Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2003, Page 38
42
Helqarblað DV LAUGARDAGUR -4. JANÚAR 2003
Fréttnæmasti sólarhringur íslandssögunnar:
Tíðindalaust á
lögreglustöðinni
Breskur herflokkur þrammar
frara hjá lögreglustöðinni í
Reykjavík. Samkvæmt dagbók
lögreglunar varð hernámsins
ekki vart þar innandyra og
höfðu verðir laganna allt öðr-
um skyldum að sinna en að
skipta sér af hertökunni, svo
sem að reka hænsni úr görð-
um og hirða fyllirafta sem
voru öðrum til ama.
Ohætt mun að fullyrða að aldrei íIslands-
sögunni hafi qerst eins mikil og örlaqarík
tíðindi á einum degi og io. maí1940. íeinni
svipan var landið hernumið og þjóðlífið og
landið sjálft tók stakkaskiptum. Fyrir dag-
renninqu fylltist Reykjavíkurhöfn af her-
skipum og vopnaðir hermenn hertóku
stofnanir og byggingar og gerðu útrás í
nálægar byggðir þegar að morgni dags.
Flutningatæki og vígvélar fylltu götur og
torg og hernaðarástand ríkti.
Á einum stað létu menn sér þó ekki breqða
og friðsæld og ró hvíldi yfir daqlequ starfi,
eins og ekkert hefði ískorist. Það var á
löqreqlustöðinni íReykjavík.
Minna má á að lögreglustöðin var þá nán-
astá hafnarbakkanum þarsem þúsundum
hermanna og búnaði þeirra varskipað á
land þennan dag
Hér eru birtar færslur sem skráðar eru í dagbók
lögeglunnar i Reykjavík fimmtudaginn 10. maí 1940
og er fyrsta skráning færð rétt eftir miðnætti, til mið-
nættis næstu nótt, eða fyrstu 24 klukkustundir her-
námsins. (Nöfnum fólks sem lögreglan hafði afskipti
af er breytt.)
Kallaö frá Ingólfskaffi
Kl. 00.11: Símað frá Ingólfs Café. Lögrþj. nr. 45 og 56
fóru og gerðu ekkert.
Kallað
Kl. 01.30: Símað frá Ásvallagötu 00 og beðið um að
taka þar Markús Jónsson sem væri þar óvelkominn.
Lögrþj. nr. 45, 56 og 63 fóru og sóttu Markús. Var
hann fluttur heim til sín á Bergþórugötu 00.
Hótel Hekla
Kl. 01.50: Símað frá Hótel Heklu og beðið um að
reka á burt mann sem væri að berja á dyr hússins og
vildi ekki hætta því. Lögrþj. nr. 60 fór og gerði það.
Á lögreglustöðinni
ríkir friðsæld.
Standandi cr Lár-
us Salómonsson,
sem minnst er á í
greininni. Við tafl-
borðið eru lög-
regluþjónar nr. 27
og 50, sem báðir
koma við sögu í
dagbókinni sem
hér er birt.
Lýst eftir manni
Frá Nýlendugötu 00 var
lýst eftir Hallgrími Guð-
mundssyni sem ekki hefði
komið heim þangað síðan
í fyrrakveld. Lögreglan gat
engar upplýsingar um
hann gefið.
Herskip á ytri höfninni morguninn 10. maí.
Af verði
Skýrsla Kl. 14.00 fóru af verði lögrþj. nr. 7, 8, 13, 19, 21, 23,
Lögrþj. nr. 67 gerir skýrslu um fangelsun Jónasar 25, 26, 29, 30.
Kárasonar (kalda).
Lögrþj. nr. 67 gerir skýrslu um fangelsun Jóns
Kristinssonar frá Siglufirði.
Herskip
Kl. 03.40 tilkynnti lögrþj. nr. 50 að sæist til fjögurra
herskipa sigla inn á ytri höfnina. Sjást ekki þjóðar-
einkenni.
(Ekki virdast laganna verðir kippa sér upp við það
þótt herskipafloti vœri kominn í Reykjavíkurhöfn og
hélt liöið fullkomlega ró sinni. Tuttugu mínútum síöar
voru vaktaskipti eins og ekkert heföi ískorist og fækk-
aöi lögregluþjónum á vakt svo um munaói.)
Vaktaskipti
Kl. 04.00 fóru af verði lögrþj. nr. 9, 37 og 60.
Kl. 06.00 fóru af verði lögrþj. nr. 33, 34, 49, 50, 51, 53,
56, 63 og 67.
Árdegisvakt
Kl. 06.00 mættu lögrþj. nr. 7, 8, 13, 19, 21, 25, 26, 29, 30.
Síðdegisvakt
Kl. 14.00 mættu á vakt lögrþj. nr. 11, 12, 20, 31, 32,
33, 38, 39, 52, 57, 58, 59 og 65.
Skýrsla
Lögrþj. nr. 13 gefur skýrslu um brot bifeiðarstjór-
ans á R-0 varðandi umferðarreglur.
Varðhald
Kl. 16.35 var hringt á stöðina frá Laugavegi 58 og
tilkynnt að þar í portinu lægi dauðadrukkinn maður.
Lögrþj. nr. 20 og 32 fóru að sinna þessu og tóku Jón-
atan Guðmundsson og fluttu hann í varðhald.
Samakstur
Kl. 16.35 var beðið um lögreglu á gatnamót Hverfis-
götu og Frakkastígs til að athuga þar samakstur.
Þangað fóru lögregluþj. nr. 31 og 11 og höfðu tal af
manni sem sagði þeim að bifreið frá hitaveitunni
hefði ekið á reiðhjól sitt. Honum var vísað til rann-
sóknarlögreglunnar.
(Þegar komið er fram á morgun fer loks aó bera eitt-
hvaó til tíðinda á lögreglustööinni aó morgni 10. maí
1940.)
Silfurrefur í Vatnagörðum
Kl. 09.00 símaði á stöðina Ólafur Pálsson sundkenn-
ari og tilkynnti að í gærkveldi hefði sést laus silfur-
refur inni í Vatnagörðum.
Laus hænsn
Kl. 11.30 var símað á stöðina frá Vesturgötu 65 og
kvartað yfir því að þar væru laus hænsni sem gerðu
skemmdir í matjurtagörðum. Lögrþj. nr. 25 tók það til
athugunar.
ölvaður maður fluttur heim
Kl. 17.25 var beðið um aðstoð frá Heitt og kalt.
Þangað fóru lögrþjón. nr. 31,12 og 59 og tóku þar Jón
Hnappadal og fluttu hann heim til sin í Þingholts-
stræti 00. Lögrþj. nr. 31 gefur skýrslu um það.
Skýrsla
Lögrþj. nr. 20 gefur skýrslu um fangelsun Guð-
mundar Jónatanssonar.
Rúðubrot
Kl. 20.45 var beðið um aðstoð frá Ránargötu 16 sök-
um þess að þar væru strákar að brjóta rúður í skúr.