Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2003, Side 35

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2003, Side 35
FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 2003 35 Aron Kristjansson fekk þrjsr ferottvisanir i leiknum i gær og þvi rautt spjatd. Her synir dómari jeiksins honum rauöa spjaldiö og er Aron ekki sáttui. Faö er engu likara en aö Guömundi Guðmundssyni iartésiiösþjáiÉtfa se ötlum lokiö. DV-mynd Hilmar Por 7TT caca 0 , ALLT UM HM / HANDBOLTA Eg reyndi allt sem ég gat - sagði Ólafur Stefánsson, máttarstólpi íslenska liðsins „Eðlilega er maður langt niðri eftir svona leik enda ætluðum við okkur medalíu í þessu móti. Við börðumst eins og dýrvitlausir menn allan tímann og það finnst mér aðdáunarvert. Með smá lukku hefðum við getað unnið en við verðum að horfa á þá staðreynd sem kemur upp í hveiju augna- bliki. Hún er sú að við þurfúm að fara að keppa um sæti á ólympíu- leikum. Nú verður maður að gíra sig niður en það verður allt annað en auðvelt að rífa sig upp eftir þennan leik,“ sagði Ólafur Stefáns- son eftir leikinn. Stoltur af strákunum - segir Einar Þorvarðarson aðstoðarþjálfari Að mínu mati erum við að leika mjög góðan leik í raun og veru. Liðið er þó að gera sig sekt um mörg tæknileg mistök sem gera það að verkum að við missum þá frá okkur. Að sjálfsögðu var fyrri hálfleikurinn vamarlega séð mjög dapur en við náðum aldrei í þá. En ég held að í sjálfu sér hafi ekkert farið úrskeiðis en við verðum að hafa það í huga að við vorum að leika gegn mjög sterku liði. Að leika héma var eins og fyrir Spánverja að leika á heimavelli og ég er stoltur af frammistöðu okkar manna,“ sagöi Einar Þorvarðarson aðstoðar landsliðsþjálfari í samtali við DV eftir leikinn við Spánverja í gærkvöld. - Hvað olli því að vömin small ekki saman? Hún hefur lengi verið einn sterkasti hlekkur liðsins. „Miðjan í vöminni í 6-0 er of hæg og við náðum ekki að brjóta niður hraöa spænska liðsins. Við sáum þessa stöðu koma einnig upp í leiknum gegn Pólverjum. Það er vömin sem hefur verið að gefa liðinu mikinn styrk, og því var erfitt að standast Spánverjum snúning þegar hún stendur ekki vaktina. Þetta var yfir höfuð geysilega erfiður leikur og ekki bætti úr skák sá stuðningur sem spænska liðið fékk í leiknum. Tæknileg mistök verða enn fremur okkur að falli og það eru Spánverjar fljótir að nýta sér.“ - Úr því sem komið er hlýtur stefnan að vera sú að vinna sæti á ólympíuleikunum. „Að sjálfsögðu er það markmiðið eins og við settum okkur í upphafi. Við eigmn möguleika á að tryggja okkur það sæti með sigri i laugardags- leiknum og ég ætla að vona að okkur takist það. Þetta er alls ekki búið en auvitað hefði verið þægilegra að fara þá leiö að vinna sigur í þessum leik,“ sagði Einar Þorvarðarson. -JKS - Getur þú sagt hvað fór úr- skeiðis hjá liðinu? „Allan tímann var vömin ekki eins og hún á sér að vera og við fengum allt of fá hraðaupphlaup. Ef við eigum að eiga möguleika í svona leik verðum við að skora mörk úr hraðaupphlaupum en við það spararst orka. Það gerðist ekki og við þurftum að eyða henni í öðr- um þáttum leiksins. Þetta var mjög erfiður leikur og ég gerði mistök í lokin sem er aðeins of mikið fyrir minn smekk. Ég reyndi allt sem ég gat og var orðinn þreyttur. Það er samt engin afsök- un og ef það er reyndin þá verð ég bara að vera í betra formi. Það er okkar hlutverk að standa okkur sem handboltamenn og nú verðum við að höndla það sem að höndum ber. Við eigum tvo sénsa eftir og nýtum þá vonandi," sagði Ólafur Stefánsson. -JKS Gríðarleg vonbrigði Patrekur Jóhannesson var að vonum vonbrigðin ein í leikslok og átti ekki létt með að tjá sig um leikinn að honum loknum. „Það eru gríðarleg vonbrigði að missa af sæti í undanúrslitun- um. Við vorum að gera of mikið af mistökum, þar á meöal ég, og þau vógu þungt þegar upp er staðið. Mikið var það leiðinlegt að það skyldi gerast á þessari ör- lagastundu. Nú er að bretta upp ermar og klára leikina um helg- ina og sækja sætið sem tryggir okkur inn á Ólympíuleikana. Meira hef ég ekki að segja svona stuttu eftir leik. Ég er miður mín,“ sagði Patrekur Jóhannes- son í samtali við DV eftir leik- inn. -JKS vU/ Okkar menn í 1 Portúgal Spænskir áhorfendur áttu eitthvað vantalaö viö Ólaf Stefánsson í gær og sendu honum tóninn inná völlinn eins og sjá má á þessari mynd Hilmar Þórs Guðmundssonar, Ijósmyndara DV-Sport. Þetta er ömurlegt - segir Sigurður Bjarnason eftir tapleikinn gegn Spánverjum Jón Kristján Sigurösson blaðamaður Hilmar Þór Guðmundsson, Ijósmyndari „Þetta er ömurlegt og svo svaka- lega sárt en við erum svo ótrúlega nálægt þessu annað árið í röð. Mér fmnst þetta þó sýna mikinn karakt- er í liðinu hvað okkur tókst að hanga í spænska liðinu þrátt fyrir að lykilmenn séu að detta út. Patrekur er búinn að snúa á sér ökklann í tætlur og það gerði hon- um erfitt um vik. Ég sjálfur er ekki nógu góður í hnénu en það er kannski engin afsökun. Ég veit ekki almennilega hvað ég á að tína til á þessari stundu," sagði Sigurður Bjamason eftir leikinn í gærkvöld. - Vamarleikurinn er kannski það sem verður liðinu að falli í leiknum? „Ég er ekki að kenna einum eða neinum um en ég er ekki sáttur við að einn og sami maðurinn hjá Spán- verjunum er aö skora þetta grimmt í leiknum. Það varð að stöðva hann með einhverjum hætti en svona gekk þetta allan leikinn. Það er lít- ið við þessu að gera núna en það eru tvö mörk sem skilja að annað árið í röð. Það er ekkert annað sem heitir en að vinna þessa tvo leiki sem eftir eru og tryggja þar með ólympíusætið. Fyrst er að byrja á Rússum og halda áfram og gefast ekki upp. Við erum ekki næstum þvi búnir enn þá,” sagði Sigurður Bjamason. -JKS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.