Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2003, Blaðsíða 45

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2003, Blaðsíða 45
LAUGARDAGUR JANÚAR 2003 Hetqa rblað J3V 4-9 Enginn sunnudagaskóladrengur Þaö er stundum sagt aö samstarf skrá- setjara og viöfangsefnis sé alltaf storma- samt þvíflestir vilji draga upp einhliöa glansmynd af œvi sinni og því sé tog- streita óhjákvœmileg. Hvernig var sam- starf ykkar Jóns Baldvins? „Það féll ekki styggðaryrði á milli okkar Jóns Baldvins meðan við unnum að þessari bók. Við vorum ekki sam- mála um alla hluti en ég reyndi að koma mínu að með hægðinni. Það er besta aðferðin í samstarfi við fyrirferð- armikinn mann eins og Jón Baldvin. Jón Baldvin er enginn sunnudagaskóla- drengur og hefur engan áhuga á að gefa slíka mynd af sér. Ég held að bókin sýni hann eins og hann er, með kostum sín- um og göllum." Get eklti hugsað í kulda Má ekki reikna meö aö seinna bindiö komi út um nœstu jól, nema þau veröi fleiri en tvö. „Ég er ekkert farin að hugsa um seinna bindið. Mér skilst að það sé 20 stiga frost í Helsinki um þessar mundir. Ég er ekki að flýta mér þangað. Ég get ekki hugsað í kulda, Jóni Baldvini geng- ur það vonandi betur.“ / Ijósi þessarar reynslu vœrir þú þá til í aö skrifa fleiri bœkur. „Ég væri til í það en mér er líka sam'a þótt ég skrifi ekki fleiri bækur. Ég á vini sem eru rithöfundar og ég hef miklu meiri áhuga á þeirra rithöf- undarferli en mínum. Ég skrifa ekki af innri þörf eins og þeir gera, nema þá dagbókina mína sem ég hef skrifað í tuttugu ár með stuttum hléum. Hún nægir mér alveg. Ég hef samt sterkt á tilfinningunni að ég eigi eftir að skrifa fleiri bækur. En ég er líka viss um að ég verð aldrei atvinnurithöfundur. Ég hef enga löngun til þess. Ég vil frekar lesa bækur en að skrifa þær.“ Svívirðilegur rómautíker Þú hefur starfaö að dagskrárgerö á öðrum sviöum en í dagblööum. Af við- fangsefnum þínum má ráöa aö þú hafir dálceti á leikkonum og leikurum frá fyrra helmingi aldarinnar, kóngafólki og plussi. Ertu rómantíker í þér? „Ég er alveg svívirðilegur róman- tíker, mikil draumóramanneskja og stundum fulldramatísk eins og vinir mínir geta borið vitni um. Mér hefur oft fundist að ég væri tímaskekkja en ég reyni samt að bjarga mér í þessú furðu- lega nútímaþjóðfélagi sem ég kann ekki almennilega á. Ég vil ekki hafa margt fólk í kringum mig, eiginlega bara vini mína, en ég hef mikinn áhuga á mannlegu eðli. Það er vegna þessa áhuga sem ég les óhemju mikiö af ævisögum. Ekki bara leikara og kóngafólks heldur rithöfunda, mynd- listarmanna og stjómmálamanna. Mér finnst mjög áhugavert hvemig fólk hag- ar lífi sínu og hvemig það tekst á við vandamál. Þessi áhugi á öðru fólki er kannski líka ákveðin aðferð við að átta sig á því hvað skiptir máli í lífinu. Mað- ur hefur líf annarra sem viðmið og tek- ur svo eigin afstöðu um það hvemig rétt sé að haga lífinu. Kannski er ég of með- vituð um dauðann en mér finnst að maður verði að geta dáið sáttur. Og maður gæti dáið á morgun. Varðandi plussið, þá er það rétt að ég er mikið fyrir fallega hluti og verð að hafa þá í kringum mig til að mér líði vel: þykkar bláar flauelsgardínur, antik- kertastjaka, rauðan sóffa með fullt af pullum og fleira og fleira. Ég hef smásektarkennd út af þessu vegna þess að fallegir hlutir kosta peninga og mér finnst að maður eigi ekki að hugsa um peninga. En ég ræð ekkert við þetta, ég var svona strax sem barn.“ Harmleikurinn í Goðdal / bakgrunni fjölskyldu þinnar er um- talaöur harmleikur sem varö í Goðdal í Bjarnarfiröi á Ströndum um miðja síö- ustu öld. Ertu til í aö segja okkur hvað þaö var sem gerðist og hver áhrif þaö haföi á Jjölskylduna. „í snjóflóðinu fórust amma mín, tvær dætur hennar, átta og tveggja ára, og þrír aðrir heimilismenn. Afi minn lá í fjóra sólarhringa undir snjó og var sá eini sem lifði af en var bugaður maður það sem hann átti eftir ólifað. Faðir minn og tvö systkini hans, sem þá voru unglingar, voru í heimavistarskóla þeg- ar þetta gerðist. Maður getur rétt ímyndað sér hvaða áhrif harmleikur eins og þessi hefur á þá sem eftir lifa. Menn jafna sig aldrei alveg. Þegar ég var bam setti menn ætíð hljóða þegar það hafði spurt um ætt mína og ég hafði svarað. Faðir minn og systkini hans hafa þurft að bera þessa sorg mestan hluta ævi sinnar. Það er ekkert létt fyr- ir mig að vita af því. Þetta er samt ekki harmleikur sem ég ber á herðunum. Þannig er ekki hægt að lifa. Ég geymi samt ákveðna minningu. Á heimili mínu er ein ljósmynd uppi á vegg. Það er mynd af ömmu minni sem ég þekkti aldrei en finnst ég samt þekkja af því hún er andlit á mínu heimili og verður það meðan ég lifi.“ -PÁÁ ISLAND - SLOVENIA Laugardagur: 4. jan. kl. 16:00 - Kaplakriki Sunnudagur: 5. jan. kl. 20:00 - Laugardalshöll Þriðjudagur: 7. jan. kl. 20:00 - Laugardalshöll Mætum öll og styðjum strákana okkar til sigurs Munið að sfökkva á kertunum Gætiö þess að undirlag kerta sé stöðugt og óbrennanlegt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.