Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2003, Page 47
LAUGARDAGUR JANÚAR 2003
HelQarblacf J3V
Yarís aftur mest seldi bíllinn
Fáir ógna Toyota þegar kemur
að tölum yfir mest seldu bíla árs-
ins. Eftir að Rav4 skaust óvænt
upp í toppsætið í fyrra hefur Yaris
nú endurheimt það, en hann var
líka mest seldi bíllinn árið 2000.
Hekla á nú fleiri bíla á topp 10 en
áður, er með VW Golf og Polo á
lista, og Skoda Oktavía nær að
skjóta sér upp í sjötta sæti. Alls
seldust 6.942 bílar í fyrra sem er
fækkun um 303 bíla frá samdráttar-
árinu 2001, en þá seldust 7.245 bíl-
ar. Þetta er fækkun um 4,2% og
nánast helmingur þeirra 13.569
bíla sem seldust árið 2000. Toyota
heldur áfram að vera langmest
selda einstaka merkið, með 1887
bíla, og ásamt 84 bíla sölu á Lexus
er P. Samúelsson með 1.971 seldan
bU og því 28,4% markaðshlutdeUd 854 bíla. Hér fyrir neðan má sjá
á árinu. Næst koma Hekla með topp 10 lista yfir mest seldu ein-
1.527 bUa og Ingvar Helgason með stöku gerðir og tegundir.
ISÆTI: GERÐ: FJÖLDI:
1. Toyota Yaris 429
2. Toyota Rav4 422
3. Toyota Corolla 340
4. Toyota Avensis 325
5. Volkswaqen Golf . 322
6. Skoda Octavia 281
7. Toyota Land Cruiser 90 243
8. Volksvaqen Polo 226
9. Subaru Leqacv 181
10. Opel Astra 170
I SÆTI: TEGUND: FJÖLDI:!
1. Toyota 1887
2. VW 829
3. Nissan 504
4. Subaru 350
5. Skoda 349
6. Hyundai 348
7. Opel 338
8. Mitsubishi 270
9. Ford 250
10. Suzuki 225
Tveggja
Audi mun áður en langt líður
bjóða upp á coupé-útgáfu á hinum
klassíska A4. BUIinn verður líklega
kynntur á næsta ári og upphaflega
var búist við aö um fjögurra dyra
útgáfu með öfugum afturhurðum
yrði að ræða. Eftir miklar prófanir
ákváðu verkfræðingar Audi þó að
halda sig við hina hefðbundnu
tveggja dyra hönnun. BUlinn er að
grunninum tU sá sami og A4-blæju-
bUlinn og verður meðal annars á
sama undirvagni og með sömu
möguleika á vélum. -NG
dyra Audi A4
Honda bíll sem Studio
Þessi Honda Studio E verður
fhamsýnd á bílasýningunni í Detroit,
sjötta janúar næstkomandi. Hér er
að mati Honda verið að kynna hugs-
anlega framtíð bílsins. Studio E er
ætlaður ungu fólki sem hefur gaman
af lífinu og er hægt að stækka bæði
vél og græjur. Reyndar er hægt að
stækka græjur það mikið að hægt sé
að plötusnúðast í aftursætinu en
einnig verður hægt að endurraða
sætum þannig að setið sé i hring.
Spumingin er svo hvað gera á við
bUinn þegar hann feUur úr tísku, á
að hengja hann upp í skáp eins og
gömlu svörtu gaUabuxumar? -DÞÓ
Mitsubishi frumsýnir tib
raunabí! ogjeppling í Detroit
Mitsubishi mun frumsýna tvo tU-
raimabUa á bUsýningunni í Detroit
sem hefst 11. janúar. Mitsubishi Tar-
mac Spyder er tilraunasportbUl sem
er byggöur á CZ-3 Tarmac tUrauna-
bílnum sem frumsýndur var á bUa-
sýningunni í Tokyo 2001. BUlinn
sýnir þá framtíðarsýn sem Mitsu-
bishi ætiar bUum sínum og er
einnig ætlað að prófa tækninýjung-
ar. Endeavor er hins vegar nýtísku-
legur jepplingur sem er hannaður
fyrir Ameríkumarkað og verður lik-
lega smíðaður þar. Hann fær líklega
V6 bensinvél og verður boðinn með
framdrifi eða fjórhjóladrifi. Endeav-
or kemur á markað í Bandaríkjun-
um í mars sem 2004 módel. -NG
Nýr og sérstakur sportbíll frá TVR
Ástæðan fyrir því að hér er verið
að fjalia um þetta lifia sjálfstæða
breska sportbUamerki er sú að TVR
var að frumsýna nýjan bU, Tamora
T350C, með áherslu á sportbU. T
stendur fyrir Tamora, 350 er hestafla
talan og C þýðir Coupé. Þessi bUl var
hannaður sem ódýr en engu að síður
öflugur kostur.
Öflug vél
Vélin í bUnum er mjög skemmtUeg
linusexa sem rúmar 3,6 lítra. Er þetta
minnsta linu sexan í boði frá TVR.
