Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2003, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2003, Síða 4
Fréttir FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 2003 H>V Maður ákærður fyrir tilraun til manndráps - nýr vitnisburður sambýliskonu í gær: Játar að hafa viljandi reitt ákærða til reiði - konan ber síðan við algjöru minnisleysi þegar hún varð fyrir hnífstungu Þegar fyrrverandi sambýlisfólk, sem hefur verið í mikilli áfengis- og vímu- efnaneyslu, var í vitnastúku í máli ákæruvaldsins gegn manninum í gær mátti ljóst vera hve skelfilegar afleið- ingar óregla getur haft i fór með sér. I þessu tilfelli bar yfirlæknir á Landspít- alanum reyndar að litlu hefði mátt muna að konunni hefði blætt út, eftir að maðurinn lagði til hennar með stór- um eldhúshníf sem dómsformaðurinn í máiinu sýndi i réttinum. Leiddar voru líkur að því að aðeins millímetrum munaði að hnífslagið, Sem var hátt í 5 sentímetra djúpt, fór ekki i aðalæð i hálsi. Maðurinn er ákærður fyrir tilraun til manndráps. Hann neitar alfarið slíkum ásetningi - segir m.a. að sér þyki vænt um konuna en verst verið að hún hefði gert í því að gera sig „snælduvitlausan" eða óðan „úr reiði“ „Ég var undir það miklum áhrifum ég var ekki með sjálfum mér,“ sagði maðurinn, sem er öryrki, og vísaði meðal annars tU fráhvarfseinkenna vegna fíkniefna- og lyflaneyslu. Ákærði var nýkominn í fylgd varða frá Litla-Hrauni, en hann setið í gæsluvarðhaldi frá því í sumar, þegar hnífaárásin átti sér stað í konunnar á Boðagranda. Maðurinn kvaðst hafa tekið lyfin sín áður en hann kom fyrir dóminn en hann geng- ur ekki heUl tU skógar. Meðal annars þurfti hann itrekað að óska eftir að saksóknari eða dómari endurtækju spurningar sínar vegna athyglisbrests. „Sniðug að ýta á takka" Þegar konan kom fyrir dóminn sagði hún meðal annars eftirfarandi: „Ég er dálítið sniðug að ýta á takka.“ Dómarinn spurði hvað hún ætti við með þessu. Hún svaraði: „Ég reitti hann tU reiði með því að ljúga.“ Þar vísaði hún tU þess að maðurinn hafði ráðist á hana um vorið og veitt henni ýmsa áverka. Út úr því varð lögreglu- mál en fólkið var eftir það búið að ræða það sin á mUli, meðal annars meö tiUiti tU hvað sagt yrði fyrir dómi. Konan viðurkenndi síðan að stuttu fyr- ir hnífaárásina - þar sem hún fékk djúpa stungu í háls - hefði hún sagt manninum ósatt á heimUi sinu - þóst vioræoum vio verjanoann Akæröi kom austan aö Litla-Hrauni í gær og var spuröur ítarlega út í atburöarásina sem átti sér staö á Boðagranda í sumar, þegar sambýiiskona hans hlaut djúpa hnífstungu í háls og hann olnbogabraut hana aö auki. Ottar Sveinsson blaðamaður regluyfirheyrslum og svo framveg- is. Hins vegar var framburður þess stöðugur í dómsalnum í gær, þar sem samræmi var í raun í flestu, meðal annars hvað varðar að þau vissu hvorugt sitt rjúkandi ráð eftir að konan hafði orðið fyrir hnífslag- inu. Þau hefðu meðal annars „rætt um“ að setja sápu á gólfið og láta þannig líta út fyrir að konan hefði ver- ið að skúra en síðan faUið á hnífinn. Konan bar við algjöru minnisleysi um það með hvaða hætti hún var stungin. Hún hefði munað glöggt að hafa hringt i systur sína áður en hún myndi svo ekkert um sjálf átökin. Á hinn bóginn kvaðst hún muna eftir ráðagerðunum um að setja atburðinn hugsanlega á svið - og því að hún og maðurinn teldu að lögreglan myndi sennUega aldrei trúa því að um slys hefði verið að ræða - og að síðustu að hún hefði beðið manninn um að hringja í systur sína þegar aUt var komið í óefni og hún Ula