Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2003, Side 40

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2003, Side 40
Helgorhlctö DV LAUGARDAGUR i. FEBRÚAR 2003 Horfin fóm- arlömb og ófundinn morðingi Hvort myrtar voru tvær eða fjórar mann- eskjur íog við hjólhýsi úti ísveit i Okla- homa rétt um þúsaldarmótin er enn ráð- gáta. Þóttjátning liggi fgrir, þarsem mik- ilvirkur fjöldamorðingi segist hafa tekið fólkið af lífi, er hún ótrúverðug og enginn veit hver var að verki né hvar tvær stúlkur sem voru á staðnum eru niðurkomnar, lífs eða liðnar. Meðal grunaðra er lögreglan á staðnum og jafnvel stúlkurnar tvær sem hvergi finnast. En allt er þetta íóvissu Það var í síðustu viku desembermánaðar 1999 sem stórt hjólhýsi, bústaður heiiiar fjölskyldu, brann í dreifbýli Oklohoma. Tvær manneslgur fundust í rústhmi, miðaldra hjón, en dóttir þeirra og vinkona hennar sem þama voru líka, að því er ætlað er, fundust hvergi. Hjónin hétu Kathy og Danny Freeman. Ashley dóttir þeirra og vinkona hennar Laurie Bible eru horfnar og fmn- ast hvergi. íjöldamorðingi i dauðadeild í Texas vill gjamar játa á sig morðin á þeim öllum íjórum þótt ólíklegt þyki að hann hafi verið þar nærri, en ekki með öllu útilokað. En hann er búinn að myrða svo marga, fullur og dópaður, að það munar lítið um þótt hann játi á sig nokkur dráp til viðbótar. Sá heitir Tommy Sells og bendir felst til þess að honum hafi tekist að myrða allt að 50 manns á tuttugu ára timabili. Kenningin um að lögeglumeiáí hafi verið að verki byggist á því að sonur Freeman-hjónanna var skotinn til bana af lögeglunni fyrr á árinu þegar hann var tekinn á stolnum bíl. Lögreglan heldur því fram að um skotbardaga hafi verið að ræða en illa hefur tekist að sanna að strákurinn hafi verið með byssu og því hafi lögreglan drepið hann að ástæðulausu, en foreldramir heimtuðu rannsókn á atvikinu. Grunsemdimar um að horfhu stúlkumar hafi myrt hjónin og stungið af fæst illa stað- ist en ekki er útilokað að svo sé. Eitt er þó víst, sem er að vettvangs- rannsókn á morðstaðum var hörmulega illa gerð og lögreglunni til van- sæmdar. Þrátt fýrir alls konar illspár og kvíða rétt fyr- ir þúsaldarmótin var morðaldan í BNA stöðug, sem er að 5,7 af hveijum 100,000 íbúum em myrtir árlega. En táningurinn As- hley Freeman hafði litl- ar áhyggur af þessum hagtölum. Hún átti 16 ára afmæli 29. janúar 1999. Fyrir afinælisdag- inn kom jafhaldra henn- ar og besta vinkona, Laurie Bible, í heimsókn og ætlaði að gista. Þær ætluðu svo að halda myndarlega upp á tíma- mótin næsta dag. Móðir hennar, Lorena, kvaddi dóttur sína kl.18.30 og þótti ekkert eðlilegra en að vmkonumar fengju að vera saman um nótt- ina heima hjá Ashley. Freeinan-fjölskyldan, sem nú er myrt eða horfin. Standandi er sonurinn Sliane sem lögeglan skaut til bana. Hjónin Danny og Kathy voru skotin og brennd af óþckktum morðingja og dóttirin As- liley er horfin af yfirborði jarðar og enginn veit hvar hún eða lík hennar er niðurkomið. Vinkonurnar Ashley og Laurie sem livergi finnast og er lcitað um gjörvöll Bandaríkin, lífs eða liðinna. Morð og ílo eilija Klukkan sex næsta morgun varð maður á leið til vinnu var við að húsvagn stóð í ljósum logum. Þegar slökkviliðið kom að var