Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2003, Blaðsíða 12
12
____________________________________________________________________MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 2003
Skoðun X>-\ir
Þingmenn eða ekki þingmenn?
Þingmenn skulu eingöngu bundnir störfum sem snerta töggjafarvaidiö, segir
Stjórnarskráin.
Spurning dagsins
Hefurðu farið í leikhús
í vetur?
Sandra Ósk Karlsdóttir nemi:
Nei, en ég er á leiö á
Versió-sýninguna.
María Araseli Quintana nemi:
Nei, en ég ætla aö sjá sýninguna hjá
Verslunarskólanum.
Tinna Jökulsdóttir nemi:
Nei, en ég er á leiö á
Versló-sýninguna.
Arnór Fannar Theódórsson nemi:
Nei, en mig langar í leikhús.
Sigurjón Árni Pálsson nemi:
Nei, mér finnst ekki gaman
í leikhúsi.
Siguröur Ásgrímsson nemi:
Nei, og mig langar ekki aö fara.
Tryggvi Bjarnason
skrifar:_________________________
Skýrt er tekið fram í Stjórnar-
skrá Lýðveldisins íslands að þing-
menn megi ekki vera bundnir
öðru en þviÝ sem við kemur lög-
gjafarvaldinu og ekki neinum at-
vinnurekstri, framkvæmdastjórn
eða verkalýðsforystu utan við
þingheim. Þetta virðist vera kom-
ið í algjöra vitleysu. Og hvemig er
ætlast til að almúginnÝ fari eftir
lögum þegar ráðherrar og þing-
menn (framkvæmdavaldið) og lög-
gjafarvaldiðfara ekki eftir þeim
lögum?
Flokkar og stjórmmálasamtök
hafa alltaf tekið þaö skýrt fram
svo lengi sem maður man að ekki
eigi að blanda saman þingkosn-
ingum og sveitarstjórnarkosning-
um, það Ýtvennt sé ólíkt. En ann-
að hefur komið upp á daginn
núna. Flokksforysta hefur bæði
áhrif (afskipti) á þing- og sveitar-
stjórnarkosningar. Nýjasta dæmið
er í Reykjavík, sérstaklega úr
Framsóknarflokknum, þar sem
formaður þess flokks hefur bein
afskipti af R-listanum.
Landsmálapólitíkus á ekki að
skipta sér af ákvarðanatöku ein-
stakra sveitarfélaga, það er fólkið
í sveitarfélaginu sem er búið að
taka ákvörðun í kosningunum það
hver á að stjórna viðkomandi
sveitarfélagi. Til þess er lýðræðið
sem við búum við. Vilji t.d. Fram-
sóknarflokkurinn fara að stjórna
eftir Sovétkerfinu gamla, þá hann
um það. Það er þá ákvörðun kjós-
enda hvort svo skuli vera, það
kemur í ljós. En það verða að vera
skil á milli landspólitíkur og sveit-
arstjórnar. Það er nú krafa okkar
að þeir (þau) sem eru við bæði
borð sjái sóma sinn í að vera ann-
að hvort þingmaður eða sveitar-
stjórnarmaður.
Og hugleiðing um næstu kosn-
Ragnhiidur Þórarinsdóttir
skrifar:
Ég var að lesa I dálkunum Bréf
til blaðsins í Morgunblaðinu í síð-
ustu viku, þar sem Guðmúndur
Bergsson óskar eftir því að eldri
borgarar í Reykjavík fái að dreifa
greiðslu fasteignagjalda á níu mán-
uði. Ég styð tillögu hans að því
leytinu að auðvitað er lengri
greiðsludreifing betri en sú sem nú
er, en mun betra þætti mér þó ef
Reykjavíkurborg færi að fordæmi
Kópavogs og Garðabæjar og veitti
öllum eldri borgurum og öryrkjum
afslátt af fasteignagjöldunum.
Þar er afslátturinn hátt í 40 þús-
und krónur, óháð því hvaða tekjur
eldri borgarar og öryrkjar eru
„Landsmálapólitíkus á ekki
að skipta sér af ákvarðana-
töku einstakra sveitarfé-
laga, það er fólkið í sveitar-
félaginu sem er búið að
taka ákvörðun í kosningum
um það hver á að stjóma
viðkomandi sveitarfélagi. “
ingar: Skyldi það verða ofan á að
enginn ráðherra Framsóknar-
flokksins nái kjöri inn á þing?