skorin á hálsi. Maðurinn er jafnframt ákærður fyr- ir að hafa handleggsbrotið konuna í sömu átökum. Hann viðurkennir það athæfi og kannast jafnframt við aö skurður á augabrún konunnar hljóti að hafa verið af hans völdum. Maðurinn er auk þess ákærður fyrir að hafa veist með ofbeldi að sömu konu í maí eins og fyrr greinir - slegið hana margsinnis í höfuð og lUcama og slegið höfði hennar utan í vegg. hafa tekið afrit af skjölum líkamsárás- armálsins og geymt þau i bankahólfi. Maðurinn sagöi að stöðugt og vísvit- andi áreiti konunnar vegna þessa hefði verið óþolandi. „Hún sagðist ætla að tortíma mér,“ sagði maðurinn. „Hún sagðist vera búin aö smita mig af eyðni... hún sagð- ist vera með eyðni,“ sagði maðurinn en dró þó hvergi dul á að hann hefði verið „orðinn ruglaður“ af frá- hvarfseinkennum. „Ég var alls ekki í lagi.“ Ákærði bar jafnframt að skömmu áður en hann lagði tU kon- unnar með hnífnum hefði hann ætlað að kaupa amfetamín af tUteknum manni, en af þvi hefði ekki orðið. Rætt um sviðsetningu Fram að þessu hefur talsvert bor- ið á miUi hjá fólkinu, það er í lög- ítrekaðar lokanir vegna endurbóta á Skólavörðustíg: Megn óánægja meðal kaupmanna - vilja fresta framkvæmdum um eitt til tvö ár DV-MYND SIGURÐUR JÖKULL Fundað um framkvæmdir á Skólavörðustíg Ófeigur Björnsson, gullsmiöur á Skólavöröustíg, skoöar teikningar af fyrirhug- uöum breytingum ásamt Önnu Maríu Sveinbjörnsdóttur. Megn óánægja er meðal kaupmanna vegna lokana á verslunargötum ár eft- ir ár við Laugaveg, Skólavörðustíg, Bankastræti og víðar, en fúndað var um málið miðvikudagskvöld. Ófeigur Bjömsson, guUsmiður á Skólavörður- stíg 5, segir að lögð hafi verið fram tU- laga um málið á fúndinum. „Við gerð- um að tUlögu okkar að ekki verði farið í þessar framkvæmdir á Skólavörðu- stíg í ár. Heldur á næsta eða þar næsta ári og þá tekið aUt í einu og hliðargöt- ur líka. Borgin ætlar að skoða þennan möguleika." Víðir Þorgrímsson, kaupmaður í Tösku- og hanskabúðinni, á homi Skólavörðustígs og Bergstaðastrætis, segir kaupmenn óánægða með tilhögun fyrirhugaðra framkvæmda á Skóla- vörðustíg sem kaUa á lokun hluta göt- unnar bæði á þessu og á næsta ári. Hann segir kaupmenn vUja að verkið verði unnið í einu lagi. Á síðasta sumri vom neðstu hlutar Laugavegar og Skólavörðustígs lokaðir mánuðum saman vegna endurbóta. „Okkur líst Ula á að það á að taka efri partinn af Skólavörðustíg í tveim- ur áfóngum. Fyrst á að ráðast í fram- kvæmdir á mUli Týsgötu og Baldurs- götu og á næsta ári spottann sem eftir er upp að kirkju. Við viljum láta hespa þessu af því erfitt er að búa við þessar framkvæmdir ámm saman. Rökin hjá borginni vom þau að það tæki of lang- an tíma að taka aUt í einu með tUliti tU ferðamanna. Ég held þó að Ulu sé best aflokið," segir Víðir Þorgrímsson. Breitt akstursstefna Víðir segir að viku fyrir jól hafi borgin tekið upp á því að snúa við akst- ursstefnu á Bergstaðastræti tU að auð- velda aðkomu að bUastæðahúsi. Er nú ekið upp götuna frá Laugavegi að Skólavöröustíg. Hann segir að þetta hafi leitt tU þessa að aðkoma m.a. að hans verslun með vörur verði miklu verri fyrir vikið og vU hann láta breyta akstursstefhunni á nýjan leUc. Þá segir hann að með þessu sé verið að beina umferð sendi- og vörubUa, sem leið eiga i Bergstaðastrætið, niður á Lauga- veg með tilheyrandi vandamálum. Borgin gerir ráð fyrr að ráðast í end- urbætur á Bergstaðastræti og Vega- mótastíg á þessu ári og gert er ráð fyr- ir að verkið taki 4-5 mánuði. Fundað var um þetta mál á þriðjudag og