Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2003, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2003, Síða 22
22 Helgarblað DV LAUGARDAGUR I. FEBRÚAR 2003 ... kíkt í snyrtibudduna * Edda Björq Eyjólfsdóttir leikkona i/ill snyrtivörur sem hægt er að nota á marga vegu, eru fljótleqar ínotkun og kosta ekki mikið. Um þessar mundir leikur Edda í tveimur verkum íBorqarleikhús- inu og kennir hjá Stúdentaleikhúsinu en mun bráðlega leggja allt til hliðar þar sem hún á von á barni ílok mars. Frískleg útivera í kinnamar „Þetta er Mac kinnalitur sem heitir Well Dressed Satin og er til að fá rósalit í kinnarnar. Ég kann mjög vel við þessar Mac-vörur en þær fást ekki á íslandi. Ég er alltaf að bíða eftir þeim en hef nálgast þær bæði í Ameriku og Evrópu. Sambærilegur litur sem fæst hér heima væri Barely Rose frá Face. Það er mjög sniðugt krem sem ég hef haft í langan tíma og ber á varirnar, kinnarnar, augun og þá fær maður svona frísklega útiveru í kinnarnar.“ Tvcggja hæða púður „Ég var að fá þetta púður sem er mjög mikil uppgötvun fyrir mig af því loksins fann ég alveg frábæran lit. Það er frá La Prairie og heitir Baige Dore. Það er með spegli og sér hæð fyrir púðann. Ég nota ekki meik, en mér finnst gott að geta látið á mig svona fast púður því það er fljótlegra. Hafa allt ftjótlegt, það er stefnan. La Prairie er þó heldur dýrt en það er besta púður sem ég hef prófað.“ Malt frá Mac eða Nepal frá Narsh Þetta er mattur augnskuggi sem heitir Malt og er frá Mac. Hann myndar náttúrulega skyggingu og er hægt að nota hversdagslega. Það er einhver galdur í því að mála sig og vera náttúrulegur. Ég fann annan sambærilegan lit hérna heima frá Narsh sem heitir Nepal en hann er aðeins meira sanseraður." Margnota augnskuggi „Ég er með annan Mac augnskugga sem er miklu uppáhaldi hjá mér. Hann heitir Nylon og er mjög sanseraður. Hann getur í raun farið hvar sem er. Mér finnst það einmitt skemmtilegt að finna vörur sem hægt er að nota á marga staði, varir, kinnar, augu. Það er sparnaður í því.“ Rúsínulitað gloss „Svo er ég með eitt gloss sem er rús- ínulitað og heitir Raisin, nr. 23 frá Lancöme, Juicy Tupes. Ef maður set- ur það á sig dreifist glossið mjög vel og varirnar verða með sínum eðlilega lit. Annars er hægt að stjórna því með því að láta minna eða meira af glossinu á sig. Það dreif- ist líka af sjálfu sér og maður þarf ekki að hafa fyrir neinu, ekki neinn varablýant eöa neitt. Annars er AD „rassabossakremið" mjög gott af því maður er alltaf með varaþurrk núna. Varablýantur og AD krem og þá er maður tilbúinn." Fyrir þærsem hafa gefist upp á að svitna ílíkamsræktinni eftir jólin er nú komin ný leið íbaráttunni við aukakílóin sem krefst lítillar sem engrar fyrirhafnar. Þetta hljómar kannski ótrúleqa en á gardar.com og femin.is er hægt að panta geisladiskinn „Losnað við kílóin“ en með þvíað hlusta reglulega á að vera hægt að ná kjör- þynqdinni fyrir fullt og allt. Megrun og máttur hugans Geisladiskurinn byggist á samvirkni tónlistar og slökunaræfinga ásamt sérstakri leiðsögn. Markmiðið er að breyta viðhorfi hlustandans með þvi að endur- mennta undirmeðvitundina þannig að hann tileinki sér þann lifsstil sem verið er aö vinna með. Á bak við gerð og útgáfu „Losnað við kilóin" standa þau Garðar Garðarsson og Signý Haf- steinsdóttir. Garðar fór til Bandaríkjanna árið 1988 og læröi aðferðafræði sem byggist á dáleiðslu, sálfræði, málvísind- um og tölvukerfis- fræði. Signý tók saman allt efnið se: Garðar hafði skr niður í gegnum ái kom því yfir á geisla diska. Breyting að innan Garðar segir að geisladiskamir bygg- ist allir á sömu aðferð. „Það er slökunin til að auka aðgang að undir- meðvitundinni, síöan eru ákveðnar staðhæf- ingar og myndlíkingar sem tengjast því tiltekna markmiði sem viðkomandi er að vinna með og svo vöknun. Þvi oftar sem hlustað er færist viðkomandi nær markmiði sínu.“ Signý og Garðar viðurkenna að það geti hljómað ótrúlega að grennast við að hlusta á geisladisk en Signý segir fljótt: „í rauninni er þetta samt ekkert svo ótrúlegt því að það er hugurinn sem stýrir þessu hvort sem er. Hlustunin kemur svo fólki til að framkvæma hlutina." Garðar segir suma eiga erfiðara með að ná árangri en aðra og þurfa hjálp til að vinna bug á þeim sálrænu og hugrænu fyrirstöðum sem hindra þá í að ná markmiðum sínum. „Það vita allir að það þarf að borða minna og hreyfa sig meira, en af hverju nær fólk þá ekki árangri? Það eru viðhorfin sem stoppa það. Meö því að hlusta reglulega á diskinn tileinkar fólk sér jákvæðari viðhorf þannig að breytingin kem- ur innan frá og svo út í samræmi við árangurinn sem það vill ná,“ segir Garðar. Hann heldur áfram og út- skýrir: „Viðhorfin hjá okkur eru eins og stýrikerfl í tölvum, þau stýra hegðuninni og hugsuninni og hvern- ig fólk bregst við. Með því að breyta viðhorfununum breytum við hegðuninni." Eldíi slíyndilausn Signý leggur áherslu á að hlustunin sé ekki einhver skyndilausn. „Fólk getur ekki búist við einhverj- um skyndilausnum eins og að losna við tíu kíló á einum mánuði. í þessu breytir fólk lífsstílnum þanhig að það losnar við tiu kíló á nokkrum mánuðum og þá heldur það því.“ Garðar segir að mark- miðið sé að ná kjörþyngd og vera þar. Signý og Garðar bjóða upp á fleira en hjálp við megrun. Alls hafa komið út átta geisladiskar sem ýmist hjálpa fólki að ná betri svefn og kyrrð, öðlast meira sjálfstraust, auka ánægju sína, fá meiri einbeitingu og svo eru geisla- diskar sem hjálpa fólki að hætta að reykja og minnka verki. Margir diskanna eru gerðir vegna óska viðskipta- vina eins og auðlegðardiskurinn sem er vinsælastur um þessar mundir enda sá nýjasti. Einbeitingardiskurinn hefur hlotið góðar viðtökur hjá karlmönnum auk þess að hafa eitt sinn hjálpað ofvirkum einstak- lingi að ná betri einbeitingu og ró. Næsta skref hjá þeim Garðari og Signýju er að gefa út geisladiskana í Svíþjóð og Þýskalandi. -hab Signý og Garðar reka útgáfufyrirtækið Hugbrot sent gefið hefur út fjöldann allan af sjálfshjálparbókum og geisladiskum. Hjá Hugbroti er hægt að fá geisladiska sem hjálpa þér að hætta að reykja, efla sjálfstraust og einbeitingu, að óglevmdum megrunargeisladisknum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.