Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2003, Qupperneq 38

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2003, Qupperneq 38
42 HeIqorbloö X>V LAUGARDAGUR I. FEBRÚAR 2003 Aldurinn hækkar og atgervið I nýrri skýrslu frá Hagfræðistofnun Háskóla Is- lands er rýnt íþéttbýlismgndun á Islandi og bgggðaþróun. Þar er dregin upp mgnd af hljóð- látri bgggðabyltingu sem hefur dregið bróður- partinn afungu fólki að heiman til Regkjauíkur og eftirsitja minnkandi samfélög landsbgggðar þarsem meðalaldur hækkar stöðugt og mennt- unarstig lækkar. Ásgeir Jónsson frá Hólum er einn höfunda skýrslunnar. Ef marka má það sem stendur í nýrri skýrslu um byggða- mál frá Hagfræðistofnun Háskóla íslands hefur orðið bylting á íslandi. Þetta er bylting í búsetu sem felur það í sér ekki aðeins hefúr fólk haldið áfram að streyma úr strjálbýli til þéttbýlis heldur hefur aldurssamsetning samfélagsins, sem áður var áþekk yfir allt landið, breyst umtalsvert á undanfómum 20 árum. Sá mikli fjöldi ungs fólks sem áður bjó hringinn í kringum landið hefur nú hópast til Reykjavíkur. Þegar litið er á cddursdreifmgu á landsbyggðinni sést stórt skarð sem fólk á aldrinum 20-40 ára hefði átt að fylla. í skýrslunni sjást fá merki um að þessi þróun sé að snúast við þótt tilhneiging sjáist í þá átt að fólk flytji til þéttbýliskjama í nágrenni Reykjavíkur. Því er spáð að margvísleg vandamál muni skapast í mörgum sveitarfé- lögum úti á landi eftir 20-30 ár, þegar fólk á miðjum aldri, sem nú heldur byggðinni uppi, fer á eftirlaun. Þegar litið er á þann hluta skýrslunnar sem fjallar um menntun og búsetu verður ekki séð annað en þar sé stað- festur sá atgervisflótti sem margir hafa talið að setti sí- vaxandi svip á samfélög úti á landi. I skýrslunni segir orðrétt: Ásgeir Jónsson er sveitastrákur Samgöngur vixma gegn dreifbýli um hlutum, s.s. vexti sjávarútvegs og upphafi sjósamgangna. „Síðan fara íslending- ar hratt yfir sögu í þjóð- félagsþróun og þéttbýl- ismyndun á íslandi í byijun aldarinnar var mjög hröð, og í raun lik- ust því sem sést í þriðja heiminum í dag. Þessar hröðu breytingar hlutu að valda umróti meðal þjóðarinnar." Ásgeir hefur skrifað margt um áhrif sam- gangna á búsetu fólks og breytingar á henni og vill meina að skortur á samgöngum og síðar mikil bót á þeim hafi haft mun meiri áhrif á þéttbýlismyndun en margt annað. „Þéttbýlismyndun á íslandi var mjög hröð þótt barist væri gegn henni með öllum ráð- um. Ég held að ef stjóm- völd hefðu snemma tek- ið meðvitaða ákvörðun um að styrkja ákveðna kjama á Norðurlandi og Austurlandi væri Reykjavík alls ekki eins stór í dag og raun ber vitni.