að megr- un sé hugarástand og hér er rétt að rifja upp nokkrar léttar leiðir sem geta hvert hvaða megrunarkúr sem er skemmtilegan eða að minnsta kosti léttbærari. Ef þú borðar eitthvað og það sér enginn til þín þá þarf ekki að telja þær hitaeiningar með. Ef maður borðar súkkulaði og drekkur diet-gos- drykk með þá eyðast hitaeiningarnar í súkkulaði vegna áhrifa gosdrykkjarins. Ef maður borðar með einhverjum þarf ekki að telja þær hitaeiningar með nema maður borði meira en sá sem borðar með manni. Matur sem neytt er í lækningaskyni telst aldrei með. Þetta á við um koníak, sérrí og súkkulaði sem maður borðar þegar liggur mjög illa á manni. Það er mikilvægt að nálgast megrunarkúra með réttu hugarfari. Það er listgreiu að telja hitaeiningar. Hér eru nokkrar nýjar aðferðir. Ef allir sem þú umgengst fitna þá sýnist þú vera grennri. Allt sem borðað er í kvikmyndahúsum, eins og popp, súkkulaði og gosdrykkir, telst ekki með því það er afþreying en ekki matartími. Kexkökur sem borðaðar eru í molum innihalda enga fitu. Hún hverfur þegar þær brotna. Matartegundir sem eru eins á litinn innihalda sama magn hitaeininga. Dæmi: spínat og ís með pístasíuhnetum eða sveppir og hvítt súkkulaði. Frosinn matur inniheldur engar hitaeiningar því þær eru einingar af hita. Dæmi um þetta eru ís, frosn- ar pitsur og íspinnar. Matur sem er borðaður meðan horft er á sjónvarp- Örkunammi er grennandi. Ég hef aldrei séð feitt fólk borða orkunammi svo það hlýtur að mega borða af því eins og maður vill. Snickers er ágætt dæmi um orkunammi. Allt sem maður borðar hjá öðrum þarf ekki að telj- ast með í dagsneyslunni. Það sem maður sleikir af eldhúsáhöldum inniheld- ur engar hitaeiningar þegar maður er að búa til mat. Þetta á við um ísinn af skeiðinni, hnetusmjörið af hnífnum o.s.frv. Allar hitaeiningar sem eru borðaðar í myrkri telj- ast ekki með. Þess vegna er myrkur í bíó. Örbylgjur eyða hitaeiningum. Þess vegna þarf ekki að telja með neitt sem er hitað í örbylgjuofni. Allt sem maður borðar i bílnum þarf ekki að teljast með í dagsneyslu því það brennir hitaeiningum upp að borða þær á ferð. Allt sem er borðað í flugvél telst heldur ekki með. Sjá leiðbeiningar að ofan. Meö því hugarfari sem felst í þessum sakleysislegu ráðleggingum er hægt að umbera nánast hvaða megr- ið telst ekki með í heildarneyslu dagsins. Sérstaklega unarkúr sem er. ekki ef það eru fréttir eða vinsælt efni. -PÁÁ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.