Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2003, Qupperneq 11
MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 2003
DV
Utlönd
11
CIA varar við
hryðjuverkum
- hermenn við öryggisgæslu á Heathrow
George Tenet,
yfirmaöur banda-
rísku leyniþjón-
ustunnar CLA, var-
aöi í gær við hugs-
anlegum hryðju-
verkaárásum í
Bandaríkjunum
eða Mið-Austur-
löndum á næstu
dögum og hætt-
unni á að efna-
vopn eða jafhvel
geislavirk efni
yrðu notuð.
Þetta kom fram á fundi Tenets
með bandarískri þingnefnd í gær og
sagði hann að mjög áreiðanlegar
leynilegar vísbendingar bentu til
þess að hryðjuverkahópar ætluðu að
láta til skarar skríða á BNAog á
Arabíuskaga í lok Hajj-trúarhátíðar
múslíma sem lýkur á laugardag.
Trent sagði að í síðustu viku
hefðu borist mjög trúverðugar vís-
bendingar um hugsanleg hryðju-
verk frá aðilum
sem hefðu sterk
tengsl við al-
Qaeda og hefði
auknu hættu-
ástandi því strax
verið lýst yfir og
það fært upp í
næsthæsta stig.
„Við tökum
slíkar vísbending-
ar mjög alvarlega
og í þetta skiptið
teljum við sér-
staka ástæða til þess,“ sagði Tenet
og bætti við að lítt varðar byggingar
eins og verslunarmiðstöðvar og há-
skólar væru í sérstakri hættu.
Á sama tíma voru miklar öryggis-
ráðstafanir i gangi á Heathrow-flug-
velli í Lundúnum en þar höfðu um
450 hermenn tekið sér stöðu vegna
ótta við hugsanleg hryðjuverk sem
al-Qaeda-samtökin hefðu skipulagt á
flugvellinum eða einhvers staðar í
bresku höfuðborginni.
Aukin öryggisgæsla á Heathrow
Um 450 hermenn voru í gær
kallaöir út til öryggisgæslu á
Heathrow-flugvelli í Lundúnum.
REUTERS
Lltla stúlkan meö epllö
Þessi unga snót gæóir sér á epli meö bestu lyst á meöan eldri stöllur henn-
ar biöja til guös á fyrsta degi Eid al-Adha hátíöarinnar í Jakarta í gær.
Indönesía er fjölmennasta múslímaríki heims, meö 210 milljónir íbúa.
Bin Laden hvetur til
samstöðu gegn BNA
Al-Jazeera sjónvarpsstöðin sendi
í gær út skilaboð á hijóðupptöku,
sem sögð eru frá hryðjuverkafor-
ingjanum Osama bin Laden, þar
sem hann heyrist hvetja múslíma
um allan heim til að sameinast í
stuðningi við íraka í baráttu þeirra
gegn yfirvofandi árás Bandaríkja-
manna.
Á upptökunni, sem er mjög óskýr,
heyrist röddin hvetja til sjálfs-
morðsárása gegn Bandaríkjamönn-
um, sem þeir hræðist hvað mest, og
andstöðu gegn hvers konar árás á
írak.
Skilaboðin berast beint ofan í
harðnandi deilur um fyrirhugaðar
hernaðaraögerðir Bandaríkjamanna
og sögðu bandarískir embættismeim
í gær að þau virtust ósvikin og ein-
ungis ætlað að sá efasemdum og ótta
og um leið hvetja til samstöðu um
hryðjuverk.
Colin Powell, utanríkisráðherra
Osama bln Laden.
Bandaríkjanna, tók í sama streng og
sagði að skilaboðin sýndu og sönn-
uðu tengsl íraka við hryöjuverka-
hópa.
„Þegar ég hlustaði á upptökuna
var ég sannfærður um að þetta var
rödd bin Ladens," sagði Yasser Tha-
bet, einn útsendingarstjóra Al-Jaz-
eera.
HEILSUÁTAK
Þjálfunar og æfíngarpunktar
Það ætti að segja sig sjálft að áhrifaríkasta leiðin til að auka
hitaeiningabrennslu er að temja sér meiri hreyfingu. Því miður hættir
okkur, þeim fullorðnu, til að gleyma því sem börnin okkar vita mætavel
að það er gaman að hreyfa sig. Og við gleymum því líka að við ættum
að hreyfa okkur af því að hreyfingin gerir okkur gott en ekki af því að
við bara verðum. Regluleg þjálfun er vafalaust aðalhjálpin í að halda
aukakílóunum frá. Og ekki er það síður mikilvægt að reglubundin
líkamsþjálfun hefur jákvæð áhrif á heilsuna að mörgu öðru leyti. Sem
dæmi má nefna að reglubundin þjálfun dregur úr líkum á að fólk verði
fyrir barðinu á sjúkdómum, tengdum offitu, eins og fullorðinssykursýki,
vissum tegundum krabbameina, háum blóðþrýstingi, hjarta- og
æðasjúkdómum og of háum blóðþrýstingi. Þar að auki virkar
reglubundin þjálfun sem áhrifaríkt "meðal" á andlega heilsu með því að
draga úr streitu og vinna gegn þunglyndi.
Matseðill dagsins
Dagur 3
Morgunverður: Heilhveitibrauð, 30 g = 1 sneið
Lifrarkæfa, 15 g = 1 msk.
Ávaxtasafi, 2,5 dl = 1 glas
Kíví, 2 stk.
Hádegisverður: Aldingrautur, 3 dl = 1 diskur
Tvíbökur, 2 stk.
Fjörmjólk, 2,5 dl = 1 glas
Miðdegisverður: Rúnnstykki, 60 g = 1 stk.
Smurostur, 30 g = 2 msk.
Appelsína, 1 stk.
Kvöldverður: 1944/ Indverskur, 1 pakki lambakarríréttur
I Til umhugsunar: Það er vitað mál að neysla fæðubótarefna, eins og
I vítamína og steinefna, á stundum rétt á sér og stundum geta skapast .
I aðstæður þar sem slíkt er nauðsynlegt, eins og ef einstaklingur mælist vera
| með lágan járnbúskap. En það er einnig vitað mál að óhófsneysla
| '*"** 1 íÆ fæðubótarefna getur haft hættu í för með sér. Eins og með flestallt: "Hóf
fc | er á öllu best". Ef einstaklingur vill tryggja sig næringarlega er ekkert sem
■V mælir á móti því að viðkomandi gæði sér á eins og einni fjölvítamín- |
/steinefnatöflu á dag og teskeið af lýsi. En hafa ber hugfast að fjölbreytt
I fæði er þrátt fyrir allt besta leiðin til að nálgast þau efni sem mannslíkaminn
I þarf á að halda. Og vert er að hafa í huga að þrátt fyrir umtalsverða
■■■■^^^H þekkingu manna á mörgum efnum sem leynast í fæðu er fjöldi efna lítt sem
Kveðja, Ólafur G. Sæmundsson næringarfræðingur j
FRITT I 3 DAGA HReyfiriG
Ef þú hefur ekki æft í Hreyfingu áður en langar til að prófa bjóðum við þér
að koma og æfa frítt í þrjá daga til reynslu gegn framvísun þessa miða.
Hríngdu í síma 568-9915 og pantaðu tíma hjá ráðgjafa. cudirtíi 1. apmzoos