“ Stöðug vamarbarátta - Er hægt að leggja eitthvert mat á það í ljósi sögunnar hvemig eða hvort byggðastefn- an hefur borið einhvem árangur? „Þetta hefur verið vamarbarátta aUan tímann," segir Ásgeir. „Það er erfitt að segja hvað hefði gerst ef ekk- ert hefði verið aðhafst. Hafl markmikið verið að hægja á þróuninni og hagfrœðingur frá Hólum Hjaltadal. Hann lýsir þá hefúr það án efa tek- byltingu í byggðamálum í nýrri skýrslu. ist en ef markmiðið hef- ur verið að snúa henni við þá hefur það ekki tekist." - Þama er þó rétt að skUja undan sjö ára timabU á átt- Eldd fyrir menntuð fólk „Landsbyggðin virðist hafa lítið aðdráttarafl fyrir mennt- að fólk. Vesturland, Vestfirðir, Norðurland vestra og Aust- firðn: hafa misst frá sér 60-70% af þeim sem fæddust á ár- unum 1968-72, bjuggu þar 1988 og tóku lán hjá LÍN tU fram- haldsmenntunar. AUir þéttbýliskjamar á landsbyggðinni hafa neikvæðan flutningsjöfnuö fyrir menntað ungt fólk gagnvart Reykjavík og nágrenni Reykjavíkur. Þótt Akureyri hafi neUrvæðan flutningsjöfnuð gagnvart Reykjavík er hann jákvæður gagn- vart öUum öðmm stöðum úti á landi. Hins vegar standa margir þéttbýliskjarnar úti á landi bet- ur að vígi sem búsetustaðir fyrir ómenntaða en menntaða, sérstaklega héraðsmiðstöðvar. Akureyri, Sauðárkrókur, Húsavík, EgUsstaðir, Höfn í Homafirði og Selfoss draga að sér fjölda fólks frá sínu svæði, svo dæmi sé tekið. Raunar er það svo að fleiri ómenntaðir flytja frá Reykja- vík en koma tU borgarinnar á ákveðnu aldursbUi. í þessu felast bæði góðar fréttir og slæmar. Það hlýtur að teljast já- kvætt ef þéttbýli á landsbyggðinni nær að halda a.m.k. ein- hverju af aðdráttarafli sinu fýrb' þennan hóp fólks.“ Sveinn Agnarsson, Axel Hall og Ásgeir Jónsson sömdu byltingarkennda skýrslu um byggðamál þar sem sagt er frá bvltingu sem Ásgeir telur að þegar sé orðin. I)V-mynd GVA Þetta hljómar óneitanlega etns og landsbyggðin sé hægt og hægt að breytast í þann hluta landsins þar sem aðeins búa miðaldra og eldri og fáir hafa menntun um- fram skyldunám. Á sama tíma vUja aUir búa í Reykjavík og nágrenni en í skýrslunni er sagt að einpóla samfélag, eins og það sem hefur myndast hér á landi með þéttri byggð á einu landshomi, eigi sér varla hliðstæðu nema i þriðja heiminum. Sú þversögn er kynnt I skýrslunni að bættar samgöng- ur geti unnið gegn smærri byggðum með því að ýmis verslunar- og þjónustufyrirtæki verða undir i samkeppni við fyrirtæki í stærra þéttbýli. En vitaskuld hljóta betri samgöngur að auka lifsgæði einstaklinga á staðnum. Hins vegar gætu bættar samgöngur fært byggðina út úr Reykjavík tfl byggðakjama innan 1-2 klukkutima akst- ursfjarlægðar frá borginni. Mjög fá merki em þó um það að „flóttinn úr Reykjavík" muni skUa sér tU jaðar- byggða, m.a. vegna þess að byggðarkjamar á áhrifasvæði Reykjavíkur geta boðið upp á allt það hagræði sem dreif- býli býður upp á, en með mun minni flutningskostnaði en þær byggðir sem fjær liggja. Samkeppnin um fólkið er því ekki aðeins háð á milli höfuðborgarsvæðis og lands- byggðar heldur einnig á milli staða úti á landi. Þessi samkeppni er háð á tvennum vígstöðvum: á grundveUi atvinnu, launa og kostnaðarhagræðis, en einnig á sviði félagslegra aðstæðna, tækifæra og lífskjara. Þéttbýlisnniidun eins og í þriðja heiminum DV gekk á fund Ásgeirs Jónssonar, sveitapUts frá Hól- um, sem er