Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2003, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2003, Blaðsíða 9
9 LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 2003 DV Fréttir Sjávarútvegsráðherra á aðalfundi Samtaka verslunarinnar: Tilkynna á útflutning á óunnum og óvigtuðum afla Stjómkerfi fiskveiða á íslandi hefur verið umdeilt í gegnum tíð- ina þrátt fyrir að hafa skilað okkur þeim árangri að okkar helstu fiskistofnar standa traust- um fótum og eru í sókn um þess- ar mundir. Þetta er um margt einstæður árangur þar sem við heyrum sífellt fréttir af hruni stofna á hafsvæðum flestra þjóða sem stunda fiskveiðar í Noröur- Atlantshafi. Þar er ekki verið að leggja til aflaaukningu heldur stórfelldan niðurskurð og í sum- um tilvikum algert veiðibann. Þrátt fyrir þessa staðreynd hefur gustað um núverandi fiskveiði- stjórnunarkerfi og það verið um- deilt frá því það var tekið upp, sagði Ámi M. Mathiesen sjávar- útvegsráðherra á aðalfundi Sam- taka verslunarinnar. „Einn þáttur í því að auka verðmæti sjávarfangs er að gera sem mest verðmæti úr aflanum áður en hann fer úr landi. Reglu- lega kemur upp umræða um að stór hluti hans sé fluttur úr landi án þess að íslenskir fiskverkend- ur hafi tækifæri til þess að bjóða í hann. í ljósi þess og tillagna sem fram hafa komið í kjölfar fyrrgreinds nefndarstarfs á veg- um ráðuneytisins undirritaði ég reglugerð sem kveður á um að tilkynna skuli fyrirhugaðan út- flutning á óunnum og óvigtuðum afla sem fluttur er (þ.e. ekki vigtaður í íslenskri höfn) á er- lendan uppboðsmarkað með 24 tima fyrirvara. Þetta á við hvort heldur aflinn er fluttur með farmskipi eða veiðiskipi sem siglir beint af miðum með eigin afla á erlendan markað." Sú ríkisstjóm sem nú situr hefur haft það að leiðarljósi að búa atvinnulífinu heilbrigða um- gjörð svo fyrirtækin í landinu Frá fundinum í gær Tómas Ingi Olrich og Kristján Þór Júlíusson skoöa saman drög af samningi. Menningar- hús rísi í miðbænum Bæjarstjórinn á Akureyri, Kristján Þór Júlíusson, og Tómas Ingi Olrich menntamálaráðaherra héldu sinn fyrsta formlega fund um byggingu menningarhúss á Akureyri fyrradag. Á fundinum lagði Kristján Þór fram drög að samkomulagi milli Akureyrarbæjar og ríkisvaldsins um byggingu menningarhúss þar sem meðal annars er gert ráð fyr- ir að um verði að ræða eitt hús sem rísi á miðbæjarsvæðinu, nánar tiltekið á uppfyllingunni við Torfunefsbryggju. Ekkert ligg- ur fyrir varðandi stærð hússins, að sögn Kristjáns Þórs. „Það eina sem liggur fast fyrir er að ríkis- sjóður ætlar að leggja milljarð í verkið," segir Kristján. Menntamálaráðherra tók drög- unum vel og verða þau lögð fyrir ríkisstjórnarfund á næstunni. Kristján Þór segir vonir standa til að framkvæmdir hefjist innan tólf mánaða. -ÆD geti vaxið og dafnað. Sú tíð er liðin að dyntir stjórnmálamanna ráði afkomu einstakra fyrirtækja sem betur fer. Við höfum nýver- ið heyrt að búið sé að dusta ryk- ið af stefnu sem byggist á göml- um og úreltum sjónarmiðum. Undirtónninn er aJfturhvarf til fortíðar þar sem aukin ríkisaf- skipti þykja ekkert tiltökumál, eins og að stýra vöxtum bank- anna. Slíkt umhverfi ríkis- afskipta er atvinnulífinu síður en svo til góðs. Við þurfum að horfa fram á veginn og halda áfram að auka frelsi í viðskipt- um því engum er betur treystandi til að tryggja eðlilegt viðskiptaumhverfi en forystu- mönnum fyrirtækjanna sjáífra,“ sagði sjávarútvegsráðherra. -GG Barnaspítali Hringsins hlýtur gjöf frá SKB Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna færði Barnaspítala Hringsins fullkom- inn fjarkennstubúnaö til kennslu og samskipta fyrir börn á spítalanum í gær. Á íslandi greinast aö meöaltali 10-12 börn árlega meö krabbamein og meö kennslubúnaöi þessum geta börn tengst skólum sínum og bekkjarfélögum. ‘Miðast við að greitt sé með Visa- eða Euroraðgreiðslum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.