Kannski landbúnaðarráðherrann
sleppi. Það myndi verða svar kjós-
enda við svikum Framsóknar-
flokksins. Þó sérstaklega gagnvart
eldri borgurum. Eða hver man
ekki eftir bjarsýnisverðlaununum
til eldri borgaraÝ og öðrum loforð-
um sem Framsóknarflokkurinn
gekk með í hús eldri borgara? Að
Fyrrverandi borgarstjóri,
Ingibjörg Sólrún, vildi
aldrei styðja almennilega
við bakið á eldri borgurum
og ítrekað hefur hún fellt
tillögur um að allir eldri
borgarar fái afslátt af fast-
eignagjöldunum.
með. Systir mín sem býr í Garða-
bæ í sambærilegri íbúð og ég borg-
ar nú 9 þúsund króna fasteigna-
gjöld af sinni íbúð á meðan ég
borga yfir 40 þúsund krónur í
Reykjavík.
ekki sé nú talað um atvinnu -
15.000 fyrir aldamótin - en viður-
kenndi að fjölgun starfa hefði ekki
verið nema um 6.000 störf fyrir
aldamótin en létu ógert að upp-
lýsa, þjóðina um að af þessum
6.000 störfum voru nærri 4.000
störf erlent vinnuafl.
Á árunum 1992-1995 töpuðust
um 5.300 störf í landinu - bein af-
leðing EES-samningsins - en með
þeim samningum sögðu kratar að
störfum myndi fjölga í landinu.
Það fór þó á annan veg, störfin
fóru úr landinu, auk þess sem
hann opnaði fyrir erlent vinnuafl
til landsins. Og enn er erlent
vinnuafl i þeim störfum sem töp-
uðust og þeim nýju, þökk sé
stærsta innflytjandanum, félags-
málaráðherranum. Þetta er hagur
fyrirtækja en tap fyrir ríkissjóð í
öllu tilliti (skattar og miklar fé-
lagslegar bætur). Þingmenn, sveit-
arstjómarmenn: stokkið nú upp í
störfum ykkar!
Fyrrverandi borgarstjóri, Ingi-
björg Sólrún, vildi aldrei styðja al-
mennilega við bakið á eldri borgur-
um og ítrekað hefur hún fellt tillög-
ur um að allir eldri borgarar fái af-
slátt af fasteignagjöldunum. Hún
var þó hrakin til baka þegar hún
svo ætlaði að loka nokkrum félags-
miðstöðvum eldri borgara í haust.
Það er nú orðið ljóst, að Samfylk-
ingin undir hennar forystu mun
ekkert gera fyrir eldri borgara,
þrátt fyrir fagurgalann nú þegar
styttist í alþingiskosningar.
Það er staðreynd að mun betur
er hugsað um hag eldri borgara
þar sem sjálfstæðismenn eru í for-
ystu í sveitarfélögunum í kringum
Reykjavík.
Ingibjörg Sólrún og eldri borgarar
Fjármálafælni
Loksins er komið fram mein sem er í ein-
hverjum takti við líðan Garra. Það er sumsé
búið að uppgötva nýjan sjúkdóm sem heitir
fjármálafælni. Það var og.
Sjúkdómar mátaðir
Garri hefur verið aö reyna að máta sig við
ýmsa nýjustu sjúkdómana sem hafa verið að
koma fram með reglulegu millibili á síðustu
misserum, en það er nokkurn veginn sama
hvernig hann hefur reynt - enginn þessara
sjúkdóma hefur hentað likamlegu og andlegu
ástandi Garra. Þetta hefur farið svolítið á
sinnið á honum, það er eins og hann hafi staö-
ið einn. Allir félagar hans, allt í kringum land-
ið, geta rætt það sín á milli hvað amar að
þeim og jafnvel gengið í félög og komist til
metorða í Landssamtökum áhugafólks um vél-
indabakflæði, SÁÁ, Gigtarfélaginu, LAUF,
SÍBS eða Psoriasis-samtökunum. Af nógu er
að taka.
Fundinn sjúkdómur
En nú getur Garri loksins á heilum sér tek-
ið, að svo miklu leyti sem nokkur maður er
heill. Hann hefur fundið sjúkdóm sinn sem er
UIU í 1*1 I I 14 I! • 1 11 * lltl UMl
meira og minna andlegur
enda þótt sérfræðingar segi
að allt að tólf prósent þeirra
sem haldnir eru þessu meini
finni fyrir líkamlegum ein-
kennum. Garri er með fjár-
málafælni.
Hann hefur nefnilega
alltaf átt í mesta basli með
að opna gluggaumslög. Þetta
veldur kvíða í lífi Garra,
jafnvel svo miklum að hann
þorir ekki heim síðustu dag-
ana fyrir mánaðamót þegar
flest umslögin berast inn
um lúguna. Og Garri fyllist
angist í hvert sinn sem hann rennir korti
sínu í gegnum raufina á móts við gjaldkerana
í Sparisjóðnum. Hann býst alltaf við höfnun.