einnig um fýrirhugaða lokun á Bankastræti frá 1. mars tU 17. júní. Lokað verður í efri hluti Bankastrætis niður að Skóla- stræti, en neðri hluti götunnar látinn bíða. Sigurður Ingi Skarphéðmsson, gatnamálastjóri Reykjavíkurborgar, segir vel mögulegt að klára Skóla- vörðustíginn á einu ári. Það þýði þó að framkvæmdatíminn lengist og muni standa frá því í byrjun mars og fram á seinni hluta sumars eða haust. Hann segir að borgaryfirvöld muni nú fara yfir framkomin sjónarmið. Þar verði m.a. skoðað að fresta framkvæmdum og að snúa við á ný akstursstefnu í Bergstaðastræti. -HKr. ■ 1' 11 «: -— aswzr'RMP'*1 ■-*- ■®EBEs!L_ Doktaciílin* 125 mg W Hægir á vexti í lyfjasölu Vöxtur í lyfiasölu í heiminum á síðasta ári (des. 01-nóv. 02) var um 7% og hefur ekki verið minni í fiögur ár. í Bandaríkjunum var vöxturinn 11%, um 6% vöxtur varð í Evrópu en aðeins 1% í Japan. í skýrslu frá IBM ráðgjöf kemur fram að lyfiafyrirtækin verði að gripa til róttækra aðgerða i rann- sóknum, þróun og prófunum til að bregðast við hægari vexti. Talið er að nýjar rannsóknaraðferðir muni fela í sér samþættingu líftækni og upplýsingatækni og geti stytt þró- unarferli lyfia úr 10 árum í 3-5 ár. Jafnframt eru bundnar vonir við að unnt verði að lækka kostnað við lyfiaþróun um allt að 75% fyrir árið 2010, eða úr um 800 milljónum dollara að jafnaði í um 200 milljón- ir dollara. -VB Lömuö eftir bílslys: Fótbolti til styrktrar góðri vinkonu „í nóvember lenti góð vinkona okkar, Rebekka Alwood, á gjörgæslu í 2 vikur eftir hræðilegt umferðar- slys á Vesturlandsvegi á leið sinni á fótboltaæfingu í íþróttahúsinu Varmá, Mosfellsbæ. Hún slapp vel miðað við hvernig á horfðist og það sem við höldum að hafi skipt mestu máli var að bækl- unarlæknir kom fyrstur á slysstað og hlúði að henni. Rebekka brotnaði á fæti og einnig aftan á hálsi. Hún hlaut rispur hér og þar um lík- amann og fékk heilahristing. Þessi vinkona okkar liggur nú enn á sjúkrahúsi og getur hvorki talað né gengið." Þetta er upphaf bréfs sem vinkon- ur Rebekku hafa sent fiölmiðlum og í framhaldi segir að Rebekka sé frá- bær manneskja, góð vinkona og glaðlynd stelpa sem hafi mikinn viljastyrk og telja vinkonur hennar að það eigi eftir að hjálpa henni á bataveginum. Til að létta undir ætl- ar Kvennaráð knattspyrnudeildar Aftureldingar að halda fótboltamót fyrir stelpur í 6. og upp í 2. flokk og mun allur ágóði af mótinu renna til Rebekku og fiölskyldu hennar. Mót- ið verður haldiö á laugardag og sunnudag í íþróttahúsinu að Varmá, Mosfellsbæ. Á mótinu verður selt bakkelsi, kaffi o.fl. og verður söfnun- arbaukur á staðnum. Fyrir þá sem hafa hug á að styrkja Rebekku og hennar fiölskyldu er búið að opna bankareikning í íslandsbanka i Mos- fellsbæ og er reikningsnúmerið 0549- 14-103030. -HK Starfatorg.is kært Rekstur vefsvæðisins Starfa- torgs.is hefur verið kærður til Samkeppnisstofnunar. Á Starfa- torgi er birtrn- listi yfir þau störf sem laus eru til umsóknar hjá um 140 ríkisstofnunum. Fjármálaráðu- neytið heldur vefnum úti. Bryndís Hlöðversdóttir, þingmað- ur Samfylkingarinnar, spurði fiár- málaráðherra um þessa starfsemi á Alþingi í fyrradag. Bryndís telur augljóst að hér sé á ferðinni ríkis- rekinn auglýsingamiðill sem seilist auk þess inn á starfssvið ráðning- arfyrirtækja. Fjármálaráðherra seg- ir fráleitt að líta svo á að allar upp- lýsingar og fréttir sem ríkið birti á Netinu séu í samkeppni við hefö- bundna auglýsingamiðla, fréttastof- ur eða aðra. -ÓTG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.