fluttur á mölina eftir langt nám í hagfræði, en Ásgeir er einn þriggja höfunda skýrslunnar. Hinir era Sveinn Agnarsson og Axel HaU. Við byrjuðum á því að tala um fyrirbærið byggða- stefhu í þeim skilningi að ríkisvaldið beiti sértækum að- gerðum tfl að draga úr fólksflutningum. Enn er talað um byggðastefnu í ræðum stjómmálamanna þótt fólki hafi fækkað í dreifbýli en fjölgað í þéttbýli síðustu 100 ár, eða þar um bU. Hvað er byggðastefha gamalt hugtak? „Ólafur Ásgeirsson sagnfræðingur segir í bók sinni, Iðnbylting hugarfarsins, aö þverpólitisk átök um byggða- mál hafi ráðið meiru um þróun íslensks þjóðfélags en átökin miUi hægri og vinstri í stjómmálum," segir Ás- geir sem segir að íslenskt þjóðfélag hafi staðið kyrrt fram tU loka nítjándu aldar en skömmu eftir það hafi farið af stað mjög hröð þéttbýlismyndun sem tengja megi ýms- unda áratugnum, þegar það sem kaUaö má „skuttogara- tímabU“ stóð yfir, en Ásgeir segir að sá tími sé um margt sérstæður og ekki gott að bera ástandið saman við aðra tíma. „Skuttogaravæðingin hreif þannig að fólki fjölgaði tímabundið á smærri þéttbýlisstöðum en það var skammgóður vermir." - Er hægt að benda á einhver lönd sem sambærUeg era við ísland þar sem aðgerðir af þessu tagi hafa borið einhvem árangur? „Þegar reynt er að hafa áhrif á þróun og búsetu með þessum hætti má ef tU vUl koma í veg fyrir brottflutning en í staðinn geta myndast það sem kaUa má fátæktar- gUdrur þar sem laun era verulega lægri en annars stað- ’ ar. Það má kannski segja að helsti árangurinn af byggða- stefhu á íslandi sé sá að slíkar fátæktargUdrur séu ekki tfl. Samt era laun í ákveðnum greinum áberandi hærri í Reykjavík og nágrenni en úti á landi og bUið hefur auk- ist hröðum skrefum á síðustu sex árum. Á mörgum stöð- um úti á landi er tekjudreifing jafnari þótt það sé ekki einhlítt." Álver á Reyðarfirði hefur engin álirif - Þessi skýrsla segir okkur því að ef tU vill beri byggðaaðgerðir ekki árangur heldur fresti aðeins óum- flýjanlegri þróun. Stærsta deUumál okkar samtima, bygging virkjunar og álvers á Austurlandi, er kynnt sem mikUvægt byggðamál. Mun bygging hennar hafa þau áhrif á byggðina sem fuUyrt er? „Kárahnjúkavirkjun er fyrst og fremst byggðaaðgerð fyrir Austfirði. Ef álver og virkjunin era byrjun á vaxt- arferli, þar sem fleiri fyrirtæki koma í kjölfarið og e.k. þéttbýlishringrás kemst af stað, þá mun aðgerðin styrkja Austfirði verulega. Ef álverið kemur hins vegar aðeins eitt og stakt mun fólki líklega fjölga en vöxturinn á svæö- inu stöðvast um leið og framkvæmdimar hætta, og þá hefur álverið líklega engin áhrif á byggðaþróun á Aust- urlandi þegar tfl lengri tima er litið." - Byggðamál hafa aUtaf verið viðkvæmt umræðuefni á íslandi þar sem menn tala um gjá mUli landshluta og umræðan oft verið gUdishlaðin í pólitískum skUningi. Hefur þetta verið erfitt fyrir sveitastrákinn og hagfræð- inginn? „Sem hagfræðingur verður maður að aöskUja fagleg
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.