Sérfræðingar telja að allt að tuttugu pró-
sent karla yfir þrítugt séu haldnir fjármála-
fælni eins og Garri.
Líkist annarri fælni
Að mörgu leyti líkist þessi sjúkdómur öðr-
um tegundum fælni á borð við innilokunar-
kennd og kóngulóarfælni. Fólk bara brestur í
námunda við vanda sinn. Og í tilviki Garra
hlaðast skuldimar upp.
Nú líður Garra hins vegar miklu betur en
áður. Hann veit hvað hrjáir hann og eins hitt,
hve margir aðrir em fælnir á fé.
Csfivrrl
Hatur vex í Þýskalandi
Sigurður Ólafsson skrifar:
Nú snarkólnar
í samstarfi milli
stærstu þjóðanna
á meginlandi Evr-
ópu og Bandaríkj-
anna. Ætlar ekki
friðurinn í álf-
unni að vara
lengur en þetta?
En alltaf skal
óeiningin byrja með einhverju
svona fáránlegu orðaskaki milli
þjóðanna. Og hver er nú fremstur
meðal jafningja í andstöðunni við
Bandaríkin? Jú, vamamrmálaráð-
herra Þýskalands, Joscha Fischer,
sá sami og var í slagtogi með
Bader-Meinhof óaldarflokknum
sáluga. Nú er Fischer þessi aftur
kominn í stuð og sýnir bæði
Bandaríkjamönnum og Sschröder
kanslara klæmar. Og flokkur
kanslarans er bundinn í báða skó -
á allt undir Græningjum.
Óstundvísir kaupmenn
Ólafur Einarsson hringdi:
Hér stend ég fyrir framan Hag-
kaup í Kringlunni, kl. 10.07 að
morgni, og tala í farsímann minn.
Ég var kominn upp úr kl. 9 í hús-
ið. En viti menn, hér eru búðið
ekki opnaðar fyrr en klukkan 10.
Ég beið og beið, klukkan varð 10,
en ekki sá ég neina búð opnaða
stundvíslega. Reyndar verið að
opna sumar í þessum töluðum orð-
um, og verið að hífa upp hlerana í
Hagkaupi. Mér finnst undarlegt að
auglýsa opnun einhverrar stærstu
verslunar landsins kl. 10 - en ekki
hægt að opna fyrr en sjö mínútum
síðar (óstundvísi starfsfólks?). Mér
finnst þetta ótækt. Óstundvísi er
að aukast hér og það er slæmt. í
sumum fyrirtækjum er fólki sagt
upp fyrir að mæta of seint - en
það á líklega ekki við í Kringl-
unni. Erlendis þætti það hneyksli
að verslun eins og Hagkaup opn-
aði ekki á slaginu.
Á Hlemmi.
- Gjörbreytt ástand til hins betra.
Jákvæð breyting
Kristinn Sigurðsson skrifar:
Við sem notum Strætó daglega
tökum eftir mjög jákvæðri breyt-
ingu á Hlemmi. Ág*ætir vaktmenn
sjá uma óæskilegt fólk sé ekki á
flækingi þar. Það er nú viðburður
að sjá þetta ólánsfólk þar, sem bet-
ur fer. Á aðaljámbrautarstöð
Kaupmannahafnar var óreglufólk
vandamál, þá var settur upp skáli
inni í stöðinni þar sem löggæsla
hafði aðsetur og hafði auga með
vandanum, og nú er þar ekkert
óreglufólk á stjái, líkt og sama
ástand þar og nú á Hlemmi. - Fal-
legur staður með góðu starfsfólki.
Atvinnulausir fjárfesti
Sigurður Sigurðarson skrifar:
Pétur Blöndal alþm. og sérfræð-
ingur í herslu á sultarólum ætti nú
þegar að efna til námskeiðs fyrir
þær þúsundir landa vorra sem at-
vinnulausir eru. Pétur gæti bent
námskeiðsþátttakendum á hvar
best væri að fjárfesta í bréfum sem
gægu góðan arð, því menn hafa jú
ekkert að gera við í neyslu allt
þetta fé sem þeir fá í atvinnuleysis-
bætur. Fundarstjóri gæti verið for-
sætisráðherra. Og þar sem búast
má við mikilli aðsókn veitti ekki
af þremur dyravörðum. Mín tillaga
í þau störf eru þeir Þórarinn V.
Þórarinsson, Friðrik Pálsson og
síðast en ekki síst Axel Gísalson.
Dv Lesendur
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eöa sent tölvupóst á netfangið:
gra@dv.Is
Eöa sent bréf til: Lesendasíöa DV,
Skaftahlíð 24,105 ReyKiavík.
Lesendur eru hvattir til aö senda mynd
af sér til birtingar meö bréfunum á
sama póstfang.
Joscha Fischer.