hann alelda og varð ekkert við ráðið. Lorena móðir Laurie vr komin til vinnu sinnar í McDon- alds, þar sem hún veitti veitingastaðnum fostöðu, þegar son- ur hennar hingdi og sagði henni frá brunanum. Hún hringdi þegar í stað í númer Freeman-hjónanna en enginn svaraði. Skömmu síðar kom varalögreglustjóri staðarins til hennar og sagði að fundist hefði eitt lík í fremra svefnherbergi húss- ins en bætti við að þeir vissu ekki enn hvað ætti eftir að finn- ast í rústunum. Þegar Bible-hjónin komu á staðinn var rústin ein efir en eldurinn var slökktur. Eitt lík var fundið og var staðfest að það væri Kathy Freeman, sem náði 37 ára aldri. Brunnið lík- ið var nakið og lá á grúfu. En bruninn var ekki dauðaástæð- an. Mikill hluti andlitsins og höfuðkúpunnar var illa farinn því konan hafði verið skotin með haglabyssu af stuttu færi. Morðinginn hafði greinilega kveikt í eftir morðið og var eldurinn kveiktur við eldavélina tO að svo hti út að þar hefðu upptökin verið. Fyrst í stað var því slegið fóstu að Danny Freeman, 40 ára, hefði myrt konu sina og stungið af. Jlann var með afbrotafer- il að baki og var þekktur fyrir fólskulegt bráðræði. En und- arlegt þótti að allir bílar fjölskyldunnar voru á stæðinu þar nærri og lykillinn að bíl Kathy var við lík hennar. En fleira átti eftir að koma í ljós. Bible-hjónin voru tekin til yfir- heyrslu þar sem dóttir þeirra var horfin. En eftir að þeim var sleppt fóru þau aftur á brunastaðinn sem eítki var lengur girtur af. Lögeglumaður sagði þeim að fréttir hefðu borist um að Danny Freeman og stúlkumar tvær hefðu sést í hvítum pall- bfl nærri bústað um tvær mflur í burtu. Næsta dag fóru þau hjónin aftur að brunarústinni í þeirri von að frnna þar eitthvað sem gæti bent tfl hvað orðið hefði af dóttur þeirra. Eftir aðeins fimm mínútna leit fúndu þau, sér til mikillar fúrðu, líkið af Danny Freeman. Það var að hluta tfl undir brunnu teppi og rétt við þann stað þar sem lík konu hans hafði fundist daginn áður. Hann hafði líka verið skotinn í hnakkann með haglabyssu og var útlitið eftir því. Ljóst var að búið var að traðka á líkinu. Lögreglumenn og aðrir sem komu að líki konunnar og báru það á brott höfðu gengið á hinu líkinu og voru fótspor á brunnum skrokknum og fótunum. Svo ótrúlegt sem það var fundu lögeglumenn ekki líkið sem þeir gengu á og virðist öll rannsókn málsins hafa verið eftir því. Lorena fann einnig tösku dóttur sinnar við húsvegginn og voru 200 dollarar í því, sem útilokaði að um ránmorð hefði verið að ræða. Lorena tók nú til sinna ráða. Sem kunnugt er eru fyrstu tveir sólarhringamir eftir að glæpur er framinn mikilvægast- ir til að komast að hinu sanna. Nú var búið að eyða miklu af þeim tíma til einskis. Kenningin um að Danny hefði myrt konu sína og farið á brott með stúlkunum var fallin og mál- ið allt komið á byrjunarreit. Hún hafði samband við Steve Nutter sem vann hjá rann- sóknarlögreglu Oklohoma-ríkis og tók hann við yfirrannsókn málsins. Hún benti á hve hraksmánarlega hefði verið staðið að rannsókninni og var nú tekið tfl höndunum af alvöru. Ejöldi rannsóknarmanna var settur í málið og var leitað ná- kvæmlega í brunarústunum. Þar fundust 14 byssur en engin þeirra var morðvopnið. Fjölskyldan var greinilega fyrir