Það sem er sérstakt við þessa vél, fyr-
ir utan það að hún sé hönnuð og smíð-
uð af svona liUu einkafyrirtæki, er
hversu skemmtUeg hún er og þá sér-
staklega hijóðið. Hljóðið er sérstakt
því hljóðdeyfamir eru tveir mótor-
hjóladeyfar og eru alveg upp við vél-
ina og sjá þeir um þrjá strokka hver.
Svo er endingin mjög góð enda notuð
í Lemans 24 tíma keppninni. ÖU vélin
er úr áli og er hún keðjudrifin. Vélin
er iíka sett fyrir aftan framdekk tU aö
jafna þyngdardreifingu.
Með læst drif
Þessi eins og aðrir TVR er með vél
fram í og læst drif að aftan eins og
góðum sportbUum sæmir. Girkassinn
er fimm gíra og er kúplingin tvöfóld
tU þess að taka við þessum feikna-
krafti og upptaki en þetta á einnig við
um alla bUa frá þeim. Fjöðrun er tvö-
fóld klafafjöðrun að framan en sjálf-
stæð að aftan. Það sem er athyglisvert
með fjöðrunina er hversu mikU vinna
er lögð í hana. í Tuscan, en hann er
fyrirrennari Tamora, fór tæpt ár í
hönnun og uppstUlingu á fjöðrun.
Ekki þurfti að breyta henni í Tamora
því þar er sama stálröragrind og sama
vél og í Tuscan, dempun var bara að-
eins deyfð fyrir almennan markað.
Það sem gagnrýnendur lofa mest við
þessa bUa fyrir utan kraft er viðbragð
vélar og hversu góð tenging er á mUli
ökumannsins og aflsins, þ.e. hvemig
bensíngjöf er stillt og kúphng.
Ekki mikil þægindi
Ekki er mUcið um þægindi í þess-
um bUum og mætti halda að TVR
væri andstætt slíkum hugsunum. Svo
er þó ekki, reynt er einfaldlega að
hafa þyngd sem minnsta þvi maður
sparar ekki þyngd með rafmagnssæt-
um eða loftkælingu. Það eina sem
telja mætti þægindi em rafinágnsrúð-
umar og þar með er listinn aUur.
Ekkert ABS, engin skrið- eða spól-
vöm. Ljóst er að ekki er á færi allra
að eiga svona bU en það sem meira er,
ekki er á hæfi allra að keyra hann, 350
hö og rétt tonn aö þyngd. Sumir hafa
Ukt krafti og tilfmningu við mótor-
hjól. Þeir era ófáir sem hafa komið
með nýja TVR-inn sinn með brotna
panela aö aftan eftir fyrstu rigningu.
Þá hafa þeir óvart gefiö of mikiö i í
beygju og misst stjóm á bílnum. Aö
lokum mætti nefna verðið en það er
ekki nema 36.500 pund eða tæpar 5
milljónir, ekki slæmt það. -DÞÓ
TVR TAMORA T350C
Vél: 6 strokka línuvél
Ventlar: 24
Rúmsentímetrar: 3605
Hestöfl/sn: 350/7200
Snúninqsvæqi/sn: 393/5500
Hröðun 0-100 km: 4,4 sekúndur
Hámarkshraði: 280 km
Fjöðrun: Sjálfstæð klafafjöðrun
Dekk: 225/50 ZR16
Þynqd: 1000 kg
Brasifíu
Þótt sala á hinum nýja Fiat StUo
gangi Ula í Evrópu og Fiat-fyrirtæk-
ið sé í kröggum er annað uppi á ten-
ingnum í Suður-Ameríku. Þar hafa
viðtökumar verið góðar og nýlega
var fimm dyra Fiat StUo valinn bUl
ársins þar í landi. Niöurstöðumar
eru athyglisverðar fyrir það að
BrasUía er mikið bUaland og
stærsta markaðssvæöið í þessum
heimshluta. Einnig hefur fjöldi bUa-
framleiðenda verksmiðjur þar svo
framboðið er mikið. -NG
Sekt fyrir of
hratt símtal
I
Hætta er á að bUstjórar verði að
passa sig á að tala ekki í farsíma
sína á meðan þeir aka yfir hámarks-
hraða í náinni framtíð. Ný uppftnn-
ing frá IBM gerir símafyrirtækjum
kleift að hækka gjaldið fyrir símtal-
ið ef það er úr bU sem ekur of hratt.
Rétt er að taka fram að kerfiö er
ekki hugsaö tU að sekta viðkomandi
heldur tU þess að slökkva á símtal-
inu fari ökumaöur yfir hraðamörk-
in. Símafyrirtæki gætu þó freistast
tU þess að hækka frekar gjaldskrána
tU að auka gróðann. Líklega viU þó
lögreglan helst geta ráðið yfir þess-
ari tækni og þá i samstarfi við síma-
: fyrirtækin. Ætli sektin kæmi þá
ekki tU baka með SMS-skeyti? -NG