Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2003, Side 19
LAUGARDAGUR I. FEBRÚAR 2003
Helgorblaö H>V
19
5. t-': • ’
. N
~■?. ■ i'w i
„Prinsessan mín, Theódóra, varð sex ára í olttóber og
litla dúllan, Arnór Blær, verður fjögurra ára í febrúar
- við eigum sama afmœlisdag, ég fékk hann í afmælis-
gjöf. Og það var æðisleg afmælisgjöf," segir Kolbrún
Björnsdóttir, annar umsjónarmanna Djúpu laugarinn-
ar á Skjá einum.
DV-rayndir Sigurður Jökull
Gríman felld
Flestir þátttakendur í Djúpu lauginni eru milli tvi-
tugs og þrítugs. Hefur viðhorf fólks til sambanda
breyst fyrst svo margir elta ástina í beinni útsend-
ingu? Hefur þráin eftir ást og samböndum breyst?
„Ég held að fólk sé sjálfstæðara í dag en áður og
finnist það ekki endilega þurfa að eiga „betri helm-
ing“. Fólki líður betur einu núna en fyrir nokkrum
árum. Fæstir af þeim sem koma í þáttinn okkar eru í
leit að ást. Auðvitað er það frábært ef fólk finnur ást-
ina í þættinum en hann gengur fyrst og fremst út á
það aö kynnast nýju fólki. Það eru fáir ástsjúkir í hópi
þátttakenda."
Er þetta kannski bara ný leið til að bjóða fólki upp
í dans?
„Já. Og þetta gerir mikið fyrir fólk. Mánuðum eftir
að fólk kemur fram i þáttunum og jafnvel árum er það
enn stöðvað á skemmtistöðum og spurt hvort það hafi
ekki verið í Djúpu lauginni. Þetta er því góð kynning
á einstaklingum. Fólk setur alltaf upp grímu á
skemmtistöðum. Það þorir ekki að tala við hvern sem
er. Þótt maður sjái strák eða stelpu við barinn þá veit
maður ekkert hvernig manneskja viðkomandi er því
fólk er iðulega búið að villa á sér heimildir varðandi
útlit og karakter. Þegar fólk hefur verið í Djúpu laug-
inni, og þetta á sérstaklega við um þá sem svara
spurningunum, eru komnar fram mikilvægar upplýs-
ingar um það: við vitum hvernig það brosir og hlær,
um áhugamálin og þess háttar. Þegar þetta fólk kemur
inn á skemmtistaðina kemur fólk til þess og ræðir við
það því mörgum finnst þeir þekkja það. Gríman hefur
verið felld og þá er grundvöllur fyrir samræðum.
Það er ömurlegt hvað íslenskir skemmtistaðir eru
mikill óraunveruleiki. Þar eru flestir að leika ein-
hvern annan og mjög fáir eru þeir sjálfir. Þess vegna
held ég að það sé mjög óraunhæft að ætla að finna
makann sinn á djamminu!"
Gott að kúra á kvöldin
Áttu þér einhver áhugamál fyrir utan vinnuna?
„Börnin mín. Ég er mikið á heimilinu þegar ég get.
Ég bý ekki á bleiku skýi: ég þvæ þvott, þríf klósett,
elda mat, skipti á rúmunum og vaska upp. Og nýlega
er ég byrjuð í hestamennskunni. Ég hef lengi ætlað að
flnna mér hreyfingu. Ég er enn frekar léleg á línu-
skautunum en lofa sjálfri mér því á hverju vori að
verða rosalega góð. Og ég lofa því aftur í vor. En ann-
ars er ég mjög heimakær og fer fátt. Mér þykir ofboðs-
lega gott að kúra á kvöldin með kærastanum.“
Áttu hest?
„Nei, ég fer með vinkonu minni á bak. Hún lánar
mér hest, hnakk og galla. Reiðfótin eru á óskalistanum
fyrir afmælið mitt.“
Og hesturinn líka?
„Já, hestur og hnakkur. Svona litlar gjafir!“
Þú þyrftir að fermast aftur.
„Já, ég þyrfti þess. Annars á ég þrítugsafmæli á
næsta ári sem gæti verið góð afsökun fyrir dýrari
gjöf.“
Alltaf einhver sem þelddr mig
Heldurðu að Djúpa laugin verði ævistarfið?
„Nei, ég lít frekar á Djúpu laugina sem tilbreytingu
eða byrjun á einhverju öðru.“
Hvernig er að vera þekkt á íslandi?
„Það er mjög skrýtið. Ég hef lesið viðtöl við þekkt
fólk á íslandi sem segist ekki taka eftir því að á það sé
horft í búðum. Mér finnst það fyndið! Þetta fólk hlýt-
ur annaðhvort að vera blint og heyrnarlaust eða þá að
það skammast sín fyrir að viðurkenna það. Mér finnst
frábært þegar fólk kemur til mín og spyr mig út í þátt-
inn. Ég er samt ekki að segja að ég sé neitt merkilegri
en Gunna við hliðina á mér, langt frá því.“
En það er fylgst með þér?
„Já, það er næstum sama hvert ég fer, það er alltaf
einhver sem þekkir mig. Það er líka óhjákvæmilegt
þar sem þátturinn hefur svo gifurlegt áhorf. En það er
allt í lagi. Maður verður bara að hafa húmor fyrir
sjálfum sér; það má ekki taka sjálfan sig of alvarlega.
Þá færi maður fljótt yfir um.“ -sm