skyttirí og meira að segja Ashley átti sina eigin byssu sem hún notaði til kanínuveiða. En ekkert fannst sem benti til hvað orðið hafði af stúlkun- um tveimur né hver hafði myrt hjónin og kveikt í bústað þeirra. SífeUt duIarfyUra Lorena sagði síðar að lögreglurannsóknin hefði verið í slíkum molum að hún og maður hennar hefðu ákveðið að þau væru sjálf líklegri til að finna dóttur sína en lögreglan. Þau fengu vini og kunningja til að aðstoða við leitina og í fyrstu var farið i gegnum alla rústina og nágrenni í leit að einhverju sem gefið gæti vísbendingu um hvað orðið hefði af stúlkunum. Æ fleiri sjálfboðaliðar bættust í hópinn á næstu dögum og voru allt að 500 manns við leitina þegar mest var. Það tók tvær vikur að fá yfirvöldin tfl að auglýsa eftir stúlkunum sem „týndum persónum". Þær voru um síðir sett- ar sem slíkar á skrá alríkislögreglunnar og er þar með lýst eftir þeim um öll Bandaríkin. Erfitt er að fallast á þá tilgátu að stúlkumar hafi myrt hjónin og kveikt í. Bíll Laurie var á sínum stað. Veski henn- ar með peningum og nafnskírteini var einnig fundið. Daginn eftir morðið ætlaði Ashley að láta taka af sér mynd og fara með hana í ráðhúsið til að fá sitt fyrsta ökuskírteini. Sá síðasti sam sá þær stöllur er Jeremy Hurst, 17 ára einkavinur Ashley. Hann segist hafa kvatt þær í hjólhýsinu kl. 21.30 kvöldið 29. desember. Fyrr um kvöldið höfðu þau far- ið út að fá sér pitsu en áður en hann yfirgaf selskapið vour stúlkumar komnar í náttfötin og horfðu þau á sjónvarp og borðuðu tertu í hýsinu og allir vom glaðir og ánægðir. Pilt- urinn var hreinsaður af öllum grun um að vera valdur að ódæðinu. Heitið var 50 þúsund dollara verðlaunum fyrir upplýsing- ar sem leitt gætu til þess að hvarf stúlkanna upplýstist og leit- in að þeim varð víðtækari. Var meðal annars leiltað með fjar- stýrðum myndavélum í vatnsfylltum námugöngum og í vötn- um og ám, en án árangurs. Vandamenn Freeman-fjölskyldunnar hallast að því að samband sé á mflli dauða hins 18 ára sonar þeirra sem lög- reglan skaut og morðsins á foreldrum hans og hvarfs stúlkn- anna. En ekkert hefur sannast í þá átt. Lögeglumenn hfa þó aldrei verið hreinsaðir fúllkomlega af því að eiga þátt í glæp- unum. Vafasöm játning Einn mikilvirkasti ijöldamorðingi BNA, Tommy Sells, hef- ur játað á sig morðin en erfitt er að sannreyna framburð hans. Daginn eftir að húsbfllinn brann í Oklohoma braust fjöldamorðinginn Tommy Sells inn í hjólhýsi í Del Rio í Texas og myrti 13 ára stúlku og skar jafiiöldru hennar á háls, en hún lifði af og gat sagt tfl morðingjans. Sells játaði á sig um 50 morð og kvaðst ekki muna betur en að hann hefði gengið frá fólkinu i Oklohoma, en það væri bæði auðvelt og skemmtflegt aö brjótast inn í hjólhýsi og stúta íbúum þeirra. Langt er á milli morðstaðanna en ekki útilokað að fjöldamorðinginn hafi komist þá leið samt og drýgt alla glæpina. En minni hans er stopult vegna drykkju og eiturlyfjanotkunar og hann er ekki alveg viss um hvað hann gerði við lík stúlknanna tveggja sem hvergi finnast. Málið er því enn óupplýst og verður það væntanlega þar tfl hægt verður að komast að því hvað varð um ungu vinkon- umar Laurie og Ashley, lífs eða liðnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.